Þjóðviljinn - 30.11.1990, Blaðsíða 6
Drengur úr
skuggahverfi
John Major hœtti í skóla 16 ára, lifði um skeið á atvinnuleysisbótum og
varð utanríkisráðherra, fjármálaráðherra
og loks forsœtisráðherra Bretlands
Vaninn er að hugsa sér
breska forsætisráðherra
sem talandi fágaða hefðarensku
og eftir því í framkomu allri og
klæðaburði, menn sem hafi
mótast í bestu einkaskólum og
síðan í Oxford eða Cambridge.
John Major, hinn nýi forsætis-
ráðherra Breta, stingur allmjög
í stúf við þessa ímynd.
A honum er enginn „stæll“,
a.m.k. ekki á breskan mæli-
kvarða. Enskan hans þykir bragð-
dauf og um klæðaburðinn er sagt
að hann sé nokkumveginn óað-
fínnanlegur, en ekkert þar framyf-
ir. Einhver sagði að hann minnti
mest á bankaútibússtjóra í dreif-
býli.
Fréttamaður spurði hann fyrir
skömmu hvort hann væri ekki al-
sæll yfir því að vera talinn útval-
inn krónprins Margaretar Thatch-
er. Svaraði þá Major: „Lít ég út
fyrir að vera þesskonar maður að
ég geti orðið alsæll út af nokkrum
sköpuðum hlut?“
Sirkusleikari,
málaliöi
Stuðningsmenn hans í íhalds-
flokknum kalla hann ljúfmenni
með drjúga kímnigáíu og eld-
snöggan að átta sig á málefnum.
Þeir eru að vísu ekki hlutlausir
vottar, en ef til vill ekki heldur
ýmsir aðrir, sem segja að Major,
farinn að grána fyrir hærum þrátt
fyrir annars unglegt útlit, sé einn-
ig grár hið innra. Hvað sem því
líður má ætla að hann sé seigur,
duglegur og góður við að aðlag-
ast, annars hefði hann varla orðið
slíkur hamingjumaður sem raun
ber um vitni.
Hann á sem sé upphefð sína
ekki að þakka göfugu ættemi,
góðum efnahag fjölskyldu eða
veglegri skólamenntun. Upprun-
inn gat ekki verið miklu lægri.
John Major er nú 47 ára, fæddur
1943. Faðir hans var þá orðinn 67
ára og hafði sýslað við ýmislegt
um dagana, verið fimleikamaður í
sirkus, revíuleikari, samkvæmt
einni frétt um tíma málaliði í
Brasilíu. í ellinni fór hann að
þreifa fyrir sér í smáatvinnu-
rekstri, en fór á hausinn með það
og flutti þá með fjölskyldu sína til
Brixton, borgarhluta í Suður-
Lundúnum sem þá var kominn í
niðumíðslu og hefur verið í henni
síðan.
Vann fyrir
foreldrum sínum
Þar ólst John Major upp og
blés ekki byrlega fyrir honum.
Hann hætti í skóla 16 ára til að
vinna fyrir foreldrum sínum af-
gömlum og fékkst næstu árin við
ýmislegt sem til féll og ekki þurfti
fagþjálfun til, var í byggingar-
vinnu, undirtylla á skrifstofu o.fl.
Hann sótti um fast starf við að
taka við farmiðum í tveggja hæða
strætisvögnunum, sem em eitt af
einkennum Lundúna, en fékk það
ekki, að einhverra sögn vegna
þess að hann kunni ekki að
telja. í nokkra mánuði lifði
hann á atvinnuleysisbótum
og er sá eini af núverandi ráðherr-
um breskum sem gengið hefur í
gegnum svoleiðis lífsreynslu.
Það er raunar ekki út í hött að
honum skuli vera líkt við banka-
mann, því að sem slíkur kom
hann sér á strik. Tæplega tvítúgur
fékk hann starf í banka, var á
þeim vettvangi í 17 ár og komst
um síðir í háa stöðu. Þá fór hann
út í pólitík og var kjörinn á þing
1979, í sömu kosningunum og
komu Margaret Thatcher á for-
sætisráðherrastól. Hann var henn-
ar maður frá upphafí og í ýmsum
ráðherraembættum í stjómum
hennar, utanríkisráðherra t.d.
skamma hríð og síðan Qármála-
ráðherra.
Draumur um
hæfileikaaðal
Einhver lýsti honum á bresku
þingslangi sem „þurrum“ í efna-
hagsmálum og „votum“ í félags-
málum. Með því er átt við að
hann sé varkár og praktískur í
efnahagsmálum og hafi (þó) sam-
úð með fólki.
