Þjóðviljinn - 22.06.1990, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 22.06.1990, Blaðsíða 18
At-skák er nýjasta fyrirbrigðið í skákheiminum og hefur öðlast talsverðar vinsældir allt frá því að Garrí Kasparov tefldi sjónvarps- einvígi við Nigel Short í London 1987. Sumir hafa meira að segja gengið svo langt að halda því fram að hún muni leysa venjulega kappskák af hólmi. At-skákin (vonandi finnst betri þýðing á Actice-chess) gerir allt aðrar kröfur til skákmanna en í venju- legri kappskák. Fyrir það fyrsta hefur hvor keppandi aðeins */2 klst. til að ljúka skákinni og það er auðvitað gríðarlegur munur á þessu og venjulegum kapp- skákum sem geta oft staðið í meira en 10 klst. Fyrsta At- skákmót GMA, Stórmeistara- sambandsins, fór fram samhliða ársþingi þess dagana 7.-14. júní í bænum Murcia á Spáni og meðal þátttakenda voru fjórir íslend- ingar; undirritaður, Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson og Jón L. Parna voru mættir 120 skákmenn, allflestir stórmeistar- ar en að auki nokkrir titillausir Spánverjar. Þegar mótinu lauk eftir 13 við- burðaríkar umferðir var helsti lærdómurinn sá að til þess að ná árangri í þessari íþrótt þarf fyrir það fyrsta afar góða byrjunar- þekkingu, þótt varast beri að tefla byrjanirnar of hratt, einnig að vera undirbúinn fyrir við- kvæmasta kaflann þegar skyndi- lega þarf að skipta úr fremur hægu tempói yfir í venjulega hraðskák. Þar fóru margar góðar stöður úrskeiðis. Ekki virðist saka þótt taflmennskan sé dálítið yfirborðskennd því sjaldnast borgar sig að leggja of mikið á stöðurnar. Glæsilegar lausnir á erfiðum endatöflum sjást sárasj- aldan því mestu púðri eyða menn á miðtaflið og þegar því sleppir tekur venjulega við hrikalegur hraðskákarbarningur. Og það hefur mikið að segja að eiga betri tíma en andstæðingurinn. Jóhann Hjartarson, sá eini okkar sem hafði fyrir einhverja reynslu af þessu tímafyrirkomu- iagi, var allan tímann í námunda við toppinn og endaði í 5.-6. sæti. Skákstfll hans fellur vel að at- SKÁK At-skák nýtur sívaxandi vinsælda Jóhann Hj artarson í 5. -6. sæti á fyrsta At-skákmóti GMA skákinni, hann á gott með að þröngva „sínum“ stöðum upp á mótstöðumanninn og teflir úr þeim létt og leikandi. Hann tap- aði aðeins tveimur skákum, fyrir Júgóslavanum Kozul sem var í fararbroddi allan tímann og Ge- orgíumanninum Zurab Azmap- arashvili en vann marga þekkta stórmeistara s.s. fyrrum heimsmeistara Boris Spasskí. Röð efstu manna varð þessi: 1. Tukmakov (Sovétríkin) IOV2 v. 2. Kozul (Júgóslavíu) 10 v. 3.-4. Goldin og Chernin Sovétríkjun- um 9*/2 v. 5.-6. Jóhann Hjartar- son og Kransekov (Sovétríkjun- um) 9 v. Við Margeir Pétursson deildum 11. sæti ásamt stórum hópi manna með 8 vinninga. Margeir náði sér vel á strik um miðbik mótsins en slæmur kafli setti strik í reikninginn hjá hon- um. Undirritaður var seinn í gang og réð þar mestu tap úr unninni stöðu gegn Spánverjanum Rivas. Undir lokin fór taflmennskan að batna og vann ég þrjár síðustu skákirnar. Jón lagði helsti mikið á stöðurnar en náði ágætum endaspretti. Lítum á dæmigerða atskák. Jó- hann Hjartarson fékk ekki mikið úr byrjuninni gegn Boris Spasskí en heimsmeistarinn fyrrverandi missti þráðinn og Jóhann náði frumkvæðinu. Hann herjaði með öllum ráðum að kóngsstöðunni og batt enda á góða skák með mátsókn. Þegar skákinni lauk hafði Spasskí í frammi mikla leikræna tilburði sem féll greini- lega í kramið hjá áhorfendum og spænsku sjónvarpsmönnunum sem voru einmitt á staðnum á því augnabliki. Helgi Ólafsson Jóhann Hjartars. - Boris Spasskí Drottningarindversk vörn 1. c4 b6 2. Rc3 Bb7 3. d4 e6 4. a3 d5 8. Da4+ c6 9. Bg2 Rbd7 10. Bf4 0-0 11. 