Þjóðviljinn - 11.08.1989, Blaðsíða 9
Kertafleyting
í blíðunni
Það var fjölmennt á grasflöt- friðarhreyfingar stefnt fólki til að
inni við Skothúsveg á miðviku- minnast þess að þann dag, 9. ág-
dagskvöldið. Þangað höfðu tíu úst, fyrir 44 árum vörpuðu
Bandaríkjamenn kjarnorku-
sprengju á japönsku borgina
Nagasaki - atómöld var hafin.
Veðurblíða var og kvöldið fag-
urt þegar Ingibjörg Haraldsdóttir
kennari bauð fólk velkomið og
flutti því ávarp friðarhreyfing-
anna. Að því loknu flutti Margrét
Ákadóttir leikkona ljóð og þá var
komið að aðalatriði samkom-
unnar: kertafleytingunni á
ijörninni. Svo mikil ásókn var í
kertin að þau seldust upp á svip-
stundu og fyrr en varði sló bjarma
á tjörnina. Það var haft á orði að
oftast hefði vindurinn leikið á
þátttakendur og haldið kertunum
uppi við bakkann en nú var tjörn-
in svo spegilslétt að þau hreyfðust
ekki nema stjakað væri við þeim.
Jim Smart ljósmyndari var á
svæðinu og það er best að láta
myndirnar hans tala. -ÞH
Mannasmygl
í stórum stíl
Vel skipulagðir og fjármagnaðir hópar vinna
að því að koma fólki ólöglega til Norðurlanda
Danska lögreglan hand-
samaði í s.l. viku 30 manns, sem
reyndu að komast inn í Dan-
mörku frá Vestur-Þýskalandi í
leyfisleysi. Þeirra á meðal eru 10
(ranir, sem teknir voru fastir við
Padborg nálægt dansk-
vesturþýsku landamærunum s.l.
miðvikudagskvöld. Þeir sögðust
vera flóttamenn.
Fyrstu sjö mánuði ársins hand-
tók danska lögreglan, að sögn
talsmanns hennar, 309 útlend-
Féllá
sjálfs síns
bragði
Hópur nokkur í Líbanon, sem
nefnist Baráttusamtök íslams,
tilkynnti s.l. föstudag að einn
liðsmanna hans hefði látið lífið í
Lundúnum, er hann hefði verið
að undirbúa að fullnægja dauða-
dómi Khomeinis heitins erkikl-
erks af íran yfir Salman rithöf-
undi Rushdie. Talið er að hér sé
átt við mann, að líkindum Araba,
sem fórst í sprengingu í hótelher-
bergi í Paddington, Lundúnum,
s.l. fimmtudag. Lögregla þar í
borg telur að hann hafi verið að
tilreiða sprengju og sprengt sjálf-
an sig í loft upp af slysni. Félagar
hans í Líbanon hafa lýst hann ís-
lamskan píslarvott.
inga, sem allir lýstu sig flótta-
menn og höfðu komist inn í
landið ólöglega eða gert tilraun
til þess. A sama tímabili voru
handteknir í Danmörku 107
menn, grunaðir um að smygla út-
lendingum inn í landið. Er hér
um að ræða nokkra fjölgun frá
fyrstu sjö mánuðum s.l. árs.
Danir voru um skeið flestum
eða öllum þjóðum örlátari á dval-
arleyfi til handa útlendingum,
sem báðust hælis hjá þeim sem
pólitískir flóttamenn, en vegna
mikils aðstreymis voru lögin um
þetta þrengd að mun 1986. Síðan
hefur tala þeirra, sem biðja um
landvist í Danmörku sem pólit-
ískir flóttamenn, lækkað um
helming, en á hinn bóginn hefur
hækkað tala þeirra útlendinga,
sem reyna að komast ólöglega
inn í landið. Danska lögregian
telur, að vel skipulagðir og fjár-
magnaðir hópar mannasmyglara
með bækistöðvar í Vestur-
Þýskalandi standi að því að koma
fólki ólöglega til Norðurlanda. í
Tönder, annarri smáborg við
dansk-vesturþýsku landamærin,
var írani nokkur dæmdur í s.l.
viku fyrir að hafa laumað 15
löndum sínum yfir landamærin í
sept. s.l. í s.l. mánuði játaði
sænsk kona fyrir dönskum rétti
að hún ynni á vegum samtaka
með aðsetur í Svíþjóð, sem síð-
ustu árin hefðu smyglað a.m.k.
um 800 írönum til þess lands yfir
Danmörku. Reuter/-dþ.
Föstudagur 11. ágúst 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 9
Bandarískir og sovéskir borgarar sigla á skútu yfir Atlantshafið í þágu
friðar og umhverfisverndar
-Tilgangur fararinnar er að
vekja athygli á nauðsyn þess að
þjóðir heims vinni saman að um^
hverfisvernd og friðarmálum. í
þessari ferð taka þátt einstak-
lingar sem vilja sýna í verki að
það er hægt að vinna saman í
friðsemd þrátt fyrir ólíkan bak-
grunn og þjóðerni, sagði Step-
hen Kent einn úr áhöfn skútunnar
Te Vega sem hafði viðkomu í
Reykjavíkurhöfn á leið sinni frá
Leningrad til New York.
Ferðin er farin undir yfirskrift-
inni „Við erum öll á sama báti“
sem skírskotar bæði til þess að
hópurinn sjálfur hefur sameigin-
legra hagsmuna að gæta varðandi
giftusamlega siglingu og sama má
segja um restina af jarðarbúum
sem ekki geta lifað af nema með
því að taka höndum saman gegn
mengun og öðrum náttúruspjöll-
um og ófriði milli þjóða.
Skútan Te Vega lagði af stað
frá New York þann 4.júní s.l. og
kom til Leningrad 15. júlí. Þar
var skipt um áhöfn og haldið til
baka til Bandaríkjanna og er
áætlað að þangað verði komið 3.
september.
Þátttakendur í ferðinni eru 20
karlar og konur frá báðum lönd-
unum, á öllum aldri og af ólíkum
stéttum, en áhugi á umhverfis-
vernd er þeim sameiginlegur. Á
leið sinni yfir Atlantshafið vinna
þau að ýmsum rannsóknum á á-
standi sjávar, lofti og dýralífi auk
þess sem þau fræða hvert annað
um tungumál, menningu og
samfélag hvers annars.
iþ
Áhöfnin á Te Vega var mynduð þegar skútan lá við Reykjarvíkurhöfn í
fyrradag. Mynd: Jim Smart
Erum öll á sama báti