Þjóðviljinn - 17.08.1990, Blaðsíða 19
Fjölmiðlaslagur
og flokkadrættir
ítalska fjölmiðlamógúlnum Silvio Berlusconi hefur verið færð einokun-
arstaða á móti ríkissjónvarpinu í sjónvarpsrekstri á Ítalíu með nýrri
lagasetningu um fjölmiðlun þar í landi. Hvað sem öllum söng um að
fjölbreytni á öldum Ijósvakans sé best tryggð með markaðsfrelsi og
óheftri samkeppni þurfa ítalir síst að reikna með öðruvísi sjónvarpi en
því þar sem þörfum auglýsenda og hagsmunum eigenda er fyrst og
síðast borgið. Hagnaðarvonin er öllum öðrum dyggðum æðri - skítt
með óskir áhorfenda og menningarlegan metnað.
Um síðustu helgi samþykkti ít-
alska þingið endanlega lög um
fjölmiðlun sem koma áttu í stað
þeirra frumskógarlögmála sem
rikt hafa í ítölskum fjölmiðlaheimi
frá því að sjónvarps- og útvarps-
rekstur var gefinn frjáls 1974.
Yfirlýst markmið laganna var
að tryggja fjölræði í ítölskum fjöl-
miðlaheimi og stemma stigu við
einokun og hringamyndun. Nið-
urstaðan er hins vegar að flestra
mati sú, að með hinum nýju
lögum er fyrirtækinu Fininvest,
sem er í eigu fjölmiðlakóngsins
Silvio Berlusconi, tryggð áfram-
haldandi einokun í sjónvarps-
rekstri á móti ríkissjónvarpinu
RAI, auk þess sem reglurnar
gera ráð fyrir áframhaldandi vex-
ti auglýsingamarkaðar á sjón-
varpi á kostnað dagblaða og
tímarita.
Stjórnarslit
vegna
kvikmynda-
lagers
Lagasetningin gekk ekki á-
takalaust fyrir sig og kostaði á
endanum afsögn 5 ráðherra úr
vinstra armi Kristilega demókrat-
aflokksins, sem lýstu því yfir að
lögin gengju gegn yfirlýstum
markmiðum um fjölræði og væru
bersýnilega sniðin eftir einka-
hagsmunum valdamikilla milj-
arðamæringa, einkum þó Silvio
Berlusconi. Forsætisráðherrann,
Giulio Andreotti, sem viður-
kenndi í þingræðu að „miljarða-
mæringar“ hafi átt þátt í mótun
laganna, skipaði í skyndi nýja
ráðherra og beitti atkvæða-
greiðslu um traust á ríkisstjórn-
ina í þrígang til þess að koma lög-
unum í gegnum þingið án þess að
atkvæði féllu um viðkvæm atriði
laganna.
Lögin hafa þannig aukið á al-
varlegan klofning sem kominn er
upp í Kristilega lýðræðisflokkn-
um, auk þess sem meðferð máls-
ins afhjúpaði þýlyndi þingmeiri-
hlutans gagnvart áhrifamiklum
einkahagsmunum án tillits til
hagsmuna eða vilja þjóðarinnar.
Má segja að dropinn sem fyllti
mælinn fyrir vinstri minnihlutann
í Kristilega flokknum hafi verið
þau ákvæði laganna að reglur um>
takmörkun aúglýsinga í kvik-
myndum skyldu ekki taka gildi
fyrr en 31. des. 1992, þegar
Fininvest-fyrirtækið er búið að
nýta þann lager sem það nú á af af
kvikmyndum. Þetta atriði lag-
anna gengur gegn reglum Evróp-
ubandalagsins, sem taka gildi 1.
jan. 1992. Ríkisstjórnin klofnaði
því út af kvikmyndalager Berl-
usconis og má segja að sjaldan
hafi ríkisstjórn klofnað á jafn
auvirðilegum málstað. En málið
á sér dýpri pólitískar rætur, sem
að verður vikið síðar.
