Þjóðviljinn - 02.08.1991, Blaðsíða 2
Sólarhringsskammtur banda-
rlsku dátanna er allt annaö en
lystilegur, þaö fengu mynda-
smiöur og blaðamaður Nýs
Helgarblaðs að reyna fyrir
skemmstu. I hverjum dökk-
brúnum, þykkum poka eru ná-
kvæmlega þrjúþúsund hitaein-
ingar af vígvallarfæði. Hverju
stykki er vendilega inn pakkað
(lofttæmdar umbúðir, sem eru
nákvæmlega merktar. f pokan-
um á myndinni er svonefndur
réttur 12 og samanstendur
hann af nautakjötsrétti með
alls kyns geymsluefnum til
bragðbætis, þurrkuðum ávöxt-
um, þurru kexi og linum osti.
Með þessu fylgir plastskeið og
poki með því allra nauðsynleg-
asta: öriitlum klósettpappír,
sykri, salti, eldspýtum og
ómissandi félaga bandarlskra
hermanna, jórturgúmml. Ein-
hver minntist á að pakkarnir
væru líklega leifar úr Persa-
flóastríðinu, en þess má geta f
lokin að myndasmiður og
blaðamaður mættu ekki til
vinnu í gær vegna magatrufl-
ana. Mynd: Jim Smart.
Margt smátt
gerir eitt stórt
Helgi Öm Helgason hefur
verið að leita nýrra leiða í olíu-
málverkinu. Hann málar örsmáar
myndir og sagðist hafa ákveðið
að minnka þær eins mikið og
hann sæi sér fært. Hann fæst mik-
ið við teikningu og segir að þetta
sé tilraun til þess að ná sama
frískleika í málverkið og teikn-
inguna. Myndimar em fjórtán
sinnum tuttugu sentímetrar. I
mörgum þeirra em notaðir mjög
sterkir litir. Helgi hefur verið bú-
settur í Svíþjóð í fimm ár og starf-
rækir þar vinnustofu í gömlu
þvottahúsi sem er frá þvi um sext-
ánhundmð.
Helgi var með nokkuð stóra
sýningu í áttatíuþúsund manna
borg sem heitir Södertalje og er
rétt utan við Stokkhólm. Hún
vakti þónokkra athygli og gekk
vel. Hann var mjög ánægður með
Gallerí 11 vegna þess hve vel það
væri staðsett og kvaðst hafa feng-
ið margt skemmtilegt fólk til sín
þessa daga sem sýningin hefur
hangið uppi. Nú fækkar sýningar-
dögunum hins vegar því að fram-
undan er síðasta sýningarhelgi.
Þetta er fyrsta sýning Helga síðan
hann flutti fyrir fímm ámm síðan
og án efa hafa margir áhuga á að
kynna sér hvað hann hefur verið
að gera. Látið myndir hans ekki
sleppa óséðar.
Helgi Örn Helgason með litlt
þókina sem hann ber alltaf á sér.
I hana teiknar hann hvenær sem
færi gefst. mynd: Jim Smart
Þolinmæðin
þrautir vinnur allar
Hátt í tvöhundmð klukku-
stundir geta farið í að laða fram
ljós úr svartamyrkri prentplöt-
unnar, segir Aðalsteinn Ingólfs-
son í sýnmgarskrá með messót-
intum íistakonunnar Malgorzata
Zurakowska. Sýningin verður
opnuð á tporgun íd. 16.00 í Lista-
safni ASI að Grensásvegi 16 A.
Malgorzata hefúr einu sinni áður
komtð til Norðurlanda. Hún tók
þátt í sýningu í Fredriksstad í
Noregi. Þar em oft haldnar til-
komumiklar myndlistarsýningar.
Hún sagði að sér þætti hrífandi að
koma svona langt norður á bóg-
inn.
Myndverkið sem verið er að
Malgorzata Zurakowska tekur
utan af myndum í Listasafni
ASI. mynd Jim Smart
taka utan af á ljósmyndinni er
messótinta af stærstu gerð. Malg-
orzata sagðist ekki geta gert þær
öllu stærri vegna þess hve við-
kvæma og tímafreka tækni hún
notar. Hún sagði ennfremur að
messótintugerð væri afar sjald-
gæf. Það er nokkuð um að Japan-
ír geri þetta, sagði Malgorzata, en
þeir hafa vélvætt hluta af ferlinu
og það spillir myndunum þó að
þær verði léttan í framleiðslu.
Malgorzata Zurakowska er búsett
í Kanada en pólsk að ætt og upp-
mna. Helsti munur á Póllandi og
Kanada sagði hún að væri sá að í
PóIIandi væm sterkar miðstöðvar
listamanna en hins vegar væri
þetta allt á víð og dreif í Kanada.
Hún býr í Ottawa og sagði að sú
borg væri vissulega engin mynd-
listarmiðstöð. -kj
IROSA-
GARÐINUM
HVAR ER I
HEIMI HÆLI
TRYGGT?
Hér (í Ástralíu) ganga ffam-
sóknarmenn ljósum logum.
Þjóöviljinn.
HINN SANNI
SÁLARHÁSKI
Ég þjáðist í sálinni þegar
Kanasjónvarpið var tekið og rílds-
sjónvarpið kom með þetta Iíka
drepleiðinlega efni
Morgunbiaöiö
ÞAÐ ER MUNUR
AÐ MANNSLIÐINU
Teiknimyndapersónan Andrés
Önd hefúr gengið til liðs við sjálf-
an djöfúlinn
Morgunblaöiö
ÁTTUNDA
DAUÐASYNDIN
Að sögn Jóns Baldvins vantar
það eitt í yfirlýsingar Þorsteins
(Pálssonar) að hann segi það ber-
um orðum að hann vilji ffekar
samstarf með Framsóknarflokkn-
um
DV
ÞÚ BIÐUR EKKI
GUÐ UM LÍTIÐ
Arkitektúr ætti ekki að vera
niðurdrepandi fyrir mannsaugað
Lesbók
Morgunblaösins
LIFI BYLTINGIN!
Ég skora jafnffamt á ritstjóra
Morgunblaðsins að ráða Guðrúnu
(Helgadóttur alþingismann) til rit-
starfa á Morgunblaðinu
Lesendabréf
í Morgunblaöinu.
MAÐUR GETUR
ALLTAF BLÓMUM
Á SIG BÆTT...
Þetta stöðuga vitundartvítog í
sögupersónu Gyrðis má skoða
sem hliðsjón af átökum forms og
innihalds í verkum hans, en sá er
munurinn að rithöfúndurinn þjón-
ar hvoru um sig meðan söguper-
sónan samlagast hinu óröklega og
dauðakennda...
Þjóölíf.
ALLT VILL
NÚ LIFA
Ráðherrariffildið sem blossaði
upp um helgina milli Jóns Bald-
vins Hannibalssonar utanríkisráð-
herra og Þorsteins Pálssonar sjáv-
arútvegsráðherra hefur hleypt
nýju lífi í pólitíkina
Morgunblaöiö
2 SlÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 2 ágúst 1991