Þjóðviljinn - 11.08.1989, Page 8

Þjóðviljinn - 11.08.1989, Page 8
Máigagn sosialisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Síðumúla 6, 108 Reykjavík Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Ritstjóri: Árni Bergmann Umsjónarmaður Nýs Helgarblaðs: Sigurður Á. Friðþjófsson Fréttastjóri: Lúðvík Geirsson Útlit: Þröstur Haraldsson Auglýsingastjóri: OlgaClausen Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson Afgreiðsla: ‘H'68 13 33 Auglýsingadeild:®68 13 10-68 13 31 Verð: 140krónur Að maður græði á því Eins og margoft er fram tekið eru loksins komnir þeir tímar, að umtalsverður árangur næst í afvopnunarvið- ræðum. Sú þróun er ekki bein braut og greið, en mönnum ber þó saman um að andrúmsloft allt og aðstæður í samskiptum austurs og vesturs hafi breyst í þeim mæli, að hver sá sem nú reynir að finna sér smugu til að halda áfram vígbúnaðarkapphlaupi, hann á miklu erfiðar upp- dráttar en lengst af áður allar götur síðan heimsstyrjöld- inni síðari lauk. Þessi þróun kemur í Bandaríkjunum fram m.a. í því, að þingið fellur frá ýmsum áformum um ný vopnakerfi - flugvélar og eldflaugar til dæmis. Og gætu menn ætlað að sá sparnaður allur sé mönnum fagnaðarefni: ekki veitir af að þrengja feiknarlegt fjárlagagat hjá þeim í Was- hington, og kannski verður nú auðveldara að fá peninga í þann velferðargeira, sem Reaganstjórnin lét drabbast niður. En þá kemur að því sem einna erfiðast er í afvopn- unarsókn: að gífurlegum hagsmunum sem bundnir eru í vopnaframleiðslu. Bandarískur iðnaður er háðari hergagnapöntunum ríkisins í ríkari mæli en gerist í nokkru öðru vestrænu ríki. Þetta þýðir ekki aðeins að 40 þúsund fyrirtæki, stór og smá, lifa að verulegu leyti á vopnaframleiðslu og að 26 miljónir Bandaríkjamanna hafa af henni lifibrauð sitt - með beinum eða óbeinum hætti. Þetta þýðir líka, að stór hluti bandarískra iðnfyrirtækja hefur getað sópað saman feiknagróða meö fyrirhafnarlitlum hætti. Vopnaframleiðsla og viðskipti með vopn lúta nokkuð öðrum lögmálum en önnur framleiðsla. ( samskiptum ríkisvaldsins við vopnaverksmiðjur verður til gjörspilltur ríkiskapítalismi, sem er m.a. fólginn í því, að fyrirtækin taka enga áhættu, en græða þeim mun meira sem þau leggja meira í allskonar „kostnað" við framleiðsluna. Þessi auðveldi gróði vopnaframleiðenda hefur hins- vegar hinar skaðvænlegustu afleiðingar út um allt samfé- lagið. Vopnaiðnaðurinn bandaríski stendur sig svo illa að því er varðar afköst miðað við tilkostnað, að sérfræðingar telja að hann vinni að þessu leyti verr en sovéskur iðnað- ur, sem er þó eftirbátur hins bandaríska í mörgum grein- um. Vopnaframleiðslan sýgur til sín feiknamikið af hinum bestu vísindamönnum og rannsóknafé (til dæmis tvo þriðja af öllum, opinberum útgjöldum til rannsókna og framleiðsluþróunar). Alltþetta verður að meinsemd sem lamar bandarískan iðnað í heild og ræður m.a. miklu um það, að hann hefur dregist aftur úr vesturþýskum og japönskum iðnaði í framleiðslu neysluvarnings, þar sem barist er hart um hylli almennings og engin miskunn sýnd í verð- og gæðaslag. Að ekki sé minnst á það, að gróðabrall vopnaframleið- enda, sem hefur notið forgangsvinsemdar ráðamanna í Washington, hefur vitanlega komið niður á því gloppótta félagslega öryggisneti sem Bandaríkjamenn búa við. Það er talið að hergagnaframleiðendur séu svo þrotnir frumkvæði, að þingmenn undirbúa löggjöf um fjárhags- lega aðstoð hins opinbera við þá - til að auðvelda að þeir þoki sér yfir á framleiðslu varnings til friðsamlegra nota. En hvernig sem þeirri „forsjárhyggju" mun af reiða, þá er það víst, að í Bandaríkjunum er áfram til öflug hagsmunasveit, sem mun reyna að grípa hvert tækifæri, hverja snuðru í sambúð austurs og vesturs, til að rétta við sinn hag með vopnabraski. Það voru þeir sem skáldið orti um: Þótt borgir standi í báli, og beitt sé eitri og stáli, þá skiptir mestu máli, að maður græði á því... ÁB 8 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 11. ágúst 1989 Helgarveðrió Hjónin Skúli Valtýsson og Vilborg Þorfinnsdóttir með dóttur sinni Halldóru í garðinum við Fjólu- hvamm 11 í Hafnarfirði, en þau fengu viðurkenn- ingu fyrir fallegan og snyrtilegan nýjan garð. Þau byrjuðu á garðinum í fyrra og luku honum í vor og hafa þau að mestu leyti séð sjálf um framkvæmd- ina. Mynd Jim Smart. Eigendur Markarflatar 15 í Garðabæ fengu sérs- taka viðurkenningu fyrir sérstaklega snyrtilega lóð. Mynd Kristinn. Horfur á laugardag og sunnudag NA-átt, strekkingur um norðan- og austanvert landið með þungbúnu veðri, en hægari annarsstaðar. Víða - bjart veður á Suður- og Vesturlandi, en hætta á síðdegisskúrum inn til landsins. Þessi litli burstabær var í einu horni garðsins að Þúfubarði 8 í Hafnarfirði. Eigendur eru Nikólína Einarsdóttir og Sigfús Svavarsson en þau fengu viðurkenningu fyrir fallegan garð í áraraðir í gömlu hverfi. Mynd Jim Smart. Ólöf Guðjónsdóttir og Guðmundur Óskarsson fengu viðurkenningu fyrir garð með fallegum hleðslum og fjölbreyttum runnagróðri, en þau eru búsett að Glitvangi 15 í Hafnarfirði. Mynd Jim Smart Snyrtilegasta gata Garðabæjar er að mati umhverfismálanefndar Holtsbúð. Fyrstu húsin við götuna voru viðlagasjóðshús vegna gossins í Vestmannaeyjum og búa enn nokkrir Eyjamenn við götuna. Verður sett upp sérstakt skilti við götuna þessvegna. Mynd Kristinn. Verðlaun fyrir fegurð Sveitarfélögin keppast nú við að verðlauna viðurkenningu, bæði einstaklingum og fyrirtækj- garðeigendur, fyrirtæki og heilu göturnar fyrir um, fyrir natni við garða og umhverfi. Ljósmynd- umhverfisfegurð og snyrtimennsku. í vikunni sem arar Nýja Helgarblaðsins fóru á stúfana og mynd- leið veittu fegrunarnefnd Hafnarfjarðar og um- uðu nokkra garða sem hlutu náð fyrir augum hverfismálanefnd Garðabæjar ýmsum aðilum nefndarmanna. _____________________

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.