Þjóðviljinn - 09.06.1989, Side 20
QIXÁ I/ ^9^ “ELGI
OlxMlx | A,, ÓLAFSSON
Eftirminnileg
fómarskák
15. Bc2 Bd5
16. b3 a6
17. Rh4
(Byrjunartaflmennska hvíts
hefur verið dálítið ruglingskennd
en vegna veikleikanna í kóngs-
stöðu svarts á hann þó nokkur
sóknarfæri.)
17. ...b5
18. Dd3 g5
(Ekki beint bráðnauðsynlegur
leikur en þó ekki endilega slæm-
ur. Gulko virðist hafa undirbúið
mistökin í næsta leik)
19. Rf3
Bxf3?
(Eftir 19... .Bg7 er ekki auðvelt
að brjótast í gegnum varnarmúra
svarta kóngsins.)
20. gxf3 Bg7
21. h4!
(Óveðursskýin hrannast upp.)
21. ...gxh4
Carsten Hoi
26.Bxh6+!
(Stórglæsilegt!)
26. ...Kxh6
27. Hgl! f5
(Ekki 27...RÍ4 vegna 28.Rg5
f5 29.De3! og vinnur.)
28. De3+ f4
(28...Kh7 strandar á 29.Dg5!
og vinnur strax.)
22. Re4 Dc6
23. Khl! (G-línan verður þung-
amiðja og farvegur atburðarásar-
innar.)
23. ...Rh5 24.Hgl Kf8
I x< ii wm tm
i Nfi i
i &
m mfo
paó'i lm
mkk a & Hí'
i m 1■
1 1M
mmmkn #
i mé
mi i
^0 & #fi 0 ±- & aá>
25.Hxg7!
(Þrumuleikur og sá næsti er
ekki síðri.)
25. ...Kxg7
29. Rxd6! Dxd6
(Vitaskuld ekki 29...fxe3
30. RÍ7 mát. Athyglisverð tilraun
var 29...Rg3+ en hún strandar á
30.Hxg3 fxe3 31.RÍ7+ Kh5
32.Hg5 mát.)
30. Dd3 Rf8
31. Dh7+!! -
Og Gulko gafst upp.
Það má mikið vera ef þessi
skák verður ekki ofarlega á blaði
við val bestu skáka í næsta hefti
hins virta skáktímarits Informat-
ors um mitt þetta ár.
Alslemma um helgina
Fórnarskákir í anda gömlu
meistaranna Morphys og Ander-
sens sjást sjaldan núorðið, að
minnsta kosti við háborð skák-
listarinnar. f þeim 140 skákum
sem þeir Anatólíj Karpov og
Garnj Kasparov hafa teflt kemur
aðeins ein skák uppí hugann þar
sem djarfar fórnir réðu gangi
mála. Hún var tefld í Amsterdam
á árinu sem leið. Heimsmeistar-
inn setti allt í bál og brand með
tvöfaldri mannsfórn. Sóknin
rann útí sandinn en hann vann
skákina engu að síður eftir mik-
inn darraðardans í tímahraki, en í
öllum flækjunum hafði Karpov
misst af hvorki meira né minna en
25 vinningsleiðum!
Á síðasta ólympíuskákmóti
bar ein glæsileg fórnarskák ægis-
hjálm yfir aðrar. Þar var í aðal-
hlutverki tiltölulega lítt þekktur
danskurskákmaður, Carsten Hoi
að nafni. Danska ólympíuliðið
Jóhann
byrjar illa
Jóhann Hjartarson hefur ekki
fengið byr í seglin í fyrstu umferð-
um heimsbikarmóts Stórmeistar-
asambandsins í hollensku borg-
inni Rotterdam. Hann hefur að-
eins fengið hálfan vinning úr
þrem skákum að loknum fjórum
umferðum (sat yfir í 1. umferð).
Karpov er hinsvegar í banastuði,
hefur hlotið 3,5 vinninga úr 4
skákum.
vakti talsverða athygli í Þessalón-
íku fyrir hressilega taflmennsku
og slógu meðlimir þess margar
sterkar sveitir gersamlega út af
laginu, svo sem Júgóslava og
Bandaríkjamenn. Og þótt Danir
hafi að lokum lent í 16. sæti, á
eftir íslendingum, þá verður að
viðurkenna að þeir tefldu af meiri
ferskleika en við.
Danir unnu Bandaríkjamenn
3-1 og skák Hois og Borisar
Gulkos á öðru borði fór sigurför
um heiminn. Ekki getur Carsten
þakkað glæsilegri byrjunartafl-
mennsku sigurinn úr þeirri viður-
eign heldur óvenju djörfum
mannsfórnum og glæsilegri
drottningarfórn í 31. leik.
