Þjóðviljinn - 22.06.1990, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 22.06.1990, Qupperneq 5
• • TIT A .▼ ■ t» ■> rUi3l UUAvjjjr Kr^ I I ttv BHMR Ríkisstjómin ógildi frestun Fjölmennur útifundur BHMR ígær krefstþess að ríkisstjórnin ógildi frestun á launahœkkunum. ASÍ segist ekki hafa krafist frestunar Eftir fjölmennan fund félaga í BHMR á Lækjartorgi í gær, var Steingrími J. Sigfússyni starf- andi fjármálaráðherra, afhent yf- irlýsing til fjármála- og forsætis- ráðherra. I yfirlýsingunni segir að frestun ríkisstjórnarinnar á gildistöku nýs launakerfis BHMR, eigi sér enga stoð í samn- ingum og hún sé frekleg árás á lýðræði í landinu. Ásmundur Stefánsson forseti Alþýðusam- bands íslands segir í svarbréfi til BHMR, að ASÍ hafi hvergi sett fram kröfu um að samnings- bundnar kauphækkanir verði felldar niður með valdboði. Að- gerðarnefnd BHMR hcfur beint því til félagsmanna bandalagsins að leggja niður störf í nefndum og ráðum ríkisins. Ríkisútvarpið Útvarpsráð var í órétti Álit Lagastofnunar: Út- varpsráð var í órétti þeg- ar það lýstifréttfrétta- stofunnar ómerka Páll Benediktsson formaður Félags fréttamanna, segir að álit sem Lagastofnun Háskóla Is- lands hefur gert fyrir félagið, staðfesti að fréttamenn Ríkisút- varpsins hafi haft rétt fyrir sér í deilu sem reis upp vegna fréttar af teikningum af íþróttahöll sem gerðar voru af teiknistofu á Akra- nesi. í áliti Lagastofnunar segir ma. að útvarpsráð hafi ekki úr- skurðarvald um hvort frétt brjóti í bága við útvarpslög eða ekki. Eftir að fréttastofa útvarps hafði birt athugasemd frá út- varpsráði vegna umræddrar frétt- ar, þar sem tekið var fram að fréttastofan stæði við allt sem sagt var í fréttinni, lýsti útvarps- ráð þá frétt ómerka. í áliti Lag- astofnunar segir að útvarpsráð hafi ekki vald til þess að úrskurða yfirlýsingu fréttastofunnar ómerka. Þá segir að hvorki út- varpsráð né útvarpsstjóri hafi vald til að banna birtingu fréttar. Hins vegar geti fréttamenn og fréttastjóri bakað sér ábyrgð samkvæmt lögum vegna birtingar fréttar. Almennur félagsfundur Félags fréttamanna ályktaði um þetta mál á miðvikudag. Þar segir að álitsgerðin staðfesti að útvarps- ráð og útvarpsstjóri hafi farið út fyrir valdsvið sitt með afskiptum sínum af fréttaflutningi frétta- stofu útvarps. Félagið álítur jafnfram að álitsgerðin staðfesti ritstjórnarvald fréttastofu Ríkis- útvarpsins. Páll Benediktsson sagði félagið líta svo á að með álitsgerðinni væri þessu máli lokið. Félag fréttamanna myndi hins vegar reyna að hafa áhrif á væntanlegt frumvarp til útvarpslaga og styðj- ast þar við álitsgerðina, svo ekki verði komið inn í ný lög klásúlu sem gefi útvarpsráði það vald sem Lagastofnun segi það ekki hafa nú. -hmp Aðgerðarnefndin hefur einnig ákveðið að taka á móti Ólafi Ragnari Grímssyni fjármálaráð- herra þegar hann kemur heim frá útlöndum á sunnudag. Á útifundi BHMR í gær sagði Elna Kristín Jónsdóttir formaður HÍK, ekki nema eðlilegt að spyrja ráðherra við komuna hvernig honum hafi litist á þau lýðræðisríki sem ráðherrann hefði verið að heimsækja að undanförnu. Að- gerðarnefndin hefur einnig sett af stað söfnun undirskrifta þar sem frestun ríkisstjórnarinnar er mót- mælt. Ásmundur Stefánsson hefur svarað bréfi BHMR til ASÍ. Taldi forsetinn rétt að gera það án tafar þó miðstjórn ASÍ hefði ekki komið saman til að fjalla um málið. í bréfinu segir.