Þjóðviljinn - 22.09.1989, Page 5
rncn th aí'1 cfd tnrrro
I VAl X AJ XArXVJ OJI JVE/ X X XIX:
Herinn
Gróðalind SÍS
r
og Ihalds
Ólafur Ragnar Grímsson: Kemur vel til greina
að kaupa Regin og eignast meirihluta
í íslenskum aðalverktökum
Eg vil bara endurtaka það sem
ég hef áður sagt, að mér finnst
það vel koma til greina að ríkið
eignist meirihluta í íslenskum að-
alverktökum, sagði Ólafur Ragn-
ar Grímsson fjármálaráðherra
um það hvort Ríkissjóður hyggð-
ist kaupa Regin, dótturfyrirtæki
Sambandsins.
- Mér finnst mjög óeðlilegt að
nokkrar fjölskyldur úr innsta
hring Sjáfstæðisflokksins noti
ásamt Sambandinu herinn sem
gróðalind. í gegnum tíðina hefur
Sambandið ásamt aðeins örfáum
aðilum í Sjálfstæðisflokknum
sópað til sín gífurlegum fjárhæð-
um í viðskiptum sínum við her-
inn. Þetta er auðvitað mjög óeðli-
legt ástand, sagði Ólafur Ragnar.
Umræða um kaupin á Regni
komu upp í kjölfar sölunnar á
Samvinnubankanum og bágbor-
innar skuldastöðu Sambandsins.
Ólíklegt er talið að Ríkissjóður
komi Sambandinu til hjálpar
nema með því að kaupa dóttur-
fyrirtæki þess og þykir Reginn þá
hvað fýsilegasti kosturinn.
-þóm
Tómstundaskólinn
Sturlunga og glæpamyndir
Við sitjum hér sveittar við að
innrita nýja nemendur, sagði
Vilborg Harðardóttir skólastjóri
Tómstundaskólans, en skólinn er
að hefja vetrarstarfið í næstu
viku. Meðal nýjunga sem boðið
er upp á er Niðurlag Sturlunga
þar sem Indriði G. Þorsteinsson
kennir og Að rata um peninga-
frumskóginn.
Undanfarin ár hefur Tóm-
stundaskólinn boðið upp á um-
fjöllun um íslendingasögur og
hafa námskeiðin endað með ferð
um söguslóðir. Námskeiðið hjá
Indriða verður með sama móti og
fjallar hann þar um hnignun
Sturlunga, bardagana og annað
af því tagi.
Segja má að nokkur skyldleiki
sé með námskeiði Indriða og
öðru sem Viðar Víkingsson verð-
ur með en það nefnist Gullöld
glæpamyndanna - frásagnar-
tækni og heimssýn.
Hagnýt námskeið njóta ávallt
mikilla vinsælda og í vetur verður
boðið upp á tvö ný af þeirri gerð-
inni. Annað nefnist Að rata um
peningafrumskóginn sem Friðrik'
Halldórsson stýrir. „Það er ætlað
öllum þeim sem ekki skilja fjár-
málasíðu Morgunblaðsins,"
sagði Vilborg. Hitt nefnist Fars-
eðlaútgáfa og fargjaldaútreikn-
ingur, en þar leiðbeinir Ingibjörg
Sverrisdóttir.
Að sjálfsögðu býður skólinn
upp á fjölmörg önnur námskeið
sem verið hafa áður á dagskrá.
-ÞH
Fundur
Hvor segir satt?
Þeir Þorsteinn Pálsson og
Ólafur Ragnar Grímsson hafa
eldað grátt silfur saman að und-
anförnu vegna fyrirætlana þess
síðarnefnda um að skattleggja
fjármagnstekjur. Nú gefst tæki-
færi til að hlýða á þá saman á
fundi sem Samtök sparifjár-
eigenda efna til á sunnudaginn.
