Þjóðviljinn - 10.08.1990, Page 14
Knattspvma
1.
deild
í
gang
aftur
Knattspyrnumenn hafa vonandi
hvílt sig betur en ýmsir landar
okkar um verslunarmannahelg-
ina því á morgun hefst keppni
aftur í 1. deild. FH fær þá Vest-
mannaeyinga í heimsókn \
Kaplakrikann kl. 14:00. Á
sunnudaginn kl. 16:00 leika KR
og Þór og um kvöldið kl,19:00
leika svo Valur og Stjarnan að
Hlíðarenda, Fram og KA á Ak-
ureyri og á Skaganum mætast
ÍA og Víkingur.
Að loknum 12 umferðum eru
Valsmenn efstir með 26 stig. Hið
unga lið þeirra hefur komið á óvart
með frisklegum leik og aldrei er
að vita nema liðið haldi út og vinni
mótið. Nýliðar Stjömunnar sem
mæta þeim á sunnudaginn hafa
verið nokkuð brokkgengir, unnið
efstu liðin en tapað fyrir þeim
neðri. Valsmenn verða að teljast
nokkuð sigurstranglegir í þessari
viðureign.
KR-ingar em í öðm sæti þrem-
ur stigum á eftir Valsmönnum. I
liðinu em margir þrautreyndir
leikmenn ásamt einhveijum efni-
legustu leikmönnum landsins og
spá margir Vesturbæjarliðinu Is-
landsmeistaratitlinum í fyrsta
skipti í yfir 20 ár. Botnlið Þórs
verður KR sennilega ekki erfíð
hindmn, Þórsarar geta varist vel,
en sóknarleikurinn er máttlaus
þrátt fyrir góða spretti Bjama
Sveinbjömssonar sem er loks heill
eflir margra ára meiðsli.
Framarar em í þriðja sæti með
22 stig. Bikarmeistaramir þóttu
sigurstranglegastir fyrir mótið og
byijuðu af fítonskrafti. Af óskilj-
anlegum ástæðum hmndi síðan
leikur liðsins, en ef þeir ná að stilla
vélina í síðustu leikjunum stenst
sennilega ekkert lið þeim snúning.
íslandsmeistarar KA munu þó
sennilega hugsa Framömm þegj-
andi þörfína eftir háðulegt 0-4 tap
í fyrri umferðinni. KA menn hafa
ekki verið svipur hjá sjón í sumar,
en á góðum degi ætti liðið að geta
sigrað hvaða lið sem er. -Meira
um KA annars staðar á siðunni.
Nýliðar Vestmannaeyinga
hafa komið mest á óvart í deildinni
í sumar og em með jafn mörg stig
og Fram, en lakara markahlutfall.
FH-ingar hafa verið heldur daprir,
en ómögulegt er að spá um úrslit.
Loks er það leikur Akumes-
inga og Víkinga og verða Víkingar
að teljast sigurstranglegri. Þeir
hafa leikið mjög vel i sumar og
með smá heppni gætu þeir verið
við toppinn, en liðið hefúr gert sjö
jafntefli. Skagamenn hafa verið
arfalélegir, og mikið má gerast ef
liðið á ekki að fara niður í aðra
deild.
el
ÍÞRÓTTIR
Gengi fymim félaganna á Skaganum, þeirra Guðjóns Þórðarsonar og Áma Sveinssonar, hefur verið mismunandi í
sumar. Ámi og nýliðar Stjömunnar hafa staðið sig vonum framar meðan (slandsmeistamm KA undir stjóm Guðjóns
hefur gengið herfilega.
Knattspvma
KA menn valda
vonbrigöum
Guðjón Þórðarson þjálfari: Vorum afskrifaðir allt of snemma
Gengi Islandsmeistara KA í
sumar hefur valdið miklum
vonbrigðum. Liðið er í þriðja
neðsta sæti deildarinnar með Í3
stig eftir 12 umferðir. Liðið hef-
ur sigrað í þremur leikjum, gert
eitt jafntefli, en tapað sjö leikj-
um. Til samanburðar tapaði
liðið einungis tveimur leikjum
allt kcppnistímabilið í fyrra.
KA missti þrjá sterka leik-
menn fyrir keppnistímabilið. Þor-
valdur Örlygsson fór til Notting-
ham Forest, Anthony Karl
Gregory hvarf á heimaslóðimar í
Val og Jón Kristjánsson hætti
knattspymuiðkun. Þrír sterkir
kappar komu þó í staðinn, Kjartan
Einarsson úr Keflavík, Heimir
Guðjónsson úr KR og Hafsteinn
Jakobsson frá Leiftri Ólafsfirði.
Hvort þessar breytingar hafa
dregið vígtennumar úr liðinu er
ekki gott að segja, en varasamt er
að skella skuldinni á nýliðana því
flestir aðrir máttarstólpar liðsins
hafa leikið langt undir getu. Liðið
hefur verið þunglamalegt og að-
dáendur orðnir þungir á brún.
Þrátt fyrir þetta segir Guðjón
Þórðarson þjálfari KA andann í
liðinu hafa verið mjög góðan. -
Við emm búnir að ganga í gegn
um mjög erfitt tímabil en mórall-
inn í liðinu hefur samt aldrei ver-
ið neitt tæpur þó á móti hafi blás-
ið, segir Guðjón.
Liðið er kannski ekki í veru-
Iegri fallhættu, en hafið þið að
einhverju að stefna?
