Þjóðviljinn - 15.06.1990, Qupperneq 25
KVIKMYNDIR
Of mikið einkalíf
Háskólabíó
Siðanefnd lögreglunnar (Internal afl-
airs)
Leikstjóri. Mika Figgis
Aðalhlutverk: Andy Garcia, Richard
Gere, Nandy Travis.
Það er mikil þolraun að þurfa
að skrifa um bíómynd í þessari
viku því að sumarið er komið og
einsog allir vita verðum við öll
smekklaus á sumrin og það er
hægt að bjóða okkur upp á hvaða
drasl sem er. En ég vil benda
þeim á sem ekki fara í bíó einu
sinni í viku að það eru margar
góðar myndir í B-sölum út um
allt. Til dæmis er enn verið að
sýna Paradísarbíóið og Vinstri
fótinn í Háskólabíó og Kynlíf,
lygi og myndbönd í Bíóborginni.
En þær er ég búin að sjá, og val
mitt lá á milli spennumyndar í
Háskólabíói, rómantískrar gam-
anmyndar í Bíóborginni og léttr-
ar ævintýramyndar í Laugarás-
bíó. Ég ákvað að veðja á Há-
skólabíó, annars vegar vegna
þess að Háskólabíó hefur verið
með mjög góðar myndir í vetur
(a.m.k. annað veifið) og hins
vegar var ég alveg í skapi til að sjá
góðan trylli.
Myndin byrjaði ekki afleitlega,
ungur myndarlegur maður
(Andy Garcia) hefur störf hjá
siðanefnd lögreglunnar í Los
Angeles sem rannsakar störf lög-
reglunnar. Hann og félagi hans
Wallace, sem er kona, komast
fljótt á spor eldri myndarlegs
manns, Dennis Peck, (Richard
Gere) sem er stolt deildarinnar,
dugleg og afkastamikil lögga. En
ekki er allt sem sýnist. Undir
huggulegu yfirborðinu leynist
náttúrlega allt annað og verra.
TJALDIÐ
HÁSKÓLABÍÓ
Vinstri fóturinn
(My left foot) ★★★★
Algjörlega yndisleg mynd sem maður get-
ur ekki annað en fallið fyrir, nokkurskonar
óður til líkamshluta. Daniel Day Lewis sýnir
manni í hlutverki Christy Brown að vinstri
fótur er allt sem maður þarf til, að vera
sjarmerandi og sexý.
SIF
Shirley Valentine ★★★
Pauline Collins fer á kostum sem Shirley
Valentine! (þetta er klisja en það er alveg
satt). Shirley er kona sem talar við eldhús-
vegginn sinn, af því allir aðrir í kringum
hana eru svo leiðinlegir. Svo talar hún lika
við stein en hann skilur hana ekki af því
hann er grískur. Þetta er skemmtileg mynd
um konu sem er dálítið galin og skammast
sín ekkert fyrir það.
SIF
Cinema Paradiso
(Paradísarbíóið)****
Það er (rauninni fáránlegt að vera að gefa
svona mynd stjörnur því hún er langt yfir
alla stjörnugjöf hafin. Svona mynd er að-
eins gerð einu sinni og þessvegna má eng-
inn sem hefur hið minnsta gaman af kvik-
myndum missa af henni.
SIF
BIÓBORGIN
I blíðu og stríðu
(The war of the Roses)**1/2
Kolsvört komedía eftir minnsta og fyndn-
asta manninn [ Hollywood Danny DeVito.
Rósahjónin (Turner og Douglas í frábæru
formi) uppgötva eftir mörg ár í hinu
fullkomna hjónabandi að þau eiga ekki
saman. Það er kannski ekkert nýtt, en að-
ferðirnar sem þau nota til að fá hvort annað
til að flytja út úr draumahúsinu eru ekki fyrir
veikbyggða. Öðruvísi stríðsmynd sem
þessir leikarar gera að afbragðs afþrey-
ingu. Góða skemmtun.
SIF
Kynllf, lygi og myndbönd
(Sex, lies and vldeotape)****
Þetta er óvenjuleg mynd um venjulegt fólk
sem talar saman og sefur saman sitt á
hvað. Það er ógerlegt að útskýra hvað það
er sem gerir það að verkum að maður vill
ekki fara heim þegar myndin er búin. En
svoleiðis er það nú samt. Drífið ykkur.