Efni laganna
Efnisatriði hinna nýju laga eru
í aðalatriðum sem hér segir:
1) Gegn hringamyndun. Ekki
skal einum aðila leyfilegt að eiga
meira en 3 sjónvarpsnet á lands-
vísu. Sá sem á 3 rásir má ekki eiga
dagblöð. Sá sem á 2 rásir má eiga
allt að 8% dagblaðaupplaga, en
16% eigi hann eina rás og 20%
eigi hann ekki sjónvarpsstöð.
Enginn má eiga meira en 20% af
veltu fjölmiðlaheimsins (25% ef
veltan takmarkast við prentað
mál).
2) S.jónvarpsauglýsingar.
Leyfilegt er að rjúfa kvikmynd
þrisvar með auglýsingum ef hún
er 45-110 mín. að lengd. Sé hún
lengri má 4. auglýsingahléið
koma. Ríkissjónvarpið takmark-
aði auglýsingar við 12% á klst. og
14% af vikulegum útsendingar-
tíma. Fininvest takmarka auglýs-
ingar við 18% á klst. og 15%
senditíma á dag. Staðbundnar
sjónvarpsstöðvar takmarki
auglýsingar við 20% á klst. og
15% á daglegum sendingartíma.
3) Bein útsending. Einkastöðv-
ar fá rétt til beinnar útsendingar,
sem þær hafa ekki haft.
4) Fréttaflutningur. Sjónvarps-
stöðvar á landsvísu eru skyldugar
að miðla fréttum.
5) Bannað er að sýna myndir
sem hafa verið bannaðar 'fyrir
fólk undir 18 ára aldri. Þær sem
hafa verið bannaðar fyrir börn
undir 14 ára verða aðeins sýndar
eftir kl. 22.30. Bannað er að rjúfa
teiknimyndir með auglýsingum.
Berlusconi-lögin
Fljótt á litið þá virðast þessi lög
kannski ganga nokkuð langt í að
hamla gegn hringamyndun í fjöl-
miðlun. Að minnsta kosti bryti
einokunaraðstaða Morgunblaðs-
ins í bága við þessi lög, væru þau í
gildi á Islandi. En þegar betur er
að gáð, þá voru þau að mörgu
leyti eins og sniðin eftir þörfum
fjölmiðlakóngsins Berlusconi,
sem hefur á aðeins 10 árum orðið
einn auðugasti fjölmiðlarisi í Evr-
ópu. Fjölmiðlaveldi hans hér á
Ítalíu byggist á þeim sjónvarps-
rásum á landsvísu (Canale 5, Ital-
ia 1, Retequattro) og auglýsing-
astofunni Pubblitalia sem sér
þessum rásum öllum og þrem
öðrum (Italia 7, Junior TV og
TV-Capodistria) fyrir auglýsing-
um. Auk þess á hann eitt áhrifa-
mikið dagblað (II Giornale) sem
hann verður að selja innan 2 ára
frá gildistöku laganna, og stóran
hluta í útgáfufyrirtækinu Monda-
dori, sem m.a. á stærstan hluta
tímaritaútgáfu á Ítalíu. En Berl-
usconi mistókst nýlega að ná því
fyrirtæki á sitt vald að fullu.
Völd hans í fjölmiðlaheimin-
um liggja efalaust víðar en hér
hefur verið rakið, en auk þessa á
hann stærsta hlutann á Canale 5 í
Frakklandi og hluta í fjölmiðla-
fyrirtækjum víðar í Evrópu.
Auglýsinga-
kabarett
Fjölmiðlaumsvif Berlusconis
hafa einkennst af nýrri hugsun í
fjölmiðlum, þar sem aðalatriðið
er ekki innihald fjölmiðilsins eða
boðskapar, heldur markaðshlut-
deild hans í auglýsingamarkaðn-
um. Eftir að sjónvarpsrekstur var
gefinn frjáls sá Berlusconi fyrir
sér stóraukinn auglýsingamarkað
og stóraukna hlutdeild sjón-
varpsauglýsinga í þeim markaði
og öll hans viðleitni beindist að
því að ná ákveðinni hlutdeild í
þessum markaði. Hinn fjárhags-
legi árangur lét ekki á sér standa,
en efnislega standa ítalir uppi
með eitthvert fátækasta sjónvarp
í Evrópu hvað varðar gæði og
uppeldis- og fræðslugildi.