Það fór ekki leynt að hann var
eftirlæti Margaretar, jafnvel þótt
hann væri henni ekki óslitið eftir-
látur, og að hún hafði kjörið hann
sér að eftirmanni. Hún var upp-
reisnarmanneskja að vissu leyti,
dóttir kaupmanns sem talaði mál-
lýsku. Hún vildi efla til valda
sjálfhafna menn, ekki fædda til
auðs og valda. Hennar Bretlandi
átti, hugsjón hennar samkvæmt,
að vera stjómað af mönrium sem
A Imennt er nú óttast að í
vetur verði sultur eða
jafnvel hungursneyð í Sovét-
ríkjunum. í Vestur-Evrópu eru
þegar ýmsar hjálparráðstafan-
ir á döfinni gegn þeim voða og
hafa Þjóðverjar brugðist við
einna drengilegast.
Þýskalandsdeild alþjóðlegu
hjálparstofnunarinnar CARE,
sem stofnuð var í Bandaríkjunum
1946, hóf í fyrradag herferð gegn
hungri i Sovétríkjunum. Hófst
hún með ávarpi í sjónvarpi og
voru með því sýndar tómar búð-
arhillur í Leníngrad, sem Þjóð-
veijar reyndu að svelta til upp-
gjafar veturinn 1941-42. Gömul
kona, sem hafði lifað af umsátrið,
sást taka grátandi við þýskum
matarpakka, segjandi: „Ég er svo
hrærð yfir að Þjóðveijar skuli
gera þetta nú.“
Undirtektimar við ávarp
CARE hafa farið fram úr öllum
vonum, að sögn talsmanna stofn-
unarinnar. I gær hafði verið lofað
samtals 3,8 miljónum marka til
hjálpar Sovétmönnum og hæstu
framlög einstaklinga
voru um 300.000
mörk. Búist er við
meiri peningum.
Rauði krossinn
Dagur
Þorleifsson
hefðu hæfileika og dugnað sér til
ágætis, en ekki ættemi eða stétt.
En líka er á það bent að
Ihaldsflokkurinn, sem jafnan hef-
ur öðmm flokkum breskum firem-
ur verið talinn vígi aristókrata og
auðkýfinga, hafi þegar fyrir tíð
Thatcher verið farinn að leitast
við að koma sér upp leiðtogum af
lægri stigum. Edward Heath, fyr-
irrennari Thatcher sem flokks-
leiðtogi, var þannig sonur húsa-
smiðs. Enda eru kjósendur
flokksins fyrst og ffemst miðstétt-
arfólk og jafnvel verkalýður, og
margt það fólk vill gjaman hafa
fomstumenn úr sínum hópi.
Á heimaslóðum
Cromwells
Konu Majors, sem heitir
Norma og er tveimur ámm yngri
en hann, er lýst sem óbrotinni og
tilgerðarlausri manneskju, sem sé
feimin og lítið gefin fyrir hefðar-
dýrð. Frami eiginmannsins í
stjómmálum er sagður hafa kom-
ið henni í hæsta máta á óvart og
skelft hana, „svona nokkuð kem-
ur ekki fyrir fólk eins og okkur,“ á
hún að hafa sagt. Þegar maður
hennar varð utanrikisráðherra
varð henni svo mikið um að hún
léttist að sögn um sex kíló á þeim
embættistima hans, sem þó ekki
varð langur. Hún hefur dálæti á
ópemm og gerir John það fyrir
hana að fara með henni á þær, en
á það að vísu til að láta sér renna í
brjóst meðan á flutningi stendur.
En dugnaðarmanneskja er
þýski tilkynnti í gær að hann væri
að senda til Moskvu flugvél með
35 smálestum matvæla og í dag
leggur af stað frá Bonn til sov-
ésku höfuðborgarinnar bílalest
með 5000 matarpakka. Þeim á að
dreifa á jafnmörg heimili í
Moskvu, þar á meðal til fatlaðs
fólks og aldraðs. Ætlunin er að
dreifa á næstunni tugþúsundum
þýskra matarpakka til átta sov-
éskra borga, þar sem alvarlegur
matarskortur er talinn yfirvof-
andi.
Horst Teltschik, einn helstu
ráðunauta Helmuts Kohl, sam-
bandskanslara, um utanríkismál,
er nýkominn frá Moskvu, þar sem
hann ræddi við Míkhaíl Gorbat-
sjov, Sovétríkjaforseta, um þýska
neyðarhjálp til Sovétríkjanna.
Þýska blaðið Bild segir Teltschik
hafa komið til baka með óskalista
frá Gorbatsjov. A listanum sé
m.a. farið fram á 500.000 smá-
lestir af kjöti, álíka margar smá-
lestir af jurtaolíu, 100.000 smá-
lestir af núðlum og 50.000 smá-
lestir af mjólkurdufti.
Kohl kom sjálfur fram í
áminnstum sjónvarpsþætti
CARE, hvatti landa sína til að
bregðast vel við og bað þá minn-
ast þess að ekki hcfði þess orðið
auðið að sameina Þýskaland svo
fljótt sem raun varð á ef Gorbat-
sjovs heíði ekki notið við.
