Þjóðviljinn - 17.08.1990, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 17.08.1990, Blaðsíða 22
Birgir Svan Símonarson Meira rokk en áður Jákvæði Ég setti mig í stellingar með gáfu- Iegan svip á andlitinu, tilbúinn að vaða eld og eim vegna sannleikans. Margt er jú rotið í dvergríkinu. Mér fannst ég vera tilbúinn að fórna öllu fyrir réttlætið. Kemur þá ekki konan mín blessuð og klappar mér eins og gæludýri, og segir að það sé kominn tími til að ég skrifi eitthvað jákvætt til tilbreytingar. Nöldrararnir hafa aldrei komist í launaðar nefndir. Til hvers að segja fólki að jörðin sé hnöttótt þegar það er sannfært um að hún sé flöt. Eina aðstaðan sem slíkir menn komast í er klípa af einu eða öðru tagi. Hvernig fór ekki fyrir Frelsaranum? Svo bauð konan mér góða nótt. Ég sat eftir eins og brauðrist sem kippt hefur verið úr sambandi. Úr mér allur móður. En ég lét konuna ekki sleppa svo auðveldlega. Ég elti hana niður í svefnherbergi og lagði fyrir hana spurningu: Hvað sérð þú eiginlega já- kvætt við þennan heim og þetta taxta- líf okkar? Ég þóttist viss um að hafa snúið vörn í sókn. Það stóð ekki á svarinu hjá mínum betri parti. Hún hóf að segja mér sógu af stúlku sem hafði verið í Þriðja heiminum. Sú hafði verið heimkom- unni fegin. Mengunin þarna úti var svo mikil að hægt var að skera mistrið eins og álegg í sneiðar oná brauð. Þegar stúlkutetrið skrúfaði frá krönum lak úr rörunum einhver svört drulla sem því miður var ekki oiía. Marga nóttina dreymdi hana sund í laugum og Gvendarbrunnavatn. Þarna var mannþröngin svo mikil að stúlkan var komin með plattfætur eftir fjóra daga. Fátæktin svo yfir- þyrmandi að menn voru drepnir fyrir sápustykki eða bilaðan kúlupenna. Ég spurði konuna mína hvort hún væri í alvöru að mælast til þess að ég færi að lofsyngja fegurð landsins, tær- leika vatnsins og víðsýnið af Kamba- brún. Þvf ekki það sagði hún og bauð enn góða nótt. Þokkalegt, hugsaði ég. Ég á að skrifa einhverja sældarlífsrollu og all- ir á leið í stríð fyrir Miðjarðarhafs- botnum. ísland þar með talið á leið í sitt fyrsta stríð. Allt ísteik fyrir austan járntjaldið sem var. Og verðbólgan eins og froðufellandi górilla í illa smíðuðu búri. Gat á ósónlaginu yfir skerinu og Bítlarnir löngu hættir. Hvernig gat ég verið sjálfum mér samkvæmur? Ég tók það til bragðs að gera mig aftur gáfulegan í framan og lét innbyggðu heilamúsina leita að öllu því jákvæða sem fyrir mig hafði borið á umliðnum vikum. Músin staðnæmdist fyrst af öllu við ágætt gengi KR í fyrstu deild. í brjósti mér slær nefnilega gamalt KR-hjarta. Eftir tveggja áratuga niðurlægingu á knattspyrnuvöllunum er félagið mitt loks á sigurbraut. Mér finnst þetta afar ánægjulegt og efast ekki um að margir vildu skipta á 4,5% og meistarabikarnum. Á tímabili var ég að hugsa um að skrifa BA ritgerð um vandamál KR liðsins en einhvern veginn varð aldrei neitt úr því. Sumir voru þeirrar skoðunar að félagið van- taði ekki þjálfara heldur sálfræðinga, en sjálfur hef ég alltaf verið þeirrar skoðunar að þeim félögum gangi bet- ur sem skrifa eitthvað heilnæmt yfir dyrnar. T.d. eitthvað um regiusemi og gott félagaþel. En nú er tíð atvinnumennsku að renna hér upp svo þetta er sjálfsagt gamaldag fjas. Allir sparkáhugamenn ættu þó að geta verið sammála um þá nauðsyn að byggja yfir Laugardalsvöllinn svo hægt sé að