Þjóðviljinn - 02.08.1991, Side 18
Meiddur Simen Agdestein
geröi jafnt viö Karpov í einvígi
Það er engum vafa undirorp-
ið að langsterkasti skákmaður
sem Norðmenn hafa eignast er
Simen Agdestein. Hann er þeirra
fyrsti og eini stórmeistari og hef-
ur þrátt fyrir stopula þátttöku á
skákmótum staðið sig frábærlega
vel.
Sanna má með gildum rökum
að hvað varði þekkingu á ýmsum
kennisetningum skáklistarinnar sé
Simen i ýmsu ábótavant en hann
bætir það upp feiknarlegri einbeit-
ingu og geysilegum baráttuvilja.
Hann hefur um margra ára skeið átt
i innri togstreitu milli skákarinnar
og knattspymunnar en á því sviði
hefur hann getið sér mjög gott orð
sem Iiðsmaður2. deildarliðsins Lyn
og norska landsliðins. Þátttakan í
knattspymunni hefur verið svo
tímafrek að Agdestein hefiir orðið
að sleppa ijölmörgum áhugaverð-
um mótum og minnstu munaði að
hann hætti við för á millisvæðmaót-
ið í Manila á Filippseyjum í fyrra.
Sem sagt: Það getur verið erfitt að
þjóna tveimur hermrn. Svo var það
í fyrstu leikjum norska boltans í vor
að Simen fékk slæmt spark og
verður ekki meira með á þessu
keppnistímabili. Þetta þótti knatt-
spymuáhugamönnum súrt í broti en
ýmsir norskir skákvinir brostu í
kampinn því nú gat Simen einbeitt
sér að skákinni. Og í síðasta mán-
uði var stofnað til fjögurra skáka
einvígis hans og Anatolij Karpovs,
fyrrum heimsmeistara. Einvígið fór
fram í Gjövik í Noregi þar sem
Norðurlandamótið og úrslitakeppni
þess var haldin 1985. Þetta einvígi
ber að skoða sem lokaæfingu Kar-
povs fyrir slaginn við Indverjann
Anand og menn þóttust skynja að
hann væri farinn að gera einhverjar
breytingar á byrjunakerfi sínu; í
nokkur ár hefúr hann ekki snert
kóngsspeðsbyijanir með hvítu en
nú einhenti hann sér út í „umræðu"
í ffanskri vöm að vísu með frekar
slökum árangri. Eða var hann að slá
ryki í augu Indverjans? Simen vann
fýrstu skákina með svörtu eftir stór-
skemmtileg vopnaviðskipti en Kar-
pov jafnaði metin með sannfærandi
sigri í 2. skák. Sú þriðja varð jafnt-
efli eftir 88 leika þæfing og þeirri
Qórðu lauk einnig með jafntefli eft-
ir miklar sviptingar. Niðurstaðan
varð því 2:2 sem styrkti Norðmenn
enn frekar í trúnni á Agdestein.
Sumir þeirra bentu á að engum
skákmeistara hafi tekist að komast
hjá tapi í einvígi við Karpov nema
Kasparov. Þetta er að vísu ekki rétt
því Petrosjan hélt jöfnu við Karpov
í Milanó 1975. Hinsvegar man ég
ekki eftir því að Karpov hafi tapað
fyrir ffönsku vöminni áður a.m.k.
ekki í opinberri keppni eftir 1970.
Lítum á fyrstu skák einvígisins sem
er að sumu leyti dæmigerð fyrir
báða skákmennina. Agdestein er að
venju útsjónarsamur í miðtaflinu
og ÍCarpov reynir að kreista vinning
út jafnteflisstöðu en gengur feti of
langt. Sviptingamar á köflum em
hreint augnayndi.
1. einvígisskák:
Anatolij Karpov - Simen Ag-
destein
Frönsk vörn
1. e4 e6
2. d4 d5
3. Rc3 Rc6
(Þetta sjaldséð afbrigði hefuir
aldrei notið mikilla vinsælda m.a.
fyrir tilverknað 9. einvígisskákar
Fischers og Petrosjan í Buenos Air-
es 1971).