0-0 He8 5. cxd5 exd5 12. Hfdl Bf8 6. Rf3 Rf6 13. Re5 7. g3 Be7 (Þetta getur varla talist besti leikurinn enda er Spasskí fljótur að nýta sér ókosti hans.) 13. ... Rxe5 16. Bf3 Dg6 14. Bxe5 Rg4 17. h3 Rf6 15. Bf4 Df6 18. e3 Rh5? (Eftir ágæta byrjun tekur Spas- skí misráðna ákvörðun. Hér var e.t.v. best að leika 18. ... a5 með aðeins betri stöðu á svart.) 19. Re2 Rxf4 22. Dc2 a5 20. Rxf4 Dd6(?) 23. Rd3 Bc8 21. b4 b5 (Eftir að drottningarvængnum hefur verið lokað getur hvítur stefnt að framrásinni e3-e4 sem tryggir honum mun betra tafl.) 24. Hacl Bd7 27. Dc3 Be8 25. Bg2 He6 28. Rc5 a4 26. h4 Hh6 30. e4! (Jóhann hefur komið mönnum sínum haganlega fyrir og lætur nú til skarar skríða.) 30. ... dxe4 33. He3 Da7 31. Rxe4 De7 34. Rg5! 32. Hel Hd8 (Þessi riddari sem miðar á snöggu blettina í stöðu svarts á eftir að reynast Spasskí erfiður.) 34. ... Hd6 38. d5! c5 35. Hcel Bd7 39. Re4 Hf5 36. Dc2 g6 40. Bh3! 37. Da2 Hf6 (Hrókurinn er á sífelldum hrakhólum og fellur nú fyrir hendi biskupsins. Jafnframt veikjast varnirnar kóngsmegin stórlega.) 40. ... cxb4 42. Rf6+ Kg7 41. Bxf5 Bxf5 43. Dal! b3 44. He8! Da8 45. Rh5+ Kh6 (Eða45. ... Kg848. Dg7mát!) 46. Dcl+ Kxh5 47. Dg5 mát. Sögulegar kosningar í Murcia fór einnig fram árs- þing GMA og var þetta í fyrsta sinn sem ég sat samkundu þessa félagsskapar. Kasparov var í for- sæti og stjórnaði fundinum skörulega, þaggaði snarlega nið- ur í þeim sem voru með óþarfa vífilengjur eða báru fram erindi sem ekki voru á dagskrá þá stundina. Stóru málin voru kosning í stjórn og ágreiningur um samn- ing GMA og FIDE varðandi til- högun heimsmeistarakeppninn- ar. Kasparov lagði til að samning- ur milli FIDE og GMA sem þeir Bessel Kok og Jan Timman höfðu undirritað yrði felldur úr gildi sem myndi þýða að leiðir þessara sambanda skildi alfarið. Bessel Kok, stjórnarformaður og forstjóri SWIFT fjármálarisans kvaðst mundu segja af sér ef til- laga Kasparovs næði fram að ganga. í kosningu í stjórn hlaut Kasp- arov langflest atkvæði, 115 af 125 en aðrir í stjórn voru kosnir Jan Timman, Bent Larsen, Nigel Short, Alexander Beljavskí, Lu- bomir Ljubojevic og Bachar Ko- uatly. Þó að Anatoly Karpov væri felldur úr stjórninni með miklum glæsibrag linaði það ekki sárs- auka Kasparovs þegar úrslitin úr atkvæðagreiðslu varðandi samn- ing FIDE og GMA bárust. Fundarmenn lögðu blessun sína yfir samkomulagið og heims- meistarinn tók það mjög óstinnt upp. Hann sagði þó ekki af sér sem forseti GMA eins og látið hefur verið í veðri vaka heldur mun bíða með þá ákvörðun fram yfir heimsmeistaraeinvígið. Ein ummæli hans eftir fundinn eru mér minnisstæð: „Ég verð að fara að hugsa um mína eigin tafl- mennsku.