Þjóðviljinn - 17.08.1990, Page 17

Þjóðviljinn - 17.08.1990, Page 17
Trú og siðferði Áður var hér í blaðinu getið um fróðlegt rit sem komið er út hjá Guðfræðistofnun og heitir „Trúarlíf íslendinga”. Þar gera þeir Bjöm Bjömsson og Pétur Pétursson grein fyrir merkilegri könnun, sem gerð hefur verið á viðhorfum íslendinga í trúarleg- um efnum. Þar er víða farið: spurt um guð og Krist og eilíft líf, af- stöðu til kirkju og klerka og margt fleira. Bókarhöfundar ganga ffam af hógværð og skynsamlegu viti og gera sér vel grein fyrir því, hve erfitt er að fella inri~í spuminga- skrár og prósentureikning fiest af því sem um er spurt. I þessum pistli hér er ætlunin að fjalla um einn þátt þessa vanda. Hér er átt við það efni sem fjallað er um í þeim kafla ritsins sem ber yfir- skriftina Trú og siðferði, en þar em skoðuð þau tengsl sem rekja megi milli trúarviðhorfa og sið- gæðishugmynda. Er allt afstætt? Þetta er ekki smámál: menn hafa (einnig þeir sem sjálfir em vantrúaðir) yfirleitt gengið út frá því sem vísu, að sú kristna trú sem flestir landsmenn aðhyllast í orði a.m.k. sé virkur leiðarvísir til betra siðgæðis og þá vonandi feg- urra mannlífs en menn gætu við búist í trúiausu landi. Og frá upp- hafi hefur það verið talinn mæli- kvarði á trú, að hún væri ekki einkamál sálarinnar heldur kæmi fram í daglegri breytni: Sýn mér trú þína af verkunum. En það er líka ljóst, að hér er um vettvang að ræða sem erfitt er að kanna. Annarsvegar er það svo, að flestir Islendingar (eins og fram kemur í umræddum kafla) sem aðhyllast kristna trú, þeir telja að trú þeirra gefi sér svör við siðferðilegum vanda i daglegu lífi. Á hinn bóginn em Islending- ar að því er virðist flestum þjóð- um meiri afstæðishyggjumenn í siðferðilegum efnum - mun fieiri en hjá öðmm þjóðum (eða um 85% allra sem spurðir vom) telja að það sé aldrei hægt að skil- greina nákvæmlega hvað er gott og illt, enda sé það háð aðstæðum hverju sinni hvað er gott og illt. Það er eins og fyrri daginn: við lifum í þversögninni miðri. Einkamála- siðferöið En svo er að skoða þetta hér: um hvað er spurt þegar leitað er svara við því, hvað Islendingum finnst gott eða illt, rétt eða rangt, og hvemig það kemur heim og saman við þeirra trú. í stuttu máli sagt: tekin er sú stefna að spyrja um mál sem falla undir svonefnt „einkasiðgæði” frekar en „samfélagssiðgæði”. Höfundar geta þess, að þetta sé gert m.a. vegna þess að kannanir hafi leitt í ljós að „áhrifa trúar á siðgæði gætir mest á þröngu sviði einkasiðgæðis”. Þetta kann að vera rétt. En samt finnst þessum trú þína af verkunum lesara hér það ekki nægileg rétt- læting á því, hve einhliða spum- ingar um trú og siðferði í rauninni em í þeirri könnun sem hér um ræðir. Spurt er fyrst og fremst um þrennt: Um afstöðu manna til fóstureyðinga, framhjáhalds og kynmaka ógifts fólks. Menn geta svo lagt út af svömnum á ýmsan hátt, eins og dagblöð hafa gert og undrast tiltekin hlutfoll í svömm. En í rauninni kemur ekkert óvænt fram í þeim. Eins og vænta mátti hafa þeir trúlausu og trúlitlu meiri hneigð til að líta svo á, að hegðun fólks í fyrrgreindum dæmum sé einkamál, hverjum og einum í sjálfsvald sett. En eftir því sem nær dregur kristnum rétttrúnaði, þeim mun algengari er sú afstaða að fóstureyðingar eigi að banna, framhjáhaíd ekki áð líðast og að kynmök ógiftra eigi helst að helg- ast af alvarlegum áfomium um sambúð. Syndin er kynlíf Að sjálfsögðu er ekkert að því að skoða þessa hluti - þó nú væri. En hér er þó mikill hængur á: hann er blátt áfram sá að það er ekki spurt um önnur mál en þessi þijú. Þetta þýðir að í rauninni halda menn áfram þeirri synd kirkjunn- ar (ekki síst hinnar kaþólsku) sem um aldir haíði þær áherslur allar í sínum boðskap, að það var engu líkara en vettvangur syndarinnar væri kynlífið og vart neitt glæp- samlegra til en frávik frá settum reglum um það. Er óþarft að hafa um það mörg orð hér, hve mikl- um usla kirkjan olli í lifi ótal manna og kvenna sem urðu fyrir þeim ósköpum að bergja af þeim ástarmiði sem batt þau Tristam og Isold saman, þvert ofan í guðs og manna lög. Á hinn bóginn skal