spila allt árið á upphituð- um velli. Þegar slík aðstaða er risin og farið að borga mönnum fyrir puðið, þá trúi ég að við eignumst landslið sem ætti möguleika í Kamerúnmenn. Það er annars undarlegt hve fáir landsleikir hafa verið leiknir hér í sumar. Getur nokkur efast um mitt já- kvæða hugarþel? Og það þrátt fyrir firlysingar HlK um heilagt stríð. tríð sem hefur nú þegar venð skráð sem hið skemmtilegasta í sögu verald- arinnar. Félagsmenn hóta því nefni- lega að fara að lögum og bjóða hver öðrum góðan daginn. Það væri óskandi að írakar væru svona kurt- eisir í sínu heilaga stríði. Næst staðnæmdist músin mín við girnilegan ostbita sem er sirkusinn sem sýnt hefur í Laugardalnum. Ég hefi sjálfur greinst með ofnæmi fyrir sirkusi Billa Smarta, svo ég bjóst ekki við miklu. Það var kannski þess vegna sem fjölskyldan skemmti sér svo vel. Línudansarinn settist á stól á línunni og stóð svó upp á honum. Þetta hefði jafnvel Steingrímur ekki getað leikið eftir.Trúðarnir voru frábærir og að- dáendur Bryndísar og pabbastund- anna fundu þarna sitthvað við sitt hæfi. Það eina sem skyggði á annars ágæta skemmtun var að ekkert klós- ett var á staðnum en þarna voru sam- ankomin nokkur hundruð manns. Strákarnir í hverfinu komu þess vegna til þess að horfa á alveg ókeypis skemmtiatriði í hlénu. Eftir þessa ágætu sýningu röltum við í hægðum okkar yfir Suðurlands- brautina. Þá bar þar að strætisvagn á hraðri ferð og fór svo mikinn að hársbreidd munaði að hann legði undir sig góða skapið okkar. Ég sá þó strax hvers kyns var. Vagnstjórinn hafði með miklu snarræði verið að afstýra slysi við stoppistöðina. Nokk- ur hópur drukkinna barna, unglinga og eldra fólks steðjaði á biðstöðina. Þessi æsti og uggvænlegi hópur var allmörgum skrefum frá því að geta talist til löglegra bíðandi farþega. Þess vegna var vagnstjórinn í fullum rétti að kitla pinnann svolítið. Enginn veit hvernig farið hefði ef hann hefði stoppað og opnað dyrnar. Ég þori persónulega ekki að hugsa þá hugsun til enda. Vagnstjórinn brást alveg hárrétt við því neyðarástandi sem þarna var að skapast og sama má segja um fleiri bílstjóra á frelsis- og draumavögnum borgarinnar. Með þetta í huga fæ ég ekki skilið það út- spil borgarstjórans að senda vagnstjórana til sálfræðings til að kenna þeim að dekstra pakkið. Þetta varpar löngum skugga yfir áratuga þjónustu þessara manna. Á að kenna vagnstjórunum að rétta fram hægri vangann þegar búið er að sparka í þann vinstri? Næst staðnæmdist músin við gaml- an og harðan mygluost. Það er sautjándi júní í Hafnarfirði. Stórkost- legum skemmtiatriðum er lokið. Eldgleypar og sverðagleypar, trúðar og línudansarar hafa skemmt börnun- um að ógleymdum galdramönnum. Það lá við að maður saknaði þess að heyra engar ræður. Hljómsveitin hafði verið eitthvað spör á hátalarana svo að krakkarnir gátu séð ýmislegt gegnum hátalaraglufurnar. Um kvöldið var svo haldinn dansleikur og desibelin ekki spöruð. Ég stakk putt- um þegar í eyrun eins og við gerum hér í Hafnarfirði á sautjándanum en tók eftir því að drengurinn sem stjórnaði sándinu hafði ekkert í eyrunum. Ég gekk því til hans og öskraði: af hverju ertu ekki með neitt í eyrunum? Drengurinn sá að ég var að reyna að segja eitthvað við hann og öskraði að mér: Ég heyri ekkert fyrir hávaðanum. Þetta var sannleiks- stund í lífi mínu. Nú skildi