4. Rf3 Rf6
5. Bd3
Helgi
Ólafsson
(Fischer lék 5. exd5 exd5 6.
Bb5).
5... Rb4
7. e5 Rd7
9. 0-0 0-0
11. dxc5 Rxc5
13. Dd2 a5
15. Bb5 Ra7
17. Bb5 Ra7
19. Bfl Hac8
6. Bg5 Be7
8. Bxe7 Dxe7
10. Hel c5
12. a3 Rc6
14. De3 b6
16. Bfl Rc6
18. Hadl Bd7
20. Hd4 fS
(Það er ekki að sjá að svartur
hafi mikið að óttast þó hrókurinn
taki sér stöðu á fjórðu reitaröðinni.
Nú myndast ýmsir „ffanskir" veik-
leikar í stöðu svarts sem hvítur
hefði átt að geta notfært sér betur).
21. exf6 Dxf6 22. b4 axb4
23. axb4 Rb7 24. Ba6?
(Karpov uggir ekki að sér. Mun
betra var 24. Re4! t.d. 24... De7 25.
Reg5).
24... Rc6!
a b c d e f g h
(Hugmyndin með þessum bráð-
snjalla leik er 25. Bxb7 Rxd4 26.
Rxd4 Hxc3! 26. Dxc3 Dxf2+ 27.
Khl Dfl+! og mátar).
25. Re4 De7 26. Reg5
(Karpov gefur skiptamun um
stundarsakir. Ekki 26. Bxb7 Rxd4
27. Rxd4 Hc7! o.s.frv).
26.. . Rxd4 27. Rxd4 Hb8
28. Rgxe6 Bxe6 29. Rc6!
(Skemmtilega leið til að jafna
liðsmuninn).
29.. . Dd6 30. Rxb8 Rd8!
(An þessa leiks væri svartur
glataður. Og nú er riddarinn á b8 í
tilvistarkreppu).
31. De5 Dxb4 32. Rc6! Rxc6
33. Dxe6+ Kh8 34. Bd3 Dc5
(Omistureyknum hefur létt og
sviptingamar sem hófust með 24. ..
Simen Agdestein Anatolim Karpov
Rc6 hafa leitt til ffemur jafnteflis-
legrar stöðu).
35. De2 Rb4
36. Hdl Hc8
37. Hd2 Dc3
38. g3 Rxd3
39. cxd3!?
(39. Hxd3 Dxc2 40. Dxc2 Hxc2
41. Hxd5 leiðir auðvitað til jafhtefl-
is. Þó þessi staða geti ekki talist
agnarögn betri á Karpov er hann
samt að reyna að vinna).
39.. . b5
40. Hb2 b4
41. De6 Hf8
42. Dd6 He8
43. He2! Hg8
44. Dxd5 h6
45. Kg2 b3
46. h4 Ilb8
47. Dd6 Dc8
48. Hb2 Db7+
49. Kh2 He8
50. d4 D13
51. Db4
(51. Df4 leiðir til jafnteflis. Það
verður að teljast mikil bjartsýni hjá
Karpov að tcfia þessa stöðu til
vinnings með vaðandi frípeð svarts
áb3).
51.. . He2
52. Hxe2 Dxe2
53. Df8+ Kh7
54. Df5+ Kg8
a b c d e f g h
55. d5??
(En hér teygir Karpov sig of
langt. Hann átti 1/2 klst. eftir en
Agdestein var kominn í tímahrak.
Það er ekkert meira út úr skákinni
að hafa en jafntefli með 55. Dc8+).
55... Dc2!
(Agdestein nýtir tækifæri sin út
í ystu æsar. Drottningin skýlir
kóngnum fyrir skákum á skálínunni
bl - h7).
56. Df3 b2
57. d6 bl(D)
58. d7 Dbdl
59. DaE+ Kh7
- og Katpov gafst upp því effir
60. d8(D) kemur 60. .. Dxf2+ 61.
