Þjóðviljinn - 30.11.1990, Síða 4
Hundaæði
landlægt
í Evrópu
Ófögnuðurinn hefur breiðst óðfluga út um álf-
una frá seinni heimsstyijöld
Tll allrar hamingju þarf ekki að óttast að refirnir í húsdýragaröinum I Reykjavlk hafi sýkst af hundaæöi. Margir
kynbræður þeirra á meginlandi Evrópu eiga ekki sama láni að fagna. I flestum Evrópulöndum er hundaæði
orðið landlægt. Enn eru þó átta Evrópulönd laus við ófögnuðinn. Mynd: Jim Smart.
Hundaæði hefur löngun verið
talið með illviðráðanlegri sjúk-
dómum. Árlega er áætlað að tugir
þúsunda manna látist af völdum
hundaæðis eftir að hafa orðið íyr-
ir biti sýktra dýra. Á Indlandi einu
falla um 20.000 manns i valinn af
þessum völdum. Þrátt fyrir það að
hundaæði hafi breiðst út eins og
eldur í sinu um Evrópu síðustu
áratugina hafa ekki nema 36
manns látist af völdum veirunnar
á sl. 12 árum. Þar af höfðu flestir
sýkst í Afriku og Austurlöndum
fjær.
Hundaæðisveiran er einkum
talin berast með refum. Flestar
tegundir landdýra, jafnt villtra
sem taminna, og þar með talin
mannskepnan, eru taldar mót-
tækilegar fyrir veirunni. Sökum
náins sambýlis manna og hunda
stafar mönnum mest ógn af
ófognuðinum berist hann í þenn-
an fylginaut mannsins.
Frá seinni heimsstyijöld hefur
hundaæði breiðst með ógnarhraða
út um Evrópu og er nú svo komið
að aðeins átta Evrópulönd eru
með öllu laus við hundaæði, en
þau eru Island, Noregur, Svíþjóð,
Bretland, Irland, Portúgal, Búlg-
aría og Grikkland.
Eftir seinna stríð breiddist
hundaæði út til vesturs með sýkt-
um refum ffá Póllandi. Um 1960
hafði hundaæði borist vestur yfir
Rin, en síðan hefur það breiðst út
um Niðurlönd og Frakkland.
Þá hefúr fall Berlínarmúrsins
orðið þess valdandi að hundaæðis
hefur í fyrsta sinn í fjörutíu ár
orðið vart í Vestur-Berlín.
Lengstum hafa menn talið að
ekki dygðu önnur meðul í barátt-
unni gegn veikinni en að útrýma
þeim dýrategundum sem sök eru
talin eiga á veikinni þar sem hún
hefur gosið upp. Gripið hefur ver-
ið til þess ráðs að egna með eitri
fyrir sökudólginn með þeim
hörmulegu afleiðingum að ýms-
um dýrategundum öðrum hefur
verið nær útrýmt.
Nú ber svo við að mönnum
hefur hugkvæmst að egna fyrir
dýr með mótefni sem dreift er úr
lofti. Aðferðin þykir hafa borið
góðan árangur þar sem hún hefur
verið reynd. Til sannindamerkis
er m.a. nefnt að þegar hundaæði
kom upp nærri Helsinki í Finn-
landi fyrir tveimur árum hafi tek-
ist að ráða niðurlögum þess á einu
ári.
Að mati sérfræðinga verður
vart unninn bráður sigur á hunda-
æði nema með samstilltu alþjóð-
legu átaki. Þrátt fyrir það að með
þessari aðferð hafí tekist í tvígang
að ráða niðurlögum hundaæðis í
ítölsku Ölpunum, hefúr veikin
óðfluga skotið upp kollinum á
nýjan leik með sýktum dýrum
sem koma frá hinum júgóslav-
neska hluta Alpanna.
Of snemmt er spá lyrir um
það hvort dregið hafi úr frekari
útbreiðslu hundaæðisins á síðustu
árum í Vestur-Evrópu. Alþjóða
heilbrigðismálastofnunin (WHO)
skráði árið 1988 ein 16000 tilfelli
á móti rúmlega 23000 tilfellum
árið 1984. Benda má á að flest
þeirra dýra sem sýkt eru komast
aldrei undir mannahendur og
hafna þar af leiðandi ekki í opin-
berum skýrslum.