ég loks allan þennan hávaða á böllum og skemmtunum. Hljóðstjórarnir eru auðvitað allir vita heyrnarlausir. Ef þið farið á hátíðahöldin næsta sumar í Firðinum og sjáið mann með banana í eyrunum, þá getið þið verið viss um að það er ég. Ef þið sjáið mann með einn banana hef ég orðið svangur. Músin endaði næturferðalag sitt og staðnæmdist við Óskar og Emmu. Það er vonum seinna að kynna þetta par fyrir landsmönnum. Þetta eru furðudýr á fóðrum hjá Iðnaðarbank- anum og kenna börnum ráðdeild og sparnað hér í Firðinum. Ég man eng- an mannfund svo ómerkilegan að þessir fulltrúar bankans mættu ekki til að hengja auglýsingahatta eða barmmerki á börnin. Þá fáum við bréf og heimsóknir frá þessu merkis pari. Þau skrifa foreldrum sem eignast börn, skrifa fermingarbörnum og þeim sem ganga í það heilaga. Alltaf eru þessi dýr að hvetja okkur til að spara fyrir húsum, bátum og bílum. Synir mínir eru t.d. að safna sér fyrir skuttogara um þessar mundir og láta allt sitt klínk í Óskara og Emmur. Þetta er svo hjartnæmt og hrífandi að ég gat ekki látið undir höfuð leggjast að segja frá þessu. Mér er ekki til efs, að þegar ég er allur þá get ég í það minnsta treyst því að þetta síunga par mun fylgja mér hinsta spölinn eins og mörgum öðr- um. Ég vona að enginn skilji þetta sem svo að ég sé á leið yfir móðuna miklu, staðreyndin er sú, eins og karlinn sagði, að maður lifír allt sitt líf. Jeff Healey kom þægilega á óvart með plötu sinni „See The Light" árið 1988. Maðurinn var á þeim tíma lítið þekktur í heima- landi sínu Kanada og utan Kana- da vissi enginn af honum. Það fer ekki á milji mála að Healey er með allra bestu gítarleikurum samtímans, enda fór þessi blindi maður að spila á gítar strax í kringum fimm ára aldur. Healey hefur mikið vald á gít- arnum og leikur jöfnum höndum rokk, jass, blús og kántrý. Á „See The Light“ sýndi Healey mikla breidd þannig að maður gat átt von á hverju sem var á næstu plötu. Nú hefur Healey mætt til leiks með „Hell To Pay“ þar sem hann hefur greinilega tekið mun hreinni rokkpól í hæðina en á fyrri plötu og blúsinn er á undan- haldi. Það má þó finna róleg lög á plötunni eins og ágætis lag eftir Jimmy Scott og Steve Cropper, sem heitir „How Long Can A Man Be Strong“. Slík lög heyra engu að síður til undantekninga. Eins og á fyrri plötu sinni flytur Healey töluvert af lögum eftir aðra en sjálfa sig. En á „Hell To Pay“ eru það engir smákarlar sem verða fyrir valinu, því gít- arsnillingarnir Mark Knopfler og George Harrison eiga sitt lagið hvor á plötunni. Lag Knopflers heitir „I Think I Love You Too Much“ og er það nánast eina lagið þar sem blúsinn fær að njóta sín að einhverju leyti. Þetta er hið sæmilegasta lag en ég held að He- aley hefði ekki átt að láta nægja að hafa Knopfler í bakröddum og á gítar í laginu, heldur fá hann til að syngja það líka. Healey útset- ur lagið svipað og Knopfler gerir sjálfur við sín lög og því hefði rödd Knopflers átt vel við. Að mínum dómi fer Healey hins vegar mjög vel með gömlu Harrison perluna „While My Gu- itar Gently Weeps“ og hann syngur það líka með mikum ágæt- um. Þar passar vel að haf Harri- son sjálfan ásamt fylgihnetti hans Jeff Lynne í bakröddum og kass- agítar. „While My Guitar Gently Weeps“ er eitt albesta lag Harris- ons með The Beatles og því verð- ur það að teljast djarft af ungum manni að