Þjóðviljinn - 22.06.1990, Qupperneq 26
Árbæjarsafn, opið alla daga nema
mákl. 10-18. PrentminjasýningíMið-
húsi, kaffi í Dillonshúsi og Krambúð.
Djúpið, kjallara Hornsins, Róbert
Róbertsson. Opið alla frá kl. 11.
Gallerí Borg, Austurstræti 3 og Síðu-
múla 32, grafík, vatnslita-, pastel- og
olíumyndir, keramikverk og módel-
skartgripir, opið lau 10-14.
Gallerí Sævars Karls Bankastræti
9. Edda Jónsdóttir, Vörðurvatnslita-
myndirog smá- skúlptúrar. Opið á
verslunartíma, til 24.6.
Gerðuberg, sýning á starfi lista-
smiðjunnar Gagn og gaman opnuð á
lau kl. 14 með leikþættinum í hafsins
djúpi. Sýningin eropin kl. 9-22 alla
daga til 22.6. Ath. síðasti sýn.dagur.
Gunnarssalur Þernunesi 4, Arnarn-
esi. Gunnar I. Guðjónsson sýnir olí-
umálverk, bæði ný og frá ýmsum tím-
um. Opið daglega kl. 16-22, til 24.
júní.
Hafnarborg, Einfarar í íslenskri
myndlist, opið alla daga nema þri kl.
14-19, til 24.6.
Kjarvalsstaðir, Islensk höggmynda-
list 1900-1950 Opið daglega frá kl.
11-18. Til 8.7.
Listmálarafélagið, Listahúsi að
Vesturgötu 17,8 kunnir listamenn.
Opið 14-18alladaga,framlengdtil
24.6.
Listasafn Einars Jónssonar opið
alla daga nema má 13.30-16, högg-
myndagarðurinn alla daga 11-17.
Listasafn ASl', sýn. Grafiklist frá
Frakklandi. Opin virka daga kl. 16-19
og um helgar kl. 14-19, má lokað. Til
1.7.
Listasafn íslands, André Masson
1896-1987, opið um helgar kl. 12-22,
virka daga kl. 12-18. Til 15.7.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
sýn. áandlitsmyndum Sigurjóns.
Opið lau og su kl. 14-18, má, þri, mi
og fi kl. 20-22.
Menntamálaráðuneytlð, Daníel
Magnússon sýnir fígúratívar og ge-
ómetrískar lágmyndir.
Minjasafn Rafmagnsveitunnar,
húsi safnsins v/ Rafstöðvarveg, su
14-16.
Norræna húsið, kjailari og anddyri:
Hernám og stríðsár, Ijósmyndasýn-
ing frá stríðsárunum á íslandi 1940-
45. Opin 14-19 daglega, til 24.júní.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti 74, eldgosa- og flótta-
myndir Ásgríms. Opið alla daga
nema má kl. 13:30-16.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8
Hf. Opið alla daga nema má kl. 14-
18.
Slúnkaríki ísafirði, Sara Vilbergs
opnar á lau sýningu kl. 16, opið fi-su
16-18. Til 1.7.
Veitingahúsið 22, Laugavegi. Óskar
Thorarensen, Opið alladagafrá kl.
11 -01, um helgar til kl. 03.
Þjóðminjasafnið, opið 15.5.-15.9
alla daga nema má kl. 11 -16. Maður
og haf, sýning á 2. hæð, til 1.7.
LEIKLISTIN-
Leikfélag Rey kjavíkur í leikför með
Sigrúnu Astrósu, í kvöld á Dalvík, lau
á Húsavík, su Skjólbrekku og má
Raufarhöfn.
Alþýðuieikhúsið, Isaðar gellur í
leikför, í kvöld kl. 20:30 á Akranesi, á
lau kl. 21:15 í Sindrabæ Höf n í Horna-
firði, og á su kl. 21:15 í Félagsheim-
ilinu Vestmannaeyjum.
Auðhumla heldur leiksýningu á
Jónsmessunótt, sem hefst á mið-
nætti á Klambratúni á horni Löngu-
hlíðarog Flókagötu. Frumsýnt verður
verkið Drottningin varð ástfangin af
bjána í leikstjórn Guðjóns Sigvalda-
sonar. Aðg. ókeypis.
í gegnum grínmúrinn og Leitin að
léttustu lundinni, Spaugstofumenn á
ferð um landið. í kvöld í Skálavík, Bol-
ungarvík. Lau Alþýðuhúsinu ísafirði,
og su Félagsheimilinu Hvamms-
tanga.
