Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1995, Page 25
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995
33
pv__________________Menning
Oft var fundað í Lindarbæ á árum áður, stundum dansað, slegist, stigið
í væng og kysst. Salurinn og sviðið eins frá einni athöfn til annarrar
hvort sem ræðumenn voru að gera sig til fyrir hópi fólks, drengur að fara
á fjörurnar við stúlku í sparifötunum eða kerling að leggja snörur fyrir
karl með hvítt um hálsinn. Nú eru sýnd þar leikrit og sviðið aldrei eins
frá einni uppákomu til annarrar. Þessa stundina er Ijótt sviö í miðjum
salnum utan um ljótt fólk og ljót orð. Engu að síður er þar allt við hæfi;
rétt orð sem hæfa umhverfi og því andrúmslofti sem þar á að ríkja; góð-
ur leikur og afbragðs túlkun á raunveruleikanum þá og nú og kannski
líka á morgun.
Það kann að vera að einhverjum þyki verk Maxíms Gorkí, í djúpi dag-
anna, sem frumsýnt var fyrir hundrað árum ekki eiga erindi til okkar hér
í ljúfu meðvitundarleysi velferðarinnar. Því miður er það ranglega álykt-
að; raun og vera leiksins gæti alveg eins verið íslenskur veruleiki dags-
ins. Kannski ekki veruleiki íslenskra drykkjumanna því þeir eru sjálf-
stæðir menn sem búa einir hér og hvar og hvergi; miklu fremur raunveru-
leiki eiturlj'íjafólksins sem dregur sig saman í byggingum sem ekki feng-
ist leyfi til að stunda bifreiðaviðgerðir í á sólarbjörtum degi hvað þá ann-
að, en þessi hópur er nær því að vera félagshyggjufólk í líkingu við ....
Eitthvað í þessa veru var ég að
hugsa þegar ég gekk af sýningunni
og út í veturnóttakyrru hins fimm-
tuga lýðveldis. Ég hélt úti til klukk-
an hálffjögur um morguninn og
rölti um yíirfullar miðbæjargötur
og kakkfullar krár og kaffihús. Ég
hitti ölvaðan æskulýð og kóf-
drukkna karla og kerlingar á miðjum aldri og þaðan af eldri, ég hlustaði
á ræður og ávörp og andvörp og örvæntingarfull tilboð um ekki neitt.
Mér birtust ef til vill ekki nákvæmlega sömu myndirnar og í Gorkí-leikn-
um og ég heyrði ekki sömu orðin og þar voru sögð; en hvort tveggja var
af sömu ætt og uppruna og ekkert kom á óvart.
Utan eitt.
í allmörg ár stundaði ég vinnu í miðbænum. Fyrir um það bil áratug
tók ég eftir því í fyrsta sinn að maður gekk á milh ruslafata utan í ljósa-
staurum og leitaði sér fanga. Oft sá ég hann fiska upp part af pylsu-
brauði eða samloku sem hann gleypti jafnóðum en stöku sinnum bar svo
vel í veiði í veröld hans að hann gat ekki borðaö allt sem aflaðist og safn-
aði sér forða í plastpoka. Þessi maður var einn við iðju sína í nokkra
mánuði en um það bil ári eftir aö ég sá hann fyrst voru þeir orðnir þrír
sem áttu kviðfylli sína undir innihaldi ruslafatanna sem á var skrifað
„Hrein torg - Fögur borg!“ - en það er allt önnur saga.
í dag, í mjúkri auðsældinni, skipta þeir tugum sem eiga sitt undir af-
gangi ofgnóttarfólksins. Þeir sem hafa brynjað sig fyrir aughti borgar-
anna stunda iðju sína í björtu og taka það sem matarkyns er, hinir, sem
neyðin er að hrekja í fyrstu leiðangrana, koma á vettvang á meðan nótt-
in er myrk og safna plastflöskum og bjórdósum og stinga upp i sig bita
og bita þar sem ljósin hafa slokknað á staurunum; elliiífeyrisþegar og
öryrkjar ársins 1995; karlar úr Mýrdalnum eða norðan úr Fljótum, gaml-
ar konur af Héraði ellegar Ljárskógarheiði og nýorðnir íslendingar utan
úr heimi vesaldarinnar komnir í allsnægtir á ljósastaurum draumalands-
ins!
Þetta fann ég og þetta sá ég eftir sýninguna og það kom mér á óvart í
nótt borgarinnar. En ég veit ekki endilega af hverju orðin, sem Gorkí
leggur einum utangarðsmanni í munn undir lok leiksins og í allt öðru
samhengien líf mitt var þessa nótt, hljómuðu fyrir eyrum mér á göngunni:
„Þú valdir þér einfaldlega vont eintak sem félaga!"
