Þjóðviljinn - 17.08.1990, Síða 5
Kópasel
Leikskólinn einkavæddur
Waldorf-hópurinn tekur við rekstri 1. desember. Forstöðumaður Kópasels: Eins og alltséþegar ákveðið.
Foreldrar mjög mótfallnir breytingum
ann 1. desember nk. mun
Kópavogsbær hætta rekstri
leikskólans að Kópaseli í Lækjar-
botnum og svokallaður Waldorf-
hópur mun að ölium líkindum
taka við. Núverandi starfsfólk
verður flutt á aðra leikskóia og
þeim foreidrum sem ekki vilja
hafa börn sín áfram í Kópaseli er
boðið rými fyrir þau í nýjum leik-
skóla sem opnar 1. des við Suður-
hlíð í Kópavogi.
Starfsfólk og foreldrar hafa
fengið vitneskju um þessa fyrir-
ætlan frá félagsmálaráði en engar
ákvarðanir hafa verið teknar,
hvorki í bæjarráði né bæjar-
stjórn.
Inga Þyrí Kjartansdóttir for-
maður félagsmálaráðs kvaðst í
samtali við Þjóðviljann sem
minnst vilja láta hafa eftir sér um
þetta mál, þar sem enn væri eftir
að afla upplýsinga um afstöðu
foreldra. Hún sagði þó að ekki
væri verjandi að reka Kópasel
áfram vegna þess að bærinn hefði
þegar fullnægt þörf fyrir vistun
þess aldurshóps sem leikskólinn
getur tekið við, þ.e. 4-5 ára
barna, og illa gengi að fylla þau
42 pláss sem á leikskólanum eru.
Einnig væri hvert pláss f Kópaseli
helmingi dýrara en á öðrum leik-
skólum.
Guðjón Árnason, einn félaga í
Waldorf-hópnum, sagði að hóp-
urinn hefði í desember í fyrra
óskað eftir við þáverandi meiri-
hluta að fá aðstöðu fyrir rekstur í
anda svokallaðra Waldorf-
uppeldisfræða en félagar í þess-
um hópi eru allir menntaðir er-
lendis í þessum fræðum. Erind-
inu hefði verið vel tekið en við-
ræðum frestað vegna óska frá
fóstrum í Kópaseli og ekki hefði
komist skriður á málið fyrr en
eftir kosningar þegar nýr meiri-
hluti hefði kynnt sér málið. Hann
kvaðst ekki kvíða því að erfitt
yrði fjárhagslega að reka leik-
skólann, enda þótt bæjarfélagið
treysti sér ekki til þess. Waldorf-
uppeldisfræði byggja á kenning-
um Steiner-skóla sem starfræktir
eru víða í Evrópu og m.a. er lögð
áhersla á tengsl barna við náttúr-
una.
Oddný Jónsdóttir forstöðu-
maður Kópasels sagði að starfs-
fólk væri mjög ósátt við hvernig
staðið hefði verið að þessu máli
og svo virtist sem búið væri að
ákveða allt fyrirfram.
„Við fengum aldrei að láta á
það reyna hvort okkur tækist að
fylla þessi 42 pláss,“ sagði hún.
„Lokað var fyrir innritanir á
meðan viðræður við Waldorf-
hópinn stóðu yfir og nú eru marg-
ir foreldrar búnir að vista börnin
annars staðar. Það hafa komið
fram tillögur frá minnihlutanum
og okkur um að fylla þessi pláss
með ýmsum leiðum en það virðist
ekki vera áhugi á því. Waldorf-
hópurinn ætlar að hafa hér 30
rými þannig að það á að skera
niður þjónustu.
Valþór Hlöðversson bæjar-
ráðsmaður minnihlutans gerði
fyrirspurn um málið í bæjarráði.
Hann sagðist hafa bent á að
auðveldlega væri hægt að fylla
leikskólann með því að bjóða
bæjarstarfsmönnum í Kópavogi
og öðrum bæjarfélögum að vista
börn sín í Kópaseli sem eins kon-
ar kjarabót og einnig með því að
foreldrum 4-5 ára barna á öðrum
leikskólum yrði bent á Kópasel,
þannig að á þeim skólum væri
hægt að stækka deildir yngri
barna. „Það eru langir biðlistar
yngri barna en ekkert af þessu
hefur fengist rætt,“ sagði Valþór.