Hundaæðis hefur ekki orðið
vart á Bretlandi síðan skömmu
eftir síðustu aldamót. En nú eru
ýmis teikn á lofti sem benda til
þess að veruleg hætta sé á að
hundaæði berist frá meginlandinu
yfir Ermarsundið til Bretlands.
Undanfarin ár hefúr hundaæði
breiðst ört út í Ermarsundshéruð-
um Frakklands. Fyrr á þessu ári
braust út hundaæðisfaraldur við
Dieppe sem aukið hefúr mjög á
áhyggjur Breta að þess kunni ekki
að vera langt að bíða að hundaæði
skjóti upp kollinum handan
sundsins.
Hættan á því að hundaæði
berist til Bretlands er talin mest
samfara smygli á gæludýrum.
Sérfræðingar benda á að komi
hundaæði upp í refúm I Bretlandi
verði mun örðugra að hefta út-
breiðslu veikinnar þar en á meg-
inlandinu. Obbinn af refastofnin-
um á Bretlandi lifir í almennings-
görðum og friðlöndum í og við
stórborgir. Þar eru lífsskilyrði
mun betri en úti í dreifbýlinu og
þéttleiki stofnsins meiri, sem aft-
Brynjólfur Sandholt,
- Það á ekki að vera mikil
hætta á því að hundaæði berist
hingað til lands, segir Brynjólfur
Sandholt, yfirdýralæknir. - En við
megum aldrei útiloka þann mögu-
leika.
Hundaæði hefur aldrei komið
upp á Islandi eftir því sem næst
verður komist. Það þarf þó ekki
að leita langt yfir skammt þar sem
hundaæði er landlægt. Á Græn-
landi hefur sjúkdómurinn lengi
verið viðvarandi og hann hefur
skotið upp kollinum á Svalbarða.
En hveijar eru líkumar á því
að sjúkdómurinn kunni að berast
til landsins?
- Hæltan á því er mest samfara
smygli til landsins á gæludýrum
og þá einkum og sér í lagi á hund-
um. Hundar sem fiuttir eru hingað
með löglegum hætti eiga ekki að
geta borið hundaæði. Leyfi til
innflutnings fæst aðeins að því til-
skildu að hundurinn hafi verið
bólusettur og að hann dvelji um
nokkurra mánaða skeið í sóttkví.
Eg man ekki dæmi þess að
hundur sem óskað hafi verið inn-
fiutnings á hafi reynst vera með
huridaæði. Aftur á móti kom slíkt
fyrir í Bretlandi fyrir skömmu,
sem sýnir okkur nauðsyn þess að
gæta fyllsta öryggis, segir Brynj-
ólfur.
- Við fengjum síðastir vitn-
eskju um slíkt, segir Brynjólfur
þegar hann er inntur efiir því
hvort brögð séu að því að hundum
sé smyglað inn í landið.
- Maður heyrir af og til orð-
róm um slíkt, en það er engin
fullnaðarvissa fyrir því að svo sé
eða þá hve mikil brögð eru að því.
ur hefúr það í for með sér að mjög
erfitt er að egna fyrir „stórborgar-
skolla“ með mótefni eða eitri.
Komi hundaæði upp í breska refa-
Það er útilokað að koma með
algjörri vissu í veg fyrir þann
möguleika að menn geti smyglað
hundum hingað til lands. Sjálf-
sagt er hættan á því að slík geti
gerst mest samfara fisksölum
fiskibáta erlendis, segir Brynjólf-
ur. Hann segir að vildi svo óhönd-
stofninum er talið að því verði
ekki haldið í skefjum nema rúm-
lega 90 af hundraði dýranna fái
mótefni eða verði komið fyrir
uglega til að hundaæði bærist til
landsins yrðu heilbrigðisyfirvöld
að bregðast skjótt við og grípa til
viðeigandi ráðstafana.
