Þjóðviljinn - 22.06.1990, Blaðsíða 3
Kenjótt
rokkstjarna
Prímadonnur hafa löngum
þótt kenjóttar. Nú er von á
höfuðprímadonnu vísna-
rokksins hingað til lands, sjálf-
um Bob Dylan. Dylan er sérl-
undaður mjög einsog þeir
sem stóðu í samningastappi
við hann komust að. Þegar
samningar höfðu náðst um
greiðslur komu fram ýmsar
sérkröfur, sem á tímabili settu
allt í hnút, svo jafnvel var búist
við að ekkert yrði úr heimsókn
Dylans hingað. Meðal þess
sem hann fór fram á var að til
staðar væri Danone jógúrt,
sem er ófáanleg hér á landi.
Þá vildi Dylan að til staðar
væri Budweiser bjór á alveg
sérstökum flöskum með
langan háls, sem ekki eru
seldar hér. Einnig vildi hann
sérstaka tegund af ölkeldu-
vatni, ófáanlegt hér á landi og
ýmislegt fleira, sem landinn á
ekki að venjast. Þessu tókst
að lokum að bjarga fyrir horn,
og m.a. hljóp bandaríska
sendiráðið undir bagga með
Budweiser bjórinn. Rokkgoð-
ið fær því flestar óskir sínar
uppfylltar áður en hann upp-
fyllir óskir aðdáenda sinna í
höllinni. ■
Drekka af sér
ístruna
Þeir bjóráhugamenn sem
bera drykkjuna utan á sér
geta nú verið ánægðir því á
markaðinn er kominn nýr bjór
frá Víking-Brugg hf. á Akur-
eyri sem heitir því frumlega
nafni Helgi magri. Þessi bjór
er einstakur fyrir margra hluta
sakir. í honum eru helmingi
færri hitaeiningar en í venju-
legum bjór, að styrkleika er
bjórinn aðeins 4% og síðast
en ekki síst er hann sá ódýr-
asti sem völ er á, í bili. ■
íhaldið styður
Lúðvík
Það vakti athygli þegar Sjálf-
stæðismenn í Hafnaríirði
kynntu fulltrúa sína í nefndum
bæjarins að á listanum var
Lúðvík Geirsson, formaður
Blaðamannafélagsins, en
Lúðvík var einsog kunnugt er
þriðji maður á lista Alþýðu-
bandalagsins. Bæjarstjórn
kýs fjóra menn í hina nýju
húsnæðisnefnd, þar af áttu
kratar tvo og íhald einn, en
fjórði maðurinn hefði ráðist af
hlutkesti allra flokka. Sjálf-
stæðismenn buðu þá Alþýðu-
bandalaginu að styðja þeirra
fulltrúa í húsnæðisnefnd og
daginn fyrir bæjarstjórnarfund
barst ámóta boð frá Alþýðu-
flokksmönnum. Bæjarmála-
ráð Alþýðubandalagsins
samþykkti einróma að taka
boði Sjálfstæðisflokksins,
enda var það án allra skilyrða.
r C ~
jumir
spara sér leígubíl
adrir taka enga ábættu!
Eftlrelnn
-el aki nelnn
Alþýðubandalagið fékk eng-
an annan fulltrúa í nefndir í
Hafnarfirði en fór fram á að fá
áheyrnarfulltrúa í þær nefndir
sem skiptu mestu máli. Það
vakti athygli að hinn nýi bæj-
arfulltrúi krata, Árni Hjör-
ieifsson, fann því allt til for-
áttu. Magnús Jón Árnason
fulltrúi Alþýðubandalagsins
vakti athygli á því að fyrir
suma væri lýðræðið greini-
lega of gott til að deila því með
öðrum. Að tillögu Guðmund-
ar Árna Stefánssonar bæ-
jarstjóra var ákveðið að vísa
málinu til bæjarráðs. Einsog
fram hefur komið lúffaði Guð-
mundur Árni Stefánsson bæ-
jarstjóri fyrir sínum flokks-
mönnum með það að bjóða
Alþýðubandalaginu aðild að
meirihlutasamstarfi. í Alþýðu-
blaðinu sl. miðvikudag segir
bæjarstjórinn að Alþýðuflokk-
urinn hafi leitað eftir sam-
starfsgrundvelli við Alþýðu-
bandalagið „en það fannst
enginn samstarfsflötur". Það
vantar hinsvegar í yfirlýsingu
bæjarstjórans að samstarfs-
flöturinn fannst ekki á Alþýðu-
flokknum sjálfum enda var Al-
þýðubandalaginú aldrei boðið
upp á eitt eða neitt samstarf.
Frá Grunnskóla
Siglufjarðar
Tvo kennara vantar:
Til sérkennslu og til kennslu yngri barna.
Upplýsingar veita skólastjóri í síma 96-71686
og formaður skólanefndar í síma 96-71845.
Skólanefnd
^ ^ ryisu tuyaumi, uuu luiscu.
Framsýmr
Islendingar fá sér
FJ ÓRÐUN GSBRÉF
Um langan aldur hafa íslendingar
byggt afkomu sína á sjávarútvegi,
en það var fyrst í byrjun þessarar
aldar að útgerðin fór að skila
verulegum hagnaði. Þá fóru
menn að sameinast um fjárfest-
ingar sem gátu skilað umtals-
verðum hagnaði. Fjórðungsbréf-
in byggja á sameinuðum krafti
fjölda einstaklinga.
Fjórðungsbréf eru eignarhluti í
sameiginlegum sjóði sparifjáreig-
enda, þar sem fjárfest er í ýmsum
tegundum vel tryggðra verðbréfa.
Eigendur bréfanna fá ársfjórðungs-
lega greiddar tekjur af þeim
umfram verðbólgu. Þannig er bæði
hægt að dreifa fjárfestingu og hafa
reglulegar tekjur af eignum sínum.
Fæstir sparifjáreigendur hafa tíma,
þekkingu eða fjárráð til að notfæra
sér þá kosti sem felast í því að dreifa
fjárfestingum. Fjórðungsbréf leysa
vandann.
Þegar eftirlaunaárin nálgast er mik-
ilvægt að fjárfestingar skili eigend-
um sínum tekjum reglulega. Margir
vilja minnka við sig vinnu, njóta lífs-
ins og ferðast og sinna öðrum
áhugamálum sínum.
Dæmi:
Ekkjumaður sem á tíu ár eftir af
starfsævi sinni vill fara að minnka
við sig vinnu. Hann selur stóra
húseign fyrir 12.000.000 króna og
kaupir rúmgóða 4ra herbergja
íbúð fyrir 7.000.000 króna. Fyrir
mismuninn kaupir hann Fjórð-
ungsbréf. Þannig fær hann
100.000 króna tekjur umfram
verðbólgu á þriggja mánaða
fresti, án þess að skerða höfuð-
stólinn*
* Miöað viö að 8% árleg raunávöxtun náist á
sparnaðartímanum.
Sérfræðingar Landsbréfa h.f. sjá
um alla umsýslu, svo að eigendur
Fjórðungsbréfa geta notið áhyggju-
lausrar ávöxtunar.
Leitið ráða hjá Landsbréfum h.f.
Komið og fáið nánari upplýsingar,
bæklinga og aðstoð hjá ráð-
gjöfum okkar og umboðsaðilum í
útibúum Landsbanka íslands og
Samvinnubankans um land allt.
«p
LANDSBRÉF H.F.
Landsbankinn stendur með okkur
Suðurlandsbraut 24,108 Reykjavík, sími 606080
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.