“ Hann hefur átt í mikl- um önnum í ár eftir frægan flótta með skyldmenni og vini frá Baku. Ekki einasta kom hann ættingjunum til höfuðstaðarins heldur útvegaði hann þeim einnig húsaskjól og atvinnu. Síðar stóð hann að stofnun Sovéska lýðræð- isflokksins en maður sem veit allt, danski stórmeistarinn Bent Larsen, tjáði okkur að Kasparov hefði orðið undir í einhverri at- kvæðagreiðslu þar. Að loknu þinginu fór Kaspar- ov í æfingabúðir í námunda við Alicante á Spáni. Með í för var hópur aðstoðarmanna, móðir hans og lífverðir. Ein- hvernveginn hafði ég það á til- finningunni að brátt yrðu miklar breytingar á högum hans. Rólegheit í bikarkeppni Sveit S. Ármanns Magnússonar Reykjavík, varð önnur sveitin til að tryggja sér sæti í 16 liða úrslitum Bik- arkeppni Bridgesambandsins, með sigri yfir sveit Guðmundar Baldurs- sonar Reykjavík. Sveit þeirra fyrr- nefndu vann allar fjórar loturnar. Áður hafði sveit Sigurðar Sigurjóns- sonar Kópavogi tryggt sér sæti, með sigri yfir sveit Ragnars Magnússonar. f kvöld eru fyrirhugaðir tveir leikir, í Sigtúni. Sveit Estherar Jakobsdóttur Reykjavík mætir Skúla Jónssyni frá Sauðárkróki og sveit Sveins R. Eiríkssonar Reykjavík á að mæta sveit Baldurs Bjartmarssonar Reykjavík. Leikjum úr 1. umferð (32 sveita úrslit) skal vera lokið fyrir júlflok eins og áður hefur verið auglýst. Stafar þessi seinkun af þeirri dræmu þátt- töku sem er í keppninni. Aðeins 28 sveitir voru skráðar til leiks, en 3 sveitum var bætt við á elleftu stundu. Raunar eru uppi áhöld um lögmæti þeirrar ákvörðunar mótanefndar sambandsins, þar sem dráttur hafði þegar farið fram í 1. og 2. umferð. Tvö lið frá fslandi tóku þátt í árlegu stórmóti sem spilað er á Schiphol flugvelli í Amsterdam í júní ár hvert. Liðin voru landslið karla í opnum flokki, sem er á förum til Þórshafnar í Færeyjum til þátttöku í NM og sveit Arnarflugs, skipuð að mestu spilur- um úr sveit Modern Iceland (Áðal- steinn Jörgensen, Jón Þorvarðarson, Páll Valdimarsson og Sigurður Vil- hjálmsson). Síðarnefnda sveitin náði þokkalegum árangri. Hafnaði í 17. sæti af 88 þátttökuliðum. Landsliðið hafnaði hins vegar í 35. sæti, sem er visst áhyggjuefni fyrir þá. Spilaðar voru 13 umferðir með 7 spilum í leilk, eftir Monrad-fyrirkomulagi. Sigur- vegarar urðu landslið Pólverja í yngri flokki, sem er að undirbúa sig fyrir Evrópumótið í Þýskalandi. Sveit Tony Forrester frá Bretlandi hafnaði í 3. sæti. Fjölmargir sterkir spilarar af meginlandi Evrópu tóku þátt í þessu móti, en alls hefur mótið verið haldið í 4 skipti. Undirritaður í starfi fram- kvæmdastjóra BSÍ kom þessum sam- skiptum af stað, á sínum tíma. Hug- leiða má í framhaldinu, hvort ekki sé tímabært að athuga fleiri möguleika í þessum dúr. Hvað með frland eða Skotland? Þátttakan í Sumarbridge er stöðugt þessa dagana í 40 pörum hvert kvöld, sem þýðir, að nokkur fækkun hefur orðið í þátttöku frá fyrri árum. Á sama tíma í fyrra var þátttakan komin í ca. 50 pör á kvöldi. Það gefur því auga leið, aðsú aðferðsem stjórnBSÍ ákvað að beita, með útboði á umsjón með Sumarbridge, er í gjörgæslu þessa dagana og óvíst um afdrif króg- ans. Ef framhald verður á þeirri þátt- töku (leysi) sem verið hefur, er nokk- uð ljóst að Bridgesambandið hlýtur að taka á sig nokkra sök. Útboð af