- Það fyrsta sem kemur upp í
hugann er að útrýma hundum á
því svæði þar sem sjúkdómsins
yrði vart. Til slíkra ráða var gripið
kattamef, sem er langtum hærra
hlutfall en þarf á meginlandi Evr-
ópu til að hefta útbreiðslu hunda-
æðis. -rk/The European
Getum ekki útilokað
fyrir nokkrum árum þegar hunda-
fár kom upp hér á landi.
Bólusetning er einnig hugsan-
leg, en þar fylgir sá böggull
skammrifi að hún útrýmir ekki
sjúkdómnum, segir Brynjólfúr.
-rk
Kvalarfullur sjúkdómur
Hundaæði hefur verið þekkt um aldir. Óhugnanlegur sjúkdómur sem
dregur menn til dauða fái þeir ekki rétta meðferð
Hundaæði og afieiðingar þess
hafa verið mönnum kunnar um
aldir. Enda er það svo að afieið-
ingar sjúkdómsins fara ekki fram
hjá mönnum, hafi maður á annað
borð sýkst eftir bit dýrs sem hald-
ið er hundaæði.
Misjafnt er hversu Iangur tími
líður áður en sjúkdómurinn gerir
vart við sig af fullum þunga. Það
getur verið allt frá nokkrum dög-
um upp undir ár.
Stjarfakrampi og
vatnsfælni
Vanalega eru fyrstu einkennin
höfuðverkur og svitaköst og síðar
krampi, öndunarerfiðleikar og
lömun sem að lokun dregur þann
sýkta til dauða.
Eitt einkenni veikinnar er
vatnsfælni, enda er hundaæði
einnig nefnt því nafni. Vatnsfæln-
in lýsir sér þannig að hinn sýkti
hvorki þolir að drekka né sjá vatn.
Þegar á fimmtu öld fýrir Krist
lýsti gríski heimspekingurinn
Demokrítos veikinni og taldi að
hún hefði áhrif á miðtaugakerfið
líkt og stjarfakrampi. Á fjórðu öld
fyrir Kr. greindi landi hans Aris-
tóteles frá hundaæði. Rómverski
rithöfundurinn Celsus bætti um
betur rétt fyrir Kristsburð og lýsti
veikinni í smáatriðum í verkum
sínum og reyndi að lækna hana
með því að brenna í sár á mönnum
sem bitnir höfðu verið af gölnum
hundum.
Sögulegar heimildir benda til
þess að hundaæði hafi ekki orðið
að faraldri víða um lönd fyrr en
komið var fram á 19. öld. Þegar á
13. öld vitna ritaðar heimildir um
hundaæði í Frakklandi og á Spáni.
Á fyrri hluta 18. aidar stakk
hundaæði sér niður í Frakklandi,
Þýskalandi og á Englandi.
Það var fyrst á 19. öld sem
hundaæðið breiddist óðfluga út
um Evrópu. Þegar upp úr alda-
mótunum var veikin orðin skæð í
Þýskalandi. Um 1810 braust út
mikið fár í Rússlandi og þá sér-
staklega á meðal úlfa. Um líkt
leyti barst hundaæði til Norður-
Ianda. Til Danmerkur og Noregs
er talið að hundaæði hafi fyrst
borist 1815 og til Svíþjóðar
skömmu síðar, eða 1824. I síðast
töldu löndunum tókst með snar-
ræði að útrýma veikinni.
Pasteur átti
kollgátuna
Þrátt fyrir það að mönnum
hafi um Iangan aldur verið ljóst að
hundaæði bærist með munnvatni
við bit, stóðu læknavísindin lengi
vel ráðþrota gagnvart veikinni.
Það var ekki fyrr en 1885 að Lou-
is Pasteur datt niður á að gefa
ungum bóndasyni bóluefni sem
bitinn hafði verið af óðum hundi.
Uppfinning Pasteurs er enn í
fullu gildi rúmum hundrað árum
síðar. En hafi sjúkdómseinkennin
einu sinni komið frarn, er fátt til
sem dugar til að vinna bug á veik-
inni.
-rk
Smyglaðir hundar varasamir
yfirdýralæknir: Verðum ávallt að hafa vara á okkur.
þann möguleika að hundaæði berist til landsins
4.SÍÐA—yNYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 30. nóvember 1990