Þjóðviljinn - 11.08.1989, Side 5
Islandsbanki
Skilyrði að fullt traust ríki
Fundi bankaráðs frestað. Bankaráðsmenn neita því að deilt sé um skipun íœðstu stöður.
Magnús Geirsson: Bankarnir skiptast á um að gegnaformennsku í bankaráði og bankastjórn.
Rættum að taka upp nýtt skipulag á starfsemi bankans
Fundi bankaráðs íslandsbanka
sem halda átti á þriðjudaginn
var frestað um óákveðinn tíma. I
samtölum sem Nýja helgarblaðið
átti við bankaráðsmenn er ekkert
hæft í þeirri staðhæfingu DV í
gær að frestunin stafí af ágrein-
ingi um skipan formanna bankar-
áðs og bankastjórnar. Frestunin
hafí eingöngu stafað af því að ekki
hafí tekist að Ijúka því sem átti að
Ijúka fyrir fundinn.
Magnús Geirsson sem er annar
fulltrúa Alþýðubankans í banka-
ráði íslandsbanka sagði að í
undirbúningsviðræðunum hefði
verið um það samið að allar
meiriháttar ákvarðanir þyrftu að
njóta stuðnings 3/4 bankaráðs-
manna. „Það þýðir að engir tveir
aðilar geta verslað við fulltrúa
Fiskveiðisjóðs um að bera þann
þriðja ofurliði. Það verða allir að
vera sammála. Síðan hefur verið
rætt um að bankarnir þrír skiptist
á um að skipa í embætti formanna
bankaráðs og bankastjórnar og
varaformanns bankaráðs eftir
ákveðnum reglum. Af hálfu okk-
ar í Alþýðubankanum var það
gert að skilyrði fyrir sameining-
unni að fullt traust ríkti milli aðila
og það hefur ekkert orðið til þess
að grafa undan því,“ sagði Magn-
ús.
Haraldur Sumarliöason sem
situr í bankaráðinu fyrir hönd
Iðnaðarbankans sagði að þeir
hefðu kannski verið fullbjartsýn-
ir þegar þeir settu fundinn sl.
þriðjudag. „Við erum að reyna
að skipuleggja til frambúðar og
veltum í því sambandi fyrir okkur
nýju formi á stjórn og skipulagi
bankans. Vissulega líta menn
misjöfnum augum á ýmis atriði,
en það eru engar deilur. Það hef-
ur einfaldlega tekið meiri tíma en
við höfðum ætlað. Við erum bún-
ir að fjalla um nöfn á banka-
stjórum og rætt um skiptingu
formannsembættanna og hefði
málið eingöngu snúist um það
hefðum við getað afgreitt það á
þriðjudaginn," sagði Haraldur.
Að sögn Haralds eru uppi hug-
myndir um að skipta starfsemi
bankans upp í svið og að sú skipt-
ing gangi alveg upp í topp, þe. að
bankastjórarnir verði ábyrgir
fyrir ákveðnum sviðum. „Við
ræddum um að fella alveg niður
starfsheiti bankastjóra og nefna
þá framkvæmdastjóra tiltekinna
sviða. Niðurstaðan varð sú að
það færi ekki vel í munni almenn-
ings, fólki fyndist eflaust undar-
legt að skipta við banka sem hefði
engan bankastjóra," sagði Har-
aldur Sumarliðason.
Haraldur vildi ekki tilgreina
hverjir myndu verða aðalbanka-
stjórar íslandsbanka, það yrði að
bíða fram yfir formlegan banka-
ráðsfund sem væntanlega yrði
haldinn um eða strax eftir helg-
ina.
\
Ætlunin er að fullri sameiningu
bankanna verði lokið um næstu
áramót og að þá taki íslands-
banki formlega til starfa.
-ÞH
Breiðholt
Hverfislögregla
tekur til starfa
Opnuð hefur verið hverfíslög-
reglustöð í Breiðholti, að
Drafnarfelli 14. Eigendur fyrir-
tækja og verslana í Fellagörðum
útveguðu lögreglunni húsnæði og
bjóðast til að greiða húsaleiguna í
6 mánuði. Astæða þessa mun
vera mikil vandræði sem skapast
hafa af óspektum og skemmdar-
verkum unglinga í hverfínu.
Þrír lögreglumenn munu hafa
aðstöðu í Drafnarfelli og munu
þeir sinna öllu Breiðholtinu
jöfnum höndum með áherslu á
gangandi eftirlit. Þjónusta þeirra
er fyrst og fremst hugsuð fyrir
íbúa hverfanna og er það von lög-
reglunnar að íbúarnir sýni þessu
framtaki velvilja og nýti sér
möguleika til aukinna tengsla við
lögregluna.
Lengi hefur verið þörf fyrir
aukna löggæslu í Breiðholti, fjöl-
mennasta hverfi borgarinnar en
Lögreglan, félagsmálastofnun,
Fellaskóli og Fellahellir og
eigendur verslana og fyrirtækja í
Fellagörðum hafa átt gott sam-
starf undanfarið varðandi ýmis
vandamál sem komið hafa upp í
hverfinu. Nauðsynlegt þótti að
lögreglan hefði aðstöðu á staðn-
um.
Lögreglustöðin í Breiðholti er
tilraun með breytt fyrirkomulag
löggæslu það sem m.a. er tekið
mið af því hvernig grenndarlög-
reglan er skipulögð á hinum
Norðurlöndunum. Stefnt er að
því að stöðin verði starfrækt í 6
mánuði en að þeim tíma liðnum
verður tekin ákvörðun um fram-
haldið í ljósi fenginnar reynslu.
