Þjóðviljinn - 03.11.1989, Síða 25
ANDREA
JÓNSDÓTTIR
sem ég komst næst eftir að hafa
púslað saman hugmyndum þess-
arar ágætu orðabókar. En fyrir-
sögn þessa er að finna í nýjasta
hefti tónlistarblaðsins Musician,
og er undirfyrirsögn: Rokk-
stjörnur koma fram og fara, en
góð ímynd er eilíf. Ekki er hér um
alvarlega úttekt að ræða hjá blað-
inu á þessu efni, en það er
skemmtilega útfært með stuttum
klausum og myndum til stuðnings
kenningunni... og látum oss þá
líta á hinar ýmsu rokkmanngerð-
ir, sem hafa endurtekið sig á
þrem síðustu áratugum:
Svarti sígauninn
7. áratugurinn: Jimi Hendrix.
8. áratugurinn: Sly Stone.
9. áratugurinn: Prince.
Ekki víst að svartir kynbræður
meðvitaðir fíli litríkan og hippa-
legan útganginn - jafnvel kven-
legan... og í versta falli homma-
legan! En hver getur látið vera að
dást að meðferðinni á gítarn-:
um... á bakinu, með tungunni...
fáiði bara Dylan til að reyna’ða!
Steríótýpur
Það má Guð vita að ég fletti að þýða fyrirsögnina yfir á ís-
upp orðabókinni nýju og fínu frá lensku, en féll frá að láta yfir-
Erni og Örlygi til að freista þess skriftina vera: Staðlaðar ímyndir,
Litaöa Ijóskan
Lifandi lík
7. áratugurinn: Keith Richards.
8. áratugurinn: Keith Richards.
9. áratugurinn: Keith Richards.
Mick hagar sér einu sinni enn
eins og p...., en þú munt samt
koma þessu bandi á hljómleika-
ferðalag einu sinni enn. Er þessi
frasi sem þú varst að hrista fram
úr gítaranum eins og frá Chuck
Berry? Hvað með það? Hvar er
visky-flaskan, elskan? Hver
hleypti þessum löggum inn? Mút-
iði þeim og segið þeim svo að fara
til andskotans.
7. áratugurinn: Nancy Sinatra.
8. áratugurinn: Debby Harry.
9. áratugurinn: Madonna.
ímyndin sótt til Marilyn Monr-
oe - á yfirborðinu ertu pabba-
stelpa sem veist ekki hvað þú ert
sexý, en undir niðri ertu kald-
hæðin og veist þínu viti, og not-
færir þér þá sem halda að þeir séu
að nota þig. Sem sagt: „sex“
innan gæsalappa, og peningar í
bankanum.
Stúlkan meö
7. áratugurinn: Joni Mitchell.
8. áratugurinn: Rickie Lee Jones.
9. áratugurinn: Edie Bridkell.
Þú ert feimin, listræn og mitt á
milli þess að vera barn og kona,
innhverf og næm fyrir falinni feg-
urð og viðkvæm gagnvart ónærg-
ætni fólks. Þú málar, yrkir per-
alpahúfuna
sónulega um þín innstu einka-
mál. Þú ert pínulítið brjáluð, dá-
lítið villt en saklaus um leið. Þú
spilar á kassagítar þegar þú ert
hamingjusöm, þú situr í myrkri
við píanóið þegar þú ert döpur,
og - þú ert með alpahúfu.
Föstudagur 3. nóvember 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25