Þjóðviljinn - 30.11.1990, Qupperneq 2
Það var handa-
gangur í öskjunni hjá
Hjólbarðaþjónustunni
í Skeifunni í vikunni.
Þúsundir bifreiða
skipta nú um dekk á
degi hverjum á höfuð-
borgarsvæðinu og
starfsmenn hjólbarða-
verkstæðanna vinna
baki brotnu. Þetta er
ekki þrifalegasta starf
í heimi, en engu að
síður mikilvægt fyrir
umferðaröryggið. Ert
þú búinn að skipta yfir
á vetrardekk?
Ljósmynd: Kristinn.
Það er ekki einleikiö með
hann Þorstein þegar hann
tekur sig til. Fyrst sprengdi
hann flokkinn, svo rak hann
rýting i bak Jóns Baldvins og
IRÓSA-
‘GARÐINUM
HINN ÓTTALEGI
LEYNDARDÓMUR
Að öðru leyti upplýsir
Gunnar að hann hafi þýtt leiðara
úr Þjóðviljanum fýrir KGB-
manninn og veltir því fyrir sér
hvort sú iðja teljist til landráða
og njósna.
Alþýóublaóió
ÞAÐ ER BILLEGA
SLOPPIÐ!
Samband ungra jafhaðar-
manna hefur farið af stað með
uppákomu í framhaldsskólunum
sem nefnist „Krati í einn dag“.
Alþýðublaöió
ÞVÍ VERR ÞEIM
MUN BETRA
Gjaldþrot fiskeldisstöðva:
Þrotabú í blómlegum rekstri.
Fyrírsögn í
Morgunblaóinu
SJALDAN LAUNAR
KÁLFUR OFBELDI
En nú er ég nefhdur „vinstri
sinnaður“ í málgagni Indriða G.
Þorsteinssonar, vinar míns,
Tímanum, og merkir víst allt að
því meðreiðarsveinn... Hef þó
verið Tíma-skáld á tvennum
páskum!
Helgispjall í
Morgunblaöinu
MUN NÚ SKAMMT
TIL EFSTA DAGS
Aðeins þrír íslendingar að
nafhi Gabríel eru skráðir í þjóð-
skrána. Þeir eru allir fæddir í
fyrra.
Morgunblaóió
MEGA ÞEIR EKKI
BITA GRAS í
FRIÐI?
Hestarmir standa þá á nes-
inu af fagurffæðilegum ástæð-
um — eða til að vinna bug á ein-
mannaleikakenndinni.
DV
NIÐUR MEÐ
ÓVÍGÐA SAMBÚÐ!
Tveir hundar voru gefnir
saman í heilagt hjónaband i
Fresno í Kalífomíu fýrir
skömmu.
Tíminn
LEYFIÐ
HUNDUNUM
AÐ KOMA TIL MÍN
Giftingarræðan var haldin á
ensku, en presturinn blessaði
söfnuðinn í lokin með því að
gelta tvisvar, svo allir viðstaddir
gætu skilið hvað um væri að
vera.
Sama klausa
I Tímanum
EKKI AÐ SPYRJA
AÐ
LÖGREGLURÍKINU
Eftir dijúga stund svaraði
rám karlmannsrödd: Hættu
þessu helvítis banki, ég er með
kvenmann hjá mér. Lögreglan
bankaði áffam. Næstu viðbrögð
voru að andstutt kvenmanns-
rödd svaraði: Hættið þessu, ég
er með karlmann hjá mér.
Víkurfréttir
2.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 30. nóvember 1990