Þjóðviljinn - 22.06.1990, Blaðsíða 25

Þjóðviljinn - 22.06.1990, Blaðsíða 25
 Óvænt skemmtun Háskólabíó: Látum‘ða flakka (Let it ride) Leikstjóri: Joe Pytka Handrit gert eftir bókinni Good Vibes eftir Jay Cronley Aðalleikarar: Richard Dreyfuss, Teri Garr, David Johanesen. Auðvitað á maður aldrei að vita neitt um bíómyndina sem maður ætlar að fara á, þá eru þó nokkrar líkur á að hún komi manni skemmtilega á óvart. Myndin Látum'ða flakka var frumsýnd í B-sal og lét í alla staði mjög lítið fara fyrir sér, þó að stórleikarinn Richard Dreyfuss sé í aðalhlutverki. Ég hafði ekk- ert heyrt um hana, nema að þetta væri mynd á léttu nótunum, ekki stórkostlegasta gamanmynd allra tíma eða ótrúlegasta spennu- mynd í 50 ár eða neitt svoleiðis. Ég hafði ekki séð nein slagorð sem lofurðu upp í ermina á mynd- inni. Enda skemmti ég mér af- skaplega vel. Richard Dreyfuss leikur hér leigubílstjórann Jay Trotter sem verður að reyna að hætta að veðja á hesta, því annars vill kon- an hans (Teri Garr) ekki búa með honum. En vinur Jays, Looney (David Johanesen, betur þekktur undir nafninu Buster Pointdex- ter), keyrir líka leigubfl og tekur upp samtöl farþega sinna á segul- band. Þannig heyrir hann tvo menn tala um hest sem getur ekki tapað... Svo að Jay ákveður að reyna í sfðasta skipti, stefnir hjónabandinu í voða, en öllum til undrunar, aðallega honum sjálf- um, er heppnin með honum. En þar með er ekki öll sagan sögð. Pað er erfitt að hætta þegar heppnin er loksins með manni. Þetta er afskaplega einföld og oft fyrirsjáanleg gamanmynd, en þó eru persónur og atriði sem jaðra við að vera súrrealísk, þau eru svo út í hött. Það er líka mikið af snjöllum tilsvörum, ég sé mest eftir að hafa ekki haft blað og blýant með mér til að skrifa eitthvað af þeim hjá mér. Dreyfuss leikur hér sama hlut- verkið og venjulega; sjarmer- andi, lágvaxinn mann sem er létt- geggjaður þegar það á við og ger- ir það vel eins og venjulega. Teri Garr er líka stórfín, hún er skemmtileg gamanleikkona og á mun betur heima þar en í þessum hádramatísku sjónvarpsmyndum sem hún hefur sést svo oft í. Da- vid Johanesen er skemmtilega galinn og ofleikur akkúrat nógu mikið til að það sé fyndið en ekki hallærislegt. Allt í allt er þetta óvenju fyndin gamanmynd, sér- staklega miðað við hvað hún er lítið auglýst. Sif TJALDIÐ HÁSKÓLABfÓ Vinstri fóturinn (My Left Foot) ★★★★ Algjörlega yndisleg mynd sem maður get- ur ekki annað en fallið fyrir, nokkurskonar óðurtil likamshluta. Daniel Day Lewis sýnir manni i hlutverki Christy Brown að vinstri fótur er allt sem maður þarf til að vera sjarmerandi og sexy. Sif Shirley Valentine ★★★ Pauline Collins fer á kostum sem Shirley Valentine! (Þetta er klisja en það er alveg satt). Shirley er kona sem talar við eldhús- vegginn sinn, afþví allir aðrir í kringum hana eru svo leiðinlegir. Svo talar hún líka við stein en hann skilur hana ekki afþví hann er grískur. Þetta er skemmtileg mynd ORÐSEIMDIIMG UM LEIÐRÉTTINGU Á VERÐBÓTUM Á SKYLDUSPARNAÐI Umboðsmenn og aðstandendur einstaklinga, sem búsettir eru erlendis eða sem látist hafa og söfnuðu skyldusparnaði á árunum 1957 til l.júlí 1989, eru hér með hvattir