Þjóðviljinn - 29.09.1989, Side 22

Þjóðviljinn - 29.09.1989, Side 22
Þjóðleikhúsið sýnir OLIVER eftir Lionel Bart. Þýðandi: Flosi Ólafsson. Leikstjóri: Benedikt Árnason. Hljómsveitarstjóri: Agnes Löve. Leikmynd og búningar: Sean Kenny. Lýsing: Mark Henderson. Hreyfingar og dans: Ingibjörg Björnsdóttir. Fyrsta frumsýning Þjóðleik- hússins á þessu leikári leit dagsins ljós í kjölfar markvissrar herferð- ar í fjölmiðlum sem miðaði að því að styrkja starfsemina í augum almennings. Prýðilega hannaðar auglýsingar, snotur bæklingur og vel skipulögð hrina af viðtölum, fréttum og breiðsíðum, allt var þetta stílað upp á gott upphaf í fyrstu sýningu haustsins um Oli- ver Tvist og hans grimmu örlög, Fagin, Nansí, Bill Sækes, Flrapp og allt það fólk. Þrátt fyrir það fór svo að undirtektir á frumsýning- unni sjálfri voru ekki nema hálf- volgar, hrifningin fór lágt og þeg- ar loks tókst að hífa stemmning- una upp í framkallinu vöknuðu strax spurningar í huga manns: hvers vegna þurfti þetta að fara svona? Óliver er einn af oss. Sagan hefur um langan aldur verið á kreiki hér á landi. Ef ég man rétt kom hún fyrst út á fjórða ára- tugnum í þýðingu Páls Skúla- sonar og var sú útgáfa stytt. Hún var endurprentuð einhvern tíma á sjöunda áratugnum og hafði þá verið sýnd hér kvikmynduð af David Lean og flutt í útvarpsgerð Giles Cooper sem framhalds- leikrit. Síðan hefur hún verið endurprentuð í annarri útgáfu í þrígang og er ný prentun væntan- leg á markað þessa dagana. Um 1960 tók Lionel Bart hana traustataki og skrifaði uppúr henni dásamlegan söngleik sem seinna var tekinn og kvikmynd- aður vestur í Hollywood. Þar endar líka þessi frægðarsaga því þótt kvikmyndin Oliver hafi ver- ið margverðlaunuð Óskörum er það löngum talið til marks um hversu þau verðlaun eru oft veitt óverðskuldað. Að síðustu ber að nefna að sag- an var flutt af Þjóðleikhúsinu fvrir nokkrum árum í leikgerð Arna Ibsens og naut þá nokkurr- ar hylli. Söngleikurinn Ég þekki söngleikinn Óliver fyrst og fremst af gamalli „music for pleasure”-plötu sem ég komst í sem barn. Þar kynntist maður þessum elskulegu, tilfinninga- sömu og snjöllu sönglögum sem Bart dró saman úr langri sögunni. Löngu síðar komst ég í kynni við hina frægu leikmynd Sean Kenny sem prýðir sviðsetningu Þjóð- leikhússins að þessu sinni og hef- ur verið umtalsefni meðal leikhúsfólks undanfarið misseri, ekki fyrir ágæti sitt, heldur fyrir Einn af oss þá sök að hún er nær þrítug og Ieigð frá London. Öliver er nefnilega „pakka”- sýning eins og það er kallað og er ekki nema að takmörkuðu leyti unnin hérlendis. Þetta þýðir að leikhúsið kaupir ekki einungis réttinn til sýninganna, heldur líka hljómsveitarútsetningu, radd- setningu, búninga, leikmynd, jafnvel letrið á heiti leiksins. í sumum tilfellum tekur þessi samningur líka til dansa, jafnvel getur hann inniborið sviðsetn- inguna sjálfa. Þannig var til dæm- is með My fair lady þá sá söng- leikur var fyrst settur hér á svið. Þetta þykir ákaflega ófínt fyrir- komulag meðal leikhúsfólks, fyrst og fremst á þeirri fosendu að innlendir sköpunarkraftar eru sniðgengnir við slíkar sýningar og eins að „framleiðsla” af þessu tagi sé fyrir neðan þeirra virð- ingu, óvirðing við listrænan metnað leikhúsa okkar og lista- fólks. Því er til að svara að allar sýn- ingar eru að einhverju leyti „pakkar”: höfundur gerir sér ákveðnar hugmyndir um fram- gang verks síns á sviði og í sumum tilfellum geta þær verið ákaflega einstrengingslegar og skert veru- lega starfssvið leikstjóra, leik- myndateiknara, jafnvel leikara. Höfundur kann að ganga svo frá verki sínu að þar sé hver hlutur njörvaður niður, viðbrögð leikara jafnvel tíunduð nákvæm- lega og hann þannig rígbundinn. Þessi afstaða höfunda er vissu- lega umdeilanleg. Leonard Bernstein, Stephen Sondheim og Jerome Robbins Laufey Sigurðardóttir Selma Guðmundsdóttir Tónleikar á Hvamms- tanga og Sauðárkróki Laufey Sigurðardóttir fiðlu- leikari og Selma Guðmundsdótt- ir píanóleikari halda tónleika á Hvammstanga á morgun, laugar- daginn 30. septem'oer, og hefjast þeir