Þjóðviljinn - 15.06.1990, Side 2
iVWiViYimVtYiWIWiTl
SYSTIR SKAÐA SKRIFAR
Er ekki
tilveran
dásamleg?
Ég hef tekið sinnaskiptum. Ég er hætt að
vera uppá kant. Allt mitt líf hef ég rexað og
rifist yfir svindli og svínarii, kvennakúgun og
karlrembu, uppfoki, sauðafári, launamisrétti
og almennu óréttlæti, snobbhænsnum, roð-
hænsnum, monthænsnum og ég veit ekki
hverju, en nú, nú ætla ég að snúa við blaðinu.
Ég hef skipt um skoðun. Ég ætla að vera já-
kvæð. Ég ætla að vera ánægð með allt, sama
hvað það er og ég byija barasta hér og nú.
Ég er nefnilega búin að vera á námskeið-
um hjá honum Mikka og vinum hans, alveg
yndislegu fólki sem kemur hingað langt utan
úr heimi bara til að sýna okkur Ljósið. Ég var
svo gasalega neikvæð þegar ég fór á fyrsta
námskeiðið að ég var alveg hreint að drepast,
mér fannst þetta nefnilega svo dýrt, en hvað,
þetta er ekkert dýrara en svona venjulegur
Listahátíðarmiði og hvem munar svosum um
þann pening? Sko, hann messaði eitthvað yfir
okkur hann Mikki en það var alveg í byijun og
ég svo neikvæð að ég tók eiginlega ekkert eft-
ir því, en svo Iét hann okkur fara í sona djúpa
hugleiðslu afþví við vorum öll svo gamlar sál-
ir þama og höfðum lifað svo margt, annars
hefðum við ekki komið á þetta námskeið. Þá
hefðum við sko látið verðið fæla okkur frá.
Allir upplifðu eitthvað alveg æðislegt í
hugleiðslunni nema ég, eða ég upplifði sko
líka eitthvað alveg æðislegt en ég man það
ekki, það var nefnilega öðruvísi. Ég skammast
mín nú svona aggapínu að segja frá því, - ég
sofnaði nefnilega og hraut vlst pínulítið, en
það heyrðu engir nema þeir sem sátu alveg við
hliðina á mér en það var samt allt I lagi því
þeir héldu auðvitað að þetta væm bara einhver
hljóð úr öðmm viddum, fimmtu víddinni eða
eitthvað svoleiðis. Og þvílíkur svefn! Þvílíkur
blundur! Ég vaknaði endumærð, ný og betri
manneskja og var orðin jákvæð. Ég er búin að
fara á alveg fullt af námskeiðum, hér eftir mun
drjúpa hunang af hverju mínu orði, ég hef
fengið mér bleikan skrifpappír með rósailmi,
ég hef gert mér grein íyrir því sem hefur raun-
vemlegt gildi í tilverunni, já, nú sé ég heiminn
í nýju ljósi og það er alveg yyyyyndislegt!
Ég er svo voðalega ánægð með Listahátíð
og sautjánda júní, sérstaklega sautjánda júní.
Ég tel dagana fram til þessarar merku hátíðar
og ég hlakka svo til því þá ætla ég snemma á
fætur, klæða mig í mitt besta púss og spásséra
fyrst í kirkjugarðinn og svo niðrí bæ að minn-
ast afmælis landsölunnar, - afsakið fullveldis
þjóðarinnar. (Nú em þeir hjá NATO orðnir
sammála um að þeir ætli að taka tillit til ör-
yggishagsmuna Sovétríkjanna í viðræðum um
sameiningu Þýskalands, ég las það í Moggan-
um, og em þetta ekki alveg frábærlega góðir
og yndislegir menn? Hugsa sér!)
Ég ætla að hlusta á ávarpið um ástmöginn,
sverðið og skjöldinn alveg frá byrjun og ég
ætla að góna upp til hans í hrifningu á meðan
þar sem hann stendur þessi elska þakinn
spanskgrænu og dúfnaskít nema honum hafi
verið þvegið síðan ég leit á hann síðast, en ég
vona ekki, þvi þannig hefur hann nú vissan
sjarma, það fer ekkert á milli mála. Og von-
andi svíkur blessuð rigningin og rokið okkur
ekki í ár frekar en endranær, ég verð alveg
miður mín ef það gerisl þó auðvitað muni ég
reyna að taka því af mestu hetjulund, en ég er
nú orðin svo jákvæð að mig hreinlega
dreplangar til að fóma með glöðu geði bæði
andlitsfarðanum og hárgreiðslunni sem ég
ætla að skarta i tilefni dagsins bara fyrir hann
Nonna minn.
Oh, hann er svo mikið krútt hann Nonni,
svona lífsreyndur og heimilislegur, - hann
barðist nú alltaf fyrir okkar málstað, svo að
við losnuðum við bévítans baunann sem vissi
ekki betur en að láta okkur éta maðkað mjöl
og rækta kartöflur og ég veit ekki hvað. Og
svo stendur hann þama alveg einsog stórbóndi
og horfir á Alþingishúsið einsog það væri
fjósið hans og það á hann margfaldlega skilið
þessi elska, og þannig getur hann líka fýlgst
með því þegar það em sett lög gegn verkfóll-
um og kauphækkunum og svoleiðis. Blessað-
ur kallinn!
Það er eiginlega alveg agalegt að við skul-
um ekki muna efiir honum nema einu sinni á
ári og tæplega það, en ég geri að tillögu minni
að hann verði settur inní Kringlu því þangað
koma svo margir og þá getur hann líka í alvör-
unni séð hvað allt er orðið næs hér á íslandi
síðan við fengum sjálfstæðið. Þá þurfum við
ekki heldur að horfa sona mikið uppí loftið til
að taka eftir honum, við getum bara tekið
rúllustigann upp til að sjá betur framan í hann,
- úr hæfilegri íjarlægð, auðvitað.
