Þjóðviljinn - 06.07.1990, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 06.07.1990, Blaðsíða 17
Upprætum allan klíkuhátt úr félaginu! Grein eftir Magnús Kjartansson fimmtán ára gamlan Hér fer á eftir greinarstúfur sem Magnús Kjartansson, ritstjóri Þjóð- viljans, alþingismaður, ráðherra og rithöfundur, skrifaði þegar hann var nýorðinn fimmtán ára. Magnús ólst upp í Hafnarfirði og tók þátt í að efla íþróttafélagið Hauka þar í bæ og ber hag þess mjög fyrir brjósti eins og skýrt kemur fram í greininni. Greinin birtist í handskrifuðu blaði, íþróttapilturinn, sem dagsett er 20sta mars árið 1934, og er þetta fyrsti árgangur blaðsins. Greinin heitir „FramtíO Hauka“ og birtist á forsíðu blaðs- ins. Við hlið hennar er reyndar „Athugasemd" sem Magnús hef- ur einnig skrifað og fjallar um nauðsyn þess að fá áhrifamenn úr bænum til að skrifa í félagsblað Hauka því það „vekti miklu meiri áhuga almennings á íþróttum“ en ef Haukalimir eru einir um skrift- ir. En greinin um Framtíð Hauka er á þessa leið: Gegn úlfúö „Ég efast ekki um það, að allir þeir sem í „Haukum“ eru óska þess af heilum hug að framtíð fé- lagsins megi verða sem bless- unarríkust og best. Og ég veit að allir vilja gera sitt til að svo verði. En nú skulum við athuga hvernig það tekst á sumum sviðum. Tökum til dæmis fundina. Það kemur ekki sá fundur fyrir, að einhver illindi verði ekki með fundarmönnum, og ekki nóg með það heldur eru persónulegar skammir og svívirðingar einnig á næstum því hverjum fundi. En af hverju kemur þetta? Það kemur af því að þeir sem verða í minni hluta á fundinum vilja ekki beygja sig undir vald meirihlut- ans. Það er alveg sjálfsagt að tala um þau mál sem liggja fyrir fund- inum, því til þess eru fundimir, en að fara út í persónulegar skammir á fundum og vilja ráða yfir meirihlutanum er alveg ófært. Við skulum nú athuga hvað af þessu leiðir. Af þessu leiðir það, að í félaginu myndast sérstakar „klíkur“. Og af því leiðir svo aftur það, að fundirnir snúast meir um persónur en mál. Afleiðing þessa verður svo sú, að félagið skiptist í tvo eða fleiri andstæða hluta og það getur aftur orsakað hreinan klofning. Og hvar er starf félagsins þá? Þess vegna, félagar, upprætum Magnús Kjartansson: Og hvar er starf félagsins þá? allan „klíkuhátt“ og persónyleg- heit úr félaginu og störfum saman að viðreisn íþróttamálanna hér í þessum bæ! Magnús Kjartansson Sígild grein Þegar að er gáð, getum við hæglega komist að þeirri niður- stöðu, að þetta greinarkorn fimmtán ára íþróttavinar í Hafn- arfirði og verðandi höfundar merkra ritsmíða um stjórnmál og fleira, sé um margt sígild. Eða kannast menn ekki hver um ann- an þv'eran við þá stöðu sem hann J þ I' o i\ a- p t 13 U>*. ’t A öi fZ- . %AaAa JÚ4,i fcWýCUAA 0/ cuf Jt ■ 4U 'aufvMjíiWMA, ■ <**' , / (| MMÁ Jf ’a Axtí' Ja 'mtiU : 'cJuOf, oOwMtWM, 'o Ijfal aj lÁw. m ' ls s/Ja/Á JlK. ■ýkfí a/J JúLn 24^1 < H (á í-ww •> usua f as/z aj afiriAn xaa oJia ImAacía s/um txJh fnAAju — ■ MaI Akh á 'AkpÁjjK i' ýp' /u&rcJc ' ícdcjo ‘jóikb 'q J /w, sVoVcuia, Ao'a ipnöVfvAAA. , c« .ub'M/rOM, aVUude kwiAiuc J>cuT jn SuXUa&VV aj) SJam ý Áuaaawíf UuuJuaáM/A Voíj TjAfíAAAM fúf cVeUAiu5 Jt/AAALMa 0<\ Mtfi Ml/uAAA Bajr ktAMMn /vífí< 'G ÁxmJaa. + ^jT. /ím/axo i/iiítJU' Vuajidj ,/VUU 4uAAjVo&\AAo/ew,IW oy JÁVÁ ’ 'VvuS Oj<xJ) kWwi jUVa jícn 'jé'wÁfofAVi vWa/i^wuvS OM Zist/OÍÁföJyai XÍaMÁÁC o (\a.cIA>4oMM fpÁV h/Kn WastJU . x&Ti - kUAAAi&i ccj Stvn AjXJljf ' /VU/iuuu-Ji ^WflA 5 sflAAAjlUA.'Uu^- I M dJtA í -MuMt ab Sa/w Jti w, úa/KOa þn«Avrwi VkAuf 'IV) JIaa Siro Jbilj)l lMú oa> <Átno. /uí> • AaaaÁAa ._ 'MÁihas/ <* f 0 M<Osl » /Pw CUÍ SV t Forsíða Iþróttapiltsins: Það er ófært að vilja ráða yfir meirihlutanum. lýsir í ungu íþróttafélagi - hvort sem menn nú sitja í átthagafélagi, menningarfélagi, verklýðsfélagi, þjóðkirkjunni - eða í ónefndum stjórnmálaflokki sem þið kannist við? Lúðvík Geirsson, formaður Blaðamannafélags íslands, vinn- ur nú að því að skrifa sögu Hauka og hafi hann heila þökk fyrir að vísa okkur á þennan gamla texta. áb Föstudagur 6. júlí 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 17 til Nú fljúgum við þrisvar I viku Kaupmannahafnar Laugardaga Sunnudaga Þriðjudaga og eftir 7. ágúst Laugardaga Þriðjudaga Allar nánari upplýsingar veita skrifstofa SAS og ferðaskrifstofurnar. fí/iJSAS Laugavegi 3, sími 62 22 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.