þessu tagi eru ekki tímabær í okkar litla bridgeheimi, og raunar vandséð hvað verið er að bjóða út. Hefur Bri- dgesambandið ekki haft mikinn hagnað af Sumarbridge fyrri ára? Er Bridgesambandið ekki með starfs- mann á launum allt árið, sem annast umsjón með húsnæði og annað það sem til fellur í því sambandi? Er von að spurt sé. Nokkuð er um nýskipan sveita í yfirstandandi Bikarkeppni. Áður hefur verið getið um „spútnikkana“ í sveit Fjólu Magnúsdóttur (Ólafs- sonar, áður Modern Iceland). Þá Val og Sigurð, auk Aðalsteins og Jóns Bald. Og Magnús Ólafsson og Jón Þorvarðarson. Geysiöflug sveit á pappírnum, svo ekki sé meira sagt. f sveit S. Ármanns Magnússonar eru liðsmenn sveitar Ólafs Lárussonar, auk Óla Más Guðmundssonar, sem kemur inn í stað Antons R. Gunnars- sonar, og Sigmar stórfyrirliði Jóns- son. í sveit Tryggingamiðstöðvarinn- ar hafa þau stórtíðindi gerst, að „gömlu“ mennirnir, Ásmundur Páls- son og Guðmundur Pétursson eru ekki með og raunar óvíst hvort þeir komi til með að spila saman áfram. Hinir fjórir reyna því að verja titilinn frá fyrra ári. Og enn ein „súper- sveitin“ var sveit Ragnars Magnús- sonar, sem entist ekki nema 39 spil í mótinu. í þeirri sveit voru m.a. Páll Valdimarsson, Matthías Þorvalds- son, Júlíus Sigurjónsson, Hrannar Erlingsson auk þeirra bræðra, Ragn- ars og Rúnars. Landsliðið heldur saman í sveit Verðbréfamarkaðar fs- landsbanka, og verða eflaust erfiðir að vanda, svona af gömlum vana. f sveit Jóns Hjaltasonar eru auk hans, þeir Murat Serdar, Símon Símonar- son og Jón Ásbjörnsson, að því er óstaðfestar heimildir greina frá. Að sögn Páls Valdimarssonar, ný- komnum heim frá Amsterdam frá þátttöku í Schiphol-mótinu, ein- kenndist allt mótið af „slemmum“ og öðrum skemmtiatriðum (ekki villtum meyjum og öllu hinu sem því fylgir). Lítum á eina sem félagi Páll rissaði upp fyrir dálkahöfund: S: 9872 H: D T: KD42 L: ÁG53 S: ÁKD3 H: ÁG943 T: ÁG83 L:----- Á þessi spil renndu þeir félagar, Páll og Sigurður Vilhjálmsson sér í 6 spaða. Ekki ósanngjarn samningur, eða hvað? Hvernig spilar þú spilið, eftir tígul- útspil frá Vestur? Andstæðingar ykk- ar komu ekki inn á sagnir hjá ykkur. Áður en við rekjum spilamennsk- una hjá Páli, verðum við að taka fram, að í spilaþrautum reyna menn aldrei þá aðferð sem blasir við og allir (flestir) reyna við spilaborðið. Við tökum á kóng í tígli í borði, rennum niður spaðaás og kóng. Ef spaðinn hagar sér vel, höfum við efni á að spila á hjartadrottningu og 12 slagir alltaf í húsi. Ekkert mál. En í þessu spili var spaðinn 4-1 og í raun var tígulútskotið það eina sem banaði spilinu, Það tók af samgang sagnhafa, sem getur þrátt fryrir 4-1 leguna í trompi, unnið spilið, ef tígull kemur ekki út. Með laufi út, vinnst „tempó“ og sgnhafi getur trompað tvisvar hjarta í borði. Þegar sagnhafi tromp- ar þriðja hjartað í borði yfirtrompar væntanlega Austur, en það verður eini slagur varnarinnar. Áth. Á hinu borðinu dóu sagnir út í 5 spöðum, eftir hrikalegan misskilning sagði Páll, og óverðskuldaðir impar skiptu um eigendur í spilinu. En svona er lífið. 18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 22. júní 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.