Þjóðviljinn - 30.11.1990, Side 19
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
r
Ami Bergmann um bókmenntir
Ung stúlka í Afríku
Doris Lessing
Marta Quest
Birgir Sigurðsson þýddi
Forlagið 1990.
Það gerist hér eins og víða í
öðrum löndum: Verið getur það
verði bið á að við kynnumst verk-
um ágæts höfundar á okkar máli,
en þegar byrjað er og sæmilega
vel til tekst, þá er haldið áfram af
dugnaði. Til dæmis hefur nú um
hríð varla liðið svo ár að við ekki
fengjum nýja þýðingu á skáld-
sögu eftir Doris Lessing. I þeim
efuum hefúr Birgir Sigurðsson
verið liðtækur vel og er enn.
Sagan af Mörtu Quest er upp-
haf þroskasögu sem tengist ævi
Dorisar Lessing sjálfrar, bálkur-
inn heitir Böm ofbeldis. Marta er
upp alin á misheppnuðum bú-
garði í Sambesíu (Ródesíu), leið
hennar liggur til höfuðborgar ný-
lendunnar, hún steypir sér í
skemmtanalíf sem ber í sér tryll-
ing tengdan i'lum grun um að
Doris Lessing
heimsstyrjöld vofi yfir. Fær sína
fyrstu reynslu í pólitík (sem á eft-
ir að verða mikill þáttur í ffam-
haldi bálksins) og ástum: gefur
sig Gyðingi, kannski af samúð
með utangarðsmanni sem á undir
högg að sækja, undir lokin er hún
að gifta sig og veit varla til hvers.
Þetta er traustvekjandi raun-
sæissaga. Við trúum þeirri gagn-
rýnu skarpskyggni sem lýsir sam-
búnaði hvítra og svartra á þeim
tíma þegar jafnrétti er enn ekki
annað en ábyrgðarlaust rauðliða-
slúður - um leið og grimm spenna
vakir milli Breta og Búa þar suð-
ur í Afriku. En ekki síst trúum við
þroskasögu ungrar stúlku sem hér
er framborin. Trúum þeim undar-
legu sveiflum I huga hennar sem
gera lífið og uppákomur þess á
víxl heillandi og niðurlægjandi og
óþolandi. Doris Lessing fór af
stað sem rithöfundur með það
veganesti, ættað frá Tolstoj og
fleirum, að við erum aldrei heil
þar sem við erum, við erum eitt-
hvað annað. Og það dugði henni
svo vel til mikilla affeka síðar.
Gestaíbúðin
Villa Bergshyddan
í Stokkhólmi
íbúðin (3 herbergi og eldhús í endurbyggðu 18. ald-
ar húsi) er léð án endurgjalds þeim sem fást við list-
ir og önnur menningarstörf í Helsingfors, Kaup-
mannahöfn, Osló eða Reykjavík, til dvalar um
tveggja til fjögurra vikna skeið á tímabilinu 15. apríl
til 1. nóvember.
Umsóknir um dvöl í Villa Bergshyddan, þar sem
fram komi tilgangur dvalarinnar og hvaða tíma sé
óskað, svo og upplýsingar um umsækjanda, skal
senda til Hásselby slott, Box 520, S-162 15 Válling-
by, fyrir 28. febrúar n.k.
Ekki eru notuð sérstök umsóknareyðublöð.
Nánari upplýsingar fást hjá skrifstofu borgarstjóra,
sími 18800.
Vísnabók
Iðunnar
IÐUNN hefur gefíð út nýja
bók: Vísnabók Iðunnar sem er
bók sem böm og fúllorðnir geta
notið saman, skoðað, lesið og
raulað upp úr.
Hér er að fmna gamlar bama-
gælur, þulur og kvæði sem
geymst hafa með þjóðinni um ár
og aldir og Iifa munu áffam með
komandi kynslóðum. En í bók-
inni er einnig fjöldi nýrri vísna og
ljóða sem unnið hafa hug og
hjörtu bama á siðari árum. Hér
em vísur um vorið, sumarið,
haustið og veturinn; um jólin og
Grýlu gömlu; um litina, finguma,
dagana og margt, margt fleira.
Brian Pilkington skreytti
hveija siðu bókarinnar bráð-
skemmtilegum teikningum.
Rannsóknastyrkir
EMBO
í sameindalíffræði
Sameindalíffræðisamtök Evrópu (European Molecular Biology
Organization, EMBO), styrkja vísindamenn sem starfa í Evr-
ópu og ísrael til skemmri eða lengri dvalar við erlendar rann-
sóknastofnanir á sviði sameindalíffræði. Nánari upplýsingar
fást um styrkina I menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4,
150 Reykjavík, og þar eru einnig fyrir hendi skrár um fyrirhug-
uð námskeið og málstofur á ýmsum sviðum sameindalíffræði
sem EMBO efnir til á árinu 1991,- Umsóknareyðublöð fást hjá
Dr. J. Tooze, Executive Secretary, European Molecular Biology
Organization, 69 Heidelberg 1, Postfach 1022 40, Þýskalandi.
Límmiði með nafni og póstfangi sendanda skal fylgja fyrir-
spurnum. Umsóknarfrestur um langdvalarstyrki er til 16. febrú-
ar og til 15. ágúst, en um skammtímastyrki má senda umsókn
hvenær sem er.
