Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1995, Page 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1995
Iþróttir
upp á síðka8tið og er talið líklget
að 6-7 leikmenn verði settir á
sölulista á næstunni til að rýma
fyrir nýjum mönnum. Meðal
þeirra sem nefndir hafa veriö eru
Kevin Peacook og John Spencer.
Glenn Hoddle, sijóri Chelsea,
sagöi i viötölum við blöð á Eng-
landi um helgina aö það væri
mikiö af góðum mönnum hjá fé-
laginu en engu að síður þyrfti að
selja nokkra leikmenn.
Heaneyáleið
til Blackbum
Blackburn gerir það ekki enda-
sleppt í leikmannakaupum enda
allt gert til að koma liðinu á spor-
iö eftir afleita byijun i Itaust. Nú
er líklegt að Neil Heaney hjá So-
uthampton séá leiðinni til meist-
aranna fyrir um 110 milljónir.
Jobsontil Leeds
Iloward Wílkinson, stjóri Leeds
United, tók upp budduna í gær
og keypti Richard Jobson frá Old-
ham fyrir 80 milljónir króna. Job-
son er 32 ára gamall varnarmað-
ur og er honum ætiað aö styrkja
vörn Leedsliðsins sem hefur ekki
verið burðug upp á síðkastið.
116 þátttakendur
ástyrktarmóti
Guðlaugur Georgsson, GSE,
sigraði án forgjafar á styrktar-
móti Keihs vegna þátttöku liðsins
í Evrópukeppninni. Guðlaugur
lék á 71 höggi, Birgir Leifur Haf-
þórsson, GL, á 71 og Sigurður
Albertsson, GS, á 72. Með forgjöf
sigraði Gísli Gíslason, GR, á 61
höggi nettó. Örn Sveinsson, GK,
Bragi Jónsson, GR, og Þorsteinn
Pétursson, GK, léku allir á 64
höggum nettó.
Leiðbeinenda-
námskeiðíSÍ
Fræöslunefnd ÍSÍ heldur leið-
beinendanámskeið á grunnstigi
ÍSÍ dagana 27.-29. október og á
A-stigi ÍSÍ 10.-12. nóvember. Bæöi
námskeiðin verða haldin í íþrótt-
amiðstöðinni í Laugardal.
Allar nánari upplýsingar og
þátttöku er að finna í síma
581-3377, fax: 588-8848.
BjarkimeðÍA
Daníel Ólaisson, DV, Akraned:
„Eins og staðan er í dag er allt
útlit fyrir aö ég verði áfram á
Akranesi en maður veit svo sem
ekki hvað gerist í vetur,“ sagði
Bjarki Pétursson knattspyrnu-
maður við DV í gær, en í DV i
gær voru getgátur um að hann
væri á leið til KR.
Fjörugt skvassmót
Skvassmótið Veggsport Open
fór fram helgamar 6.-8. október
og 13.-14. október í Veggsporti við
Gullínbrú. í meistaraflokki karla
slgraði Íslandsmeístarinn Kim
Magnús Nieisen en hann vann
Heimi Helgason í úrslitum, 3-0, í
þriðja sæti var Jökull Jörgensen.
í A-flokki sígraði Friðrik Júl-
íusson. Þorsteinn Víglundsson
varö í öðru sæti og Ásta Ólafs-
dótttr hafnaðU þriðja sæti.
FriðrikOmarsson. Ólafur Arason
varð annar og Sigurður Sígurðs-
son þriðji. í telpnaflokki 15-16 ára
varð Bára Björk Ingibergsdóttir
sigurvegari. Hildur S. Guð-
mundsdóttir varð í 2. sæti og Jó-
hanna Gylfasóttir lenti í 3. sæti.
f sveinaflokki sigraði Daníel
Benediktsson, í hnokkaflokki
Birgir Guðjónss. og í hnátuflokki
sigraði Áslaug Reynisdóttir.
Arnór frábær
gegn Hels-
ingborg
- skoraði eitt og lagði upp tvö
Eyjólfur Harðaison, DV, Svíþjóð:
Arnór Guöjohnsen átti stórleik í
gærkvöldi þegar Örebro gjörsigraði
toppliðið, Helsingborg, 4-1, í sænsku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Arnór
skoraði fyrsta mark leiksins strax á
4. mínútu með því að lyfta boltanun
snyrtilega yfir markvörð gestanna
og lagði síðan upp mörk fyrir Mattias
Wahlqvist og Mattias Jonsson. Hann
var allt í öllu í sóknarleik Örebro og
var besti maður vallarins.
„Ég er mjög ánægður með leikinn
og þetta er mikilvægur sigur fyrir
okkur í baráttunni um UEFA-sæti,“
sagði Arnór eftir leikinn. Örebro
komst í 3. sætið með sigrinum og á
Evrópusætið víst ef liðinu tekst að
vinna AIK í lokaumferðinni um
næstu helgi. Hlynur Stefánsson lék
einnig með Örebro og skilaði sínu á
miðjunni að vanda.
Rúnar Kristinsson og félagar í Ör-
gryte misstu af möguleikanum á
Evrópusæti þegar þeir töpuðu heima
fyrir Degerfors.
Gautaborg náði ekki að vinna
Hammarby, sem jafnaði á síðustu
sekúndunum, 2-2. Úrslitin um meist-
aratitilinn ráðast því í lokaumferð-
inni þegar Gautaborg mætir Trelle-
borg og Helsingborg leikur við
Hammarby.
Úrslitin í Svíþjóð í gærkvöldi:
Hammarby - Gautaborg...........2-2
Trellebore - Malmö 0-0
Örgryte - Degerfors 0-1
Öster - Djurgárden 3-1
Halmstad - Frölunda... 1-1
NorrköDÍne - AIK 1-1
Örebro - Helsingborg.. 4-1
Staðan:
Gautaborg... 25 11 10 4 41-20 43
Helsingborg 25 12 6 7 39-31 42
Örebro 25 10 8 7 35-27 38
Halmstad 25 10 8 7 38-32 38
Malmö 25 9 11 5 31-27 38
Djurgárden. 25 10 8 7 33-30 38
Örgryte 25 9 7 9 21-25 34
TreOeborg.... 25 7 10 8 32-28 31
AIK ;... 25 6 11 8 32-34 29
Degerfors 25 6 11 8 29-43 29
Öster 25 5 13 7 39-38 28
Norrköping. 25 7 7 11 27-39 28
Hammarby.. 25 5 8 12 28-37 23
Frölunda 25 4 10 11 30-44 22
Hammarby og Frölunda eru fallin
og Umeá og Oddewold taka sæti
þeirra. GAIS og Gávle leika til úrslita
við hðin sem verða númer 11 og 12
um tvö sæti í úrvalsdeildinni.
Bjarni og Sigmar
verja langmest
Bjarni Frostason úr Haukum og
Sigmar Þröstur Óskarsson úr ÍBV
hafa varið flest skot í fimm fyrstu
umferðunum í 1. deildinni í hand-
knattleik. Bjami hefur varið 88
skot en Sigmar 86, en Sigmar hefur
hins vegar varið flest vítaköst í
deildinni, 7 talsins.
Þessir hafa varið mest til þessa:
Bjami Frostason, Haukum......88/5
Sigmar Þ. Óskarsson, ÍBV.....86/7
Sigtryggur Albertsson, Gróttu... 76/3
Magnús Sigmundsson, ÍR.......74/5
Guðmundur Jónsson, KA........66/0
Guðmundur Hrafnkelsson, Val.. 60/4
Reynir Reynisson, Víkingi....57/3
Bergsveinn Bergsveinss., Aft.56/3
Hallgrímur Jónasson, Self....51/1
Vilhjálmur skrif ar
bók um f erilinn
Vilþjálmur Einarsson, silfurverð-
launahafl í þrístökki á ólympíuleik-
unum í Melbourne árið 1956, er að
leggja síðustu hönd á bók um íþrótta-
feril sinn og kemur hún út í næsta
mánuði. Bókin nefnist „Siifurmaður-
inn“ en því nafni var Vilhjálmur oft
kallaður eftir afrek sitt.
í bókinni greinir Vilhjálmur ítar-
lega frá uppruna sínum og uppeldis-
áhrifum, í þeim tilgangi að reyna að
svara spumingum um hvernig ung-
ur Austfirðingur, fæddur í krepp-
unni, gat náð svona langt og hveijar
kringumstæður hans voru næstu
árin eftir ólympíuleikana.
Vilhjálmur býður öllum ung-
menna- og íþróttafélögum að afla sér
fjár meö sölu bókarinnar og gefur
nánari upplýsingar í síma 471-1555
og 471-1140.
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
SigurKA l\
Slgur Stjörnunnar y2j
Jafntefíi íil
Teitur land
þjálfari Eist
- þjálfar jafnframt eistnesku ir
Teitur Þórðarson verður næsti þjálfari
landsliðs Eistlands í knattspyrnu. Teitur
var staddur í Eistlandi um helgina og
gekk frá munnlegu samkomulagi viö
þarlend knattspyrnuyfirvöld, og fer
þangað um næstu helgi til að ganga frá
samningnum. Teitur mun jafnframt
þjálfa eistnesku meistarana Flora Tall-
inn, en segja má að það sé sami hlutur-
inn því stærsti hluti landsliðsins kemur
jafnan frá Flora.
„ Jú, þetta er staðreynd, það er að segja
nema eitthvað óvænt komi upp á áður
en ég skrifa undir samninginn. Þetta er
stórt verkefni og spennandi, en þarna
er um algera uppbyggingu frá grunni
að ræða, og það gerir starfíð enn áhuga-
verðara. Mér fannst ég líka þurfa á
breytingu að halda, og mér líst vel á all-
ar aðstæður í Eistlandi. Það hafði líka
sitt aðdráttarafl að þarna fæ ég tækifæri
til að kynnast rússneska fótboltanum
betur, eins og ég hef lengi haft áhuga á,
en mikilla áhrifa gætir frá honum í Eist-
Teitur Þórðarson.
landi,“ sagði Teitur í samtali við DV í
gærkvöldi.
Eistlendingar hófu að leika landsleiki
á ný haustið 1992 eftir 52 ára hlé, þegar
þeir rufu tengsl sín við Sovétríkin og
öðluðust sjálfstæði á ný. Þeir hafa átt
Alþjóðleg skíðamót á C
Helgi Jónsson, DV, Ólafefiröi:
Það ríkir stórhugur hjá skíðadeild
Leifturs en þar á bæ viljá menn fá leyfi
til að halda alþjóðleg sldðamót í Tinda-
öxl. Af því tilefni var hér á ferð Norð-
maður á vegum Alþjóða skíðasambands-
ins, en hann hefur það starf með hönd-
um að taka út fjöll. Unnið verður úr
gögnum hans á næstu mánuðum en nið-
Bók um þjálfun markvar
- kynnt á námskeiöi á laugardaginn
Fræðslunefnd KSI hefur gefið út bókina
„Markmaður, tækni og þjálfun", en hún kom
út í Noregi í fyrra og hefur verið þýdd yfir á
íslensku. Bjami Sigurðsson, fyrrum landsl-
iðsmarkvörður í knattspymu, þýddi bókina,
og Ólafur Magnússon, fyrrum markvörður
Vals, tók saman sérstakt æfingasafn. í bók-
inni em fjölmargar myndir af Birki Kristins-
syni, landsliðsmarkverði, sem sýnir þær upp-
stiUingar sem segir frá í textanum
Bjarni og Ólafur verða með kj
bókinni og jafnframt markvarða
verklegt og bóklegt, á laugardagir
Bóklegi hlutinn verður í Víkinni fr
9 en verklegu æfingarnar síðan á gei
í Laugardal. Skráning er hafln á
KSÍ.