í frétt frá félaginu segir að
markmiðið með fundinum sé að
fá sjónarmið stjórnmálamanna á
skattlagningu fjármagnstekna og
leyfa sparifjáreigendum að koma
með fyrirspurnir.
Fundurinn hefst kl. 14 í Súlna-
sal Hótel Sögu með stuttum
framsöguerindum en kl. 14.40
hefjast hringborðsumræður
undir stjórn Ingva Hrafns Jóns-
sonar þar sem þátttakendur auk
þeirra Ólafs og Þorsteins verða
Jón Sæmundur Sigurjónsson frá
Alþýðuflokki, Steingrímur Her-
mannsson frá Framsóknarflokki
og Þórhildur Þorleifsdóttir frá
Kvennalista. -ÞH
Stjórn íslenskra bókaútgefenda. Mynd Kristinn
íslensk bókmenntaverðlaun
Miljón króna verðlaun
ið hefðuð varla getað fundið
betri afmælisgjöf til okkar
sem lesum bækurnar, sagði Svav-
ar Gestsson menntamálaráð-
herra á blaðamannafundi, þegar
stjórn Félags íslenskra bókaútge-
fenda tilkynnti stofnun „íslensku
bókmenntaverðlaunanna“, sem
forseti íslands afhendir. Eru þessi
verðlaun, sem nema einni miljón
króna og verða veitt í fyrsta skipti
15. janúar næstkomandi, stofnuð
í tilefni þess að Félag íslenskra
bókaútgefenda á hundrað ára af-
mæli á þessu ári.
Jón Karlsson, formaður Félags
íslenskra bókaútgefenda, skýrði
frá tilhögun þessara verðlauna.
Verða þau jafnan veitt í árslok
fyrir frumsamið íslenskt rit af
hvaða tagi sem er, sem komið
hefur út á árinu. Hver sá sem gef-
ur út bækur á þess kost að til-
nefna þær af útgáfubókum sínum
sem hann óskar að komi til álita
og skal hann greiða tilnefningar-
gjald til verðlaunasjóðsins fyrir
hverja bók, en það verður 30 000
kr. á þessu ári. Eiga þessi framlög
að verða stofn verðlauna hverju
sinni.
Fyrir 1. september ár hvert
skal síðan skipuð tíu manna dóm-
nefnd, og eiga eftirtaldir aðilar að
tilnefna einn fulltrúa hver: Félag
íslenskra bókaútgefenda, Rit-
höfundasamband íslands, Hag-
þenkir, Alþýðusamband íslands,
Bandalag háskólamanna, Banda-
lag starfsmanna ríkis og bæja,
Sjómannasamband íslands, Bún-
aðarfélag íslands, Vinnuveitend-
asamband íslands og Embætti
forseta íslands. Á þessi nefnd að
velja tíu athyglisverðustu bækur
ársins úr þeim flokki bóka sem
útgefendur hafa tilnefnt, og skal
hún hafa Iokið störfum sínum eigi
síðar en 5. desember.
Þann dag tekur síðan til starfa
fimm manna nefnd, sem fulltrúar
Félags fslenskra bókaútgefenda,
Rithöfundasambands fslands,
Alþýðusambands íslands,
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja og Embættis forseta íslands
eiga sæti í. Skal hún útnefna verð-
launabókina fyrir 15. janúar. Við
tilhögun þessarar verðlauna-
veitingar hefur að nokkru verið
tekið mið af Finlandia-
verðlaununum finnsku. En tekið
var fram að kerfinu yrði e.t.v.
breytt síðar, eftir því sem
reynslan gæfi tilefni til.
Heimir Pálsson benti síðan á,
að þótt dómnefndir fjölluðu um
bækurnar, ætti almenningur
einnig kost á því að hafa áhrif á
verðlaunaveitinguna, því at-
kvæðaseðlum verður dreift í
Bókatíðindum FÍB, og fær hann
þannig tvö atkvæði á móti fimm
atkvæðum dómnefndarmanna.