til að kanna í upplýsingasímum stofnunarinnar hvort greiðslur vegna leiðréttinga á verðbótum liggi þar fyrir. Allar leiðréttingar til þeirra, sem áttu skráð heimilisfang hér á landi 1. desember 1989 s.l. hafa verið sendar út. Eftir standa töluvert af leiðréttingar- greiðslum til fólks, sem skráð er erlendis og sem látið er. í desember s.l. ákvað Húsnæðisstofnun ríkisins að greiða út leiðréttingar varðandi verðbætur á skyldusparnað. Hér var einungis um að ræða verðbætur sem reiknast áttu af verðbótum. Leiðréttingamar vörðuðu tímabilið l.júní 1957 til 1. júlí 1980 og náðu aðeins til hluta þeirra sem áttu skyldusparnað umrætt tímabil. Upplýsingasímar eru 696946 og 696947 kl. 10-12 virka daga. Richard Dreyfuss og Teri Garr í hlutverkum sínum. um konu sem er dálítið galin og skammast sín ekkert'fyrir það. Sif Cinema Paradiso (Paradfsarbíóið) ★★★★ Það er í rauninni fáránlegt aö vera að gefa svona mynd stjörnur, því hún er langt yfir alla stjörnugjöf hafin. Svona mynd er að- eins gerð einu sinni og þessvegna má eng- inn sem hefur hið minnsta gaman af kvik- myndum missa af henni. Sif Siðanefnd lögreglunnar (Internal affairs) *Vi Það eru aðalleikararnir Gere og Garcia sem fá þessar stjörnur, þeir eru báðir góðir, allt of góðir fyrir þetta lélega handrit sem er mengað af kvenfyrirlitningu. Sif BÍÓBORGIN I blíðu og striðu (The war of the Roses) ★★V2 Kolsvört kómedía eftir minnsta og fynd- nasta manninn í Hollywood, Danny De- Vito. Rósahjónin (Turner og Douglas í frá- bæru formi) uppgötva eftir mörg ár I hinu fullkomna hjónabandi að þau eiga ekki saman. Það er kannski ekkert nýtt, en að- ferðirnar sem þau nota til að fá hvort annað til að flytja út úr draumahúsinu eru ekki fyrir veikbyggða. Öðruvísi strlðsmynd sem þessir leikarar gera að afbragðs afþrey- ingu. Góða skemmtun. Sif Kynlff, lygl og myndbönd (Sex, lles and vldeotape) *★★★ Þetta er óvenjuleg mynd um venjulegt fólk sem talar saman og sefur saman sitt á hvað. Það erógerlegt að útskýra hvað það er sem gerir það að verkum að maður vill ekki fara heim þegar myndin er búin. En svoleiðis er það nú samt. Drlfið ykkur. Sif Stjörnubíó Stálblóm (Steel magnollas) ★★★ Þetta er ekki „skemmtilegasta gaman- mynd allra tírna" eins og stendur í auglýs- ingunni. Þetta er reglulega skemmtileg mynd um lif sex vinkvenna í smábæ. En lifið er ekki alltaf tóm skemmtun svo að þið skuluð taka einn vasaklút með. Sif Laugarásbíó Hjartaskipti (Heart Condltion) *V2 Ósköp slappur tryllir með Bob Hoskins í hlutverki lögreglumanns sem fær hjarta úr svertingja (sem hann hatar) þegar hans hættir að virka. Nokkrir góðir brandarar gera myndina ekki þess verða að sjá hana og manni dettur helst i hug að Hoskins sé þarna vegna einhverra mistaka. Sif Ekið með Daisy (Drlving miss Dalsy) ★★★★ Þetta er afar ótípísk Óskarsverðlauna- mynd, aðeins tveir aðalleikarar og þeir báöir komnir yfir sextugt. Þetta er hlý og manneskjuleg mynd sem fjallar um vináttu og kynþáttafordóma og það að eldast I rólegheitum. Sif Hf SEHIIIIIS hf KÚSKIHHS- ÚE LEOUR FKTHKÚI LÍTIOIKK ÞA0B0R0KR SIG PILOT Hafnarstræti 16, sími 624404

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.