Þjóðviljinn - 15.06.1990, Side 17
I kjölfar Kólumbusar
Jóhanna frá Vági, systurskip kútter Haraldar,
í víking til vesturheims
Einhverja rekur eflaust minni til
að af og til hafa risið úfar um það
hvorum beri heiðurinn af því að
hafa fundið Ameríku, Leifi
heppna eða sægarpinum frá
Genúa, KristóferKólumbus.Árið
1992 verður ekki þráutalaust fyrir
söguholla norræna menn að
halda minningunni um landafund
Leifs á lofti því þá er það Kólumb-
us karlinn sem allra augu beinast
að, en þá verða liðin rétt 500 ár
frá því að hann lagði upp í frægð-
arför sína yf ir Atlantsála í leit að
hentugri siglingaleið til Austur-
Indíalanda.
Eins og títt er á slíkum tíma-
mótum munu margir hugsa sér
gott til glóðarinnar og reyna að
baða sig í frægðarljóma Kólumb-
usar um leið og minningunni um
tímamótin eru gerð skil. Þannig
er því farið með þýskan félags-
skap sem tekið hefur á leigu fær-
eyskt systurskip Kútter Harald-
ar, hana Jóhönnu frá Vági, til að
sigla í kjölfar Kólumbusar.
Leiðangursmenn verða flestir
Þjóðverjar og Danir. Með í för
verður ágætlega kunnur danskur
rithöfundur, Arne Ærtebjerg, til
að skrifa um herlegheitin, en
jafnframt verður leiðangurinn
festur á filmu.
Að sögn færeyska blaðsins 14.
september, höfðu Þjóðverjarnir
leitað lengi áður en þeir höfðu
spurnir af Jóhönnu. Eftir að hafa
skoðað skipið var þeim ljóst að
þar var Ioksins komið réttá fley-
ið.
Að undanförnu hefur Jóhanna
verið gerð út til leigusiglinga með
ferðamenn, en skipið er gert út af
félagsskap í Vági er telur um 1200
manns. Til þessa hefur útgerðin
ekki gengið sem skyldi, en að
sögn Olafs Absalons, sem á sæti í
útgerðarráði skipsins, er bjart
framundan.
Það skyldi þó aldrei vera að hér
sé komið ráð fyrir íslenska út-
gerðarmenn og bátseigendur tii
að drýgja tekjumar á þessum síð-
ustu og verstu tímum kvóta- og
aflaleysis og nú sé ráð að hrinda
fram úr nausti öllum aflóga bát-
skeljum og íéysa landfestar
gömlu ryðkláfanna og fara að
gera út á túristatrekkiríið í stað
þess gula. Ferðaþjónusta bænda
er orðin að veruleika, hvers
vegna skyldi svo ekki einnig geta
orðið um ferðaþjónustu útgerð-
arinnar? 14. september. -rk
Vitastofnun íslands og
Hafnamálastofnun ríkisins
hafa nú flutt í nýtt aösetur og fengið
nýtt símanúmer.
Nýja heimilisfangið er:
Vesturvör 2 - pósthólf 120
202 KÓPAV0GUR
Sími: 60 00 00 - Telefax: 60 00 60
NÚ ER HANN ÞREFALDUR
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002