Kk3 (eða 61. Dg2 Ddgl+! og vinn-
ur) Ddfl+ 62. Kg4 Df5 mát.
Fækkar í hópnum
3 sveitir hafa tryggt sér sæti í 8
sveita úrslitum i Bikarkeppni
Bridgesambandsins. Þær eru:
Sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar,
frá Siglufirði, sem sigraði sveit
Sigurðar Skúlasonar, Hornafirði,
mjög örugglega. Sveit mynd-
bandalagsins Reykjavík, sem
sigraði sveit Guðlaugs Sveinsson-
ar, Reykjavík, einnig nokkuð ör-
ugglega. Og sveit Sigmundar
Stefánssonar, Reykjavík, sem
sigraði Fasteignaþjónustu Suður-
nesja, í hörkuleik. Er upp var
staðið skildu að 4 stig.
Ólokið er þá eftirtöldum leikjum:
Sveit Dodda Bé, Akranesi mætir
Tryggingamiðstöðinni Reykjavík
16. ágúst. Sveit Ævars Jónassonar,
Tálknafirði mætir Landsbréfum,
Reykjavík 10. ágúst. Samtex,
Reykjavík mætir Eiríki Hjaltasyni,
Kópavogi 16. ágúst. Ómar Jónson,
Reykjavík mætir Roche, Reykjavík
18. ágúst, en ekki er vitað um leik-
dag hjá sveitum Lúsifers og Bem-
ódusar Kristinssonar, Reykjavík.
Dregið verður í 3. umferð að öllum
þessum leikjum loknum.
Eftirtaldir spilarar hafa skorað flest
bronsstig í Sumarbridge í sumar
(mánudaga til fimmtudags):
Sigurður B. Þorsteinsson 304
Gylfi Baldursson 255
Jens Jensson 173
Jón St. Gunnlaugsson 169
Ragnheiður Tómasdóttir 166
Ólína Kjartansdóttir 157
Cecil Haraldsson 147
Guðlaugur Sveinsson 147
Dröfn Guðmundsdóttir 146
Lárus Hermannsson 135
Samtals hafa yfir 400 spilarar hlotið
stig á spilakvöldum í Sumarbridge í
Reykjavík, það sem af er. Má búast
við að þátttaka taki að aukast til
muna, það sem eftir lifir af spila-
mennsku.
Dagblaðið Vísir (DV) mun gangast
fyrir 80 ára afmælismóti, laugar-
daginn 5. október. Mótið er öllum
opið. Spilað verður um vegleg pen-
ingaverðlaun. Fyrirkomulagið
verður barometer. Stefnt er að þátt-
töku 38 para og verða spiluð 2 spil
milli para. Spilamennska hefst kl.
12 á hádegi. Verðlaunin verða: 70
þúsund fyrir 1. sætið, 40 þúsund
fyrir 2. sætið og 30 þúsund fýrir 3.
sætið. Spilað verður í Sigtúni 9 og
eru keppendur beðnir um að skrá
sig sem fyrst, því búast má við að
mótið fyllist, fyrr en varir. Stjóm-
andi verður Isak Öm Sigurðsson en
útrcikning annast Kristján Hauks-
son. Skráð er I Sigtúni.
Evrópusambandið er þessa dagana
að undirbúa upptöku svokallaðra
Evrópustiga, sem gefin eru (verða)
fyrir árangur manna í tilgreindum
mótum á vegum Bridgesambands-
ins. Árlega verður úthlutað 400 m
stigum, en heimild hefúr fengist frá
Evrópusambandinu til að bakreikna
síðustu 3 ár. Til þessa hafa þessi stig
eingöngu verð gefin fyrir landslið
okkar (og væntanlega árangur þar)
en með þesari aðgerð erum við
formlega komnir í Evrópubanda-
lagið, hvað varðar meistararstiga-
skráningu einstakra keppnisspilara
hér á Iandi.