Hvítt: Carsten Hoi
Svart: Boris Gulko
Drottningarpeðsbyrjun
1. d4 e6
2. Rf3 c5
3. e3 Rf6
4. Bd3 b6
5. 0-0 Bb7
6. Rbd2 cxd4
7. exd4 Be7
8. Hel 0-0
9. c3 d6
10. De2 He8
11. Rfl Rbd7
12. Rg3 Bf8
13. Bg5 h6?!
(Traustari leikur var 13...g6 ef
framhald skákarinnar er haft í
huga.)
14. Bd2 Dc7
Önnur Alslemman (af átta)
verður spiluð á Kirkjubæjar-
klaustri um þessa helgi. Skráning
stendur enn yfir hjá Forskoti sf., í
s: 91-623326 (Jakob).
Áhugi virðist vera mikill fyrir
þessu móti, en spurning hvernig
það skilar sér í þátttöku. Spila-
mennskan hefst kl. 13 á morgun,
og spilað er á Hótel Eddu. Nóg er
að mæta á spilastað, til þátttöku,
Spilað er um góð verðlaun í
hverju mótanna (samtals kr. 100
þús.), auk þess sem fjöldi silfur-
stiga eru í boði. Keppnisstjóri
verður Ólafur Lárusson.
Afar slakur árangur paranna
þriggja, sem tóku þátt í danska
afmælismótinu um síðustu helgi
(þaraf tvö landsliðspör) hefur
vakið nokkra athygli. Af 20
pörum, höfnuðu Aðalsteinn
Jörgensen og Ragnar Magnússon
í 15.sæti, Bjöm Theódórsson og
Jón Baldursson í 17. sæti og Jónas
P. Erlingsson og Valur Sigurðs-
son í 18. sæti.
Sannarlega slakt vegarnesti til
Finnlands, þarsem íslenska
Iandsliðið mun taka þátt í
Evrópumótinu í júlí.
Skráningu í Bikarkeppni
Bridgesambandsins lýkur á
morgun, 10. júní. Nokkuð innan
við 30 sveitir era skráðar til leiks,
sem er lakasta þátttaka í þessari
keppni um áraraðir.
Fyrsta Opna stórmótið í Sov-
étríkjunum í bridge er fyrirhugað
í Leníngrad dagana 29. október
til 3. nóvember n.k. Boðið verð-
ur upp á ýmislegt í tengslum við
mótið, heimsóknir á fræga sögu-
staði í borginni, ferð til Moskvu
þarsem Kreml verður skoðuð og
litið við í fjölleikahúsi borgarinn-
ar. Sjálft bridgemótið verður
spilað í 4 umferðum, með tví-
menningssniði. Verndari mótsins
verður José Damiani, forseti
Evrópusambandsins. Einsog
áður hefur verið getið í þætti
Þjóðviljans, munu Sovétríkin
taka þátt í EM í Finnlandi í júlí, í
fyrsta skipti í sögu Evrópumót-
anna.
Líkur eru á að ein sveit frá ís-
landi, sveit Braga Haukssonar,
taki þátt í 3. alþjóðlega stórmót-
inu á Schiphol-flugvelli í Amster-
dam, dagana 17.-18. júní n.k.
í fyrra tóku tvær sveitir héðan
þátt í mótinu, sveit Braga og sveit
Amarflugs (Modem Iceland).
Báðar sveitirnar voru þá meðal
efstu sveita, en sigurvegaramir
voru pólsk sveit frá Gdansk.
Vestfjarðamótið í sveita-
keppni hefst í kvöld. Spilað er á
Núpi. Keppnisstjóri er Steinberg
Ríkharðsson.
Þátttaka í Sumarbridge er nú
að færast í „eðlilegt“ horf. Síð-
asta þriðjudag var metþátttaka,
en þá mættu 56 pör til leiks. Spil-
að var í 4 riðlum og hófst spila-
mennska í þeim síðasta fyrir kl
19, en þá var húsið fullt. Vísa
þurfti keppendum frá, sem komu
eftir þann tíma.
Yfir 120 spilarar hafa hlotið
stig á þeim 9 spilakvöldum, sem
lokið er í Sumarbridge. Stiga-
hæsti spilarinn er Þórður Bjöms-
son úr Reykjavík, með 155 stig.
Næstu menn era með innan við
100 stig.
Epson-tvímenningurinn, sam-
ræmd tvímenningskeppni með
tölvuútreikningi um allan heim,
verður spiluð í Sigtúni 9 í kvöld.
öllum er heimil þátttaka.
Keppnisgjald er kr. 1000 pr. par.
Góð verðlaun eru í boði, en
stefnt er að þátttöku 200 þús.
spilara. Mót sem þetta vinnst á
74-76% skor, þannig að ljóst er
að einhverjir verða að hafa
gullputtana í lagi í kvöld, ef þeir
eiga að ná sæti í mótinu.
Eiríkur Hjaltason, sonur
landsliðsfyrirliðans Hjalta Elías-
sonar, hefur smíðað „skerm“
(screen) til notkunar á æfingum
landsliðsins fyrir þátttöku á al-
þjóðlegum mótum. Þessi
skermur er sá fyrsti hér á landi.
Skemmtileg tilviljun, að það var
einmitt Hjalti sem á sínum tíma
smíðaði (hannaði) fyrstu og einu
sýningartöfluna, sem hér hefur
verið notuð í keppni, fyrir utan
þær hefðbundnu aðferir sem nú
er notast við, sýningartjöld, sjón-
vörp og skyggnur.
Þeir geta ýmislegt í Kópavog-
inum, hvað sem Davíð segir...
Fyrst við voram að fjalla um
Hjalta Elíasson landsliðsfyrirliða
er ekki úr vegi að taka fyrir eitt
spil með honum og fyrrum félaga
hans, Ásmundi Pálssyni. Þeir
vora um áraraðir okkar besta
par, og stóðu fyrir sínu á er-
lendum vettvangi. Spilið er ein-
mitt úr landsleik á móti Ítalíu, frá
EM f Ostende 1973
S:75 a:— H:DG764 T:D1043 S:D9843
H:ÁK10 L:Á1076 H:98532
T:G9862 T:K5
L:KDG L:4
S:ÁKG1062
H:— T:Á7 L:98532
Sagnir höfðu gengið:
V N A s
Hj. Fra Ásm Garo
1 tíg. lhj. 1 sp. dobl
1 gra pass pass dobl
pass pass pass
Garozzo hefur sjálfsagt hugsað
sér gott til glóðarinnar, að fá út
spaða og kenna þessum íslend-
ingum sitthvað í leiknum. En
Norður átti engan spaða og spil-
aði út hjarta, upp á tíu Vesturs.
Smár tígull upp á kóng og ás og
laufanía til baka. Gosi, ás og
meira hjarta frá Norðri. Er hér
var komið sögu, var Garozzo
orðinn ansi brúnaþungur (í þá
daga vora engir skermar til____).
Hjalti sótti tígulinn sinn og
Norður hjartað sitt. Er upp var
staðið, hafði Hjalti fengið sína 7
slagi, þrjá á hjarta, tvo á tígul og
tvo á lauf. 180 til íslands. Á hinu
borðinu tapaði Páll Bergsson
klaufalega 5 laufum dobluðum,
fór reyndar tvo niður, þannig að
ísland tapaði 3 stigum á spilinu.
í hálfleik var staðan 40-26 fyrir
Ítalíu en leiknum lauk 88-44 fyrir
Ítalíu eða 19-1.
(beimild: Bridgeblaðið frá jan. ’74)
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Borgarmál
Borgarmálaráð Alþýðubandalagsins hefur ákveðið að hefja undirbúning
borgarstjórnarkosninga 1990 með hópastarfi um ákveðin málefni. Félagar
og stuðningsmenn eru eindregið hvattir til þess að taka þátt í starfinu.
Fyrstu fundir hópanna verða:
Miðvikudaginn 14. júní:
Atvinnumál - veiturnar - jafnrétti kynjanna.
Mlðvikudaginn 21. júní:
Skólamál - dagvistir - æskulýðsmál - íþróttir.
Fundirnir eru haldnir á Hverfisgötu 105, 4. hæð og hefjast kl. 20.30.
Ráðgert %r að hefja starfið nú, en aðalvinnan fer fram að loknum sumar-
leyfistíma.
Alþýðubandalagið Austfjörðum
Fundir á Austurlandi
Hjörleifur Guttormsson alþingismaður verður á opnum fundum á Austur-
landi á næstunni sem hér segir:
Seyðlsfirði, Herðubreið, mánudaginn 12. júní kl.
20.30.
Bakkafirði, skólanum, þriðjudaginn 13. júní kl.
20.30.
Vopnafirði, Austurborg, miðvikudaginn 14. júní kl.
20.30.
Reyðarfirði, Verkalýðshúsinu, fimmtudaginn 15.
júní kl. 20.30.
Borgarfírði, Fjarðarborg, miðvikudaginn 21. júní kl.
20.30.
Eskifirði, Valhöll, fimmtudaginn 22. júní kl. 20.30.
Fundarefni: Störf Alþingis og hagsmunamál byggð-
arlaganna.
Fyrirspurnir og umræður.
Allir velkomnir.
Alþýðubandalagið
AB Kópavogi
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði ABK, mánudaginn 12. júní kl. 20.30
í Þinghóli.
Dagskrá: 1) Starfið framundan.
2) Önnur mál.
Stjórnin
ABR
Sumarferð ABR
Sumarferðin verður farin laugardaginn 24. júní n.k.
Ferðaáætlun og nánari upplýsingar í næstu viku.
Hvað skyldi vera að gerast á Miðnesheiði þennan dag?
Stjórn ABR
Hjörleifur
BRIDDS
20 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ
Ólafur
Lárusson
Föstudagur 9. júní 1989