Þjóðviljinn - 22.06.1990, Side 28
Villtur og óútreiknanlegur
Verður ástarbríminn skoska villikettinum að fjörtjóni?
Víðast hvar í Evrópu eiga villtir
stofnar landspendvra mjög í vök
að verjast fyrir ágangi mann-
skepnunnar. Þeirra á meðal er
evrópski villikötturinn sem nú er
nær aldauða á meginlandinu.
Náfrænda hans, skoska villikett-
inum, hefur farnast öllu betur, en
nú er svo komið að ýmsar blikur
eru á lofti um að sömu örlög bíði
þess merka kattarstofns.
Hvergi í Evrópu er stofnstærð
villta kattarins stærri en í Skot-
landi. Þrátt fyrir að mann-
skepnan hafi löngum haft illan
bifur á kisa og reynt að hafa
hendur í hári hans, hefur honum
tekist að þreyja þorrann og kom-
ast af í óvinveittum heimi. í dag
er köttinn aðeins að finna í af-
skekktum héruðum Skotlands.
Vitað er fyrir víst að kötturinn
lifði góðu lífi um mest allt Bret-
land fram á 16. öld og ber hann
m.a. á góma í nokkrum leikrita
Shakespeares s.s. í Kaupmannin-
um í Feneyjum og Makbeð.
Megin uppistaðan í fæðuvali
kattarins eru mýs, læmingjar,
moldvörpur, kanínur og smáfugl-
ar og jafnvel akurhænur. Þá er
nokkuð um það að kötturinn
leggi leið sína inn á veiðilendur
sportveiðimanna og geri þar usla.
Þetta háttalag kattarins hefur á
stundum leitt til þess að fugla-
veiðimenn hafa skorið upp herör
gegn kisa þar sem hann spillti
fyrir þeim veiði.
Mesta hættan sem stafar að
kattarstofninum eru þó ekki
skotglaðir veiðimenn heldur
ósköp meinleysislegir heimilis-
kettir. í nýlegri skýrslu Náttúru-
verndarráðsins breska um ástand
og ásigkomulag skoska villikatt-
arstofnsins er varað við of nánu
. samneyti heimiliskatta og villi-
kattarins. Settlegar heimilislæður
og pattaralegir fresskettir eiga
nefnilega til að fyllast ástarbríma
og falla fyrir villtum frændsyst-
kinum sínum. Þótt villti köttu-
rinn sé ekki enn í bráðri hættu
vegna kynblöndunar, er samt
sem áður auðsætt að hverju stefn-
ir samfara því að áður lítt byggð
svæði byggjast og heimilisköttum
fjölgar í kjölfarið.
Skoski villikötturinn er stór og
stæðilegur á velli. Hann er um
þriðjungi stærri heldur en
heimilisköttur. Fullvaxinn vegur
villtur fressköttur um 5,25 kíló og
læða um 4,2 kíló. Ólíkt heimilis-
kettinum er fjölgun þess villta
árstíðabundin. Hver læða gýtur
hverju sinni að jafnaði fimm kett-
lingum.
Þýðingarlaust er að reyna að
temjakisa. Bæði eraðhann hefur
ofsafengið skap og á bágt með að
semja sig að húsreglum. Þótt
villtir kettlingar séu teknir ný-
gotnir inn á heimili, er eðli þeirra
samt við sig. Um leið og þeir ná
kynþroska halda þeim engin
bönd og þeirra sanna villta og
óviðráðanlega eðli kemur í ljós.
Grenn Magazine/-rk
Villtur, stór og stæðilegur. Skoski villikötturinn er eina villta landspen-
dýrið á Bretlandseyjum.
Hinir fyrstu verða
síðastir
Hinir síðustu verða fyrstir og
hinir fyrstu síðastir segir í
Biblíunni og sannast það ótví-
rætt í slagnum um bestu mið-
ana á tónleika Bobs Dylans.
Hið svokallaða gráa svæði í
Höllinni á tónleikum Dylans
hefur valdið öfund þeirra sem
aðeins fengu miða á bláa eða
gula svæðið. Þetta fólk getur
nú tekið gleði sína á ný því að
sýnt þykir að hæð nýja sviðs-
ins sem í smíðum er fyrir tón-
leika goðsins verði svo hátt að
boðsgestir og aðrir gráir verði
að reigja sig og teygja til að
sjá kappann, sem í ofanálag
mun standa fremur aftarlega
á sviðinu. Það er því hætt við
að fína fólkið verði með
hálsríg að tónleikunum lokn-
um. ■
Krókódíla-Gutti
Krókódílar hafa verið í sviðs-
Ijósinu að undanförnu vegna
meints ólöglegs innfutnings á
einum slíkum til Neskaup-
staðar. Sá slapp út í guðs
græna náttúruna og er álitið
að hann sé nú kominn yfir
móðuna miklu. Fyrr í vor voru
krókódílar líka í sviðsljósinu,
en það var þegar Guttormur
Einarsson aðstoðarmaður
umhverfisráðherra heimsótti
Mývetninga til að ræða um at-
vinnumál. Meðal frumlegra
hugmynda sem Guttormur
kynnti á fundinum var annar-
svegar hugmynd um krókódí-
laeldi í Mývatnssveit og hins-
vegar hugmynd um hættuf-
erðir á öræfi. Eftir það gengur
Guttormur undir nafninu
Krókódíla-Dundee, eða
Krókódíla-Gutti, en Dundee
þessi er áströlsk kvikmyndap-
ersóna sem kemur vel-
greiddur úr svaðilförum sín-
um. ■
Hagvirki í
byggingarnefnd
Við kjör í byggingarnefnd á
fundi bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar í vikunni kom í Ijós að
annar fulltrúi Sjálfstæðis-
manna var Jóhann Berg-
þórsson forstjóri eins
stærsta verktakafyrirtækis
landsins, Hagvirkis. Telja
flestir að seta hans í nefndinni
skapi óhjákvæmilega hags-
munaárekstra þegar forstjór-
inn leitartil þyggingarnefndar-
mannsins með ýmis mál. ■
Borgaðu rafmagnsreikninginn
áður en þú ferð í fríið!
Þá verður heimkoman ánægjulegri
Það er ómetanlegt að komast í
gott sumarfrí en það er líka notalegt að
koma heim aftur — ef allt er í lagi. Áður
en við förum göngum við tryggilega frá
öllu. Við greiðum rafmagnsreikninginn
svo að heimilistækin geti sinnt skyldum
sínum í fjarveru okkar og þjónað okkur
strax við heimkomuna.
ódýra orku, ef þeir aðeins greiða fyrir
hana á eðlilegum tíma. Verði misbrestur
þar á bætast við dráttarvextir — og þá er
líka stutt í hvimleiða lokun.
Rafmagnsreikningar eru sendir út á
tveggja mánaða fresti. Gjalddagi þeirra er 5. dagur
næsta mánaðar eftir útgáfudag (15. dagur næsta
mánaðar hjá ellilífeyrisþegum). Ef reikningur hefur ekki
verið greiddur á gjalddaga reiknast á hann dagvextir.
Dreifikerfi RaiBmagnsveitu Reykja-
víkur er eitthvert hið öruggasta í heimi.
Viðskiptavinirnir geta treyst á góða og
Láttu rafmagnsreikninginn hafa
forgang!
RAFMAGNSVEITA
REYKiAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 SÍMI6862 22
ARGUS/SlA