Þjóðviljinn - 22.09.1989, Page 2
SKAÐI SKRIFAR
Eglægi öld ur
í SÍS-málunum
Ég, Skaöi, man þá tíö aö Framsókn og SÍS voru helstu óvinir okkar
Sjálfstæðismanna. Það var mjög skemmtilegur tími með pústrum og
kjaftshöggum við kirkjur og danshús og öðrum heiðarlegum pólitísk-
um ástríðum. Þá hefðu menn fyrr étið ömmu sína en kaupa kex hjá
vitlausum aðila: sjálfur var ég einu sinni flengdur til blóðs fyrir að kaupa
pund af sykri í Kaupfélaginu (það var styttra að hlaupa þangað en til
Þorsteins kaupmanns). Og það var föðurbróðir minn hann Gísli út-
gerðarmaður, sem mælti þessi fleygu orð þegar stungið var upp á því
við hann aö hann keypti sambandsbensín úr Essótanki:
Nei, þá ek ég heldur bensínlaus!
Nú eru allir góðir siðir af lagðir, eins og menn vita, og varla að menn
blaki auga þótt einhver segist vera ofbeldisanarkisti sem ætlar að
hleypa út hænsnum og minkum - hvað þá meir. Því kom það mér
nokkuð á óvart, þegar ég hitti hann Garra á Tímanum í bænum í gær,
að hann gekk fram hjá mér snúðugt og tók ekki undir kveðju mína og
höfum við þó dreypt á sömu pyttlu á hestaþingi og soleiðis.
Andskoti ertu fúll, Garri, sagði ég.
Maður er ekkert að kankast á við Sjálfstæðislúsablesa þessa dag-
ana, sagði hann kalt og ákveðið.
Hvernig stendur á því? spurði ég sisona.
Hvernig stendur á því? hváði Garri. Ertu út úr kú? Hefurðu verið
laminn í hausinn?
Hvað gengur á? spurði ég sárasaklaus eins og fjallalamb fyrir
slátrun.
Það gengur það á, að þið íhaldsmenn viljið slátra SÍS.
Æ þú meinar það, sagði ég. Nú hvað, þú getur ekki ætlast til þess að
allir séu sáttir við að Landsbankinn reddi SÍS frænda svona líka
rausnarlega án þess að nokkur æmti né skræmti.
Þið hafið aldrei litið samvinnuhreyfinguna réttu auga, sagði Garri.
Þið hafið blimskakkað á hana glyrnum haturs og heiftar frá upphafi
vega. Þið vilduð svelta þingeysku frumkvöðlana í hel eins og Bretar
Búana í Afríku. Þið báruð það út að Jónas frá Hriflu væri Ijótur og
dópisti og snargeggjaður. Þið sögðuð að Vilhjálmur Þór væri stór-
svindlari með vinnukonuútsvar...
Nei, hvaða vitleysa, sagði ég, það voru kommarnir, maður, sem
aldrei gátu séð hann Villa greyið í friði.
Kommar eða íhald, mig gildir það einu, sagði Garri, þetta eru allt
saman erlendar öfgastefnur sem vilja kveða niður þá íslensku hugsun
sem samvinnustefnan er.
Jæja góði, sagði ég.
Eg er enginn góði þinn, sagði Garri. Ég les Morgunblaðið þitt og þar
er það boðað að koma skuli í veg fyrir að Landsbankinn kaupi Sam-
vinnubankann. Þar er með rósaflúri hvatt til þess að Samvinnuhreyf-
ingin verði sett á hausinn. Ekkert er athugavert við að Sambandið
verði gjaldþrota, stendur þar skýrum stöfum. Samvinnuhreyfingunni
verði útrýmt með pólitískum ráðstöfunum. Þetta er ekkert annað en
Auschwitzstefna íhaldsins gegn sínum mótstöðumönnum eins og ég
tók skýrt fram í Tímanum mínum á þriðjudaginn. Vér samvinnumenn
erum ykkar gyðingar og Þorsteinn Pálsson er ykkar Hitler!