„Það er ljóst að ef bæjarfélagið
getur ekki rekið Kópasel þá getur
Waldorf-hópurinn það enn síður.
Það sem Sjálfstæðismenn ætla sér
er að loka heimilinu."
Starfsfólk og foreldrar fund-
uðu saman í fyrradag og kom þar
fram mikil óánægja meðal for-
eldra vegna skorts á upplýsing-
um, m.a. um Waldorf-
uppeldisstefnuna. Á fundinum
var skipaður 4ra manna starfs-
hópur sem hefur óskað eftir við-
ræðum við bæjarráð sem fyrst.
„Okkur finnst að verið sé að
koma aftan að okkur. Við feng-
um ekkert af þessu að vita fyrr en
um síðustu mánaðamót og okkur
skilst að hluti af fólki úr Waldorf-
hópnum komi jafnvel inn í byrjun
næsta mánaðar," sagði Lára Jóna
Þorsteinsdóttir, eitt foreldranna.
„Mér finnst það ljóst eftir þennan
fund að ekkert foreldra barna
sem nú eru í Kópaseli vilji hafa
þau þar áfram. Bæjaryfirvöld
bjóða okkur að vísu leikskólann
við Suðurhlíðarnar sem opnar
tvær af þremur deildum 1. des-
ember. Fyrri meirihluti ætlaði að
opna allan leikskólann þar 1. okt-
óber. En þeir ábyrgjast ekki
nema 6 tíma vistun. Við höfum
skipulagt okkar vetrarstarf út frá
7 1/2 tíma vistun í Kópaseli.
Það sem á að gera er í raun að
loka Kópaseli eins og Sjálfstæðis-
menn hafa stefnt að í mörg ár.“
-vd.
Fjármálaráðuneytið
skipuð
Fjármálaráðherra hefur
skipað milliþinganefnd um líf-
eyrismál að fengnum tilnefning-
um þingflokka og hagsmuna-
aðila, en stefnt er að því að af-
greiða frumvarp um lífeyrissjóð-
ina á næsta þingi.
í nefndinni sitja 25 fulltrúar, 22
tilnefndir af sjö stjórnmálaflokk-
um og tíu félagasamtökum og
þrír fulltrúar sem fjármálaráð-
herra skipar án tilnefningar. For-
maður nefndarinnar er Már Guð-
mundsson hagfræðingur, efna-
hagsráðgjafi fjármálaráðherra.
Þingflokkarnir sjö eiga einn
fulltrúa hver í nefndinni utan
Sjálfstæðisflokkurinn sem hefur
tvo fulltrúa. ASÍ hefur þrjá full-
trúa, BSRB og VSÍ tvo, en önnur
samtök á vinnumarkaðinum einn
fulltrúa hvert. Þá eiga samtök líf-
eyrissjóða, Landssamband líf-
eyrissjóða og SALsinn fulltrú-
ann hvort.
-Sáf
Verðlagsstofnun
Verðlag að mestu stöðugt
Verð á 56% af vörum óbreytt eða hefur lækkað
Verð á 56% af þeim vörum sem
Verðlagsstofnun kannaði í
júlí var óbrcytt eða hafði lækkað
síðan í aprfl. Að meðaitaii hækk-
Rækjuafli júiímánaðar, sam-
kvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands, er sá næst-
mesti sem fcngist hefur og þorsk-
afli mánaðarins sá þriðji mesti. I
júlí veiddust 6.088 tonn af rækju
en í júlí 1987, sem var metár,
veiddust 6.900. Af þorski
veiddust í júlí 36.033 tonn en í júlí
árið 1985 rúm 43 þúsund tonn.
Heildarafli í júlí í ár var tæpum
10 þúsund tonnum meiri en í júlí í
fyrra. í júlí í ár veiddust 67.847
tonn en í sama mánuði í fyrra
58.528 tonn. Mest er aukningin í
þorskveiðum og rækjuveiðum,
hinsvegar mestur samdráttur í
grálúðuveiðum. í júlí í fyrra
veiddust 2.386 tonn af grálúðu en
í ár einungis 904 tonn.
Þrátt fyrir góða veiði í júlí er
heildaraflinn frá janúar til júlí í ár
mjög svipaður og á sama tíma í
fyrra, eða rúm miljón tonn.
