Þjóðviljinn - 30.11.1990, Síða 8
NÝTf
þJOOVILJINN
Útgefandl: Útgófufélag Þjóðviljans Framkvœmdastjórl: Hallur Páll Jónsson Rltstjóran Ámi Bergmann, Ófafur H. Torfason, Helgi Guömundsson Afgrelösla:» 68 13 33 Auglýslngadeild:» 68 13 10-6813 31 Símfax: 68 19 35 Verö: 150 krónur I lausasötu
Fréttasljórl: Slguröur A. Frlöþjófsson Auglýsingastjóri: Steinar Haröarson OHuiiug og uiuufUL riuinöiuiuja kjuuviijuiiö iii. Prentun: Oddi hf. Aösetun Slöumúla 37,108 Reykjavlk
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Þjóðarsátt um velferð
Þríhliða samkomulag milli samtaka
launafólks, atvinnurekenda og ríkisvalds
sem nefnt hefur verið þjóðarsátt er senni-
lega fyrir þá sök merkilegast að forsendur
þess hafa haldið í öllum meginatriðum. Spár
um verðlagsþróun og kaupmátt launa hafa
verið innan þess sem kalla má eðlileg
skekkjumörk, og þegar nú er rætt um frávik
er jafnvel veriö að tala um hluta úr prósenti.
Þetta er vissulega gríðarleg breyting frá því
sem menn hafa átt að venjast á undanförn-
um áratugum, þegar verðbólga hefur verið
mæld í tugum prósenta og spádómar „sér-
fræðinga" hafa einatt reynst fjarri raunveru-
leikanum.
Eins og eðlilegt er hafa komið fram marg-
ar ábendingar um að ekki sé hægt að sætt-
ast á þau kjör, sem hinir lakast settu í þjóð-
félaginu hafa orðið að una, til frambúðar.
Þjóðarsáttin geti því ekki staðið um óbreytt
ástand til lengdar. Af hálfu samtaka launa-
fólks hefur tilgangur þjóðarsáttarinnar held-
ur aldrei verið sá að viðhalda óbreyttum
kaupmætti, heldur að skapa skilyröi til batn-
andi lífskjara, einkum fyrir þá sem búa við
lægstu launin.
Enda þótt íslendingum sé nokkuð tamt
að leggjast í þrætur um þau vandamál sem
að þjóðin á stöðugt við að glíma,- stundum
er eins og yfir þjóðfélagið leggist á fáum vik-
um mara svartsýni og ræfildóms,- þá á
þjóðin mikinn auð, framleiðsla hennar er í
mörgum skilningi mikils virði þegar til lengri
tíma er litið, og þrátt fyrir fámenni taka ls-
lendingar þátt í viðskiptum á alþjóðavett-
vangi af fullum myndugleik. Samanborið við
þau lífskjör sem þjóðir fátækra landa þurfa
að búa við eru íslendingar forríkir, og það
má hafa til marks um þær undarlegu and-
stæður ríkidæmis og fátæktar sem sjá má í
heiminum að nú horfir svo austur í Sovétríkj-
unum, sem hingað til hefur verið talið með
stórveldum heimsins, að þar geti orðið al-
varlegur fæðuskortur, jafnvel hungursneyð.
Sovétríkin hafa keypt matvæli og skjólflíkur
af íslendingum. Þetta eru sáralítil viðskipti
miðað við þarfir sovétþjóðanna, en ríkið er
ekki borgunarfært, getur ekki staðið við
samninga um vörur sem þjóðirnar sárvant-
ar.
Sem betur fer hafa flestir íslendingar ekki
kynni af svona vandamálum á eigin kroppi
lengur, en það er til fátækt á íslandi og þeir
eru margir sem hafa úr allt of litlu að spila.
Um fátæktina getur ekki orðið nein þjóðar-
sátt, hún er blettur á þjóðfélaginu, sem ís-
lendingar hafa efni á að losa sig við, einung-
is ef þeir vilja. í flestum löndum Vestur-Evr-
ópu hefur stéttamunurinn aukist, hópur
þeirra sem búa við örbirgð hefur stækkaö og
auður þeirra ríku aukist. Sömu þróunar hef-
ur gætt hér, þó andstæöurnar séu ekki jafn
himinhrópandi. Margt bendir til að við eigum
í vændum tíma nokkurrar hagsældar, verð á
afurðum okkar erlendis er hátt og eftirspurn
eftir þeim mikil.
Óvissa um þróun mála í heiminum er að
sönnu einnig mikil. Til hvers leiða átökin við
Persafló? Hvaða afleiðingar hefur það á
Vesturlöndum ef kuldi og matarskortur herj-
ar á miljónir manna í Sovétríkjunum í vetur?
Svo kaldranalega sem þaö hljómar má
reikna með að einmitt þessar hörmungar
leiði fremur til hækkunar á verði matvæla en
hitt og komi þannig íslendingum til góða.
Á næstu misserum og árum verður að
skapast þjóðarsátt nýrrar ættar, sátt um að
auknum tekjum þjóðarinnar verði jafnar
skipt hér eftir en hingað til, sátt um að út-
rýma örbirgð og koma í veg fýrir fátækt, sátt
um að gera ísland að velferðarþjóöfélagi
sem rís undir nafni.
hágé.
0-ALIT
fAE) ER ALVBS, LJÓST, AD
SjALFST7ti>iSMENN W\uNU
FELLA BRApABANALÖBÍN
06 SQdRNÍWA 06 telf&AR-
SATTÍNA UTA LEÍ£>! Aþ VÍSU
EFUM 5ATTÍR Vi£>
íATTÍNA 06 FANKI ARAN6UF?
SEM 50ÓRNÍU HETUR Nfe).
feN WLÍTÍK SNVsTekfí
UN\ teAfe-t=A£> EE ALVEí,
ydST'....NEI É6RU6L-
AF'lSTVi£> ERUM SATTIR
MÍÐ BANANALOOÍH ó&é-
sAttír m£> SATTÍNA...
NEl ,n£í : Mi£> ERHM. sATTÍR
MEí> OKKUR SjAlfA;SÍMF-
SÍ«IT5BESÍSJIAENN>.. NEÍ,
AEíAKiÐ, RU6 LAD'lST ATTUR
Mi£> LRUM ósfcrÍR., vi£>
ERUAA EKKl 1 SÖÓRN) -
VW LR ALVE6 SVART...
ER tAí>, ER teA'Ki ?
8.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 30. nóvember 1990