Æ láttu ekki svona drengur, sagði ég. Mér þykir gott ef hann Steini
Páls er hann sjálfur, hvað þá einhver annar. Og er það ekki hann
Sverrir minn Hermansson sem er að redda þessu fyrir ykkur og
yfirtaka Samvinnubankann á, tja hvað skal segja - góðu verði. (Ég
vildi ekki espa ólukku manninn og talaði því varlega.)
Hræsni, fláttskapur og undirferli! æpti Garri.
Elsku vinur, sagði ég, Skaði, alræmdur mannasættir. Vfst andar
stundum köldu til SÍS í mínum flokki. En vita skaltu að það er eins með
okkur og SÍS og valinn og rjúpuna. Þegar Sjálfstæðisfálkinn hefur
klófest Sambandsrjúpuna og fer að rífa hana í sig, þá gerist það áður
en hann kemur að hjarta hennar að hann man að hann er í rauninni
hennar bróðir. Og þá fellir fálkinn tár og iðrast þess sem hann gjörði
eða ætlaði að fara að gjöra..
Ég meina að Sambandið verður að vera
í sambandi svo efnahagslífiö sé í sam
bandi og Seðlabankinn úr sambandi við
2 SIÐA - NÝTT HELGARBLAÐ í Föstudagur 22. september 1989
ILL MEÐFERÐ Á
SÍS BER VOTT
UM GRIMMT OG
GUÐLAUST
HJARTA
Morgunblaðið, málgagn Sjálf-.
stæðisflokksins, hefur upplýst að
meðal ráðamanna flokksins fari
fram umræður um að flokkurinn
beiti sér fyrir því að samvinnu-
hreyfingin verði við fyrsta tæki-
færi gerð að ösku í gasofnum
íhaldsins.
Leiöarí Tímans
ÚR ÖSKUNNI
í ELDINN
Ég hef verið framsóknarmaður
síðan í barnæsku. Alltaf kosið
flokkinn. Nú er ég búinn að fá
nóg. Davíð Oddsson er minn
maður.
Morgunblaöið
ÞÆR GETA ÞÁ
GENGIÐ AFTUR
Til hvers að setja slík lög (um
frjálsan útvarpsrekstur) ef ís-
lenskum útvarpsstöðvum er
hvorki gert kleift að lifa né deyja?
Morgunblaöiö
MIKIL ER TRÚ
ÞÍN FRÆNDI
Þjóðinni þarf að stjórna. Ríkis-
stjórn á að stjórna.
Alþýöublaðið
FLYTJUM NORÐUR!
Ekki verður komið í veg fyrir fok-
lyktar- og sjónmengun.
Bæjarstjórn
Mosfellsbæjar
GLÆPIR BORGA
SIG EKKI
Hælbrotinn þjófur með hangi-
læri.
Fyrírsögn
í Morgunblaóinu
LENGI ER
VON Á EINUM
Þess má að lokum geta að Shelley
(Winters leikkona) segir reyndar
líka frá nokkrum sjarmörum,
sem hún svaf ekki hjá.
Pressan
ÞAÐ BJARGAST
EKKI NEITT...
Hættulegast er að veikjast þar
sem margir læknar eru saman
komnir.
Sjúkdómapistill
Pressunnar
HVAÐ UM FOLANA?
Rauðsokkur munu ekki verða
hrifnar af þessari kvikmynd, en
stúlkurnar sem leika í henni gera
það af innlifun og eru jafnfrjáls-
legar og ungar merar.
Kynningarbæklingur
frá Stöð tvö
TÍMINN ER
PENINGUR
Fyrir skömmu ætlaði Svavar að
kaupa sig inn í auglýsinga- og
kvikmyndagerðarfyrirtæki í
borginni. Þegar til kom reyndist
framlagið ekki vera beinharðir
peningar heldur auglýsingatími á
Stöð 2.
Pressan