Frétir
Rekum útlendinga
ekki í hjónaband
„Það er alltaf eitthvaö um að að fá dvaiarleyfi sitt ekki fram-
fólk sé að velta þessu fyrir sér en lengt en þvertekur fyrir aö þetta
umhverfið er ekki svo hart hér sé í stómm stil. Sambúö sé það
að þetta sé í tniklum mæli. Við rnikils inetin i islensku þjóðféiagi.
rekum fólk ekld í hjónaband. „Það kemur alltaf fyrir að fólk
Sambúð erþað raikið viöurkennd í stuttri dvöl vill vinna og þá er
hjáokkuraðfólkþarfekkistanda því bent á að það verði að fara
í svona löguöu en við könnumst utan til að sækja um dvalar- og
við þennan orðróm," segir Jó- atvinnuieyfi erlendis frá. Þaö eru
hann Jóhannsson, forstöðumað- ailtaf einhveijir sem koma og
ur Útlendingaeftirlitsins. segjast vera ástfangnir, vilja fara
Jóliann segir að starfsmenn í sambúð og sækja um atvinnu-
Útlendingaeftiriitsins hafi heyrt leyft á þeim grunni. Vissulega
þann orðróm að útlendingar gift- hefur það áhrif og alvörusambúð
ist íslendingum til að fá eða fram- er metin,“ segir Jóhann og bætir
lengja dvalarleyfi sitt eða at- viö að útlendingar þurfi i það
vinnuleyfi hér á landi. Hann seg- minnsta að skrá sig í sambúö hjá
ir að það sé einkum í þeim tilfell- Hagstofunni þannig að einhver
um þar sem útlendingarnir óttast alvara sé þar að baki. -GHS
Atburðir
Úlfar Þormóðsson
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200
Stórasviðiðkl. 20.00.
STAKKASKIPTI
eftir Guðmund Steinsson
í kvöld, föd. 13/10, Id. 21/10, föd. 27/10.
ÞREK OG TÁR
ettir Ólaf Hauk Símonarson
7. sýn. Id. 14/10, uppselt, 8. sýn. 15/10, upp-
selt, 9. sýn. fíd. 19/10, uppseit, föd. 20/10,
uppselt, fimmtud. 26/10, aukasýn., laus sæti,
Id. 28/10, uppselt, fid. 2/11, Id. 4/11, sud. 5/11.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
Frumsýning Id. 21/10 kl. 13.00,2. sýn. sud.
22/10 kl. 14.00,3. sýn. sud. 29/10 kl. 14.00,
4. sýn.sud. 29/10 kl. 17.00.
Litlasviðiðkl. 20.30.
SANNURKARLMAÐUR
eftirTankred Dorst
4. sýn. í kvöld, föd., uppselt, 5. sýn. mvd.
18/10, nokkur sæti laus, 6. sýn. Id. 21/10,7.
sýn. sud. 22/10,8. sýn. 26/10,9. sýn. sud.
29/10.
Smiðaverkstæðið kl. 20.00
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
Ld. 14/10, uppselt, sud. 15/10, uppselt, fid.
19/10, nokkur sæti laus, föd. 20/10, uppselt,
mvd. 25/10, Id. 28/10.
Miöasalan er opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 13-18 og fram aö sýningu sýn-
ingardaga. Einnig símaþjónusta frá kl. 10
virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Fax: 561 1200
Sími miöasölu: 5511200
Simi skrifstofu: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ!
Tilkyimingar
Valgerður sýnir í Hafnarborg
Sýningu Valgeröar Hauksdóttur í Hafn-
arborg lýkur mánudaginn 16. október en
hún hefur staöiö frá 30. september. Á
sýningunni gefur að líta milli fimmtíu
og sextíu verk unnin á pappír. Sýningin
er opin kl. 12-18.
Byssusýning í Laugardalshöll
Helgina 14. og 15. október veröur byssu-
sýning í Laugardalshöll. Þar verður sam-
ankominn mikill fjöldi skotvopna af öll-
um stærðum og geröum. Þar gefur aö líta
ómetanlega dýrgripi og fomgripi ásamt
veiðibyssum af öllum gerðum og stærð-
um. Þama veröa samankomnir helstu
byssusafnarar landsins, einnig Lögregl-
an og Landhelgisgæslan. Sportvömversl-
anir sýna vaming sinn og skotfélög verða
á staðnum. Sýningin er opin kl. 9-18 báða
dagana.
Kvennadeild Barðstrendinga-
félagsins
heldur basar, kaffisölu og happdrætti í
safnaðarheimili Langholtssóknar sunnu-
daginn 15. október kl. 15. Ágóði rennur
til starfs fyrir aldraða Barðstrendinga.