Dómkórinn í Reykjavík heldur tónleika annað kvöld kl. 22 í Dómkirkjunni. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan
húsrúm leyfir. Á myndinni má sjá kórfélaga áður en snjóa leysti, nú halda þau tórileika á lengsta degi ársins.
Hvað á að gera um helgina?
Málhildur Sigurbjörnsdóttir
fiskverkakona
Ætli ég verði ekki aðallega í fótbolta við tiltektirnar á morgun. Mér
verður lítið úr verki þegar komið er heim á kvöldin þannig að helgarnar
notar maður til að þvo, skúra og bóna. Á sunnudaginn býst ég við að
laga til í garðinum - mér sýnist hann þurfa sitt. Annars er óráðið hvað
ég geri um helgina. Ætli ég reyni ekki að slappa lítillega af, já og merkja
við á dagatalinu því nú styttist óðum í það að ég fari í sumarfrí.
TÓNLIST
Dómkórinn í Reykjavík heldur
Jónsmessutónleika í Dómkirkjunni á
lau kl. 22. Á efnisskrá eru bæði kirkju-
leg og veraldleg kórlög. Stjórnandi er
Marteinn H. Friðriksson. Aðg. er
ókeypis.
Stórsveit og kórfrá Húsavík í Nor-
rænahúsinu lau kl. 16.
Jónsmessuhátíð Norræna húsinu,
kl.20:30-02:30. Maistöng og
Jónsmessubálköstur. Da-sævísna-
söngkonan Hanne Juul, norski kórinn
Raumklang, kvintett Görans Palm,
færeyskir þjóðdansar o.fl.
ÍÞRÓTTIR
Laugardagslaugin, sundmót Sund-
félagsins Ægis og Iþróttahátíðar (Sl
22.-24. júní. Af þeirri ástæðu er laugin
lokuð almenningi í dag kl. 7-13:30,
lau frá kl.11:30, og á su lokað allan
daginn.
HITT OG ÞETTA
Kramhúsið, Víkkum sjóndeildar-
hringinn, leiksmiðjafrönsku hreyfi-
listarkonunnar Christine Quoiraud
um helgina. Allir velkomnir að taka
þátt. Uppl. í símum: 15103 og 17860.
Hana-nú í Kópavogi, samvera og
súrefni á morgun lau, lagt af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 10. Komum sam-
an upp úr hálftíu og drekkum molak-
affi. Púttvöllurinn á Rútstúni öllum op-
inn.
Félag eldri borgara, Göngu-Hrólfar
hittastámorgun lau kl. 10aðNóatúni
17. Opið hús Goðheimum á su frá kl.
14. Dansleikur hefst kl. 20. Dagsferð
á Nesjavelli 26. júní nk. uppl. og
skráning á skrifstofunni.
Útivist, Jónsmessunæturganga lau,
m/Akraborginni upp á Akranes,
gengið út með strönd og fylgst m /
sólarlagi. BrottförfráGrófarbryggju
kl. 18:30. Þórsmerkurganga, 11. ferð,
á su Hpltahreppur hinn forni. Brottför
frá BSl-bensínsölu kl. 9:30, stansað
v/Árbæjarsafn.
Ferðafélag íslands, Jónsmessu-
helgi í Þórsmörk 22-24. júní. Fararstj.
Kristján M.Baldursson. Aðrarferðir
um helgina: A. Eiríksjökull, fararstj.
Jón Viðar Sigurðsson.
B.Hellakönnunarferð-Borgarfjörðurí
fylgdjarðfr. Björns Hróarssonarog
Sigurðar S. Jónssonar. Uppl. og far-
miðar á skrifstofu Öldugötu 3.
Yoga og hugleiðslunámskeið 22-24.
júní. Ókeypis námsk. á vegum Sri
Chinmoy setursins. Haldið í Árna-
garði Hl og hefst í kvöld kl. 20. Uppl. í
síma: 25676.
Lífsins
safi
Sigurjón Rist, einn brautryðj-
andi vatnamælinga og vatnafræði
á íslandi, sagði í utvarpsviðtali að
vatnið væri dýrmætasta auðlind
okkar. Þetta hafa aðrir sagt og
má raunar yfirfæra á allan heim-
inn því án vatns þrífst ekki líf.