Sú samkeppni sem sjónvarps-
stöðvar Berlusconis hafa magnað
upp gagnvart ríkissjónvarpinu
hefur einnig haft áhrif á dagskrár-
gerð þess með þeim hætti að þótt
rásum hafi þannig fjölgað, þá
hefur fjölbreytnin í raun
minnkað, þannig að öll dagskrár-
gerð hefur tilhneigingu til að
breytast í einn allsherjar auglýs-
ingakabarett þar sem spjátrungs-
legur kynnir er stöðugt í sviðs-
ljósinu umkringdur léttklæddum
og glaðbeittum drósum sem dilla
brjóstum sínum í takt við
seiðandi undirleik. Þetta megin-
mynstur er gegnumgangandi í
allri dagskrárgerð, hvort sem ver-
ið er að fjalla um stjórnmál,
menningu og listir eða trúar-
brögð eða verið er að selja þvott-
aefni og megrunarlyf.
Fátækleg
fjölbreytni
Auk þriggja sjónvarpsrása
Berlusconis og þriggja ríkisrása
nær að minnsta kosti ein stöð,
Telemontecarlo, yfir landssvæð-
ið allt. Auk þess er hér ótölulegur
fjöldi smærri stöðva, þannig að
segja má að hver sjónvarpsnot-
andi á Ítalíu geti valið um a.m.k.
20 rásir, allar hver annarri líkar
og allar hlaðnar auglýsingum.
Að sögn tímaritsins Panorama
velti auglýsingamarkaðurinn á ít-
alíu um 6800 miljörðum líra eða
340 miljörðum ísl. króna á síðasta
ári. Hlutur sjónvarpsauglýsinga
var 58% eða um 200 miljarðar ísl.
kr., og hlutur Berlusconis í sjón-
varpsauglýsingamarkaðinum var
um 50% eða 100 miljarðar ísl.
króna.
Gagnrýnendur nýju laganna
segja að með hinum nýju reglum
sé Berlusconi að vísu gert skylt að
losa sig við dadgblaðið II Giorn-
ale, en á hinn bóginn séu honum
opnaðir nýir möguleikar á tíma-
ritamarkaðnum. í heildina verði
lögin til þess að styrkja þá sterku
á markaðnum, Berlusconi og
RAI, á kostnað minni sjónvarps-
stöðva og minni útgefenda, þar
sem hið prentaða mál fær hlut-
fallslega minni sneið af hinni
sameiginlegu auglýsingaköku.
Sjónvarp
og pólitík
Eins og vænta mátti þá átti
niðurstaða þessa máls sína pólit-
ísku forsögu, sem um leið bregð-
ur nokkru ljósi á ýmsar undarleg-
ar þverstæður ítalskra stjórn-
mála. Þótt 5-flokka stjórn And-
reottis hafi - að undanskildum
vinstri-minnihluta Kristilega
flokksins - staðið óskipt að þess-
ari lagasetningu, þá voru það só-
síalistar undir forystu Craxi sem
lögðu mestan þungann á að lögin
yrðu Berlusconi í hag. Hann er
einfaldlega þeirra maður, þótt
hann hafi yfirlýst ekki önnur
markmið í lífinu en að græða pen-
inga. Andstaða vinstri-arms
Kristilega flokksins undir forystu
De Mita gerði það svo að verkum
að málið varð að stjórnarslita-
máli fyrir Craxi: hann gat með
engu móti lotið fyrir þessum erki-
óvini sínum, sem kom honum úr
forsætisráðherrastóli fyrir 4
árum. Andreotti var í þeirri stöðu
að velja á milli Craxi og De Mita,
og hann valdi Craxi, sem átti
mestan þátt í að koma Andreotti í
forsætisráðherrastólinn á sínum
tíma. Kommúnistaflokkurinn var
að sjálfsögðu á móti þessari lag-
asetningu og fannst hún ekki
ganga nógu langt í að tryggja fjöl-
Ný lög um fjölmiðlun á ftalfu valda
klofningi í Kristilega demókrata-
flokknum og styrkja fjölmiðlarisana í
sessi
ræði. Þar sem oft áður síðustu
misserin, voru kommúnistar á
sama báti og vinstri-kaþólikkar.
