Þjóðviljinn - 16.06.1989, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 16.06.1989, Blaðsíða 12
Umsjón: KRISTÍN VALSDÓTTIR ANPRÉS GUÐMUNDSSON BARNAKOMPAN Að verða fyrir barðinu Þegar maöur lætur ann- an finna fyrir kröftum sínurn eöa reiði er sagt aö sá hinn sami veröi fyrir baröinu. Barðið sem hægt er aö veróa fyrir merkir skips- stafn. í gamla daga var þaö ekki óalgengt aö skip sigl- du hvert á annaö og einnig er hægt aö minnast átaka í landhelgisdeilum íslend- inga þar sem skip uröu fyrir barðinu hvert á öðru. Sjúkrahúsdvöl Einu sinni var ég með æxli í heilanum og ég var á sjúkrahúsi í 14 daga. Ég var nýlega orðin 7 ára. Það komu stelpa og strákur. Stelpan heitir Edda Rún og strákurinn Hreinn. Ég var að leika mér í hjólastól, en ég átti ekki aö vera í hjólastólnum. Og þegar ég var búin aö vera á sjúkra- húsinu þá kom mamma og ég vildi ekki fara heim. Helga S. Flosadóttir 10 ára Lilja fer í bæinn Lilja var aö fara í bæinn meö mömmu sinni. Þær ætluðu aö kaupa föt á Lilju. Hún keypti buxur og peysu. Síðan fóru þær aö versla í matinn. Svo fengu þær sér ís. Lilja fékk ís meö jaröarberjabragöi en mam- ma meö vanillubragði. Svo fóru þær í leikfangabúð og þar keypti Lilja afmælisgjöf handa frænku sinni. Síöan fóru þær heim meö strætó og síðan fór Lilja í afmæli til frænku sinnar. Svo fór hún heim til sín og fór aö sofa. Mikið var þetta skemmti- legur dagur, hugsaöi hún um leið og hún sofnaði. Steinunn Benediktsdóttir 10 ára Krónan heldur jafnvægi Hér er erfið æfing fyrir þá sem 'vilja leika sér meö sjónhverfingar. Þú leggur pappírsræmu á glasbarm og lætur síöan pening halda jafnvægi ofan á pappírsræmunni og glas- röndinni eins og sýnt er á myndinni. Síöan heldur þú því fram aö þú getir tekið pappírinn án þess að pen- ingurinn raskist. Þetta virð- ist ómögulegt. Þú heldur í pappírinn eins og sýnt er á miðmyndinni og slærð síö- an snöggt á hann meö handarjaðrinum. Pening- urinn veröur eftir á glas- barminum en papp- írsræman rennur undan. Það er líklegt að þú þurfir aö reyna nokkrum sinnum áöur en þetta tekst. \ Dragðu línu milli punktanna í réttri talnaröð I 35 • •34 •33 36* •32 €> 1 •*- ^•42 37* . «31 2* 41 • 38» .40 2*5 30 • . 28 *29 •3 39» 26 2*7 • 24 •23 4* 5* •22 •11 ft »20 •21 6« •10 13* •19 7* „ «14 9* • 15 •18 •17 • 8 •16 12 SÍÐA - NÝTT HELGAR8LAO Föstudagur 16. júnf 1989 Elva á afmæli Þegar Elva vaknaði einn morguninn sagöi mamma hennar: „Ég er aö fara í bæinn. Viltu koma með?“ Þá hrópaöi Elva: „Já, ég vil koma með.“ Svo fóru þær í bæinn. Þá sá Elva svo fallega brúöu og sagöi við mömmu sína: „Viltu gefa mér þessa brúðu í afmælisgjöf?" Þá sagði mamma henn- ar: „Kannski ef þú verður mjög góð.“ Elva reyndi að vera eins góö og hún gat. Svo kom afmælið og Elva fékk af- mælisgjöfina frá mömmu sinni. Þaö var peysa. Elva spuröi mömmu sína hvort hún hefði ekki verið nógu góö. Þá sagöi mamma henn- ar: „Ekki alveg.“ En þegar afmælisveisl- an var búin sagði mamma hennar Elvu aö hún hefði verið alveg nógu góö til að fá brúðuna og gaf henni aðra afmælisgjöf, og það var brúðan. Esther Ýr Steinarsdóttir 11 ára

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.