Þorskaflinn er heldur minni á
fyrri hluta ársins í ár en á sama
tíma í fyrra eða tæp 222 þúsund
aði verð á vörum í könnun Verð-
lagsstofnunar um 2,8% á tímabil-
inu aprfl-júlí.
í apríllok gerði Verðlagsstofn-
tonn miðað við rúm 234 þúsund
tonn í fyrra. Rækjuaflinn í ár er
mun meiri en í fyrra, eða 17.475
tonn miðað við 11.894 tonn í
fyrra. Þá er mikill samdráttur í
grálúðunni, tæp 31 þúsund tonn í
ár miðað við 53,4 þúsund tonn í
fyrra. Loðnuaflinn í ár er heldur
meiri en í fyrra, 616,3 þúsund
Utidansleikur í
í kvöid gangast íbúar í Þing-
holtunum, í samvinnu við Ulfar
Eysteinsson veitingamann, fyrir
fjölskyldudansleik á mótum Óð-
insgötu. Baldursgötu og Nönnu-
götu.
I fréttatilkynningu frá nefnd-
inni sem unnið hefur að undir-
búningi hátíðarinnar segir að
Baldurstorg, en svo nefna þeir
staðinn, verði fánum skreytt og
upplýst. Sérstakur öl- og gosbíll
verður á staðnum, og veitinga-
un verðkönnun á 50 algengum
tegundum af mat-, drykkjar-,
snyrti- og hreinlætisvörum í 49
matvöruverslunum á höfuðborg-
tonn miðað við 607,3 þúsund
tonn í fyrra.
Fimm togarar veiddu yfir eitt
þúsund tonn í júlí í ár en það eru
Guðbjörg ísafirði, Júlíus Geir-
mundsson ísafirði, Örvar Skaga-
strönd, Ottó N. Þorláksson
Reykjavík og Akureyrin Akur-
eyri. _sáf
Þingholtunum
húsið Þrír Frakkar býður upp á
léttar veitningar.
Danshljómsveit Birgis Gunn-
laugssonar leikur fyrir dansi frá
kl. 22.00. Þá má einnig búast við
því að íbúar hverfisins leggi sitt af
mörkunum til skemmtunar.
Nefndin sem unnið hefur að
undirbúningi fjölskyldudans-
leiksins á Baldurstorgi vonast til
að þetta verið til að lffga uppá
hverfið og þetta verði árlegur við-
burður.
arsvæðinu. I júlí var aftur farið í
sömu verslanir og kannað verð á
sömu vörutegundum. Kannan-
irnar voru gerðar á tímum hjaðn-
andi verðbólgu og bera niður-
stöðurnar þess vott. Framfærslu-
vísitalan hækkaði um 1,7% á um-
ræddu tímabil en hún mælir
breytingar á verði mun fleiri
vörutegunda en könnun Verð-
lagsstofnunar náði til og auk þess
ýmiskonar þjónustu. Til saman-
burðar hækkaði framfærsluvísi-
talan um 5,1% sömu mánuði í
fyrra. Þessar upplýsingar komu
fram á blaðamannafundi hjá
Verðlagsstofnun í gær þegar
verðkönnun fyrir júlímánuð var
kynnt.
í bréfi frá Verðlagsstofnun
segir að á því rúmlega hálfa ári
sem liðið er frá því að kjarasamn-
ingar aðila vinnumarkaðarins
voru gerðir hafi almennt verðlag
hækkað um3,7% en á sama tíma-
bili í fyrra hækkaði það um
12,5%.
Verðlagsstofnun hefur aukið
aðhald í verðlagsmálum í kjölfar
óska viðskiptaráðherra þar um,
til þess að ná markmiðum ríkis-
stjórnarinnar og samningsaðila
um hjöðnun verðbólgu. Hið
aukna aðhald felur m.a. í sér að
tilkynningaskylda fyrirtækja um
verðbreytingar verður hert og
fastar gengið eftir því að fyrirtæki
styði verðhækkanir með rökum.
Enn fremur verður fylgst vel með
því að reglum um verðmerkingar
á vöru og þjónustu sé fylgt.
el
Fiskifélagið
Góð veiði í júlí
Rœkjuafli júlímánaðar sá nœstmesti og þorskaflinn þriðji mesti
Föstudagur 17. ágúst 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5