„Þverpólitíski
flokkurinn“
ítalski kommúnistaflokkurinn
á nú í miklu innra uppgjöri, þar
sem markvisst er stefnt að því að
leggja flokkinn niður á flokks-
þingi í janúar á næsta ári og
stofna nýjan vinstriflokk, sem
gæti sameinað vinstriöflin og
komið á vinstri-stjórn á Ítalíu og
rofið þar með 45 ára valdaeinok-
un kaþólikka. Til þess þurfa þeir
bandalag við sósíalista og vinstri-
kaþólikka. Vinstri-kaþólikkar
hafa tekið vel í þær breytingar
sem átt hafa sér stað innan PCI,
en Craxi og félagar hans sjá rautt
þegar kaþólikkar gefa kommún-
istum undir fótinn og tala um
„þverpólitíska flokkinn“ sem sé
að grafa undan ítölsku
stjórnkerfi. Sósíalistar sem hafa
um 14% kjörfylgi, og eru því
ómissandi í ríkisstjórn til hægri
eða vinstri, halda dauðahaldi í
þessa oddaaðstöðu sína, og hafa í
því skyni gert bandalag við And-
reotti forsætisráðherra og hægri
öfl flokksins, og hafa oft staðið
hægra megin við Kristilega flokk-
inn í raun.
Vanheilög
bandalög
Það átti við í deilunum um ný-
leg lög gegn eiturlyfjaneyslu, þar
sem áhersla er lögð á að neysla
minnsta skammts af eiturlyfjum
sé refsiverð gagnvart lögum. Þar
með voru allir eiturlyfjasjúk-
lingar á Ítalíu orðnir glæpamenn
gagnvart lögunum á meðan mafí-
an sem dreifir eiturlyfjunum er
látin ósnortin. Þessi lög voru
samin að frumkvæði sósíalista og
samþykkt í óþökk vinstri-
kaþólikka og kommúnista.
Annað dæmi um þessa vanheil-
ögu flokkadrætti í ítölskum
stjórnmálum er slagurinn sem nú
er að hefjast um breytingar á
kosningalögum, sem ætlað er að
tryggja kjósendum meiri áhrif á
myndun meirihluta í ríkisstjórn-
um og sveitarstjórnum með því
að velja til hægri eða vinstri.
Þetta vald hafa sósíalistar nú einir
og vilja ekki missa það. Þess í
stað hafa þeir sett fram kröfu um
beina kosningu forseta er fái
aukin völd í líkingu við það sem
gerist f Bandaríkjunum. Þetta
deilumál verður líklega næsta til-
efni stjórnarslita hér á Ítalíu, sem
trúlega verða innan hálfs árs,
þegar forystu Ítalíu innan Evróp-
ubandalagsins lýkur. Þá mun hið
þverpólitíska bandalag sósíalista
við spilltustu öflin í Kristilega
demókrataflokknum endanlega
afhjúpast, og þá mun skipta
miklu hvort Kommúnistaflokk-
urinn hafi náð að mynda raun-
verulegan valkost vinstri-manna
hér á Ítalíu. Meira um það í næstu
grein.
Porto Verde 8. ágúst
Frá Ólafi
Gíslasyni
fréttarítara
Þjóðviljans í
Porto Verde
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19