í ár ætla ég Iíka að hlusta á ávarp fjallkon-
unnar alveg frá upphafi og eftir það getur eng-
inn sagt að ég sé ekki orðin jákvæð því það
hefur aldrci áður hvarflað að mér að gera.
Hvað ætli blessunin hafi nú að segja í ár?
Hveiju skyldi hún hafa ungað út síðan síðast?
Það verður ömgglega bæði fróðlegt og
skemmtilegt, verst hvað það er erfitt að skilja
hvað hún er að fara, það heyrist sko á henni að
hún er alls ekki vön að tjá sig á opinbemm
vettvangi. Við ættum að leyfa henni að æfa sig
oftar, ég er viss um að hún lumar á ýmsu, og
þar að auki kæmumst við þá að því hvurslags
fyrirbæri hún er eiginlega. Það mætti Iíka taka
við hana viðtal, ég er viss um að margir vildu
fá að vita hvað henni finnst til dæmis um
græna átakið og landsmálin svona yfirleitt, en
annars er hún ömgglega með þessu græna,
mér finnst það barasta liggja í nafninu að hún
sé með því að litla sæta meme fái meira að bíta
og brenna. Og svo vildi ég líka fá að vita hvar
hún er geymd á milii sautjándu júníanna, ég
meina afhveiju má hún ekki standa á Austur-
velli líka einsog hann Nonni? Ég er viss um að
þau væm alveg gasalega huggulegt par.
Og svo er nú elsku blessaður borgarstjór-
inn okkar búinn að landa fýrstu löxunum úr
Elliðaánum á þessari vertíð og það á sjálfan
sjómannadaginn og annar bara svo stór að ég
skil vel að það hafi verið alveg sérstök tilfinn-
ing! Ég fékk líka alveg svona sérstaka tilfinn-
ingu bara af því að horfa á hann. Og mér finnst
svo gott að Sjónvarpið skuli loksins hafa fatt-
að hvað em raunvemlegar fréttir og hafi notað
lungann úr fréttatímanum til að leyfa okkur að
fylgjast með fiskiríinu hans Dabba krútts, ég
segi það satt.
Oh, hvað heimurinn er yyyndislegur! — Og
nú verðum við öll að vera voða dugleg að
reykja og drekka til að hjálpa til við að rétta
hallann á ríkissjóði og draga úr ótætis verð-
bólgunni. Bless elskumar!
Systir Skaða
Þú skilur að við | Já, en þið Nú, hvers konar
getum ekki hækkað i skrifuðuð undir, jfesSa ^ félagshyggju-vinstri-
kaupið ykkar! J ertu búinn að [ mannúðarstjóm
gleyma því? I Nei, nei. | er þetta eiginlega?
Sjáðu til, æðstu menn
Launalögreglunnar hafa
kveðið upp sinn dóm og
þá segjum við bara pass!
fc,1990 Tribune Media Services,
AII Rights Reserved
I ROSA-
GARÐINUM
SÁ Á FUND
SEM FINNUR
Karl Tryggvason: Fann or-
sök ættgengs nýmasjúkdóms.
Fyrrísögn í DV
ÖNNUR ELLA
KRATI EÐA JAFN-
AÐARMAÐUR
Hann (Alþýðuflokkurinn)
gæti orðið freistandi valkostur
fýrir okkur ef ýmsar breytingar,
svo sem nafnbreytingin, kemst í
gegn.
Allaballi í viótali við
DV
FÉ KOMIÐ
AF FJALLI
Timi pólitískrar smölunar
liðinn í Alþýðubandalagi.
DV
UPP KEMST UM
STRÁKINN TUMA
Faðir Bangsímons hafði ekki
gaman af bömum.
Tíminn
HVAÐ ER HVAÐ OG
HVAÐ ER HVURS?
I umfjöllun...um framboðs-
mál (þ.e. Nýs vettvangs) hefur
láðst að gera greinarmun á
þrennu: *
1) Borgarstjómaraflinu
„Nýjum vettvangi”,
2) félagsskapnum „Samtök
um Nýjan vettvang”,
3) hugtakinu „nýr vettvang-
ur” á sviði stjómmála.
Vettvangsmaöur í DV
ÖLLU MÁ
NAFN GEFA
Samvinnusaga: Nýr kapítuli.
Sambandið, í sinni núverandi
mynd verður ekki lengur til...
Tíminn
NÝTT MET I META-
BÓK GUINESS?
Aður en yfir lauk náði þessi
smávaxni, meinleysislegi maður
að lokka til sín 72 litlar telpur,
nauðga þeim og myrða slðan
með sveðju.
Tíminn
STÉTTARÓVINUR-
INN FUNDINN!
Svo er það stóra spumingin:
Hvað er þetta sem kallað er auð-
vald á Islandi? Það getur varla
verið annað en fjármálaráðherra.
Borgaraflokksmaður
íDV
ALLT SAMKVÆMT
VENJU
Nær allir sjómenn verða í
landi á sunnudag: Sjómannadag-
urinn haldinn hátíðlegur
Fyrirsögn í Tímanum
KKI VEIT
GO i i •••
Þeir sem ferðinni ráða í Al-
þýðufiokknum sjá ekkert annað
en völdin og aftur völdin og beita
miskunnarlausum valdahroka
gagnvart almenningi, án þess að
hafa á því nokkur efni.
Einn þingmanna
Alþýðuflokksins í DV
2 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 15. júní 1990