Þjóðviljinn - 15.06.1990, Side 10
AUGLÝSINGAR -
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því
að eindagi launaskatts fyrir maímánuð er 15.
júní n.k. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga
skal greiða dráttarvexti til viðbótar því sem van-
greitt er, talið frá og með gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til
innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík toll-
stjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í
þríriti.
Fjármálaráðuneytið
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Staða framkvæmdastjóra við Fjórðungssjúkr-
ahúsið á Akureyri er laus til umsóknar. Ráðið
verður í stöðuna til 4 ára. Gerð er krafa um
reynslu af stjórnun, gjarnan innan heilbrigðis-
geirans.
Á F.S.A. er rekin fjölbreytt starfsemi. Þar starfa
yfir 500 manns og fjöldi sjúkrarúma er 170.
Nánari upplýsingarveitirformaðurstjórnar, Jón
Sigurðsson í síma 91-29066 á daginn og síma
91-621316 á kvöldin.
Umsóknarfrestur er til 20. júní 1990.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf, sendist til stjórnar F.S.A. pósthólf 380,
602 Akureyri.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Skrifstofustjóri
Staða skrifstofustjóra við Sjúkrahúsið á Egils-
stöðum er laus til umsóknar.
Starfið felst í bókhaldi, umsjón launaútreiknings
og staðgengilsstörfum fyrir framkvæmdastjóra
og veitist frá 1. september n.k. Upplýsingar gef-
ur framkvæmdastjóri í síma 97-11073.
Bifhjólamenn
hafa enga heimild
til að aka hraðar
en aðrir!
||UMFERÐAR
ASKRIFENDUR!
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn í Þinghóli mánudaginn 18. júní kl.
20.30.
Dagskrá:
1. Urslit sveitarstjórnarkosninganna.
2. Undirbúningur miðstjórnarfundar í júní.
3. Önnur mál.
Stjórnin
Jónsmessu-sumarferð Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík um Snæfellsnes
dagana 23. og 24. júní:
Lagt verður upp í ferðina frá Hverfisgötu 105 kl. 10.00 laugardag-
inn 23. júní. Ekið áleiðis að Staðarstað, þar sem séra Rögnvaldur
Finnbogason tekur á móti ferðalöngum. Þaðan ekið fyrir Jökul í
fylgd Skúla Alexanderssonar, og ýmsir merkisstaðir skoðaðir í
leiðinni. Kvöldvaka og gistina á Hellissandi.
Á sunnudag verða félagar í Olafsvík og Grundarfirði heimsóttir.
Áætlað verð með svefnpokaplássl kr. 2.800,- fyrir manninn.
Hægt verður að útvega gistingu í sérherbergjum með morgunmat
gegn aukagreiðslu.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti!
Munið eftir nesti og söngbókinni.
Tekið verður á mótl pöntunum í ferðina á skrifstofu AB, sima
17500, einnig á kvöldin og um helgina hjá Guðrúnu, síma
25549 og Ragnari, síma 16675.
Ferðatilhögun nánar auglýst síðar.
Ferðanefnd ABR
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík
Aðalfundur
Úr einni sumarferð AB á Austurlandi. (Ljósm. H.G.)
Alþýöubandalagið á Austurlandi
Sumarferð laugardaginn 7. júlí 1990
um Reyðarfjarðarhrepp hinn forna
Búðareýri - Hólmanes - Eskifjörður - Breiðavík - Vöðlavík
Rútur leggja af stað sem hér segir:
★ Frá Egilsstöðum (Söluskála KHB) kl. 09.00.
★ Frá Neskaupstað (Söluskála Skeljungs) kl. 08.30.
★ Frá Breiðdalsvík (Hótel Bláfelli) kl. 08.00.
