Þjóðviljinn - 22.06.1990, Qupperneq 21
í tilefni 75 ára afmælis kosn-
ingaréttar og kjörgengis ís-
lenskra kvenna í vikunni var
kvenréttindafrömuðinum Betty
Friedan boðið hingað til lands
sem alþjóð ætti að vera orðið
kunnugt. í för með Friedan voru
sjö bandarískar konur sem hver
og ein hefur unniö sér sitt hvað til
ágætis í kvenfrelsisbaráttunni.
Ein þeirra er dr. Diana M. Mee-
han sem er ýmislegt til lista lagt
og verður ekki allt tíundað hér. En
meðal þess sem Diana er þekkt
fyrir í heimalandi sínu er tvennt;
annars vegar bók sem greinir frá
rannsókn á ímynd kvenna í sjón-
varpi og ber titilinn „Ladies of the
Evening" (sem er reyndar
slangur sem notað er um vændi-
skonur), og hins vegar ný hei-
mildamynd sem hún vann í félagi
við aðra um konur á átakasvæð-
um, bæði í stórborgum Banda-
ríkjanna og á stríðshrjáðum stöð-
um eins og El Salvadorog ísrael.
Mynd þessi hefur þegar verið út-
nefnd til Emmy-verðlauna og vel
er hugsanlegt að við fáum að
berja hana augum í framtíðinni.
Hamingjusama
húsmóðirin
ímynd kvenna í sjónvarpi í
Ameríkunni hlýtur að vera nokk-
uð sem vekur áhuga okkar hér í
því flóði af bandarísku sjónvarps-
efni sem hér er sýnt og Nýtt Helg-
arblað spurði Diönu hverjar
helstu niðurstöður þessarar rann-
sóknar hefðu verið. Þess skal get-
ið að rannsóknin beindist sér-
DianaM. Meehan: „Konur á stríðssvæðum eruað réttafram sáttahönd til annarra kvenna. Ein þeirrasagði við mig: Við fæðum af okkur lífið.
Ef við styðjum það ekki, þá er engin von eftir." Mynd: Kristinn
Af húsmæðrum, tálkvendum
og öðrum kvenhetjum
staklega aó sjónvarpsefni sem
sýnt er á besta sýningartíma
(Prime Time TV) í Bandaríkjun-
um:
„Rannsóknin nær frá 1950 til
1984 og hver áratwgnr hefur sttt
ákveðna yfirbragð,“ svarar hún.
„Við tókum þann pól í hæðina að
kanna efnið út frá þeirri forsendu
að sjónvarpið væri að gefa okkur
raunsæja mynd af konum þessa
tíma og í lokin bárum við það
saman við raunveruleikann.
Á sjötta áratHgmnH bar laag-
mest á tveimur manngerðum.
Annars vegar „hamingjusömu
húsmóðurinni" sem annað hvort
var klaufsk og ringluð, eins og
Lucy Ball og margar fleiri, eða
hreinlega fullkomin á allan hátt.
Kynlíf er
hættulegt!
Hin manngerðin var tálkvend-
ið, hóran sem felldi karlmenn og
særði þá á allan hátt sem henni
var mögulegt. Hún er raunar
ástæðan fyrir því að ég valdi titil-
inn „Ladies of the Evening" á
bókina. í nær öllum þáttunum
birtust þessar tvær manngerðir
aftur og aftur.
Við skoðuðum einnig karlhlut-
verkin á skjánum og þar var líka
stór munur á raunveruleikanum
og heimi sjónvarpsins, þótt ann-
ars konar væri. Þar sáust sárafáir
verkamenn, skrifstofumenn og
engir námamenn. Hins vegar
voru margir geimfarar, lögfræð-
ingar, læknar og lögreglustjórar í
þáttunum. Þetta var sú mynd sem
börnum þessa tíma birtist af
samfélaginu.
Raunveruleikinn var auðvitað
allt annar. Á sjötta áratugnum
var fjöldi kvenna á vinnumarkað-
inum en við sáum aldrei útivinn-
andi konur á sjónvarpsskjánum.
Þetta segir manni einnig margt
um kvenhlutverk þessa tíma.
Konur höfðu og hafa ekki enn
raunverulegt vald í heimi sjón-
varpsins enda þótt spor í þá átt
hafi vissulega verið stigin. Konur
höfðu ekkert um það að segja
hvað birtist á skjánum.
Á sjöunda áratugnum minnk-
aði alvald húsmæðranna í vinsæ-
lustu þáttunum og við tók móð-
urímyndin. Þá gátum við fundið
konur sem í krafti móðurvaldsins
gátu haft áhrif en réðu þó ekki
um gang mála. Þær konar sem
ekki áttu börn voru áfram svörtu
ekkjurnar, kóngulæmar sem
spunnu vef sinn utan um saklausa
karlana. í gegnum þær kom skýrt
fram stefnan um að kynlíf væri
hættulegt.“ Diana hlær og bætir
við: „Þetta er ákaflega amerískt
viðhorf, ekki
„Þessar einföldu myndir af
konum í sjónvarpi hjálpa manni
mjög við að skilja hvað konur í
stjórnmálum þurfa að berjast við
og þetta nefni ég vegna þess að nú
er ég að skrifa bók um konur í
pólitík.