Maður getur þrifist án tilbúinnar
orku sem fæst við t.d. olíu-
brennslu eða kjarnaklofnun ef
hann fær sitt vatn. Reyndar báru
orð Sigurjóns tvöfalda merkingu
því á Islandi er vatnið auðvitað
undirstaða lífs (eins og annars
staðar) en líka uppspretta afla úr
sjó og uppspretta innlendrar
orku; jarðhitaorku og vatnsorku.
Vatnssameindin er einföld; tvö
vetnisatóm eru tengd einu súr-
efnisatómi og verður úr því tví-
póluð sameind sem kallað er og
efni sem er vökvi við stóran hluta
af því hitastigsbili sem á jörðinni
er. Næsta víst er að vatnið á jörð-
inni sem að mestu magni (97%)
er bundið í höfunum sem saltur
vökvi, varð ekki til um leið og
upprunalegi lofthjúpur jarðar
fyrir nokkrum milljörðum ára.
Líklega hefur vatnið komið til
eftir að jörð kólnaði og yfirborð-
ið varð fast berg; sumt hefur
þéttst úr lofthjúpnum við kólnun
hans en annað er af innrænum
toga. Sá hluti hefur skilað sér til
yfirborðsins við eldgos en um 2/3
hlutar gosgufa í eldgosum er
venjulegur vatnseimur. Og end-
urnýjun vatns eða viðbót öllu
heldur er afar lítil þannig að í að-
alatriðum má líta á vatnsforða
jarðar sem stöðuga stærð er fer
eftir hringrás um lofthjúpinn, um
jarðlög, um jökla og ís, um höfin
og um stöðuvötn og vatnsföll.
Margs konar ferli á þeirri leið
hreinsa vatnið eða breyta efna-
innihaldi, einkum þau er verða
meðan vatn er neðanjarðar - og
nú orðið: Meðan vatn er sem
vatnsgufa í andrúmsloftinu sem
iðnaður, olíubrennsla o.fl.
menga ótæpilega.
Mengun grunnvatns og yfir-
borðsvatns er í heild lítil sem eng-
in á íslandi nema í nánd við þétt-
býli. Þar er vitað með vissu um
mengaðar ár eða mengað
grunnvatn í nokkrum tilvikum en
líklega eru mun fleiri óþekkt.
UR RIKI ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON SKRIFAR
NÁTTÚRUNNAR 15
Hins vegar er eðlilegt efnainni-
hald árvatns á íslandi nokkuð
sérstætt og er þar greinilegur
munur á efnafræðilegum eigin-
leikum og sýrustigi lindáa annars
vegar og jökul- og dragáa hins
vegar. Ennfremur sýnir sig að
efnaveðrun kalds vatns á íslandi
(vatn skolar efnum úr jarðlögum
sem það rennur um) er um það bil
þrisvar sinnum hraðari hér en á
meginlöndunum þrátt fyrir að
lofthiti hér sé mun lægri. Astæður
eru margar en ein þungvægasta
sú að hlutfallslega mikið er af
gleri (ókristallaður hluti bergs) í
íslensku basalti en basalt telst um
90% af íslensku eldbrunnu grjóti.
íslenska vatnið er einstök auð-
lind eins og áður hefur komið
fram. Nægir að minna á að það er
hagnýtt til neyslu, til fiskiðnaðar
og margs konar annarrar fram-
leiðslu, til fiskeldis og stangveiði
og svo auðvitað orkuframleiðslu.
Aðeins er búð að hagnýta tæp-
lega 1/8 þess vatnsafls sem hag-
kvæmast er að beisla og enn langt
í land með hagnýtingu auðvirkj-
anlegrar jarðhitaorku. Og í raun
eru þau mál öll hápólitísk því
ljóst er að íslenska efnahagskerf-
ið nær ekki að nota alla þá orku
sem unnt er að framleiða. Út-
flutningur orku með öllum sínum
tæknilegu vandamálum eða stó-
riðja með þátttöku erlendra fyrir-
tækja eru tveir kostir sem íslensk
alþýða á að taka afstöðu til. Og
þar lúrir Efnahagsbandalag Evr-
ópu handan við horn með
auðhringi sem auðveldlega ná
þeirri stærð að hálf eða heil fjár-
lög íslenska ríkisins fara um sjóði
þeirra á hverju ári. íslenskt vatn
er inni í baráttu þjóðarinnar fyrir
sjálfræði engu síður en fiskur,
menning og ólýðræðislegar að-
ferðir við málatilbúnað þann sem
varðar EFTA og EBE.
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 22. Júní 1990