kl. 16. Daginn eftir, sunnudaginn 1. október verða þær með tónleika á Sauðárkróki og hefjast kl. 15. Síðan liggur leiðin suður og á þriðjudag verða tónleikar í Hafn- arborg í Hafnarfirði og hefjast þeir kl. 20.30. Á efnisskrá eru verk eftir Moz- art, Dvorák, Kreisler, Berio og Janacek. hafa ekki til þessa dags samþykkt neinar breytingar á West side story svo dæmi sé tekið, jafnvel ekki fallist á að sagán sé flutt til okkar tíma. Samuel Beckett hef- ur staðið fast á því að leið- beiningum sínum sé fylgt og hvergi breytt frá þeim. Deilan um höfundarrétt og leyfi til sveigjanleika í túlkun hef- ur hvergi verið hatrammari en í óperunni. Engum dettur í hug að breyta hljómsveitarútsetningum £ * * y ULI —1 m. PALL BALDVIN BALDVINSSON hinna sígildu höfunda, nema fjöl- di undirleikara í gryfju er mismunandi, en á sviðinu hafa leikstjórar farið einkar frjálst með vettvang sögu og túlkað tak- markaðar leikleiðbeiningar af miklu hugmyndaflugi. Svo er hin hliðin á þessu máli. Margir þeirra söngleikja sem fara um heimsbyggðina með upphaf- legum leikmyndum, búningum osfrv., gera það sökum þess að sérhver ný uppfærsla yrði ákaf- lega dýr. Þannig er það fjárhags- legur akkur ef nota má leikmynd frá London eða New York, útsetningar, raddskipan og dansa. Það sparar peninga. Bæði í alþjóðlegum listdansi og óperu tíðkast slík skipti mjög víða, enda er sá markaður alþjóðlegur og byggir að miklu leyti á starfs- kröftum sem fara land úr landi. Það er því fullkomlega rétt- lætanlegt hjá yfirstjórn Þjóðleik- hússins að efna til sýninga á Óli- ver með þeim hætti sem nú er orðið. Ég hef reyndar lengi furð- að mig á því að þessi umbúnaður skuli ekki hafa verið leigður og sýningin sviðsett hér löngu, löngu fyrr. Söngsins list Ytri umbúnaður á sýningum af þessu tagi leysir ekki listafólkið undan þeirri skyldu að gera sitt besta. Og það getur oft ekki reynst nóg. Gallarnir í sýningu Þjóðleikhússins eru nokkrir og eiga stóran þátt í að deyfa skemmtun kvöldsins og áhrifa- mátt leiksins. ’Óliver er söngleikur, mikill hluti af framrás sögunnar fer fram í söng, afstaða og tilfinning- ar sögupersóna eru tjáðar í söng. Til þess að koma verkinu sóma- samlegaá svið þarf góða söngv- ara. Ekki vantar að hljómsveitar- stjórn sé til mikillar prýði, undir- leikur var kraftmikill og þéttur, en mikið skorti á að vel heyrðist til söngvaranna og olli því bæði óskýr textaframburður og veik mögnun. Kórkaflar voru veikir, má þar til nefna Matarsöng drengjanna og Morgunsöng Óli- vers. Ekki er ljóst hvort hér má kenna um ónógri eða rangri kór- stjórn eða frumsýningarskrekk. Jafnvel í einsöng ágætra söngv- ara, Arnar Árnasonar, Flosa Öl- afssonar, Ragnheiðar Steindórs- dóttur, skorti mikið á að greina mætti söngljóðin aftur á tíunda bekk. en þann galla má laga. Verra er þegar ungar raddir hafa verið valdar til stórra átaka en valda því ekki. Leikurinn í leik byggir söngleikurinn Óli- ver á örfáum skýrt mörkuðum persónum annars vegar og hins vegar á stórum hóp kórfélaga, drengja og fullorðins fólks. Miklu máli skiptir í svið- setningu verksins að leikstjóri og dansa- og hreyfingahöfundur leggi ríka rækt við kórinn, haldi honum innan marka þannig að hann skyggi ekki á aðalleik- endur, en gefi hverjum og einum jafnframt næga leiðbeiningu, jafnvel skýra persónu, nóg að að- hafast. Sá hluti leiksýningarinnar er sárlega daufur og er þar engum um að kenna nema Ingibjörgu og Benedikt. Nægir þar að benda á stök atriði, td. viðbrögð drengja- hópsins þá þeir fá matinn í upp- hafinu, viðbrögð þeirra þegar Fagin kennir Öliver að stela í fýrsta sinn, ellegar leik kórs hinna fullorðnu í Morgun- söngnum fyrrnefnda. Ekkert er mikilvægara í sviðsetningu söng- leiks en kóratriði. Hér á landi vill það oft brenna við að kóratriði mistakist, verði vandræðaleg í hreyfingum og hafi á sér yfir- bragð áhugamennsku. Þetta er viðvarandi vandamál sökum þess að laun þessa hóps eru smánarleg og hann byggist að jafnaði upp á áhugafólki. En það leggur leik- stjórum og kórstjórum því meiri ábyrgð á herðar. Persónugallerí leikaranna