í dag eru breytingar að eiga sér
stað þótt hægar séu og það tel ég
fyrst og fremst því að þakka að á
áttunda áratugnum byrjuðu kon-
ur að fá valdastöður innan fjöl-
miðlaheimsins. Þróunin hófst í
valdatíð Kennedys þegar menn
áttuðu sig á hve fáar konur voru í
stjórnunarstöðum. Stefnubreyt-
ingin kom að ofan og enda þótt
stjórn Reagans hafi reynt að snúa
þessu við aftur þá var það orðið
of seint. Konur voru orðnar
handritahöfundar, framleiðend-
wr og stvméam ýafnvel stjóraend-
ur sjónvarpsstöðva. Þær era ekki
margar en þær vinna mikið sam-
an og hafa breytt miklu. Til þessa
hafa konur í sjónvarpi alltaf birst
sem mæður, dætur eða systur ein-
hverra karlhetja, en ekki sem
einstakiingar.
En sem éæmi tm sjÓBvarps-
þætti níunda áratugarins má
nefna þættina um Roseanne og
Murphy Brown. Þar hafa konur
mikið að segja um handrit og
vinnslu og í þessum þáttum eru
konurnar einstaklingar en ekki
aukapersónur sem eru til staðar
vegna karlanna.“
Raddir úr
fremstu víglínu
Við látum þetta duga um
rannsóknina plássins vegna og
snúum okkur að seinna umræðu-
efninu, heimildamyndinni um
konur á átakasvæðum, sem ber
tkiH»n „Raddir úr fremstu víg-
línu.“ Meehan fer ekki troðnar
slóðir og má nefna að næst á dag-
skrá hjá henni er gerð heknilda-
mynda um s-töðn sovéskra
kvenna og annarrar t»n slæm kjör
bama í Bandaríkjunum.
Myndin um konur í stríði hefur
verið sýnd í nokkrum borgum
Bandaríkjanna í kynningar- og
fjáröflunarskyni fyrir málefnin
sem þar er fjallaö um og hvar-
vetna kefwr hún tóotið nnikla at-
hygli. Formleg frumsýning verð-
ur í júlí og Diana kvaðst búast við
að eintak af myndinni yrði sent til
Kvenréttindafélags Islands. í
stuttu máli sýnir þessi mynd
áhorfendum konur sem í miðri
kúlnahríðinni reyna að semja frið
með því að rétta fram sáttahönd
hver til annarrar upp á sitt eins-
dæmi, án íhlutunar karla og
jafnvel gegn lögum eins og t.d. í
ísrael.
Hugmyndin að myndinni varð
til út frá einu dæmi sem sjón-
varpsfréttakonan Pat Mitchell
hjá CBS-stöðinni hugðist gera
fréttamynd um. Hún ræddi við
Meehan sem þekkti annað dæmi
og úr varð 90 mínútna heimilda-
mynd. í framhaldi af þessu starfi
eru þær með á prjónunum að
stofna lítið kvikmyndafyrirtæki
þar sem áhersla verður lögð á
gerð heimildamynda um málefni
kvenna og annarra þeirra sem
misrétti eru beittir.
Gyðingakonur
hitta konurúr
PLO
„Við tókum myndina í nokkr-
um stórborgum Bandaríkjanna
og í E1 Salvador, í ísrael og á
Norður-írlandi. Á öllum þessum
stöðum hittum við konur sem á-
kváðu að gera sitt til að semja
frið. ísraelskar konur, sem misst
hafa börn sín í sprengjuárásum,
ákváðu, í stað þess að grípa byssu
og skjóta á andstæðinginn, að
tala við palestínskar konur. Lög í
ísrael banna að stríðandi aðilar
talist við þannig að komið var á
friðarfundi í Belgíu og þar hittu
ísraelskar konur úr borgarstjórn
Jerúsalem, og margar fleiri sem
tengdust ísraelska stjórnkerfinu,
koi»ur úr inrrsta hriag PLO.
Satna hefur gerst á Norður-
írlandi. Þar hafa mótmælenda-
konur og kaþólskar myndað
friðarhóp sem hefur það eitt
markmið að koma á friði og þar
hjálpa kaþólskar konur mótmæl-
endakonum og gagnkvæmt. Ein
þessara kvenna sagði við okkur:
Hvaða máh skiptk það bver
ræður yfir moldinni þegar þú ert
grafin sex fet niður í hana?!
í E1 Salvador eru það konur
sem halda þjóðfélaginu gangandi
því svo til allir karlmennirnir
halda uppi hernaðinum á milli
stjórnar og skæruliða. Þær eru
farnar að talast við og þær vilja
frið.“
Synirokkar
verða að hlusta
„Ástæðan fyrir því að við
tókum borgir Bandaríkjanna
með í myndina er sú að í ákveðn-
um hverfum þeirra ríkir einnig
hryllilegt stríðsástand og þar falla
einnig saklaus börn í stríði gengja
og eiturlyfjasala. Þar fundum við
einnig mæður stríðandi aðila sem
ræddust við um hvernig væri hægt
að semja frið.
Við hittum mæður drengja sem
stjórna glæpagengjum sem sífellt
eiga í stríði. Margar eru af
spænskum uppruna og koma úr
umhverfi þar sem litið er upp til
mæðranna. Þær sögðu við okkur:
Ef synir okkar sjá okkur allar tala
saman verða þeir að afvopnast.
Allt þetta á upptök sín að rekja
til einstakra kvenna sem stóðu
upp og sögðu: Nú er komið nóg!
Það sem snart mig einna dýpst
eru orð konu sem ég spurði
hvernig stæði á því að hún væri
ekki full haturs gegn þeim sem
ollu dauða barna hennar og eigin-
manns. Hún sagði einfaldlega:
Við konur fæðum af okkur líf. Ef
við styðjum ekki lífið þá er engin
von eftir."
Og við það setjum við punkt-
inn hér. -vd.
Dr. DianaM. Meehan rithöfundur og
kvikmyndagerðarkona í viðtalium konur
framan við og að baki
sjónvarpsmyndavéla í stríði og fríði
Föstudagur 22. júní 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 21