Þjóðviljinn - 15.06.1990, Qupperneq 12
Sálarheill Israelsmanna
í húfi
Viðtal við Svein Rúnar Hauksson lækni
sem er nýkominn frá
hemámssvæði ísraels í Palestínu
Sveinn Rúnar Hauksson, læknir Sjúklingar og hjúkrunarfólk er ekki einu sinni óhult. (sraelski herinn skirrist ekki við
að ryðjast inn á sjúkrahús til að misþyrma fólki. Mynd: Kristinn.
„Plastkúla” eins
og (sraelsher
skýtur að vopn-
lausum íbúum á
hemámssvæð-
unum. Kúlan er
ekki nema að
litlu leyti úr plasti
- hún er að 75
hundraðshlutum
úr zinki og
smýgur auðveld-
lega í gegnum
hörund þeirra
sem fýrir verða.
Mynd: Kristinn.
- Ég hef langtum meiri áhyggj-
ur af sálarheill ísraelsks æsku-
lýðs sem hefur rangan málstað
að verja en Palestínumanna
sem eru rangindum beittir. Á
herteknu svaeðunum sér mað-
ur ísraelska unglinga, 17-19
ára, gráa fyrir jámum - með ör-
yggishjálm og hríðskotabyssu,
hlaupandi á eftir jafnöldrum
sínum, meiðandi og skjótandi.
Þessum unglingum getur ekki
liðið vel, þótt þeir séu gjaman
með bros á vör og hrokafullir.
Ég er hræddur um að þegar
þeir fullorðnast eigi þeir eftir að
líða fyrir þau voðaverk sem
þeir hafa á samviskunni, segir
Sveinn Rúnar Hauksson, en
hann og séra Rögnvaldur
Finnbogason snéru fyrir
skömmu heim úr ferð til her-
námssvæða ísraels til að
kynna sér ástandið þar frá
fyrstu hendi.
— Við tókumst þessa ferð á
hendur sem íulltrúar stjómar fé-
lagsins Island-Palestína. Ég átti
heimboð frá Rauða hálfmánan-
um, systursamtökum Rauða
krossins, en Rögnvaldur hafði
fengið boð um að sækja heim
Kirkjuráð Mið-Austurlanda.
Sveinn segir að ferðin hafi
öðrum þræði verið námsferð og
ekki síður vettvangskönnun fyrir
Læknafélagið, Rauða krossinn og
heilbrigðisráðherra.
- I tengslum við heimsókn
palestínskra verkalýðsleiðtoga, er
komu hingað í boði ASI og
BSRB, kom fram sú hugmynd
innan Læknafélagsins að tveimur
palestínskum læknum yrði boðið
hingað til starfsþjálfunar í endur-
hæfingarlækningum, en þetta er
upphafið að beinu hjálparstarfi Is-
lendinga við palestínsku þjóðina.
Við vissum að þörfm á sviði
endurhæfingarlækninga er mikil.
Frá því að Intifata, - andóf Palest-
ínumanna á hemámssvæðunum,
hófst 9. desember 1987, hafa um
100.000 manns særst af völdum
hemámsliðsins. 6500 manns hafa
hlotið örkuml og þar af hafa 800
manns orðið fyrir mænuskaða og
em meira eða minna lamaðir.
Áður hefur enginn íslenskur
læknir kynnt sér ástandið á her-
námssvæði lsraels af eigin raun.
Það varð því að ráði, þar ég sem
átti erindi þangað á annað borð,
að ég skilaði hlutaðeigandi aðil-
um í heilbrigðiskerfínu skýrslu
um ástandið þegar heim væri
komið, segir Sveinn.
Sjúkrahúss-
friðnum raskað
Á ferðum sínum um hemáms-
svæðin skoðaði Sveinn heilsu-
gæslustöðvar, sjúkrahús og flótta-
mannabúðir og átti viðtöl við
lækna, hjúkmnarfólk og fólk sem
hefur orðið fyrir barðinu á her og
lögreglu.
- I rauninni veit enginn fjölda
þeirra sem hafa orðið íyrir
meiðslum síðan Intifada hófst. Af
ótta við herinn fer fólk ógjama á
sjúkrahús til að láta gera að sámm
sínum. Það er langt í frá að menn
séu óhultir þegar komið er í
sjúkrahús. Herinn skirrist ekki
við að ryðjast inn í sjúkrahús til
að krcfja sjúklinga um nafn og
heimilisfang, svo hægt sé að refsa
mönnum síðar. Ég hef staðfest
dæmi um að herinn hafi ráðist inn
í sjúkrahús og barið jaínt á sjúk-
lingum, læknum og hjúkmnar-
fólki. Nýlega handtók herinn
lækni fyrir að greina fréttamönn-
um breskrar sjónvarpsstöðvar frá
óhæfuverkunum. Hann situr enn
inni án þess að réttað hafi verið í
máli hans.
Palestínumenn
hvergi bangnir
Sveinn segir það einkum vera
böm, ungmenni og mæður sem
em að reyna að koma bömum sin-
um í skjól sem verði fyrir barðinu
á ísraelsher og lögreglu á her-
námssvæðunum.
Ég taiaði við þrítuga konu
sem fékk skot í lærið þegar hún
var að bjarga bömunum sínum
sjö inn í hús undan hemum. Hún
sagðist aldrei hafa kastað gijóti
að her eða lögreglu, en þegar hún
væri komin heim myndi hún
vafalaust taka þátt í gijótkastinu.
Sveinn hefúr fleiri sögur af
svipuðum toga í pokahominu, af
vitasaklausu fólki sem fengið hef-
ur að kenna á þessu.