- Við forum auðvitað í hvem
leik til þess að sigra og ég hef
enga trú á öðm en að við vinnum
eitthvað af þessum leikjum sem
eftir em. Við tökum á móti Fram á
sunnudaginn og ég sé ekki af
hveiju við ættum ekki að geta
unnið þann leik. Það fer að vísu
mikið eftir því hvað ég hef marga
menn heila. Margir lykilmenn
hafa verið meiddir í sumar og
aldrei verið hægt að stilla upp
sterkasta liði. Ormarr Örlygsson
verður vonandi heill, en ekki er
vitað með Erling fyrirliða Krist-
jánsson og Bjama Jónsson. Eg
held þó að KA þurfi ekki að hafa
vemlegar áhyggjur af afgangnum
af mótinu, enn em 18 stig í skógi
og margt getur gerst í deildinni. A
þessum tíma í fyrra gmnaði til
dæmis engan að við yrðum meist-
arar, það var ekki fyrr en undir
lok ágúst að menn vom orðnir
hræddir um það! Eg á alveg eftir
að sjá Val eða KR hlaupa i burtu
með titilinn þetta árið.
En hvað með titilvon KA sem
svo illa hefur brugðist?
- Enginn bjóst við því að KA
tækist að verja titilinn og kannski
hafði það sitt að segja fyrir liðið
að við vomm afskrifaðir allt of
snemma. Okkur gekk mjög illa í
upphafi móts eins og öðmm norð-
anliðum, fyrstu leikimir em alltaf
erfiðir fyrir norðanliðin því undir-
búningstímabilið er mun erfiðara
en fyrir sunnan. Veðurfar og vall-
arskilyrði hamla undirbúningi
vemlega og norðanliðin standa
öll mjög illa. Þau byijuðu öll af-
leitlega og hefúr ekki tekist að
rífa sig upp. Forsvarsmenn héma
fyrir norðan verða að sjá til þess
að aðstaðan batni verulega ef ár-
angur á að nást.
Hvað með liðin fyrir neðan
KA, nágrannana i Þór og gamla
félaga þina á Akranesi?
- Það má mikið gerast ef þessi
lið eiga að halda sér í deildinni,
leikur þeirra verður að batna til
muna. Því verður auðvitað tekið
þunglega á Skaganum ef liðið
fellur í aðra deild, en menn verða
auðvitað að skynja nógu snemma
ef eitthvað er að. En það er stund-
um eins og menn skilji ekki fyrr
en skellur í tönnum.
A KA eftir að ná sér á strik og
verða í toppbaráttunni á nœsta
tímabili?
- Já, ég get ekki séð annað.
Þetta er ungt lið og á framtíðina
fyrir sér. Erlingur og Ormarr em
langelstu menn liðsins og þeir em
28 ára. Meðalaldurinn er 23-24 ár
og efnilegir strákar að koma upp.
Annars er fyrst að klára þetta
tímabil áður en við forum að velta
því næsta fyrir okkur.
el
Handbolti
um
í 1. deild
Sérstök aukakeppni um tvö sæti í 1, deild karla
I handknattlcik veröur háð 10.-19. ágúst.
Fjölga á liðum í 1. deild úr átta i tíu og heyja fjög-
ur lið keppni um sætin tvö: Grótta og HK sem
ientu í tveimur neðstu sætunum í 1. deild síðasta
vetur og Haukar og Þór Akureyri sem lentu í
þriðja og ijórða sæti í annarri deild.
Keppnin hefst í kvöld með leik Hauka og Þórs kl.
20:00 í Hafnarfirði. Á morgun kl. 14:00 leika Grótta
og Þór á Seltjamamesi og Haukar og HK í Hafnar-
firði.
Ljóst er að þetta verður hðricukeppni því öll liðin
hafa fengið góðan liðsstyrk. Sovéskur þjálfari,
Veleric Mutagarov, hefur tekið við þjálfún Gróttu og
með honum kemur örvhent skytta, Stepanov Vla-
dimir Alexvech.
HK hafa endurhciml Magnús Inga Stefánsson frá
Noregi og Erlendur Davíðsson hefur skipt f HK úr
Vfkingi. Tékki sér um þjálfun liðsins og heitir sá
Rudolv Havlik og mun sonur hans Robert leika með
liðinu.
Daninn Jan Larsen hefur tekið við þjálfún Þórs.
Haukar hafa þó sennilega fengið öflugasta liðs-
styricinn þvf fjðlmargir kunnir handknattleiksmenn
hafa gengið í raðir þeírra. Meðal þeirra má nefna þá
Steinar Birgisson og Snorra Leifsson, en þeír félagar
léku síðast með norska liðinu Runar. Pétur Ámason
sem áður lék með Breiðabliki er kominn til Hauka og
einnig er Sigurjón Siguijónsson kominn aftur heim.
Magnús Ámason og Einar Hjaltason komu til félags-
ins frá FH. Síðast en ekki síst ber að geta hins heims-
þekkta leikmanns Peter Baumruk sem lcikið hefúr
yfir 80 landsleiki með tékkneska landsliðinu. Jafn
sterkur erlendur lcikmaöur og Baumruk hefur senni-
lega aldrei leikið á íslandi, nema þá náltúrlega And-
ers Dahl Nielsen núverandi landsliðsþjálfari Dana. el
14 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 10. ágúst 1990