SIF
Síðasta játningin
(Last rites)**
Það er erfitt að stunda prestskap og hlýða á
játningar í skriftastólnum og vera um leið í
einni aðal-mafíufjölskyldu Bandaríkjanna
og verða svo ástfanginn í þokkabót og
lenda í byssubardögum. Heldur ólíkinda-
leg atburðarás en fjör á köflum.
ÓTH
STJÖRNUBÍÓ
Stálblóm
(Steel magnolias)***
Þetta er ekki „skemmtailegasta gaman-
mynd alira tirna" eins og stendur i auglýs-
ingunni. Þetta er þó reglulega skemmtileg
mynd um líf sex vinkvenna í smábæ. En
lífið er ekki alltaf tóm skemmtun svo að þið
skuluð taka einn vasaklút með.
SIF
Þetta er alveg ágæt uppistaða í
spennandi löggutrylli, mynda-
takan er líka sterk og músikin
þægilega ógnvekjandi á réttum
stöðum. Auk þess eru aðalleikar-
arnir geysi myndarlegir og önnur
hver kona í nærmynd er fyrrver-
andi model.
En handritshöfundi nægir ekki
að hafa spennandi efnivið, valda-
baráttu tveggja karlmanna á
vinnustað, heldur lætur hann
leikinn berast inn í einkalíf
þeirra. Og þar missir hann allt út
úr höndunum á sér. Hann verður
svo upptekinn af kynferðislegum
flækjum að hann gleymir að út-
skýra glæpinn fyrir okkur. Og
hann hefur vægast sagt mjög ein-
falda sýn á kvenfólk.
Ég hef ekki séð jafn mikla
kvenfyrirlitningu í kvikmynd í
mörg ár, ég hélt í rauninni að hún
væri komin úr tísku. En svo virð-
ist ekki vera, allar konur eru hér
lauslátar og finnst gott að láta
misnota sig, og allir karlmenn,
hvort sem þeir eru góðu eða
vondu gæjarnir, lemja konurnar
sínar og það er oftar en ekki sýnt
hægt (rosaleg dramatík). Svo er
yfirleitt talað um konur sem hór-
ur eða dræsur en það er voða lítið
talað við þær. Eina konan sem
fellur ekki fyrir karlrembustælum
Peck er náttúrlega lesbísk og
gengur ekki í þröngum kjól og
pinnahælum.
Leikurinn í myndinni er góður,
sérstaklega fyrir hlé. Gere og
Garcia eiga góðar senur saman,
en það er til lítils að vinna leik-
sigur í mynd þar sem handritið er
mengað af fyrirlitningu á helm-
ingi mannkyns.
Hvers vegna skyldu fœrustu sérfrœbingar ávallt fœra sér í nyt
fullkomnustu tœkni við rannsóknir sínar?
Málið er einfalt!
Panasonic NV-MS50 SUPER VHS vídeomyndavélin sýnir staðreyndirnar á nákvæman hátt og
dregur ekkert undan, enda var hún valin myndavél ársins (European Video Camera ’89-’90)
af sérfræðingum evrópskra fagtímarita.
• Super VHS-C format með yfir 400 lína upplausn.
• Hi-Fi stereo hljóðupptaka.
• Sjálfvirkur PIEZO-fókus tryggir nákvæman fókus við
erfiðustu skilyrði.
• Tveggja hraða zoomlinsa (9—54 mm), ljósop fi,2 og með
macrostillingu fyrir nærmynd.
9 Hraðloki sem eykur skerpu í hægri afspilun og fryst-
ingu mynda: 1/250, 1/500 eða 1/1000 sek.
9 Innsetning á tíma og degi.
9 Sjálfvirkur timastillir fyrir „anímeringu“
o.þ.h.
9 Fljótandi útþurrkunarhaus fyrir hreina
mynd- og hljóðblöndun.
9 Vegur aðeins 1400 g.
9 Tveggja hraða upptaka, SP/LP.
9 Fylgihlutir: Hleðslutæki, rafhlaða, axlaról, tengikaplar
fyrir sjónvarp, Super VHS-C spóla ásamt hylki fyrir
myndbandstæki, heyrnartól.
Nú er tækifærið að taka skrefíð inn í framtíðina
með SUPER VHS fyrir aðeins kr. 119.970.
Leystu málin meb
VHS
625
Panasonic ^ japiss
Þab liggur í augum uppi.
Brautarholti 9 Kringlunni
s. 625200 9 Akureyri s. 96-25611
AUK/SlA k640-5