Þjóðviljinn - 11.08.1989, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 11.08.1989, Blaðsíða 10
fí^ol Fjórðungssjúkrahúsið l!29J á Akureyri Hjúkrunarfræðingar! Vissuð þið: að á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri eru eftirtaldar sérgreina- deildir: Handlækningadeild Gjörgæsludeild Skurðdeild Svæfingadeild Lyflækningadeild I og II Barnadeild Geðdeild B-deild, öldrunar- og hjúkrunar- deild Sel, öldrunar- og hjúkrunardeild Bæklunardeild Slysadeild Göngudeild Speglanadeild Háls- nef-, og eyrnadeild, Augndeild Fæðinga- og kvensjúkdómadeild - að hjúkrun á FSA er veitt í formi hóphjúkrunar og byggir á markvissri upplýsingasöfnun, áætlanagerð, framkvæmd og mati, - að nemendur í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri og sjúkraliðanemar frá Verk- menntaskólanum á Akureyri fá verklegt nám á deildum FSA, - að boðið er uppá, einstaklingshæfða aðlögun og ýmsa möguleika á vaktafyrirkomulagi, - að það eru lausar til umsóknar stöður hjúkr- unarfræðinga á ýmsum deildum FSA, auk þess sem nokkrar K-stöður eru lausar. Þið fáið allar upplýsingar hjá hjúkrunarfram- kvæmdastjóranum Svövu Aradóttur og Sonju Sveinsdóttur, alla virka daga kl. 13.00-14.00, í síma 96-22100. Umsjónarmaður Umsjónarmann vantar til að sjá um rekstur sundlaugar og félagsheimilis. Þekking og reynsla í stjórnun og rekstri æskileg. Skriflegum umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skilað á skrifstofu Biskupstungnahrepps, Aratungu, 801 Selfoss fyrir 31. ágúst n.k. Upplýsingar um starfið gefa Gísli í símum 98- 68931 og 98-68808 og Gústaf í síma 98-68868. FLUGMÁLASTJÓRN Námskeið í flugumferðarstjórn Ákveðið hefur verið að velja nemendur til náms í flugumferðarstjórn, sem væntanlega hefst í byrjun nóvember 1989. Stöðupróf í íslensku, ensku, stærðfræði og eðl- isfræði verða haldin í september n.k. Umsækjendur skulu vera á aldrinum 20-30 ára, tala skýrt mál, rita greinilega hönd, standast tilskyldar heilbrigðiskröfur og hafa lokið stúd- entsprófi. Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Flug- málastjórn á fyrstu hæð flugturnsbyggingar á Reykjavíkurflugvelli og ber að skila umsóknum þangað fyrir 1. september, ásamt staðfestu af- riti af stúdentsprófskírteini og sakavottorði. Flugmálastjóri !■! REYKJKÍÍKURBORG HH 'V Listasafn Rey kjavíku rborgar Kjarvalsstöðum óskar að ráða skrifstofumann. Um er að ræða almenn skrifstofustörf, kynni af tölvum og góð tungumálakunnátta æskileg. Laun samkvæmt kjarasamningum Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavík- urborgar. Umsóknum ber að skila Listasafninu á eyðu- blöðum sem þar fást, fyrir 18. ágúst n.k. Nánari upplýsingar veittar í síma 26131. Iþróttakennarar - fóstrur Vegna óvæntra forfalla bráðvantar Blönduós- bæ íþróttakennara að grunnskólanum og for- stöðumann að leikskólanum Barnabæ. Boðin eru hlunnindi - lág húsaleiga og föst yfirvinna. Glæsileg íþróttahöll er í smíðum. Sundlaug er í skólabyggingunni. Á Blönduósi er nýlegt og vel búið barnaheimili með hæfu starfsfólki sem er með ýmis spenn- andi verkefni í gangi. Nánari upplýsingar veita bæjarstjórinn, sími 95- 24181, skólastjóri, sími 95-24437, yfirkennari, sími 95-24310 og í skólanum, sími 95-24229. m Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Hjúkrunarfræðingar - stjórnunarstaða Staða deildarstjóra á Skurðdeild F.S.A. er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. október 1989. Umsækjendur skulu hafa lokið sérnámi í skurðhjúkrun og æskileg er reynsla og/eða nám í stjórnun. Umsóknarfrestur er til 31. ágúst n.k. Upplýsingar gefur Svava Aradóttir hjúkrunar- framkvæmdastjóri alla virka daga kl. 13.00- 14.00. Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara Viljum ráða aðstoðarmann sjúkraþjálfara í 50% starf frá 1. september n.k. Vinnutími er frá kl. 08-12. Nánari upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari. Umsóknir sendist skrifstofustjóra F.S.A. fyrir 19. ágúst n.k. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri sími 96-22100 Kennarar Kennara vantar við Vopnafjarðarskóla næstkomandi skóiaár. Æskilegar kennslu- greinar: sérkennsla og kennsla yngri barna. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 97-31218 og formaður skólanefndar í síma 97-31275. Skólanefnd FELAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Starfsmaður í unglingaathvarf Starfsmann vantar í Unglingaathvarfið Tryggvagötu 12. Um er að ræða 46% starf og fer vinnan fram tvö til þrjú kvöld í viku. Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun á sviði félags-, uppeldis- eða sálarfræði og/eða reynslu af störfum hliðstæðum þessu. Umsóknum skal skila til starfsmannahalds Reykjavíkur Pósthússtræti 9, á eyðublöðum sem þar fást, fyrir 25. ágúst. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 20606 eftir hádegi alla virka daga. FRAMKVÆMDASJÓÐUR ALDRAÐRA Væntanlegum umsækjendum um styrki úr Framkvæmdastjóra aldraðra fyrir árið 1990 er bent á að skila umsóknum sínum til ráðuneytis- ins fyrir 1. október n.k. á sérstökum eyðu- blöðum, sem þar liggja frammi. Athuga ber, að eldri umsóknir þarf að endurnýja og þurfa einnig að berast fyrir ofangreindan dag. Framkvæmdasjóöur aldraðra, Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjalddagi söluskatts fyrir júlímánuð er 15. ágúst. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið Tilkynning til launaskattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að eindagi launaskatts fyrir mánuðina maí og júní er 15. ágúst n.k. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík toll- stjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið Holtaskóli Keflavík Næsta skólaár vantar kennara við Holtaskóla. Kennslugreinar: stærðfræði, raungreinar og ís- lenska, samfélagsfræði. Einnig er staða handa- vinnukennara(smíðar) laus. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 92-15597 og yfirkennari í síma 92-15652. Skólastjóri

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.