Ásmundur að ASÍ hafi hvergi sett fram, né tekið undir, kröfur um að samn- ingsbundnar kauphækkanir verði felldar niður með valdboði. Ás- mundur segir hins vegar, að á fundi ASÍ manna með fulltrúum BHMR í janúar, hefði ASÍ gert grein fyrir því að það teldi eðli- legt að BHMR og aðrir hópar launafólks fylgdu þeirri stefnu sem mörkuð er í samningum ASÍ og BSRB. í bréfi forsetans er aft- ur á móti ekki vikið að þeirri spurningu BHMR hvort ASÍ styðji þá megin kröfu að samn- ingar skuli virtir. Það kom fram í máli ræðu- manna á útifundinum í gær, að BHMR hefði aldrei framselt samningsrétt sinn til ASÍ, eins og Júlíus K. Björnson formaður Sál- fræðingafélagsins orðaði það. Broddi Broddason formaður Fé- lags fréttamanna sagði „þjóðar- sátt“ hafa verið einhvers konar lausnarorð frá því samningar ASÍ og BSRB voru gerðir. í bréfi for- sætisráðherra til BHMR væri hins vegar talað um „þjóðar- voða“ ef staðið verði við gerða samninga við BHMR. Broddi sagði þetta mál einfaldlega snúast um eðlilegt heimilishald í stað aukinnar yfirvinnu. í svari Ásmundar Stefánssonar kemur einnig fram að ASÍ félagar muni fara fram á sömu launa- hækkanir ög aðrir hópar sem hugsanlega fái meiri hækkanir en samið var um í febrúar, jafnvel þótt það raskaði forsendum fe- brúarsamninganna. Steingrímur J. Sigfússon starf- andi fjármálaráðherra, sagði Þjóðviljanum að hann hafi staðið í skemmtilegri verkum en að taka við yfirlýsingunni frá aðildarfé- lögum BHMR. Hann sagði að hann myndi beita sér fyrir því innan ríkisstjórnarinnar að þetta mál yrði leitt til farsælla lykta. -hmp Fjölmenni var í kröfugöngu BHMR í gærdag, þar sem frestun ríkis- stjórnarinnar á gildistöku nýs launakerfis BHMR var mótmælt. Mynd: Kristinn. Kosningarnar Konur sóttu á Hlutfallslegafleiri konur ísveitarstjórnum. Hlutfall kvenna háttá höfuðborgarsvæðinu Konur sóttu á i nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Þær eru nú 32,4 af hundraði kjö- rinna sveitarstjórnarmanna í kaupstöðunum og í Reykjavík, en voru 28,9 prósent fulltrúa eftir kosningarnar 1986. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Jafnréttisráði. Nokkuð algengt er að konur veljist í embætti forseta bæjarstjórnar að þessu sinni. Sveitarstjórnarmenn í kaup- stöðum og í Reykjavík eru 250 alls, en 81 þeirra eru konur. Sé miðað við framboðslista í kaup- stöðum var hlutfall kvenna 41,1 prósent. Hlutfall kvenna í sveitarstjórn- um á höfuðborgarsvæðinu er 45 af hundraði. Það er langt yfir landsmeðaltali. Á Seltjarnarnesi og í Garðabæ eru konur í meiri- hluta í bæjarstjórn, en í borgar- stjórn sitja sjö konur og átta karl- ar. Konur eru nú mjög víða forset- ar bæjarstjórna. Það á við m.a. um Keflavík, Garðabæ, Akra- nes, Selfoss, Akureyri, Borgar- nes og Hveragerði. A Selfossi eru konur í embættum forseta bæjar- stjórnar og formanns bæjarráðs. -«g ABR Island úr NATÓ - Herinn burt ABR lýsir yfir stuðningi við BHMR Afélagsfundi ABR, sem haldinn var sl. miðvikudagskvöld