heldur ekki efast um, að hér er komið að mörgum þeim málum sem svo þýðingarmikil eru í mannlegu lífi að kirkjan gat ekki vikið sér undan því að leita svara við þeim - svara sem hafa reynd- ar farið skánandi eftir því sem nær dregur okkar tíma. Hver er náungi minn? En þetta hér varðar þó niestu: einhliða áhersla á kynlíf sem vett- vang syndarinnar var fyrst og fremst skaðleg vegna þess, að aðrar spumingar eru þá vanrækt- ar. Spumingar um margt það, sem okkur minnir að sé talið mikil- verðast í lögmálinu. Spumingar um náungann og það sem við gjömm honum, spumingar um góðvild, hjálpsemi, ósérplægni, um þá þjónustu sem ekki spyr um laun á viðskiptagrundvelli. Eg segi fyrir sjálfan mig: ég þykist sem betur fer hafa haft af því nokkum ávæning að trúaðir menn, ekki síst af yngri kynslóð, vildu tengja fyrirbæri eins og synd fyrst og síðast við þessar spumingar. Þá er syndin einkum bundin því viðhorfi til annarra manna, til náungans, að hann sé eitthvað sem ÉG ætla að NOTA mér í hag. Og frelsi undan synd er þá þetta: að stefna frá slíku „not- andasjónarmiði”, frá ánauð þess yfirgangs og valdníðslu og niður- lægingar á öðmm sem það leiðir af sér. Til þess ffelsis sem fólgið er í því að umgangast aðra menn með góðvild og virðingu og „Hann bað” - myndin er eftir lit- háíska listamanninn Krasauskas. leggja þeim lið - helst án þess að þeir þurfi að biðja sérstaklega um aðstoð. Ef þetta er endurskoðunar- stefna þá er sú endurskoðun góð. Ef þetta er að snúa aftur til upp- hafsins - þeim mun betra. Hugsanlegar spumingar En þessi hlið málsins, sem á leiðinlegu félagsffæðimáli sam- tímans er tengd við „samfélags- siðfræði,” hún er ekki á dagskrá í þeirri könnun sem tveir ágætir guðfræðingar leggja út af. Sem fyrr segir: þeir svara því að nokkm leyti sjálfir hvemig á því stendur: það er auðveldara að rekja saman trúarviðhorf og sið- ferðilega dóma um einkalíf. En það gleymist, að sé svo, þá er í þeirri staðreynd fólginn áfellis- dómur yfir því trúarlífi sem menn lifa. Það skal viðurkennt, að það er erfitt að búa til spumingaskrár um náungakærleikann, um þá trú sem birtist í verkum. En þá má reyna það eins og svo margt ann- að. Segjum nú að tekið hefði ver- ið tiltölulega einfalt dæmi. Spurt um það kannski, hvort sá sem svara skal sé tilbúinn að leggja til hliðar svosem fimm krónur af hveijum hundrað sem hann fær í hendur til að ráða bót á hung- ursneyð í heiminum. Við vitum að í slíkri spumingu er mikil ein- foldun falin. Okkur gmnar að margir mundu svara eins og þeir teldu sér skylt að svara - og raun- vemleg hegðun gæti orðið á allt annað veg ef á reyndi. Engu að síður er nú slíkt dæmi tekið - til að minna á það, að til em siðferði- leg vandamál, sem gera vart við sig í daglegu lífi og em raunar miklu stærri en t.d. sú spuming, hvort konu í vandræðum miklum leyfist að láta eyða fóstri. Siðferðiskerfið sem var Áður en lýkur skal vikið að einu enn. I ágætri greinargerð um siðferðismál víkja höfundar að því, að nú ríki fjölhyggja (þar sem hver og einn setur sér sjálfdæmi í siðferðismálum). Þessi fjölhyggja hafi þau afdrifaríkust áhrif að sið- ferðiskerfið riðlast sem „samstæð heild”. Það er ekki að efa að slík þróun á sér stað. Hitt kynni svo að vefjast fýrir mönnum að sýna fram á, að siðferðiskerfi hafi nokkm sinni verið sú „samstæða heiid” sem lýst er eftir. Svo hefur verið í orði og í samstilltri boðun kirkju, sem hafði einkarétt á upp- eldi fólks. En reyndin var vita- skuld önnur: tvöfalt siðgæði er engin ný uppfinning. Það ein- kenndi yfirstéttir um allar aldir, að siðgæði það sem kirkjan boð- aði, það var bara fyrir armingj- ana, alþýðuna, til að hún færi sér ekki að voða og yrði til vandræða. Þeir sem með auð og völd fóm, þeir keyptu sig hinsvegar undan þeim almennu kvöðum með margvíslegum hætti - og fóm létt með það. Ekki síst bjuggu þeir sér til sem þægilegast einkasiðferði í þeim málum sem kirkjan vasaðist mest í: kvennafari og fórstureyð- ingum eða útburði bama. Föstudagur 17. ágúst 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA17

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.