er mun ánægjulegra: má þar fyrst til nefna heimilisfólkið allt hjá lík- kistusmiðnum þar sem andi sög- unnar virtist loks ætla að ná í gegn. Flosi Ólafsson var með sínu móti í hlutverki herra Bumble og gæti að ósekju lagt sig meira fram, ekki síst sökum þess að hann leikur Bumble öðru sinni; samleikur þeirra Margrétar Guðmundsdóttur er svipur hjá sjón og þar kemur í fyrsta sinn fram einn veikleikinn í svið- setningu Benedikts og Ingi- bjargar - leikararnir hafa ekki nóg að gera í söngatriðunum, þá skortir athafnir, hreyfingar í sam- 22 SÍÐA - NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 29. september 1989 ræmi við efni söngvanna. Þetta kemur einna best fram í söngvum Nansíar og Fagins. Ragnheiði Steindórsdóttur og Þórhall Sig- urðsson skortir sárlega athafnir söngnum til stuðnings og fyrir bragðið verður leikur þeirra svip- lítill og flatur, sem ekki er ástæða til þegar ágætt listafólk á í hlut. Þórhallur hefur nú loksins ver- ið ráðinn til starfa í Þjóð- leikhúsinu og sannar eins og við var að búast að hann á þangað fullt erindi. Hann er tromp Þjóð- leikhússins í sýningunni, segul- linn sem á að draga til sín áhorf- endur. Það er rétt að staðnæmast við hann. Fagin er í sögu Dickens hið al- gera illmenni. Hann iðrast ekki þótt börn og unglingar fari í gálg- ann fyrir hans atbeina. Fyrir- myndir hans eru kunnar og hafa nýlega verið rakin dæmi um slíka glæpahöfðingja í riti Roberts Hughes um fanganýlendur Ást- ralíu - The Fatal Shore. Bart breytir hlut hans í sögunni mikið og lætur kall sleppa og þá vísast í þeim tilgangi að láta hið illa halda nokkru jafnvægi við sigur Ijóss og birtu. En eðlis- breyting á persónugerðinni er vandséð og túlkun Ladda miðar sýnilega að því að gera hann meinlausari og saklausari. Fagin er gyðingur og ber ein- kenni hina júðsku erkitýpu eins- og hún hefur verið dregin upp í vitund almennings um aldir. f kvikmynd David Lean dró Alec Guinness upp ógleymanlega mynd af Fagin og skóp nánast það far sem allir seinni tíma túlk- endur hlutverksins hafa sótt í, en túlkun hans kom illa við menn og hefur Guinness seinna lýst henni sem því eina sem hann sá eftir á sínum ferli. Bart sneiddi hjá því að draga fram þjóðerni Fagins utan þess að tjá það í tónlist. í einu magn- aðasta lagi söngleiksins lýsir Fag- in stöðu sinni og þrá. Þar beygir hann af. Lýsir útskúfun sinni og einsemd. Það er til marks um leik Ladda að hann sneiðir hjá því að grípa þetta eina tækifæri sem honum gefst í annars fag- mannlegri og „léttri” túlkun sinni til að gefa pérsónunni dýpt, rífa sig lausan úr farinu og fara í ann- að. Hvað þurfti til þess? Vilja, leiðbeiningar, hvatningu? Framkall á frumsýningu Þannig et sýning Þjóðleik- hússins blandin ánægja. Hún er gölluð en snotur útlits, nokkuð skrykkjótt í uppbyggingu. Þýðing Flosa var áheyrileg, það sem heyra mátti af henni. Ekki skil ég hvers vegna hann þýðir „My name” - í söng Bill Sækes - sem „mitt nafn” en ekki „nafn mitt”, ellegar hvers vegna tvíræðnin í söng Nansíar - Búmsara - verður ofljós. En það er vístspurningum smekk. Lýsingin á gullfallegri leik- mynd Seans heitins Kennys er ekki sæmandi. Það undarlega var að daufar undirtektir frumsýningargesta, sem mér þóttu ofureðlilegar, breyttust skyndilega þegar komið var að leikslokum. Framkallið er hresst upp með söngbrotum úr sýningunni og þá var eins og hóp- ur leikaranna næði loksins sam- bandi við áhorfendur, rétt eins og þeir vildu þrátt fyrir allt fagna sýningunni. Barlómur þjóðleik- húsmanna kann þrátt fyrir allt að hafa komið því til leiðar að þeir njóti samúðar áhorfenda sinna. En þeir verða eftir sem áður að sætta sig við að vera dæmdir af verkum sínum. Á vorkunnsemi lifir enginn lengi. Sýning þeirra á Óliver hlýtur að vekja umræður, einkum um þjálfun ómenntaðra krafta í leiksýningum sem krefj- ast svo mikils af þátttakendum sínum. Og eins hvort það er vog- andi fyrir leikhús af þessari stærðargráðu að setja sýningar af þessu tagi á svið og byggja þær í jafn ríkum mæli á viðvaningum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.