var samþykkt tillaga um að fulltrúar flokksins á Alþingi og í ríkisstjórn fylgi eftir stefnu flokksins í her- stöðvamálinu í starfi sínu og fylki Borgarráð Sigurjón einn í minnihluta Sjálfstæðisflokkurinn hefur fjóra fulltrúa í borgarráði Reykjavíkur, en minnihluta- flokkarnir aðeins einn. Varpað var hlutkesti um fjórða manninn og hafði Sjálfstæðisflokkurinn þar sigur. Davíð Oddsson var kjörinn borgarstjóri og Magnús L. Sveinsson forseti borgarstjórn- ar á fyrsta fundi nýrrar borgar- stjórnar í gærkvöldi. Sigurjón Pétursson verður full- trúi minnihlutans í borgarráði næsta árið, en hver flokkur fær fulltrúa í ráðinu í eitt ár í senn. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarráði eru Magnús L. Sveinsson, Katrín Fjeldsted, Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson og Árni Sigfússon. Hefði minnihlutinn unnið hlutkesti, sæti Kristín Á. Ólafsdóttir í ráðinu í stað Árna. Kosið var í nefndir og ráð borg- arinnar á fundinum í gær og varð að varpa hlutkesti um fjórða mann Sjálfstæðisflokksins og annan mann minnihlutans í allar fimm manna nefndir. -gg sér um tillögur Hjörleifs Gutt- ormssonar í málinu. Einnig var samþykkt svohljóð- andi breytingartillaga við til- löguna, sem Stefanía Trausta- dóttir bar fram: „Þá minnir fund- urinn á samþykkt 9. landsfundar Alþýðubandalagsins þar sem lagt er til að í ljósi nýrra tíma leggi ráðherrar flokksins til innan Ríkisstjórnarinnar, „að tafar- laust verði hafinn undirbúningur að brottför hersins, afnámi er- lendra herstöðva og þar með úr- sögn úr NATÓ.“ Einnig var samþykkt tillaga um að ABR mótmæli harðlega þeim aðgerðum ríkisstjórnarinnar að fresta einhliða ákvæðum kjara- samnings BHMR og rýra með því fordæmi samningsrétt stéttarfé- laga. -Sáf Föstudagur 22. júní 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5 Seyðisfjörður Allir í bæjar- vinnuna Um25 afhundraði atvinnufœrra Seyðfirð- inga atvinnulausir. Bær- inn hefur ráðið yfir hundrað manns til sín Um fjórðungur mannafla á Seyðisfirði var atvinnulaus í maí, en nú hafa bæjaryfirvöld ráðið þetta fólk nær allt í sutnarvinnu. Þar á meðal eru fjölmargir náms- menn. Atvinnuástandið á Seyðis- firði hefur verið rætt sérstaklega í ríkisstjórninni, en engin niður- staða hefur fengist. Starfsemi Fiskvinnslunnar hef- ur legið niðri um margra mánaða skeið, en þegar mest var unnu þar um 200 manns. í síðasta mánuði voru 89 á atvinnuleysisskrá. Auk þess voru 45 námsmenn á skrá svo samtals voru 135 manns án atvinnu. Að sögn Þorvarðar Jón- assonar bæjarstjóra má áætla að mannafli á Seyðisfirði sé um 550 manns, svo atvinnuleysið nam um 25 af hundraði. „Við höfum tæmt atvinnuleysisskrána að mestu með því að ráða þetta fólk til vinnu hjá bænum. Það er dýrt að halda þessari atvinnu uppi, en það er líka dýrt að láta fólk ganga atvinnulaust. Við vonumst til þess að atvinnulífið glæðist í haust. Þótt undarlegt megi virðast hefur ekki borið á brottflutningi fólks úr bænum, en auðvitað hljóta margir að fara að hugsa sér til hreyfings. Hjól verða því að fara að snúast hérna,“ segir Þor- varður Jónasson í samtali við Þjóðviljann. -gg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.