Lögreglustöðin verður opin frá
klukkan 11 til 19 alla virka daga
og á öðrum tímum ef ástand og
aðstæður gefa tilefni til.
«Þ
Unglingar brugðu sér í heimsókn þegar lögreglustöðin í Breiðholti var opnuð í gær og þáðu kaff i og með því.
Mynd - Kristinn.
Fjármálaráðuneytið
Mörður ráðinn upplýsingafulltrúi
Skattkerfisbreytingarfyrirhugaðar. Mörður Arnason:
Hugarfarsbreyting verði hjá Islendingum gagnvartsköttum. Margt
líktmeð blaðamennsku ogstarfi upplýsingafulltrúa
Mörður Árnason, fyrrum rit-
stjóri Þjóðviljans, tók við
starfí sem upplýsingafulltrúi fjár-
málaráðuneytisins um síðustu
mánaðamót, en staða upplýsinga-
fulltrúa hefur ekki verið mönnuð
það sem af er þessu ári.
Mörður sagði í samtali við
Nýja Helgarblaðið að fyrirhug-
aðar væru miklar skattkerfis-
breytingar og myndi hann sjá um
að skipuleggja upplýsingastarf
vegna þeirra. Annarsvegar er hér
um að ræða virðisaukaskattinn
en hann á að leysa söluskattinn af
hólmi um næstu áramót. Einnig
má nefna samræmdan skatt á
fjármagnstekjur, en nefnd undir
forsæti Más Guðmundssonar er
að ganga frá tillögum um hann
þessar vikurnar.
„Þá er ráðuneytið um þessar
mundir að taka saman ýmis gögn
um ríkisútgjöld og -tekjur og er
ráðgert að koma þeim upplýsing-
um á framfæri við almenning og
efla þannig almenna umræðu um
fjármál ríkisins. Eitt af því sem
menn vonast til að komi út úr
annarsvegar kerfisbreytingunum
og hinsvegar aukinni umræðu um
fjármál ríkisins er að íslendingar
geri hjá sér langþráða hugar-
farsbreytingu gagnvart sköttum
og fari t.d. að hjálpast að við að
svíkja ekki undan skatti.“
Auk þessa mun Mörður starfa
að ýmsum útgáfu- og ráðgjafa-
störfum í ráðuneytinu, m.a. í
Mörður Árnason nýráðinn upp-
lýsingafulltrúi fjármálaráðuneyt-
isins.
tengslum við fjölmiðla og al-
menning.
En eru það ekki mikil viðbrigði
að fara úr ritstjórastól í starf sem
upplýsingafulltrúi fjármálaráðu-
neytisins, að setjast hinumegin
við borðið?
„Það er margt líkt með þessum
störfum. Þau byggjast í kringum
fréttir,upplýsingarogpólitík. Að
ýmsu leyti lít ég ennþá á mig sem
blaðamann," sagði Mörður
Árnason.
-Sáf
Norðurlönd
Ráðherrar
þinga á ísafirði
Árlegur haustfundur utan-
ríkisráðherra Norðurlanda verð-
ur haldinn á ísafírði dagana 14.-
16. ágúst.
Þar verður m.a. rætt um stöð-
una í alþjóðamálum, afvopnun-
armál, störf norrænu embættis-
mannanefndarinnar sem unnið
.hefur skýrslu um kjamorku-
vopnalaus svæði á Norðurlönd-
unum, málefni Sameinuðu þjóð-
anna, umhverfisvernd og
mannréttindi. Auk þess munu
þeir fjalla um svæðisbundin
deilumál, þ.á.m. í sunnanverðri
Afríku og Mið-Austurlöndum.
norræn þróunarsamvinna verður
einnig á dagskrá fundarins.
Auk Jóns Baldvins Hannibals-
sonar mun Uffe Ellemann-
Jensen utanríkisráðherra Dan-
merkur, Pertti Paasio utanríkis-
ráðherra Finnlands, Thorvald
Stoltenber utanríkisráðherra
Noregs og Sten Anderssson utan-
ríkisráðherra Svíþjóðar, sitja
fundinn.
Skotveiði
Námskeið í gæsaveiðum
Loksins mega áhugamenn um
gæsaveiðar fara að stunda
áhugamál sitt, því gæsaveiðitíma-
bilið mun hefjast 20. ágúst. í til-
efni af þvt ætlar Skotveiðifélag
Reykjavíkur og nágrennis að
halda námskeið fyrir gæsaveiði-
menn nú í ágúst.
Námskeiðin verða með þeim
hætti að 15. og 16. ágúst verða
haldnir fræðslufundir í Veiðiseli,
Skemmuvegi 14 kl. hálf níu. Þar
verða flutt 6 til 7 erindi, auk þess
sem sýnikennsla fer fram. Vænt-
anlega í meðferð skotvopna.
Mánudagana 21. og 28. ágúst
og 4. september hafa þátttakend-
ur í námskeiðinu forgang að skot-
vellinum í Óbrynnishólum og
njóta þar kennslu. Þeir sem svo
mæta bæði kvöldin í Veiðisel og
eitt kvöld á skotvöllinn fá í hend-
urnar vottorð um að þeir hafi ver-
ið á gæsaveiðinámskeiði, og eiga
að vita hvað og hvernig þeir
skjóta.
Námskeiðsgjald er eitt þúsund
krónur fyrir aðra en skuldlausa
félagsmenn. Þátttaka á að til-
kynnast í st'ma 72783, 40190 eða
14477.
ns
Föstudagur 11. ágúst 1989 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 5