Að mati umsjónarmanns, er hér um
eðlilega þróun að ræða. Við höfum
tekið þátt í starfi Evrópusambands-
ins síðustu 40 árin, eða frá upphafi
stofnunar Bridgesambands Islands.
Með breyttri þróun í Evrópumálum,
sem vonlaust er að afneita með öllu,
er nánara samstarf þjóðríkjanna
sem búa Evrópu nánast eðlilegasti
hlutur í heimi. Þessi „kvóti“ af stig-
um, 400 stig, er sá sami og aðrar
þjóðir veita sínum spilurum árlega
og hafa gert um árabil. Innan 10
ára, ætti okkar þröngi og sterki hóp-
ur „toppspilara", sem sífellt berst
innbyrðis um sigurlaunin í íslensk-
um keppnisbridge, að hafa heild-
stæða mynd af Evrópustigum, sem
stæðu jafnfætis við bestu spilara
álfunnar. Innan 25 ára, ætti því sti-
gefsti spilarinn okkar að vera orð-
inn efstur á þessum lista. Það er að
segja, ef menn breyta þessu þá ckki
í Evró-amerísk stig. Það tæki þá
önnur 50 ár, að ná markmiðinu. Það
er nú það.
Ljóst er, að átaks er þörf innan
Bridgesambandsins og hreyfingar-
innar í heild, ti! að stuöla að cflingu
og útbreiðslu bridge um landið. Eft-
ir samtal við Elínu Bjamadóttur hjá
BSI, hefur þessi skoðun mín styrkst
til muna. Víða um landsbyggðina
eru hálfdauð og aldauð félög, þar
sem félagar hafa ekki náð að endur-
nýja félagsskapinn. Þó nokkrar að-
ferðir eru til, sem beita má í þessum
efnum, en mest um verð er þó að
umræðan sé til staðar. Heíur þetta
má
Áströlsk kímnigáfa er einstök. Til
að mynda í bridgeleiknum, eru þeir
með orðatiltæki, sem hljómar eitt-
hvað á þessa lund: Betra er að kíkja
en svína.
Að kíkja í eiginlegri merkingu, er
alls ekki bannað í bridge. En í óeig-
inlegri merkingu hefur þetta sagn-
orð allt aðra merkingu í íþróttinni.
Lítum á dæmi. Sagnhafi er úrvals-
spilarinn. Ron Hutchison frá Sydn-
ey.
;G43
:87543
" KDG4
>7
108432
G92
’ Á63 .
.K86
97
l ÁK6
' 109852
; D10952
L ÁDG65
D10
Sagnir gengu:
Vestur Norður Austur Suður
— Pass 1 spaði
Pass 1 grand Pass 2 hjörtu
Pass 4 hjörtu Pass Pass
Pass
Utspilið var laufakóngur. Við sjáum
að spilið stendur og fellur með
hjartaíferðinni. Líkumar segja okk-
ur, að svíning fyrir hjartakóng gefúr
betri möguleika. En Hutchison er
ekki Ástrali fyrir ekki neitt. Tók út-
spilið á ás og spilaði strax lágum
tígli. Austur stakk inn kóng, átti
slaginn og spilaði laufi til baka.
Trompað og tíguldama. Austur tók
á ásinn og skilaði enn laufi. Tromp-
að og nú kom lykilspilamennskan
hjá andfætlinginum okkar. Spaðad-
ama. Hleypt yfir á kóng í Áustur,
sem skilaði spaða til baka. Ásinn
átti slaginn. Og nú taldi okkar mað-
ur á fingmm sér; ás og kóngur í tígli
og spaðakóngur hjá Austur, gerir 10
hápunktar. Með hjartakónginn
myndi Austur hafa vakið í 1. hendi.
Ergó: Kóngurinn í hjarta er í Vestur.
Og okkar maður spilaði hjarta úr
blindum og stakk upp ás. Slett stað-
ið.
Sagnhafi ,,kíkti“ svo sannarlega í
þessu spili. í óeiginlegri merkingu,
að sjálfsögðu...
BRIDGE
Ólafur
Lárusson
18.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 2. ágúst 1991