Svavar Gestsson lagði loks
áherslu á, að það væri jákvætt að
fleiri en opinberir aðilar sæju um
verðlaunin.
Vonuðust menn til að þessi
verðlaun yrðu auglýsing fyrir
bækur og ykju umræður. f þetta
skipti má búast við því að upp
undir fjörutíu bækur verði tií-
nefndar til verðlaunanna og
tekur fyrsta nefndin til starfa 1.
október.
e.m.j.
Hverra hagsmuna gætir Ragnheiður?
Yfirlýsing frá Leó Ingólfssyni
Eins og fram hefur komið í
Þjóðviljanum að undanförnu
hefur kastast í kekki milli Félags
íslenskra símamanna og Rafiðn-
aðarsambands Islands vegna
meintra tilrauna síðarnefndu
samtakanna til að tæla til sín fé-
lagsmenn þeirra fyrrnefndu.
Leiddi þessi deila til þess að ein-
um félagsmanna FIS var vikið úr
félaginu.
Sá brottrekni, Leó Ingólfsson,
hefur ekki tjáð sig um málið fyrr
en nú að hann sendir frá sér svo-
fellda yfirlýsingu:
„Ekki nenni ég að eltast við
allan vaðalinn úr Ragnhildi Guð-
mundsdóttur, formanni Félags ís-
lenskra símamanna, eða ruglið
um umslög, eyðublöð og frí-
merki, sem hún virðist hafa feng-
ið á heilann, en snerta auðvitað
ekkert kjarna málsins.
Hins vegar er það alltaf til
leiðinda þegar farið er rangt með
einfaldar tölur og mikilvægar
staðreyndir dregnar undan. Ég
tel því rétt að eftirfarandi komi
fram:
Fyrir það fyrsta eru
símsmiðirnir sem gengið hafa í
Rafiðnaðarsamband íslands,
ekki 80 talsins heldur 120.
í öðru lagi er það alls ekki upp-
haf þessa máls, að símsmiðirnir
fengu bréf á liðnu sumri eins og
Ragnhildur Guðmundsdóttir vill
láta fólk halda þótt hún sjálf viti
miklu betur. Það rétta er að í júlí í
fyrra höfðu nær fjórir tugir sím-
smiða skrifað Pósti og síma bréf
og óskað flutnings yfir á ráðning-
arkjör skv. kjarasamningi Raf-
iðnaðarsambands íslands. Þessi
bréf urðu svo rúmlega hundrað
áður en lauk. í framhaldi af þessu
var um miðjan ágúst í fyrra hald-
inn fjölmennur fundur símsmiða í
FÍS þar sem kosin var fimm
manna nefnd til þess að vinna að
framgangi málsins. Um þennan
fund var Ragnhildi Guðmunds-
dóttur fullkunnugt þótt hún vilji
bersýnilega helst gleyma honum
núna.
Að endingu er rétt að rifja það
upp, að þegar rafeindavirkjar hjá
ríkinu stóðu í sínu stríði hér um
árið, þá mættu þeir fullum skiln-
ingi, velvilja og jafnvel stuðningi
hjá starfsmannafélögum útvarps
og sjónvarps. Félag íslenskra
símamanna með Ragnhildi Guð-
mundsdóttur í broddi fylkingar
beitti sér hins vegar af alefli gegn
yfirlýstum vilja og hagsmunum
rafeindavirkja og gekk þar í lið
með samninganefnd ríkisins og
forsvarsmönnum Pósts og síma.
Þann leik á greinilega að endur-
taka núna við símsmiðina.
Virðandi fyrir sér Ragnhildi
Guðmundsdóttur uppstillta öðru
sinni þétt við hlið samninga-
nefndar ríkisins og forráðamanna
Pósts og síma, er ekki að furða
þótt símsmiðir og aðrir rafiðnað-
armenn spyrji í forundran
„Hverra hagsmuna er konan að
gœta???“ Leó Ingólfsson
Föstudagur 22. september 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5