Þjóðviljinn - 30.11.1990, Síða 3
KAZUOISHIGURO
KJÖRBÖK
... mikilvœgur liður
íþjóðarskútuútgerð
okkar litla lands
Landsbanki
l'slands
Banki allra landsmanna
Ólafur Eirlksson hampar afreksbikar (F glaður I bragði. Hann hefur
ástæðu til að vera hreykinn af sundafrekum slnum, og I gær tilnefndi
stjórn Iþróttasambands fatlaðra hann íþróttamann ársins árið 1990.
Mynd:Kristinn.
íþróttasamband fatlaðra
Sundkappi
heiðraður
Sundmaðurinn frækni Ól-
afur Eiríksson var útnefndur
Iþróttamaður ársins 1990 af
stjórn íþróttasambands fati-
aðra í gær.
Ólafur sagðist að vonum
vera mjög ánægður með útneíh-
inguna. Hann stundar nám í
stærðfræðideild Menntaskólans í
Reykjavík. Ólaflir segist vanur
því að þurfa að skipuleggja sinn
tíma vel og sækja sundæfingar
með skólalærdómnum.
Þótt Ólafiir sé ekki nema 17
ára hefur hann náð afbragðs ár-
angri í sundíþróttinni. Á Heims-
leikunum í Assen í Hollandi í
sumar setti hann þijú heimsmet í
200, 400 og 800 metra skrið-
sundi.
Til að komast svo langt þarf
að æfa vel, og Ólafur heftir æft
6-10 sinnum í viku síðastliðin
þijú ár.
Ólafur æfir nú með ófötluðu
sundfólki í sunddeild KR, en
keppir fyrir Iþróttadeild fatlaðra
í Reykjavík, þar sem hann hóf
sundferil sinn árið 1984.
Fyrr á þessu ári hlaut Ólafur
svonefndan Sjómannsbikar fyrir
afrek sín á Nýárssundmóti
íþróttafélags fatlaðra. Og margir
minnast eflaust einnig affeka
hans á ólympíuleikunum í Seoul
árið 1988, þar sem hann vann til
bronsverðlauna í 100 metra flug-
sundi og 400 metra skriðsundi.
Stjóm íþróttasambands fatl-
aðra segir í tilkynningu til fjöl-
miðla að Ólafúr hafi orðið fyrir
valinu að þessu sinni vegna af-
reka hans og ekki síður vegna
þess að hann sé sannur íþrótta-
maður, samviskusamur og heið-
arlegur keppnismaður, fyrir-
mynd annarra íþróttamanna.
BE
Uppskeruhátíð Skífunnar
Skífan bauð eitt kvöldið í vikunni til útgáfútónleika með þeim
hljómsveitum og tónliStarmönnum sem fyrirtækið gefur út hljóm-
plötur með fyrir þessi jól.
Á meðal þeirra em Síðan skein sól, Langi seli og skuggamir og
Rúnar Þór Pétursson.
Jim Smart ljósmyndari Þjóðviljans smellti þessari mynd af Helga
Bjömssyni og félögum í Síðan skein sól á uppskemhátíðinni.
Móðir okkar
Guðný Ingibjörg Björnsdóttir
Eskihlíð 12a
lést á Vífilsstöðum 28. nóvember.
Auður Aðalsteinsdóttir
Ragnheiður Aðalsteinsdóttir
Bessi Aðalsteinsson
Dæggjar dagsins
Eitt eftirtektarverðasta bókmenntaverk
síðari tíma. Metsölubók vlða um heim.
KAZUO JSHICjURO
Dreggjar
d a g s i n s
Maxine Hong
Kinstone:
-Dásamleg bók I
alla staði -sagan,
tungumálið og
efnistökin.Ég er
enn að hlæja að
henni og ég les
aftur og aftur
suma kaflana.
Robert Stone:
-Hnökralaus skrif
um sérkennilega
andlega innilokun.
Þessi saga er í
senn fyndin og
hrollvekjandi.
Richard Ford:
-Ishiguro skrifar
gersamlega ómót-
stæðilega. Dreggjar
dagsins er ástríöufull,
tær, fyndin, sorgleg,
alvarleg -sagan hefur
alla eiginleika
heimsbókmennta.
Doris Lessing:
-Ishiguro er frumlegur
og þaö er bókin líka.
Hún er bráðfyndin en
samt ein sorglegasta
bók sem ég hef lesið.
Þessi bók er í miklu
uppáhaldi hjá mér.
John Le Carré:
-Þessi bók er de-
mantur, fullkomlega
slípaður með ótelj-
andi flötum.
Ann Beattie:
-Fullkomin skáldsaga.
Ég gat ekki lagt hana
frá mér.
Alison Lurie:
-Snilldarlega vel
skrifuð saga. Ólgandi
af krafti undir
silkikenndu yfirborði.
Salman Rushdie:
-Snilldarlega vel skrifuð
skáldsaga. Saga sem
er í senn unaðslega
falleg og hrottalega
grimm.
The Sunday
Times:
-Dreggjar dagsins
er stór sigur fyrir
hinn unga Ishiguro.
Trúverðug mynd
hans af lífi mann-
anna er sett fram á
frumlegan, fyndin,
furðulegan,
grípandi, en umfram
allt, hrífandi máta.
Sigurður A. Magnússon íslenskaði.