Þjóðviljinn - 11.08.1989, Blaðsíða 3
FLÖSKUSKEYTI
lllindi
meðal
Navaho
Ófriðlega horfir nú hjá Nava-
ho, fjölmennasta indíánaþjóð-
flokki Bandaríkjanna. Æðstaráð
þjóðflokksins setti í vor af for-
mann hans, Peter MacDonald,
eftir að nefnd á vegum öldunga-
deildar Bandaríkjaþings hafði
borið á hann sakir um spillingu.
En stuðningsmenn hans reyna nú
að fá hann settan í embætti á ný
og neyta til þessa allra bragða.
MacDonald þessi er fjölda-
sjarmör mikill og hefur þessvegna
verið kallaður indíánskur Reag-
an. Navahoar eru næstum
200.000 talsins og búa á sérsvæð-
um í Arizona, Nýja Mexíkó,
Utah og Kóloradó. Stærst er
svæði þeirra í fyrstnefnda ríkinu
og nær yfir sjötta hluta þess. En
land þetta er hrjóstrugt og fátækt
mikil meðal íbúa þess, atvinnu-
leysið þannig eitthvað á milli 30
og 50 af hundraði.
Fyrir um hálfum mánuði kom
til illinda milli stuðningsmanna
og andstæðinga MacDonalds í
höfuðstað sérsvæðisins. Lögregla
þess, sem mönnuð er Navahoum
sjálfum, dreifði fólkinu af hörku
og beitti við það skotvopnum,
með þeim afleiðingum að tveir
menn voru drepnir og yfir tíu
særðir. Margir óttast að til frekari
illinda komi.
FLÖSKUSKEYTI
fjármálunum áþínu heimili
Þegar kemur að
afborgunum lána er það
í þínum höndum
að borga á réttum tíma.
var
Þar með sparar þú óþarfa
útgjöld vegna dráttar-
vaxta, svo ekkí sé mínnst
á ínnheímtukostnað.
16. ágúst leggjast dráitarvextir á íán með lánskjaravísitölu.
1. sepiember íeggíast dráttarvextir á lán með byggingaivúsitölu.
Greiðsluseðlar fyrir 1. ágúst hafa verið sendir gjaldendum og greiðslur má inna af hendi í öllum bönkum og sparisjóðum landsins.
HÚSNÆÐtSSTOFNUN RÍKISINS
bUOURlA'NLJSBRAU : 24 lOb SW: BSbSOO
I „ Myndarlegt”
samband segir
meira en
þúsund orð
Það er hœgt að spara mörg orðin, allt
að þúsund samkvœmt máltœkinu, með
þvíað nota Póstfax myndsendiþjónustu
Pósts og síma. Sjón er jú sögu ríkari.
Með myndsendiþjónustunni er hcegt að
senda allt sem á annað borð tollir á
blaði: Myndir, samninga, bréf skjöl og
skýrslur, teikningar, vottorð o.fl., o.fl.
Á flestum þóst- og símstöðvum geturðu
fengið Póstfax myndsendiþjónustu. Þú
kemur með frumritið og einni mínútu
síðar birtist skýr og nákvœm eftirmynd
af því á áfangastað innanlands eða ’
erlendis.
Fyrir þá sem vilja eignast sín eigin
myndsenditœki selur Póstur og sími
ódýr og vönduð tœki.
Notaðu myndsendiþjónustu Pósts og PÓSTUR OG SÍMI
síma. Með henni sparast ótrúlegur timi wmmamm^m^^mmmmmmmmmmmm
og hlutirnir ganga betur fyrir sig. Við spörum þér sporin