Gorbatsjov er stórvinsæll í
Major fagnar sigri - „lít ég út
fyrir að geta orðið alsæll út af
nokkrum sköpuðum hlut?“
Norma sögð vera og hefur unnið
sér það til frægðar að skrifa bók
um sópransöngkonuna Joan Sut-
herland.
Þau eiga tvö böm á tánings-
aldri og hafa lengi haft einka-
heimili í Huntingdon í Cam-
bridgeshire, í kjördæmi Majors.
Þar bjó einnig Oliver Cromwell,
hæstráðandi Bretlands um skeið á
17. öld, eini leiðtoginn í sögu þess
ríkis sem stjómað hefur því kon-
ungslausu.
Þýskalandi og það á að líkindum
vemlegan þátt í því hve margir
Þjóðverjar em nú fúsir til hjálpar
Sovétmönnum, höfúðóvinum sín-
um í heimsstyijöldinni síðari. En
margt miðaldra og eldra fólk, sem
man fyrstu árin eftir það stríð og
sumt var þá böm, segist út frá
þeirri reynslu vel geta gert sér í
hugarlund hvemig Sovétmönnum
líði nú. Þá var mikill matarskortur
í Þýskalandi og matarpakkar frá
Bandaríkjunum, sem deild CARE
þar sendi nauðstöddum Þjóðverj-
um, urðu mörgum til mikillar
hjálpar. Sumir sem minnast þeirra
ára, er þeir sjálfir vom böm, segja
að þeir hefðu ekki lifað þennan
tíma af án pakkanna.
„Ég man eftir striðinu, frá því
að ég var bam,“ sagði rúmlega
fimmtugur maður sem sendir til
Spvétríkjanna tíu matarpakka.
„Ég var þá niðri í byrgjum þegar
loftárásir vom. Og eftir stríðið var
sár fátækt. Ég veit hvað hungur
er.“
Sumir sem koma með matar-
pakka og peninga til Rauða kross-
ins og CARE lýsa vinarhug í garð
Rússa, nú sé fjandskapur fyrri tíð-
ar úr sögunni. „Ég sé málin með
öðmm augum nú,“ sagði 64 ára
maður, sem barðist í þýska hem-
um í Sovétríkjunum. „Rússar em
gott fólk.“ Annar á svipuðum
aldri sagði: „Leiðtogar okkar
vom óvinir, ekki þjóðimar.“
írak settir úrslitakostir
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gærkvöldi með
12 atkvæðum gegn tveimur heim-
ild til aðildarríkja S.þ., þess efnis
að þau megi „gripa til allra nauð-
synlegra ráða“ til að koma íraksher
frá Kúvæt, verði hann ekki farinn
þaðan fyrir 15 jan. n.k. Þýðir þetta
að S.þ. heimila að vopnum verði
beitt gegn Irak.
A móti vom Jemen og Kúba en
Kína sat hjá.
í forsæti á þessum fundi Ör-
yggisráðs var James Baker, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, og
utanríkisráðherrar 13 af 15 aðildar-
rikjum ráðsins vom viðstaddir, til
merkis um mikilvægi fúndarins að
áliti rikjanna.
Lukanov segir af sér
Andrei Lukanov, forsætisráð-
herra Búlgaríu, sagði af sér í gær
fyrir sína hönd og stjómar sinnar,
sem verið hefúr við völd í tvo mán-
uði. Ástæðan til afsagnarinnar er
allsherjarverkfall, sem Lukanov
segir hafa gert stjóminni ómögu-
legt að starfa.
Verkfallið stafar af almennri
óánægju út af alvarlegum skorti á
matvömm og vandræðum í efna-
hagsmálum. Hin ffáfarandi stjóm
er á vegum Sósíalistaflokksins,
sem áður hét Kommúnistaflokkur.
Búist er við að efnt verði til nýrra
kosninga innan tíðar, ef til vill í
mars, og að mynduð verði bráða-
birgðastjóm sem fari með völd
þangað til.
Leitað til Andans mikla
Sex andlegir leiðtogar Súa
(Sioux), indíánaþjóðflokks í
Bandaríkjunum, em komnir til
Amman, höfuðborgar Jórdaníu á
leið til Bagdað, þar sem þeir ætla
að biðjast fyrir til að koma í veg
fyrir stríð við Persaflóa. Segir einn
þeirra, Arval Horfandi hestur (Lo-
oking Horse), að þeir hafi fengið
fyrirmæli um þetta, frá forfeðmm
sínum i vitmnum. I Bagdað muni
þeir félagar biðja áttimar fjórar,
Andann mikla og Móður Jörð að
varðveita friðinn. Junsei Terasawa,
japanskur búddamunkur sem er á
sömu leið til að biðjast fyrir með
indíánunum, segir búddasinna um
allan heim ætla að hefja á laugar-
dag vikulanga fostu og bænahald í
sama tilgangi.
Matarpakkar sendir
til Sovétríkjanna
Þýskur almenningur bregst við af rausn til hjálpar
jýrrverandi óvinum í neyð
6.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 30. nóvember 1990