Safnast verður saman undir Grænafelli innst í Reyðarfirði kl.09.30
á laugardagsmorgni. Skoðaðar minjar um herstöðvar á Reyðar-
firði, gengið um friðland á Hólmanesi, litið á sjóminjar á Eskifirði,
silfurbergsnámu við Helgustaði, heimsóttur einokunarkaupstaður
á Útstekk við Breiðuvík og ekið um Víkurheiði til Vöðlavíkur.
Ferðalok um kl. 19.
Staðkunnugir leiðsögumenn (Helgi Seljan, Hilmar Bjarnason
o.fl.) lýsa söguslóðum og náttúru.
F^rarstjóri: Hjörleifur Guttormsson.
Þátttakendur skrái sig sem fyrst hjá Ferðamiðstöð Austur-
lands, Egilsstöðum, sfmi 12000.
Hafið meðferðis nesti og gönguskó.
Allir velkomnir. Kjördæmisráð AB
Fundur miðstjórnar
Alþýðubandalagsins
haldinn á Egilsstöðum dagana 29. júní til 1.
júlí næstkomandi
Föstudagur 29. júní kl. 20.30
1. Fundurinn settur í húsakynnum Menntaskólans á Egilsstöðum
2. Stjórnmálaumræður
2.1. Störf ríkisstjórnarinnar / Árangur í efnahagsmálum.
2.2. Úrslit sveitarstjórnarkosninga / Stjórnmálaástandið staða
flokksins.
Laugardagur 30. júní kl. 9.00
Framhald stjórnmálaumræðna.
3. Flokksstarfið - Undirbúningur Alþingiskosninga.
4. Sjávarútvegsmál.
5. Landbúnaðarmál.
6. Önnur mál.
Um kl. 16 á laugardag verður gert hlé á fundarstörfum og farið í
heimsókn til Neskaupstaðar. Þar verður staðurinn skoðaður og
kvöldinu síðan eytt í boði heimamanna.
Sunnudagur 1. júlf kl. 10.00
Framhald umræðna
Afgreiðsla mála.
Fundi lýkur eigi síðar en kl. 15.00.
Að loknum fundi á sunnudag býðst fundarmönnum að fara í
skoðunarferð um nágrennið.
Flug og gisting
Aðalfundur verður haldinn laugardaginn
götu 105.
Dagskrá:
1. Skýrsla uppstillingarnefndar.
2. Lagabreytingar og tillögur.
3. Umræður.
4. Kosning stjórnar.
5. Önnur mál.
Málefnafundur á Punkti og pasta (fyrrverandi Torfu) á miðviku-
dagskvöld, 20. júní. Útlitið framundan - starfið í sumar.
Nefndin
Greiðið
16. júní kl. 14, Hverfis-
Uppstilllngarnefnd
Hafið samband við afgreiðslu
Léttið
blaðberu
störtin
áskriftargjaldið
með
greiðslukorti
ísima
681333
, millikl. 9.00-17.00
virka daga, eða
blaðbera og
umboðsmann okkar.
þlÓÐVILIINN
™ « 'A . ... r m _ n —
Síðumúla 37
Ferðamiðstöð Austurlands hf. sér um skráningu í flug til Eg-
ilsstaða og í gistingu.
Nauðsynlegt er að miðstjórnarmenn skrái sig sem fyrst og í
síðasta lagi 25. júní.
Síminn í Ferðamiðstöð Austurlands er 97-12000.
Steingrfmur J. Sigfússon
formaður miðstjórnar
Alþýðubandalagsins
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
Félagsfundur
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði og bæjarmálaráð ABH boða til
almenns félagsfundar í Skálanum,
Strandgötu 41, mánudaginn
18. júní kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Niðurstaða kosninganna:
Magnús Jón Árnason bæjarfulltrúi.
2. Starfið framundan.
3. Önnur mál.
Allir félagsmenn og aðrir stuðningsmenn
eru hvattir til að mæta á fundinn.
Stjórn ABH og bæjarmálaráðs
10 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 15. júní 1990