Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1995, Page 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1995
Spurningin
Lesendur
Ertu búin(n) að setja vetrar-
dekkin undir bílinn?
Þyrlur við umferðargæslu
Hermann Þór Baldursson skrifar:
Nýlega kom fram í DV það álit
viðmælanda blaðsins að notkun
þyrlu í eltingarleik lögreglu við öku-
fanta komi að litlu gagni og hættuá-
stand sé oft afstaðið þegar þyrla
kemst í loftið. Ef einhver yfirmaður
lögreglunnar heldur þessu fram er
sú stofnun aftar á merinni en ég
hélt. - Var ekki lögreglan að auglýsa
það með allnokkrum fyrirgangi að
hún hefði þyrlu til umráða og átti að
vera mikill „krimmaskelfir"?
í flugtímaritum birtast m.a. grein-
ar um lögregluþyrlur. Samkvæmt
því sem ég les er einna mesta nota-
gildið af þyrlum lögreglu þegar ver-
ið er að elta bíla eða leita að þeim.
Hindranir eru skipulagðar af
þeim lögreglumönnum sem fljúga
yfir svæðið þar sem atburðirnir
eiga sér stað. Þyrla á að vera komin
á loft og fram úr lögreglubílunum á
örfáum mínútum. Fróðlegt væri að
heyra frekari skýringar lögreglu.
Magnús Valþórsson rafvirki: Nei,
og það stendur ekki til. Ég er bara
með jeppadekk á mínum fjallabíl.
I minningu tveggja sela
Guðmundur Gunnarsson og Guð-
mundur Björgvinsson, Flateyri,
skrifa:
Þaö bar til tíðinda fyrir vestan
einn kyrrlátan haustdag að skyndi-
lega rofnaði kyrrðin. í skjóli nætur
höfðu komið norðan yfir heiði
nokkrir svangir „skurðskriðlingar"
í leit að fljúgandi fæðu. Skriðu þeir
um tún og skurði fram undir birt-
ingu í bið eftir að fiðraðir vinir okk-
ar úr dýraríkinu tylltu sér á túnin
til að nærast.
Það var ekki að spyrja að, um leið
og flðruðu vinir okkar settust á tún-
ið, áttuðu þeir sig á mistökunum.
En of seint. Kyrrðin rofnaði svo um
munaði, hávaðinn var ægilegur og
kom úr öllum áttum, og margir vin-
ir okkar úr dýraríkinu féllu í val-
inn.
Skarkalinn barst vítt um fjörðinn
og til eyrna okkar þar sem við lág-
um á steinum rétt innan við brúna
yfir fjörðinn, þar sem við biðum eft-
ir morgunskímunni, til þess að geta
rennt okkur til matfanga fram í
Vöðin, þar sem gnógt er af fiski og
kræklingi.
Við höfðum nýverið lokið við að
matast og brölt aftur á steinana okk-
ar góðu er skyndilega kom eitt af
þessum marglitu hraðfara tækjum
norður yfir brúna og stoppaði. Tveir
tvífætlingar birtust sjónum okkar.
Það var svo sem ekkert nýtt. Marg-
ir komu þar í sumar til að veiða sil-
ung, eins og okkur þykja þeir nú
góðir, og aðrir bara til að horfa, og
okkur fannst oft að tvífætlingarnir
horfðu á okkur með „mannsaug-
um“. Einkum þegar þeir voru með
aðra og litla tvífætlinga með sér.
Rétt eins og litlu selkópamir okkar
eru.
En þessir tvífætlingar voru öðru-
vísi. Þeir eru með eitthvað langt
meðferðis sem þeir benda á okkur
með. Ég lyfti höfðinu í undrun og
forvitni, þetta höfðum við aldrei séð
fyrr. En æ, æ, æ, hvers vegna
hlunkast leikfélagi minn niður og
dettur af steininum í sjóinn. Ég verð
að aögæta hvað kom fyrir. Ég sting
mér í sjóinn og renni mér hratt í átt-
ina til hans. Ég kem upp til að anda
og lít í kringum mig til að gá að leik-
félaga mínum. Ég sé tvífætlingana á
iði og einn bendir á mig með þessu
langa, æ, æ, æ.
Sagan er ekki á enda. Tvífætling-
ur einn, sem svo oft í sumar naut
þess að stoppa á veginum yfir fjörð-
inn til að fylgjast með fugla- og dýra-
lífinu, rétt eins og hann hefur gert
alla ævi við fjörðinn friösæla, bað
vin sinn um að rita litla minningar-
grein um okkur selkópana á steinin-
um, sem hann svo stoltur sýndi litlu
tvífætlingunum sínum á ferð sinni
um fjörðinn friðsæla.
Nú er skarð fyrir skildi í dýrarík-
inu við fjörðinn. Hetjan Njáll og vin-
urinn Messersmith voru ekki að
veiða seli sér til matar. Nei, þeir
skildu okkur eftir til að verða fæða
hrafna, og til vansa við umhverfið,
og svo ekki sé minnst á: til hryggð-
ar litlu tvífætlingunum sem horfðu
á forvitnum augum, haldandi í
höndina á afa, sem les skýrt letrað:
Öll meðferð skotvopna í Önundar-
firði er óheimil nema með leyfi
landeigenda.
Bingólottó á laugardögum
- alveg óþolandi
„Eg lyfti höfðinu í undrun og forvitni
V.S.P. skrifar:
Ástæðan fyrir því að ég finn mig
knúinn til að skrifa þetta bréf er sú
að mér og fjölskyldu minni finnst al-
görlega óþolandi hvernig farið er
með besta sjónvarpstímann á iaug-
ardagskvöldum af Stöð 2. - Á tíman-
um frá kl. 20 til 21.30, u.þ.b. þegar
eitthvert skemmtilegt léttmeti eða
spennandi fyrir alla fjölskylduna
ætti að vera á dagskrá (líka fyrir þá
sem eiga að fara í bólið milli kl. 21
og 22), þá er sýndur þátturinn
Bingólottó. Þáttur sem þarf að
kaupa aðgang að. Fyrir þá sem ekki
hafa gaman af bingói og þá sem ekki
vilja borga fyrir að skemmta sér fyr-
ir framan sjónvarpið (annað en
áskrift) er þetta óþolandi, að mínu
mati.
Þið, stjórnendur dagskrár Stöðvar
2. í guðanna bænum kanniö hvort
ekki séu fleiri á sama máli og við
áður en aðrar stöðvar hirða frá ykk-
ur áskrifendur í stórum stíl, því það
er jú um helgar sem maður sækir
fyrst og fremst í afþreyingarefni
ljósvakamiðlanna. - Munið Stöð 3 ...
Víst má telja að einhverjir hafi
gaman af áðurnefndum þætti en
maður: Ég er með heilsársdekk.
Rósa Haraldsdóttir húsmóðir: Ja,
ég gerði það fyrir viku. Ég geri það
yfirleitt tímanlega.
Júlíus Marteinsson verslunar-
maður: Ég er með heilsársdekk.
Auður Kolbeinsdóttir verslunar-
stjóri: Nei, en ég ætla að gera það
fljótlega.
gleymið því ekki að láta sölu mið-
anna ekki blekkja ykkur því það er
háttur bingólottófólks að sitja - ekki
með færri en 2-3 spjöld hver.
Sá tími sem gæti hentað betur er
einmitt fyrr um daginn, eða þá á
sunnudagskvöldi, en alls ekki á
þeim tíma sem fjölskyldan hugsan-
lega sest öll fyrir framan sjónvarpið
eftir kvöldmat. - Eitt er víst: Á mínu
heimili er það ekki lengur Stöð 2
sem verður fyrir valinu á þeim
tíma, á meðan núverandi fyrir-
komulag gildir.
Hafsteinn Númason bifreiða-
stjóri: Nei, ég er ekki búinn að því.
Víst má telja að einhverjir hafi gaman af Bingólottó -
að vera á laugardagskvöldi, að mati bréfritara.
en þátturinn ætti ekki
Neysluskattar
þeir bestu
K.Þ.H. skrifar:
Nýkominn úr ferðalagi til Ba-
hamaeyja þar sem maður litaðist
nú nokkuð um milli sól- og sjó-
baðanna, finnst mér ég þurfa að
segja frá því sem nlér fannst til
fyrirmyndar þar og allir virtust
mjög ánægðir með. Þetta er varð-
andi skattlagningu þar syðra.
Allir skattar eru teknir inn á
neyslunni, verðlag er fremur
hátt, en menn ráða líka sparnað-
inum sjálfir meö vöruvalinu.
Engin eftirmál með ógoldnum
opinberum sköttum. Ég sé ekki
betur en neysluskattar séu þeir
bestu sem völ er á af sköttum að
vera.
Kjaradómi
þakkað
bljúgum rómi
Ragnar skrifar:
Við kvökum og þökkum þér,
Kjaradómur, fyrir að brjóta odd
af oflæti þínu og senda frá þér
forsendurnar traustu og hald-
góðu. Við þökkum þér líka fyrir
að gefa honum Davíð Oddssyni
tækifæri til að þakka þér bljúg-
um rómi fyrir dæmalaust gott og
vel unnið starf. Megir þú áfram,
góði Kjaradómur, dafna, og safiia
í sarpinn traustum lagaákvæð-
um til að byggja á næsta dóm. -
Fyrir okkur smælingjana, sem
vitum að þú ert einn sem öllu
ræður og gerir góðverk þín í
hljóði. Því viljum við eiga þig
einan að trúnaðarvini.
Moldarhóll við
Kötlufellið
K.S. skrifar:
í júlí sl. var byrjaö á búa til
leiksvæði barna á vegum borgar-
innar við Kötlufell í Breiðholt-
inu. Sett voru niður leiktæki og
síöan búnir til nokkrir moldar-
reitir og moldarhóll, sem plantað
hefur verið í trjám. Girt var í
kringum hluta af þessum reitum.
Ekki hefur þó betur tekist til en
svo aö börn vaða þarna í mold-
inni og koma með hana inn í
stigahúsin. Kvartað hefur verið
viö umsjónarmann þessara fram-
kvæmda hjá borginni, en í engu
sinnt, þótt við íbúar sitjum uppi
með óþægindi og skaða af þess-
um einkennilegu framkvæmd-
um.
Ódýrast í
Bandaríkjunum
Sighvatur hringdi:
Ég þurfti ekki að láta segja
mér það, vegna þess að ég hefi
svo oft farið til Ameríku, að í
Bandaríkjunum er langsamlega
hagkvæmast að vera sem ferða-
maður. En það er ekki vist að all-
ir viti þetta. í dagblaði einu hér
birtist svo listi undir heitinu
„tossalisti. túristans" þar sem
þetta kemur greinilega fram.
Matur kostar t.d. í Bandaríkjun-
um rúmar 1000 kr. á móti 1.950 á
íslandi og 1.885 kr. á írlandi.
Bensín í Bandaríkjunum um 20
kr. á móti 68 kr. á íslandi og 76
kr. á írlandi (og í Evrópu yfir-
leitt). Og stór hamborgari um 130
kr. í Bandaríkjunum á móti tæp-
um 400 kr. á íslandi og 178 kr. á
írlandi. Þetta er sláandi mismun-
ur fyrir ferðamenn.
Kattafargan í
Reykjavík
Reynir skrifar:
Eg er hrifinn af fyrirhugaðri
reglugerð um kattahald á Akur-
eyri. Þar kveður á um að gera
kattaeigendum að skyldu að
halda 'köttum sínum inni um
nætur. Að öðrum kosti verði
kettirnir tjóðraðir á lóöum eig-
endanna. Auðvitað þarf svipuð
reglugerð að gilda hér í Reykja-
vík, þar sem kattafarganið er
orðið yfirþyrmandi. Eg beini
þessum tilmælum hér með til
okkar umboðsmanna í borgar-
stjórn Reykjavíkur.