Menntamálaráðuneytið,
28. nóvember 1990.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Styrkir til náms í
Danmörku, Finnlandi
og Svíþjóð
1. Dönsk stjórnvöld bjóða fram fjóra styrki handa fslendingum
til háskólanáms I Danmörku námsárið 1991-92. Styrkirnir eru
ætlaðir þeim sem komnir eru nokkuð áleiðis í háskólanámi og
eru miðaðir við 9 mánaða námsdvöl, en til greina kemur að
skipta þeim ef henta þykir. Styrkfjárhæðin er áætluð um 3.820
d.kr. á mánuði.
2. Finnsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingum til há-
skólanáms eða rannsóknastarfa I Finnlandi námsárið 1991-92.
Styrkurinn er veittur tii níu mánaða dvalar og styrkfjárhæðin er
3.000 finnsk mörk á mánuði.
3. Sænsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa (slendingi til há-
skólanáms I Svíþjóð námsárið 1991-92. Styrkfjárhæðin er
5.760 s.kr. á mánuði 18 mánuði. - Jafnframt bjóða sænsk stjór-
völd fram tvo til þrjá styrki handa (slendingum til vísindalegs
sérnáms I Svíþjóð á sama háskólaári. Styrkirnir eru til 8 mán-
aða dvalar, en skipting I styrki til skemmri tíma kemur einnig til
greina.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til mennta-
málaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 15.
janúar n.k. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Umsóknum
fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum.
Menntamálaráðuneytið,
28. nóvember 1990.
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
AB Akranesi
Fullveldisfagnaður
Fullveldisfagnaður 1. desember f Rein.
Húsið verður opnaö kl. 21.
Dagskrá hefst kl. 21.30: Guðbjartur Hannesson flytur
hátíðarræðu.RagnheiðurÓlafsdóttirsyngur við undirleik Flosa
Einarssonar. Fjöldasöngur. Liija Ingimarsdótir flytur sjálfvalið
efni. Orri Harðarson trúbador syngur og spilar. Hulda
Óskarsdóttir flytur sjálfvalið efni. Sveinn Kristinsson flytur
hugleiðingu í tilefni dagsins. Vísnalög og róleg tónlist.
Höldum daginn hátíðlegan. Sjáumst öll I Rein.
Undirbúningsnefndin.
Alþýðubandalagið, Norðurlandi vestra
Kjördæmisráðsfundur
Fundur kjördæmisráðs verður I Villa Nova, Sauðárkróki,
sunnudaginn 2. desember kl. 14:00.
Dagskrá fundarins:
Tilhögun forvals vegna alþingiskosninganna.
Stjórnin.
AB Vestfjörðum
Forval
Fyrri hluti forvals Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum vegna
Alþingiskosninga vorið 1990, fer fram 3. til 10. desember
næstkomandi.
Atkvæðisrétt i forvalinu hafa allir sem voru félagar í AB á
Vestfjöröum þegar forval fer fram. Kjörseðlar verða sendir f
pósti. Athugasemdir við félagatal, ef einhverjar eru, verða
að hafa borist uppstillinganefnd fyrir hádegi laugardaginn 1.
desember nk. Upplýsingar um félagatal er að fá hjá
formönnum einstakra félaga og hjá formanni
uppstillinganefndar, Smára Haraldssyni, sími 94-4540 og
94-4017.
Uppstillingasnefnd AB á Vestfjörðum
AB Selfossi og nágrenni
Opið hús
Opið hús að Kirkjuvegi laugardaginn
1. desember.
Margrét Frlmannsdóttir alþingismaður
mætir Stjórnln
AB Seltjamamesi
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins Seltjarnarnesi verður haldinn i
Félagsheimilinu mánudaginn 3. desember kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Svanfríður Jónasdóttir aðstoðarmaður fjármálaráðhen-a veröur
gestur fundarins.
Stjórnin.
AB Norðuriandi eystra
Kjördæmisráð
Framhaldsaöalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsii
Norðurlandskjördæmi eystra verður haldinn l Skúlagarði da
1. og 2. desember og hefst kl. 14. á laugardag.
Dagskrá og tilhögun nánar auglýst síðar.
ins I
dagana
Stjórnin
Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisraðs Alþýðubandalagsins Norðurlandi
eystra verður haldinn i Skúlagarði dagana 30. nóvember og
1. desember.
Dagskrá:
Fimmtudagur kl. 19:
Fundarsetning - skipað f starfshópa - lögð fram þingmál.
Kvöldverður.
Kl. 20: Tillögur kjörnefndar - almennar stjórnmálaumræður.
Kl. 23: Nefndir starfa.
Laugardagur kl. 9:
Umræður um stjórnmálaviðhorfið, útgáfumál og
kosningaundirbúning.
Kl. 13: Afgreiðsla mála.
Kl. 14: Aðalfundarstörf.
Þingslit áætluð um kl. 16.
Stjórnin
Laugardagsfundur ABR
Persaflóadeilan og
Palestína
Umræðufundur að Hverfisgötu 105 kl.
10 árdegis laugardaginn 1. desember.
Er styrjöld óumflýjanleg? Um hvað er
deilt?
Afstaöa Samtaka Palestínumanna til
deilunnar.
Málshefjandi er Elfas Davíðsson.
Ellas
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Föstudagur 30. nóvember 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 19