leggja til atlögu við þetta lag. Útsetning Healejs er Jeff Healéy. aftur á móti skemmtileg útvíkkun á „gítarnum grátandi“ og Harri- son og Lynne mynda bakraddir í gamla bítlastílnum sem fara vel við annars hrárri túlkun Healeys á laginu en Harrisons sjálfs. Það er alltaf mikið hppdrætti að taka fræga slagara, en í þetta skipti hafði Healey vinninginn. Það er fullkomlega þess virði að fjárf- esta í „Hell To Pay“ þó ekki væri nema út af „While My Guitar Gently Weeps“. í heildina séð er „Hell To Pay“ ekki eins sterk plata og „See The Light“. Hún höfðar sennilega meira til Bandaríkjamanna en Evrópubúa, sem aftur þýðir að stór hópur íslenskra rokkaðdá- enda ætti að finna eitthvað við sitt hæfi á plötunni. -hmp Bowie gamli geislavæddur Geislavæðing tónlistarinnar heldur áfram. Hljómplötufyrir- tækin eru iðin við að setja gömul meistaraverk á geisladisk og eru nær allar gömlu plötur Davids Bowies komnar út í stafrænu for- mi. Fyrir þá sem lítið þekkja til Bowies fyrir tíma „Scary Mon- sters“, að þeirri plötu meðtalinni, geta byrjað á því að verða sér úti um safndisk með honum sem heitir „Changes Bowie“. Þar er ma. að finna gæðalög eins og „Space Oddity“, „Ziggi Star- dust“, „Rebel Rebel“, „Young Americans, „Heroes“ og „Ashes To Ashes“. Þess má einnig geta að sólóplötur Johns Lennons hafa flestar verið geislavæddar en hafa engu að síður verið illfáan- legar hér á landi. Úr þessu verður væntanlega bætt á næstunni, þar sem von er á fjögurra diska kassa sem hefur að geyma allan sólófer- il Lennons, sem samanlagt taldi um tíu plötur. Geislavæðingin er síðan komin svo langt, að nær fullvíst er að engin vínilplata verður gefin út í Bandaríkjunum á næsta ári. Hermann Pálsson: Kalda stnðið Mörgum er í minni enn að matníðingur bjó á Klakafelli í Kaldadal. Par kyngir niður snjó. Er lúinn gest að garði bar í grimmdar frosti og stijó, var honum sagt að hypja sig „því hér gefst engumfró. Ef þorsti og hungur þrengja að svo þér fmnst komið nóg, þá skaltu bryðja bláan ís og bergja hvítum snjó. Ef þér verður ofurkalt og orkan fer í lóg þá skeyttu hvorki umguð négadd en grafðu þig í snjó. Og ef þú villist vinur tninn um veglaust hjarn og snjó, þá korndu aftur hingað heim í húsaskjól og ró. “ Sá einfari sem úthýst var í öskubyl hann dó. Þá hlutu loks hans lúnu bein sitt leg í hvítum snjó. En afturgenginn komst á kreik og kuldalega hló: „Nú skal þiggja bóndans boð sem býr við œrinn snjó. “ Svo komst hann heim í Klakafell, þótt kyngdi niður snjó, og reið þar húsum hverja nótt uns hjúum þótti nóg. Heimarakki á hlaði sat og hnakkakertur gó, uns hann hvarf með eymd og sút undir kaldan snjó. Hás af krúnki krummi blár úr Kaldadalnum fló, því hann gat ekki unað sér við afturgenginn snjó. Á dimmri nóttu frerajjúk um fornar gættir smó °g lagði húsið itinan allt undir nýjan snjó. Hrollur lék um heimafólk sem hímdi í sauðakró því inni í bœ var engum vært af eiturköldum snjó. Að lokutn flýði bóndi burt, hanti beið þar enga ró, og skildi eftir allt sitt bú hjá afturgöngu og snjó. Með vori koma veður blíð og varla getur snjó, en aldrei þiðtiar þeli úr jörð þar sem nirfill bjó. Höfundur er fyrrverandi prófess- or í íslenskum fræðum við Edin- borgarháskóla. 22 SÍÐA - NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 17. ágúst 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.