Þar á meðal segir Sveinn sögu
af ungum manni sem er að læra
enskar bókmenntir. - Hann var á
leiðinni heim úr skóla „svarta
sunnudaginn”, 20. maí, er fjöldi
verkamanna frá Gaza var myrtur
af hemum. Hann varð fyrir því ó-
láni að fá í sig skot. Hann vissi
ekki af sér aflur fyrr en á sjúkra-
húsinu.
Ég innti hann eftirþví hvemig
það væri að geta átt von á að
verða fyrir skoti hvar og hvenær
sem væri. Hann sagði að þannig
væri einfaldlega sá veruleiki sem
Palestínumenn á hemámssvæð-
unum byggju við og það væri til-
gangslaust að gera sér grillur um
eitthvað annað. Þegar ég spurði
hann að því hvort hann léti ekki
bugast, svaraði hann því til að
hann væri reiðubúinn að fá í sig
annað skot.
Svör þessa unga manns segir
Sveinn vera Iýsandi fyrir þá
Palestinumenn sem hann hitti að
máli í ferðinni. - Hvergi virðist
neinn bilbug vera að finna á fólki.
Skortur á
sérmenntuðum
læknum
Sjúkrahús á herteknu svæðun-
um eru að mestum hluta mönnuð
Palestínumönnum. Nokkuð er þó
um að útlendingar komi þar til
starfa um skemmri eða lengri
tíma. Sveinn segir að það sé mik-
ils virði fyrir Palestínumenn að fá
slíka aðstoð frá erlendum sér-
fræðingum. Af þeim geti heima-
menn oft mikið lært, þar sem
mikill skortur sé á sérmenntuðum
læknum.
- Við Ahli-sjúkrahúsið hefur
t.d. bandarískur skurðlæknir
starfað í 12 ár. Fyrir nokkru tók
þar til starfa annar bandarískur
læknir, gyðingur í þokkabót, sem
hefur kennt almennum læknum
undirstöðuatriðin í æðaskurð-
lækningum. Þessi kennsla hans
varð til þess að hægt var að bjarga
lífi ungs manns sem ég hitti að
máli. Ungi maðurinn sem er
verkamaður var á leið heim úr
vinnu „sunnudaginn svarta”.
Hann var að flytja vin sinn á
sjúkrahús, en sá hafði orðið fyrir
skoti þegar herinn réðist inn í
flóttamannabúðimar þar sem
hann býr þegar hann fékk sjálfur
skot í kviðinn með þeim afleið-
ingum að bláæðastofnamir frá
ganglimum fóru í sundur. Hann
var íluttur meðvitundarlaus á
sjúkrahús þar sem gerð var á hon-
um mikil aðgerð. Án aðstoðar
bandaríska sérfræðingsins hefði
þessi maður dáið drottni sínum.
Eitt sjúkrarúm
á hverja
10.000 íbúa
Ahli-sjúkrahúsið er rekið af
Biskupakirkjunni í Jerúsalem.
Forstöðumaðurinn sem er Dani,
réðist þangað í upphafí Intifada.
Sjúkrahúsið getur tekið við 75
sjúklingum í rúm. - Þetta er eina
sjúkrahúsið á öllu Gazasvæðinu
sem íbúar af palestínsku bergi
brotnir, er telja um 750.000
manns, geta nokkuð óhultir leitað
til, segir Sveinn.
- Opinberar tölur um fjölda
rúma sýna að frá því að Israelsher
hemam Gaza 1967, hefur sjúkra-
rúmum á hveija 1000 íbúa fækk-
að úr 2,4 í 1,2.
Þessar tölur segja þó ekki
nema hálfa söguna. Ahli-sjúkra-
húsið er i reynd eina sjúkrahúsið
sem Palestínumenn geta leitað lil
og hafa efni á að leita til. í reynd
emm við að tala um aðeins eitt
sjúkrarúm á hveija 10.000 íbúa.
„Sunnudaginn svarta” vom
163 særðir og lemstraðir fluttir á
þetta eina sjúkrahús, sem er vel
að merkja ekki bara slysadeild.
Þetta er almennt sjúkrahús með
bamadeild og fæðingar- og kven-
sjúkdómadeild.
Mér var mikil spum hvemig
læknum og hjúkmnarfólki tókst
að anna öllum þessum innlögnum
á einum sólarhring. Mér var tjáð
að hvert rúm hefði verið marg-
nýtt. Þegar komið var með særða
var þeim veitt fyrsta hjálp og síð-
an látnir liggja i rúmi í tvær
klukkustundir. Þá var gerð á þeim
aðgerð sem stóð í einn til tvo
tíma. Að aðgerð lokinni fengu
sjúklingamir að jafna sig í einn
tíma áður en þeir vom sendir
heim. Á þennan hátt tókst starfs-
fólki sjúkrahússins að standast þá
þolraun sem 20. maí óneitanlega
var, segir Sveinn.
„Notist aöeins
utandyra”
Læknar á palestínskum
sjúkrahúsum fá ekki aðeins inn á
borð til sin fólk sem skaðast hefúr
af barsmíðum eða fengið skotsár.
ísraelsher hefúr ekki verið spar á
að nota táragas til að stugga við
mótmælendum og brjóta á bak
andóf Palestínumanna.
Sveinn segir það læknisfræði-
lega sannað að engin hollusta sé
fólgin í því að fá táragas í vitin. -
Táragas getur hæglega valdið
fósturláti og dauða hjá fólki sem
er með astma - ekki síst ef um er
að ræða böm og gamalmenni.
- Lengst af hafa menn hafl þá
trú að hægt væri að veijast
táragasi með því að setja blautan
klút fyrir vitin eða með því að
tyggja hráan lauk. Læknir sem ég
ræddi við sagði að áhrif þess tára-
gasS sem ísraelsher notaði ykjust
12 SfÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. júní 1990