Þjóðviljinn - 15.06.1990, Blaðsíða 11
Þjóðleikhúsið
Myndabók
Jónasar
Þrátt fyrir viðgerðir á Þjóðleik-
húsinu sitja starfsmenn þess ekki
auðum höndum. Á morgun verð-
ur á Kjarvalsstöðum frumsýnd
leikgerð Halldórs Laxness Úr
myndabók Jónasar Hallgríms-
sonar í tilefni af Jónasarþingi,
sem haldið er um helgina.
Þuríður Pálsdóttir tónlistar-
stjóri verksins og Guðrún Þ.
Stephenssen leikstjóri segjast
lengi hafa átt sér þann draum að
sýna þessa leikgerð Laxness,
sem frumflutt var í Trípólíbíói árið
1945, en hefur síðan ekki verið
flutt í heild sinni.
Leikgerðin hafði glatast, og
þær stöllur voru lengi að hafa upp
á handritinu svo að mögulegt
væri að setja verkið upp að nýju.
Við fundum slitur hér og þar,
segja þær, í kommóðuskúffum,
milli nótnablaða hjá Sinfóníunni,
uppi í útvarpi og víðar. Þuríður
segist meira að segja hafa fundið
hluta leikgerðarinnar í nótna-
drasli hjá föður sínum, eins og
hún orðaði það. Hver fundur var
miklvægur, segja þær. Eins og
áður sagði hafði þær lengi dreymt
um að hafa upp á leikgerðinni, og
var upphaflega hugmyndin að
færa hana upp á jólum í Þjóðleik-
Katrín Sigurðardóttir óperusöngkona í hlutverki stúlkunnar og Torfi F.
Ólafsson, sem leikur piltinn.
Helgarveðrið
Horfur á laugardag og sunnudag: Suðaustlæg átt um allt land. Skúrír vlða
um sunnan- og vestanvert landið, en þurrt að mestu á norðausturiandi. Hiti á bilinu
10 til 18 stig, hlýjast norðanlands.
f ViHÉt’p -í i|: 1 V|
- r » kr' S ■ ' . flf ■
Franska hirðfíflið daðrar við ensku hirðmeyjarnar í sögunni Þegar drottningin af Englandi heimsótti
konunginn á Frakklandi. Myndir: Kristinn.
húsinu, en leitin gekk brösug-
lega.
Það var ekki fyrr en aðstand-
endur Jónasarþings leituðu til
okkar að við gerðum alvöru úr
því að leita vandlega að Mynda-
bók Jónasar, segja þær.
Svo skemmtilega vill til að Þu-
ríður steig sjálf sín fyrstu skref á
sviði þegar verkið var flutt í Tríp-
ólíbíói á sínum tíma, en faðir
hennar Páll ísólfsson samdi tón-
listina við ljóðin. Við samningu
Kossavísna lét Páll dóttur sína
syngja lagið jafnóðum og hann
samdi það. Guðrún var ekki á
sviðinu, en sat úti í sal í bíóinu og
fylgdist með leik föður síns Þor-
steins Ö. Stephensen.
Þuríður minnist þess einnig að
Inga Laxness hafi leikið eitt hlut-
verkanna, og man vel eftir því
hversu mikla virðingu hún bar
fyrir skáldinu Halldóri, sem sat út
í sal á meðan á æfingum stóð.
Leikgerðin er eins og áður
sagði eftir Nóbelskáldið, en allur
texti er eftir þjóðskáldið Jónas
Hallgrímsson, tónlistina samdi
Páll ísólfsson. í leiknum eru
sagðar sögur Jónasar og ljóð hans
lesin og sungin.
Með hlutverk piltsins fer Torfi
F. Ólafsson, en stúlkuna túlkar
Katrín Sigurðardóttir í leik og
söng. Önnur hlutverk eru í hönd-
um Þórunnar Magneu Magnús-
dóttur, Jóns Símonar Gunnars-
sonar, Þóru Friðriksdóttur,
Gunnars Eyjólfssonar og Hákon-
ar Waage. Fimm hljóðfæraleik-
arar úr Kammersveit Reykjavík-
ur eiga einnig þátt í sýningunni,
þau Hlíf Sigurjónsdóttir, Júlíana
Elín Kjartansdóttir, Sesselja
Halldórsdóttir, Bryndís Halla
Gylfadóttir og Valur Pálsson.
Ekki er þó allt talið enn, því að
í sýningunni er ekki bara leikið,
sungið og spilað, heldur dansað
líka. Dansana samdi Lára Stef-
ánsdóttir en þá dansa Sigurður
Gunnarsson, Lilja ívarsdóttir,
Margrét Gísladóttir og Pálína
Jónsdóttir. Leikmynd og búninga
hannaði Gunnar Bjarnason, lýs-
ingu annast Ásmundur Karlsson.
Úr myndabók Jónasar verður
frumsýnt 16. júní á vegum Jónas-
arþings, sem Félag áhugamanna
um bókmenntir, Menningar-
málanefnd Reykjavíkur og Borg-
arbókasafnið undirbjuggu. Hefst
sýningin kl. 21. Á þjóðhátíðar-
daginn verður sýningin haldin á
vegum Þjóðhátíðarnefndar. Sú
sýning hefst kl. 16.30 og er
ókeypis og öllum opin á meðan
húsrúm leyfir. BE
mkastS£suu»fsl«t
PELSINN
KIRKJUKVOLI SÍMI 91-20160
Bjóðum til 17. júní
30-50%
afslátt af öllum vörum í verzluniimi
ÚTBORGUN 50%
EFTIRSTÖÐVAR Á 6 MÁNUÐUM VAXTALAUST
Pelsar — loðskinnshúfur og treflar — leðurkápur — leður- og
og dragtir — ullardragtir og fallegar peysur
Föstudagur 15. júní 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 11