Nýr veitingastaður í
Bankastræti
29. september sl. opnaöi veitingastaður-
inn Atias við Bankastræti. Yfirmat-
reiðslumenn Atlas em þeir Þórður
Bragason og Jón Arnar Guöbrandsson.
Þeir hafa undanfarið starfað erlendis.
Matseðill er mjög fjölbreyttur og er boðið
upp á úrval ljúffengra rétta. Atlas býður
einnig upp á tvo veislusah, annan fyrir
smærri hópa og hinn tekur allt að 140
manns. Borðpantanir í s. 551 9900.
Tapaðfimdið
Kettlingurfannst
í Árbæjarhverfi
Gulbröndóttur kettlingur með hvíta sokka
á loppum fannst í Árbæjarhverfi. Upplýs-
ingar í s. 587 4612 eftir kl. 19.
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra svið kl. 20.30.
Rokkóperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
eftir Tim Rice og Andrew
Lloyd Webber
Laud. 14/10, miðnætursýning kl. 23.30, örfá
sæti laus, miövikud. 18/10, örfá sæti laus,
40. sýn. sunnud. 22/10, kl. 21.
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Laud. 14/10 kl. 14, uppselt, sunnud. 15/10
kl. 14, uppseit, sunnud. 15/10 kl. 17, upp-
selt, lau. 21/10 kl. 14, fáein sæti laus,
sunnud. 22/10 kl. 14, fáein sæti laus, og kl.
17. fáelnsæti laus.
Litla sviðkl. 20:
HVAÐ DREYMDI ÞIG,
VALENTÍNA?
eftir Ljúdmílu Razumovskaju
Föstud. 13/10, uppselt, laud. 14/10, uppselt,
sunnud. 15/10, uppselt, fim. 19/10, uppselt,
föstud. 20/10, uppselt, laud. 21/10, uppselt.
Stóra svið kl. 20:
TVÍSKINNUNGSÓPERAN
Gamanleikrit með söngvum eftir
Ágúst Guðmundsson
3. sýn. fös. 13/10, rauð kort gilda, fáein
sæti laus, 4. sýn. flm. 19/10, blá kort gilda,
5. sýn. lau. 21 /10, gul kort gilda.
Stóra svið kl. 20:
VIÐ BORGUM EKKI,
VIÐ BORGUM EKKI
eftir Dario Fo
Laugard. 14/10, fös. 20/10.
Samstarfsverkefni:
Barflugurnar sýna í veitingastofu kl.
20.30.
BARPAR
■ eftir Jim Cartwright
Frumsýning lau. 21/10, sýningfös. 27/10,
lau. 28/10.
crTórtleikaröð LR:
hvert þriðjudagskvöld kl. 20.30.
Þri. 17/10, Sniglabandið, afmælistón-
leikar, miðav. 800 kr„ þri. 24/10.24
hópurinn miðaverð 800.-
Tónleikar á iitla sviði:
Jónas Árnason og Keltar
mán. 16/10 kl. 20. Miðaverð 1.000.
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
13-20 nema mánudaga frá kl. 13-17,
auk þess er tekið á móti miðapöntun-
um i sima 568-8000 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar,
frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
i ÍSLJENSKA ÓPERAN
t ___Jiiil
Sími 551-1475
Sýnlng í kvöld föstud. 13/10, laugard.
14/10.
Sýnlngar hefjast kl. 21.00.
Miðasalan er opin kl. 15-19
daglega nema mánudaga,
sýningardag til kl. 21.
SÍMI551-1475,
bréfasimi 552-7384.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
Safnaðarstarf
Langholtskirkja: Aftansöngur kl. 18.00.
Laugarneskirkja: Mömmumorgnar kl.
10-12.
á’fclHfl II
DV
1 é W iii
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín.
iíj Fótbolti
_2j Handbolti
3) Körfubolti
; 4j Enski boltinn
5 [ ítalski boltinn
6.1 Þýski boltinn
■ 71 Önnur úrslit
8 NBA-deildin
lj1 Vikutilboð
stórmarkaðanna
:”2] Uppskriftir
1| Læknavaktin
_2J Apótek
3 | Gengi
Dagskrá Sjónvarps
: 2 \ Dagskrá Stöövar 2
: 3 [ Dagskrá rásar 1
]4j Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
51 Myndbandagagnrýni
6 [ ísl. listinn
-topp 40
- 7j Tónlistargagnrýni
8 Nýjustu myndböndin
1J Krár
2 j Dansstaðir
3 SLeikhús
41 Leikhúsgagnrýni
L5J Bíó
_6j Kvikmyndagagnrýni
íMMíámá
mer
lj Lottó
2j Víkingalottó
3 Getraunir
AIIIH
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín.