Þjóðviljinn - 15.06.1990, Qupperneq 14
Bankarnir
Tvöfaldur
föstudagur
Bilun varð í hugbúnaði tölvu-
kerfís Reiknistofu bankanna um
kl. 18.00 á miðvikudag sem varð
til þess að þrettán tíma seinkun
varð á öllum bókunum miðviku-
dagsins.
Gert var við bilunina í fyrrinótt
og að sögn Bjarna G. Ólafssonar
yfirmanns vinnsludeildar var
vonast til þess að það tækist að
ljúka því síðdegis sem safnaðist
upp á meðan bilunin varði. Starf
bankanna ætti því að vera komið í
samt lag núna en starfsfólk þeirra
má búast við öllu meiri erli í dag
en vant er, eins konar „tvöföld-
um föstudegi", fyrir vikið.
Bilanir sem þessar hafa að sögn
Bjarna verið mjög sjaldgæfar síð-
asta árið en á meðan verið var að
setja upp kerfið voru þær tíðari.
-vd.
A tvinnufyrirtœki
Skattlagningin
endurskoðuö
Viðræður við samtök
atvinnurekenda og
launafólks
Fjármálaráðherra hefur
skipað fimm manna nefnd til að
endurskoða skattlagningu at-
vinnufyrirtaekja og peningastofn-
ana I Ijósi samkeppnisstöðu
þeirra gagnvart erlendum keppi-
nautum. Sérstaklega á að taka
mið af þeim breytingum sem eru
að eiga sér stað innan Evrópu-
bandalagsins.
í tilkynningu frá ráðuneytinu
segir að endurskoðun þessi sé í
samræmi við loforð sem ríkis-
stjórnin gaf í tengslum við kjara-
samninga og að nefndin muni
hafa samráð við fulltrúa atvinnu-
lífsins og peningastofnana um
hana. Efna á til sérstakra við-
ræðna við samtök vinnuveitenda
og launafólks vegna þessa. For-
maður nefndarinnar er Magnús
Pétursson, ráðuneytisstjóri í fjár-
málaráðuneytinu og auk hans eru
í nefndinni þeir Bolli Pór Bolla-
son skrifstofustjóri í fjármála-
ráðuneytinu, Eyjólfur Sverrris-
son forstöðumaður hjá Þjóðhags-
stofnun, Garðar Valdimarsson
ríkisskattstjóri, Már Guðmunds-
son efnahagsráðgjafi fjármála-
ráðherra og Snorri Olsen skrif-
stofustjóri í fjármálaráðuneyt-
inu. ,
Þjóðarátak
gegn
krabbameini
Söfnunarféð
52 miljónir
Rúmlega 52 miljónir króna
söfnuðust í „Þjóðarátaki gegn
krabbameini“ er fram fór um
mánaðamótin mars apríl sl. Þar
af létu einstaklingar ríflega 44
miijónir króna af hendi rakna en
hlutur fyrirtækja, stofnana og
stéttarfélaga var á niundu miljón.
Frá þessu var greint á aðalfundi
Krabbameinsfélags íslands sem
haldinn var fyrir skömmu.
í fréttatilkynningu frá Krabb-
ameinsfélaginu segir að fjárþörf
samtakanna hafi vaxið á síðustu
árum í takt við aukin umsvif.
Ráðgert er að söfnunarfénu verði
varið til fickari rannsókna á
krabbameini, til fræðslustarfs og
aukins stuðnings við krabba-
meinssjúklinga.
Á aðalfundinum var Almar
Geirsson, sem verið hefur for-
maður félagsins síðustu tvö ár,
einróma endurkjörinn formaður
til næstu tveggja ára.
-rk
iC.Et-AHDAl*
< AKUREYRl - Bleiki fíllinn
0 15. júní - Sú Ellen
« 16. júní-Rokkabillybandib
Mörg er bumanns raumn
Þar sem raunveruleikinn er óhugnanlegri hugarórum hryllingsmynda. Alþjóðleg herferð gegn hvimleiðum vágesti sem
herjar á íbúa ýmissa landa þriðja heimsins
Fljótið Níger: Sameiginlegt vatnsból manna og dýra. Gróðrarstía fyrir
gíneu-orminn, sem ógnar lífi og limum manna og dýra í fjölmörgum
löndum þriðja heimsins.
Það er ekki ofsögum sagt að
það á ekki af þeim hluta
mannkyns að ganga sem býr fyrir
sunnan þá línu sem hagspeking-
ar hafa dregiö og skilur á milli vel-
og vanmegunar og kennd hefur
verið við höfuðáttirnar, norður og
suður. Vannæring ef ekki hung-
ursneyð, staðbundin átök og erj-
ur og allskyns önnur óáran af
mannanna völdum er daglegt
brauð stórs hluta íbúa suður-
hvels jarðar. Þar með er þó ekki
allt upptalið. Sumpart fyrir þessar
sakir hafa sjúkdómar og pestir af
ýmsum toga löngum viljað herja
á þennan hluta mannkyns af
dæmafáum þrótti.
Þrátt fyrir að nokkuð hafi
áunnist fyrir árvekni einstaka
stjórnvalda og samstillt átak
heilbrigðisstétta og alþjóðastofn-
ana við að „útrýma“ pestum og
farsóttum, eins og bólusóttinm,
er mikið starf enn óunnið í þeim
efnum. Þar á meðal er „útrým-
ing“ hvimleiðs sníkjudýrs, s.k.
gíneu-orms, sem hrellir miljónir
manna í þriðja heiminum á ári
hverju.
»
Óvætti“ hvíta
tjaldsins skákað
Þeir eru sjálfsagt margir kvik-
myndaáhugamennirnir sem rám-
ar í röð mynda sem allar báru það
magnþrungna heiti „Óvættur-
(Alien), þar sem greint var
mn
frá heldur ófélegu sníkjudýri sem
hreiðraði um sig í líkömum
manna þar til það spratt að lokum
alskapað út líkt og Pallas Athena
út úr höfði Seifs forðum.
Eins og oft vill verða eiga hinir
leyndustu draumar og villtustu
„fantasíur" mannskepnunnar sér
hliðstæðu í veruleikanum, nema
hvað í þessu tilfelli er raunveru-
leikinn öllu óhugnanlegri ímynd-
uninni.
Á ári hverju verða 10 miljónir
manna í þriðja heiminum fyrir
kárínum af völdum þessa skað-
ræðiskvikindis. Meinvætturinn er
hvað skæðastur í Indlandi, Pak-
istan og í fjölmörgum ríkjum Afr-
íku og varlega áætlað má ráðgera
að um 100 miljónir manna eigi á
hættu að ormurinn taki sér í þeim
ból.
Lífsferill gíneu-ormsins er þrí-
skiptur. Lirfa hans sem lifir í
vatni, er étin af örsmáum krabba-
dýrum af ætt liðfætlinga, sem aft-
ur berast með drykkjarvatni í
maga manna og dýra. Magasýr-
urnar brjóta hýsilinn niður og þar
með er fjandinn laus og annað
stigið í lífsferli gíneu-ormsins
hefst. Lirfan leitar nú út í kviðar-
holið þar sem hún hefst við um ár
meðan á umbreytingunni stend-
ur. Að fjórum mánuðum liðnum
á æxlun sér stað, karllirfan deyr
en kvenlirfan kemst til fullþroska
orms stútfull af lirfum sem bíða
þess eins að fullkomna hringrás-
ina og að komast í vatn til að
verða étnar af liðfætlingunum.
Til þess þarf ormurinn að leita
útgönguleiðar úr líkama hýsilsins
og er helst von á honum út um
rispur eða fleiður á hörundi á út-
limum manna og dýra.
Meðan á hringrásinni stendur
verður hýsillinn einskis var þar til
ormurinn, sem getur orðið allt að
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ
ROKKSKOGARISLANDS
FLUGLEIDIR
SiGLUFJÖRÐUR - Hótel Höfn
16. júní - Sú Ellen
ÍSAFJÖRÐUR - Sjallinn
fe 17. júní - Gal í leó
"fps ÞÓRSHÖFN - Félagsheimilib
16. júní - Kokteill
BILDUDALUR
Félagsheimilib
15. júní - Stjórnin
VOPNAFJÖRÐUR Mikligar&ur
22. júní - Styrming
r\r
ESKAUPSTAÐUR
BLÖNDUÓS - Félagsheimilib
16. júní - Rokkbandib
ÓLAFSVÍK
Félagsheimilib
- Stubmenn
BORGARNES - Hótel Borgarnes
16. júnf- Geirmundur Valtýsson
AKRANES Hótel Akranes
; 15. júní - Sálin hans Jóns míns
! 16. júnf - Sérsveitin
EGILSSTAÐIR - Hótel Valaskjálf
15. júní- Viking band
KEFLAVIK
REYKJAVÍK - Laugardalshöll 16. júní- Bootlegs-Bubbi-Megas-Risaeblan
Sálin hans Jóns míns-Síban skein sól-Sykurmolarnir og Todmobile
ogló.júní Fullt tungl
iberg 16-júní - Sprakk 'H
NJARÐVÍK X
HAFNARFJORÐUR
- Fiör6urinn
0 HÖFN í HORNAFIRÐI
< 15. og 16. júní - Sjöund
- Sindrabær
Stapi 15. júm - Stubmenn
SANDGERÐI
ifi 16. júní - Ny dönsk
HÉS
SELFOSS - Hótel Selfoss
116. júní - Tommi rótari
K
Vitinn 16. júní - Bjartmar Gublaugsson
BEYKJAVIKUR
Heggur hf
Landvernd
Prenthúsið
Smekkleysa
Flugleibir
Silkiprent
P.R.-búbin
Skógræktin
Eimskip
Kringlan
Sagafilm
Gott fólk
Geimsteinn
Æfingastöbin
Morgan Kane
Rolf Johansen
UMFI
Skífan
Sanitas
Glabnir
Kraftlyftingasamband Islands
Vátryggingafélag íslands
Ríkisútvarpib Sjónvarp
0 VESTMANNAEYJAR - Hallarlundur
m 15. og 16. júní - Pálmi Gunnarsson
» / /
PEPSI
MORGAN KME'
metri að lengd, brýtur sér leið út
úr líkamanum með tilheyrandi
sársauka og kvölum fyrir fórnar-
lambið.
Reiknað er með því að í u.þ.b.
15 prósent tilfella hafi hýsillinn til
að bera meira en einn orm. Reyni
menn að flýta fyrir útgöngu orms-
ins, sem tekur u.þ.b. vikutíma,
t.d. með því að teygja á honum
svo að hann slitni, getur það
endað með ósköpum og valdið
óbærilegum kvölum og sýkingu
sem hæglega getur leitt menn til
dauða fái þeir ekki rétta læknis-
fræðilega meðhöndlun.
Komist ormurinn á milli liða
getur það hæglega valdið liða-
gigt, komist hann upp í mænu eða
í heila þarf vart að spyrja að
leikslokum fyrir hýsilinn.
Sníkill veldur
þungum búsifjum
Það er ekkert áhorfsmál að
gínea-ormurinn hefur margvís-
legar afleiðingar í för með sér
fyrir efnahag þeirra landa þar
sem hann leikur hvað lausustum
hala.
Einmitt um þær mundir sem
regntímabilið er að ganga í garð
og íbúar til sveita eru önnum
kafnir við að brjóta land til rækt-
unar og hefja sáningu, lætur orm-
urinn á sér kræla og leitar út. Þeir
sem sýkst hafa eru yfirleitt óvinn-
ufærir f tvo til þrjá mánuði eftir
að ormurinn hefur yfirgefið þá,
en við slíku vinnutapi mega síst
fátæk samfélög þriðjaheims land-
annna. Vitað er að Nígeríumenn
verða á ári hverju fyrir þungum
búsifjum af þessum völdum. Tal-
ið er að í suðaustur Nígeríu hafi
árið 1987 um 20 miljónir dollara
farið forgörðum í hrísgrjóna-
framleiðslunni.
Frá því í ágúst 1988 og fram í
mars í fyrra voru skráð rúmlega
650.000 tilfelli sýkinga af völdum
gíneu-ormsins í Ondó-héraði, en
þaðan koma um 60 hundraðsh-
lutar af kakóframleiðslu Nígeríu-
manna, sem er jafnframt önnur
helsta útflutningsafurð landsins,
næst á eftir olíu.
Markið sett
á árið 1995
En nú er kanski von að úr rætist
á næstu árum. Að frumkvæði
samtakanna Global 2000, Þróun-
arverkefnis Sameinuðu þjóðanna
- UNDP og Barnahjálparsjóðs
Sameinuðu þjóðanna - Unicef,
var fyrir nokkru hafin herferð
gegn vágestinum í samvinnu við
fjölmargar ríkisstjórnir og félaga-
samtök. Markmiðið er að sýking-
ar af völdum gíneu-ormsins heyri
til liðinni tíð í árslok 1995.
Einu meðöl sem koma að gagni
í baráttunni gegn gíneu-orminum
er að fá íbúa á þeim svæðum þar
sem ormsins helst gætir að koma í
veg fyrir að búsmali mengi vatns-
ból og að sía eða sjóða allt
drykkjarvatn.
Þegar hefur verið sýnt fram á
gildi þessarar baráttu. Benda má
á að á þriðja áratugnum var búið
að vinna bug á gíneu-orminum í
Sovétríkjunum og á undanförn-
um áratugum er sömu sögu að
segja frá fran, Saudi-Arabíu,
írak og Norður Afríku.
Þegar hefur herferðin skilað
drjúgum árangri, s.s. í smáríkinu
Burkina Faso í Afríku. Þar var
íbúum nokkurra þorpa látnar f té
grisjur til að sía drykkjarvatn og
að tveimur árum liðnum voru í
sömu þorpum engin ný tilfelli
sýkinga af völdum gínea-ormsins
skráð.
South/-rk
NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 15