Þjóðviljinn - 16.06.1989, Blaðsíða 26
BRIAN
PILKINTON
SKRIFAR
1 Z 3 ¥ JT b 9 8 ¥ V 1 10 1/ )Z )3
IV- IS !Z <2 Uc y- 18 19 3 )2 12 V w~
zo 10 V w ¥ 21 ZZ 9 í¥ T~ ¥ )T ZJ— 2¥
V If n ? )0 20 )2 2b IZ IS 9
'Át i'Z V 9 b 28 ii *¥ isr 12 CV) (* 12 )?
T~ 7- & 29 V 2J 10 2S )2 9 V )Z
Z& ¥ 22 30 1Z 12 ¥ ZJ 22 TT^ V IS \z
d 'iz M A td 9 T 30 9 V 20 Z/ 31 <?>
20 2J l# JT * V lo Jé r 2l T ZT~ W~ w~
T~ * 10 i? ze zr 16 V 13 20 lÆ TZ
)Z <?> T~ f 20 i$ ¥ 7- 21 10 V
N 3 íZ zsr & 32 i? y w i6 N 2! T~
9 ID é> iz ie /? 2é> 18 3o Ý 12 27 7 T
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá alþekkt örnefni.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla
6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 48“. Skilafrestur er þrjár vikur.
.Verðlaunin verða send til vinningshafa.
7 3 12 S 15 H n-
Verðlaunakrossgóta
Nr. 48
Lausnarorðið fyrir verðlaunakrossgátu nr. 45 var BJÖRGVIN. Dregið
var úr réttum lausnum og upp kom nafn Tinnu K. Gunnarsdóttur,
Karfavogi 38, Reykjavík. Hún fær senda Dagbók góðrar grannkonu
eftir Doris Lessing.
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 48 er
bókin Bertolt Brecht, Kvæði og
söngvar 1917-56. Það var Þor-
steinn Þorsteinsson sem annað-
ist útgáfuna en þýðendur eru 16
talsins. Það er Forlagið sem gef-
ur út bókina.
MATUR
Púrrulauks-
og ostabaka
Fyrst er það deigið:
300 gr. hveiti
1 msk. lyftiduft
75 gr. smjör eða smjörlíki
75 gr. Palmín jurtafeiti
3-4 msk. vatn
Setjið hveiti og lyftiduft í skál,
ásamt smjöri og jurtafeiti og
hnoðið þar til þið fáið fína
mylsnu. Setjið þá vatnið útí, nóg
til að deigið verði meðfærilegt.
Aðalinnihald:
2 stórir púrrulaukar
25 gr smjör eða smjörlíki
1/2 tsk. Cayennepipar
1/2 stk. steyttur negull
3 egg
75 ml mjólk
75 ml sýrður rjómi
Stór hnífsoddur af salti
175 gr Maribó-ostur
Stráið örlitlu hveiti á borð og
fletjið deigið út. Setjið það síðan í
form sem er u.þ.b. 23 sm í þver-
mál. Sneiðið púrrulaukinn og
hreinsið. Bræðið smjör og létt -
steikið púrrulaukinn,eða þar til
hann verður linur. Kryddið vel
með cayennepipar og negul og
kælið. Næst hrærið þið saman
eggjum, mjólk, sýrðum rjóma og
salti. Dreifið helmingnum af rifn-
um ostinum yfir deigið og þar
ofan á leggið þið púrrulaukinn og
svo afganginn af ostinum. Þá er
eggjablöndunni hellt yfir og þetta
svo bakað í ofni við 200° C í um
það bil hálfa klukkustund, eða
þar til bakan hefur lyft sér og er
orðin gullin.
Berið fram heitt eða kalt,
gjarnan með hrásalati. Þennan
rétt er mjög líklegt að þið finnið á
enskum krám, þar sem honum er
skolað niður með glasi af
ísköldum bjór.
Hagbaröur og Signý á Klambratúni
Leiktjöld sett upp á Klambratúni. Mynd Þóm.
Norðmenn standa fyrir
leiksýningu og
tónleikum í Reykjavík
næstu daga
Hundrað og finnntíu Norð-
menn, komnir alla leið frá Steigen
í Norður Norcgi, munu setja svip
á þjóðhátíðarhöldin á laugardag-
inn. Um er að ræða leikara, kór
og hfjóðfæraleikara, sem reyndar
eru ekki komnir í þeim tilgangi
einum að spranga um í litklæðum
17. júní, heldur ætla þeir að setja
upp mikla leiksýningu á
Klambratúni á sunnudaginn.
Auk þess er von á hópi tónlistar-
manna frá Noregi og munu þeir
standa fyrir tónleikahaldi í
Reykjavik næstu daga.
Leikritið er hluti af „Steigen
Sagaspill“ í ár, en það er listahá-
tíð þeirra í Steigen, sem haldin er
annað hvert ár. Á hverri listahá-
tíð er sett upp leikgerð evrópskr-
ar hetjusagnar, og í ár varð mið-
aldasögnin um Hagbarð og Sig-
nýju fyrir valinu, en líkur eru
taldar á því að sagan hafi einmitt
gerst í Engeleyju í Steigen. Tón-
listina við sýninguna samdi Helge
Aaflöy og höfundur handrits
heitir Bjöm Stemlands.
Um hundrað norskir tónlistar-
menn eru síðan væntanlegir í dag,
eru það annars vegar hljómsveit,
sem heldur tónleika einhverja
næstu daga og pro-musica kórinn
Con Brio.
Kórinn var stofnaður árið 1964
og hefur undanfarin 25 ár verið
fremstur í flokki norðurnorskra
kóra. Þrennir tónleikar eru fyrir-
hugaðir í Langholtskirkju, dag-
ana 19., 20. og 21. júní. Á mánu-
dag og miðvikudag verða verk
eftir Gottfrid Berg, Bruckner,
Grieg, Nysted, Eielsen og Ku-
hnau á efnisskránni, en tónleik-
arnir á þriðjudaginn verða
kammertónleikar. Þar flytur kór-
inn norska, norræna og evrópska
þjóðlagatónlist, auk þess sem
hann syngur verk eftir Dvorak,
Rossini, Ravel, Dornbusch og
Debussy.
LG
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 16. júní 1989