Þjóðviljinn - 09.06.1989, Page 19
Hrefna Magnúsdóttir: „Gömlu læknisaðferðimar ættu að vera kennd-
ar í skólum."
Líkaminn eini læknirinn
Hrefna Magnúsdóttir, áhugamanneskja um
heildrænar lækningar, „reiki“, svæða-,
djúpslökunar- og lífsorkunudd:
„Á þeim rúma áratug sem ég
hef verið að leita að leið til að
hjálpa mér og mínum nánustu til
að halda heilsu og líða vel, hefur
orðið mikil breyting á viðhorfi al-
mennings til nútíma læknavís-
inda. Pað er kannski táknrænt að
þegar læknavísindin eru orðin
svo háþróuð að líffæraflutningar
og glasabörn eru að verða daglegt
brauð, þá eru grafnar upp æva-
fomar lækningaaðferðir, sem all-
ar eiga að stuðla að því að lífsork-
an geti óhindrað flætt um líkam-
ann til að koma í veg fyrir að fólk
missi líffæri sín. Því ekki væri það
fögur framtíðarsýn ef allir treystu
á að fá ný líffæri þegar þau gömlu
eru ónýt.
Og það er athyglisvert að hér á
íslandi, sem telur sig vera með
eitt besta heilbrigðiskerfi í heimi
og réttur einstaklingsins er hátt
metinn, þá eru þessar gömlu og
áhrifarflcu aðferðir sem ættu með
réttu að vera almenningseign og
kenndar í öllum skólum, for-
dæmdar af læknastéttinni og tald-
ar stórhættulegar í höndum ó-
lærðra. Þetta er enn undarlegra í
ljósi þess að heilbrigðisyfirvöld
hafa á sinni stefnuskrá heilbrigði
fyrir alla árið 2000, að einstak-
lingurinn taki meiri ábyrgð á
eigin heilsu. Það væri fróðlegt að
fá um það svar frá landlækni
hvemig hann hugsar sér þessa
auknu ábyrgð einstaklinga á eigin
heilsu þegar hann í hinu orðinu
varar við allskonar skottulækni-
ngum og bannar innflutning á
heilsubótarefnum sem fóik telur
sig hafa gott af.
Hvers vegna ekki að vara ungt
fólk við skrumauglýsingum um
sykurskerta svaladrykki, sem
eiga að gera það horað og ham-
ingjusamt, en hefur þveröfug
áhrif? Því í upphafi vom þessir
drykkir framleiddir fyrir sykur-
sjúka og eiga að vera það ein-
göngu.“
- Leitar fólk mikið til þín í
nudd eftir að hafa gengið á milli
lækna án árangurs?
„Já, það er mikið um það, en
ég verð þó nokkuð vör við að fólk
er hrætt við að láta það uppskátt
að það leiti hjáipar í óhefðbundn-
um læknisaðferðum, því það ótt-
ast að vera lokað úti í heilbrigð-
iskerfinu. Sem betur fer em aðrar
þjóðir famar að virða fomar
læknisaðferðir svo fólk geti sjálft
ráðið hvaða leið það velur til að
viðhalda heilbrigði sínu. Von-
andi eiga íslensk heilbrigðisyfir-
völd eftir að láta af þeirri einokun
sem hér ríkir.
Því þegar upp er staðið er að-
eins eitt sem hver einstaklingur á
í þessu lífi, og það er líkaminn
sem hann býr í. Hann er besti
læknirinn og í raun sá eini, því
hversu mörg líffæri sem em fjar-
lægð og hversu miklu magni af
lyfjum sem dælt er í hann, þá á
hann alltaf síðasta orðið hvort
sem það leiðir til betri heilsu eða
dauða.“ ns.
Náttúrulækningalyfin njóta sífellt meiri vinsælda.
miklu mildari en þau kemísku.
Og líkaminn er mun sáttari við að
fá lyf sem em unnin úr jurtum.
Eg held að þróunin eigi eftir að
verða enn meiri í þessa átt. Upp-
haflega höfðu menn ekkert ann-
að en jurtir og náttúrulegar að-
ferðir. Svo á síðustu öld og í byrj-
un þessarar, kemur fram þessi
mikla þekking á efnum, að
hreinsa efni og búa til lyf. Og
menn fengu ofurtrú á pillunum,
héldu að það væri hægt að lækna
allt með þeim. Síðan þegar auka-
verkanirnar fóm að koma í ljós,
skaðsemi þessara lyfja, þá fór
fólk að snúa aftur við blaðinu,
snúa sér aftur til náttúmnnar. Og
þá ekki aðeins með náttúmlyfj-
um, heldur líka líkamsrækt, hrey-
fingu og hollu mataræði. En þá er
sorglegt að enn skuli vera til
nátttröll eins og Lyfjanefnd, sem
stendur gegn þessari jákvæðu
þróun."
ns.
Föstuaagur 9. júní 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19
á það borgar sig að borga miðann strax. Frá 10. til 16.
júní drögum við daglega út glæsilegan Peugeot
205, og það í sjónvarpsútsendingu. Útsendingin
verður alla dagana fjórum mínútum fyrir fréttir í
Ríkissjónvarpinu. Þann 18. kemur svo húsið, báturinn,
jeppinn, mótorhjólið, hestamir, sæsleðamir . . . og það sem
meira er allur ágóðinn rennur beint til okkar aftur, barnanna
okkar og komandi kynslóða.
GR/EÐUM ÍSLAND
LANDID OKKAR
LANDSHAPPDRÆTTI • ÁTAKS í LANDGRÆÐSLU