Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1995, Qupperneq 29
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1995
33
Menning
Leiklist
Auður Eydal
þeirra gengur út af bamum einhverra erinda er óðara komin ný persóna
til skjalanna.
Þarna sjáum við kvensama rokkarann sem kominn er af léttasta skeiði
en vill alls ekki viðurkenna það. Skvísan hans lætur hann plata sig hvað
efir annað þó að hún eigi að vita betur. Við kynnumst líka einmana sálum
og skrýtnum pörum. Eitt þeirra er bosmamikil kona og karlinn hennar.
Hún þráir stóra og stælta karla, en verður aö láta sér nægja ræfilslegan
rindil.
Önnur smámynd er af hinum dæmigerða kúgara sem dundar sér við
að kvelja undirokaða eiginkonuna. Og ekki má gleyma akfeita parinu sem
áhyggjulaust úðar i sig snakkinu eða hjákonunni, sem kvelur sjálfa sig
með því að horfa á elskhugann og eiginkonu hans á góðri stund.
Eins og sjá má af þessu þurfa leikendur að spanna ólík svið í túlkun
þessara persóna. Bæði fá hér gullin tækifæri til gamanleiks í kómískum
atriðum, en undirtónn verksins er alvarlegur.
Það er ánægjulegt að fylgjast með Sögu, sem blómstrar í ólíkum hlut-
verkum. Návígið við áhorfendur er mikið svo að svipbrigði og hvert
smáatriði í fasi og hreyfingum þarf að vera finpússað.
Yfirleitt var jafnræði með þeim Sögu og Guðmundi í sýningunni, en á
bak við barboröið náði hún ívið dýpri tökum á angist og harmi sem brýst
fram eftir áralanga bælingu. í hlutverkum Maudie, feitu Alice og frú Iger
slær hún á létta strengi, en sem Lesley túlkar hún hræðslu og undirokun
af nærfærni.
Guðmundur var fyndinn sem rokkarinn og ekki síðri í hlutverki rindils-
ins sem aldrei kemst að við barborðið. Bæði þessi hlutverk voru í gaman-
sama kantinum, en Guðmundur gerði líka góða hluti í viðkvæmum atrið-
um eins og þegar hann leikur gamla manninn, sem yljar sér við minning-
una um látna eiginkonu.
Helga E. Jóiísdóttir leikstjóri púslar atriðunum haganlega saman þó
að plássið sé ekki leikhús í venjulegri merkingu þess orðs. Búningar og
lýsing spila auðvitað stóra rullu í sýningunni og með útsjónarsemi hefur
tekist að yfirvinna flestar hindranir.
Það er óhætt að lofa áhorfendum áhugaverðri kvöldstund á barnum
ef þeir leggja leið sína í Borgarleikhúsið á næstunni.
Barflugurnar sýna i samvinnu við Leikfélag Reykjavikur:
Bar par
effir Jim Cartwright
Þýðing: Guörún J. Bachmann
Leikstjóri: Helga E. Jónsdóttir
Leikmynd og búningar: Jón Þórisson
Lýsing: Lárus Björnsson
Lffið á barnum
Leikritið Bar par gerði mikla lukku norður á Akureyri í hittiðfyrra
þegar Sunna Borg og Þráinn Karlsson fóru á kostum í hlutverkunum íjór-
tán undir leikstjórn Hávars Siguijónssonar.
í veitingabúð Borgarleikhússins er farin svipuð leið við uppsetninguna.
Tveir leikarar leika öll hlutverkin og gestir sitja við lítil borð í salnum
þaöan sem þeir fylgjast með gestum og gangandi við barinn.
Þar ráða ríkjum hjónakorn sem greinilega eiga í verulegum samskipta-
örðugleikum. Brosið sem snýr að viðskiptavininum er fljótt að hverfa
þegar þau tvö þurfa að yrða hvort á annað.
Eins og íslenskir áhorfendur hafa kynnst í öðrum verkum Jims Cart-
wrights, Stræti og Taktu lagið, Lóa, er hann ótrúlega flinkur við að bregða
upp skýrum mannlýsingum í litlum örskotsmyndum.
í Bar pari kynnist áhorfandinn fjölbreyttri mannlífsflóru. Staðurinn á
sína stammgesti, sem koma reglulega, og svo eru aðrir sem rekast þarna
inn.
Saga Jónsdóttir og Guðmundur Ólafsson fara með öll hiutverkin og eru
ótrúlega fljót að skipta um ham í orðsins fyllstu merkingu. Þegar annað
Guðmundur Ólafsson og Saga Jónsdóttir fara með öll hlutverkin í Bar
par.
Leikhús
WÓÐLEIKHÚSID
Sími 551 1200
Sfórasviðiðkl. 20.00.
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Simonarson
Fimmtud. 26/10, aukasýning, örfá sæti laus,
Id. 28/10, uppselt, fid. 2/11, nokkur sæti laus,
Id. 4/11, uppselt, sud. 5/11, nokkur sæti laus,
sud. 12/11, fid. 16/11, uppselt, Id. 18/11.
STAKKASKIPTI
eftir Guðmund Steinsson
Föd. 27/10,3/11. Takmarkaður sýningafjöldi.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
Sud. 29/101(1.14.00, uppselt, sud. 29/10 kl.
17.00, uppselt, Id. 4/11 kl. 14.00, uppselt,
sud. 5/11 kl. 14.00, uppselt, Id. 11/11 kl. 14.00,
uppselt, sud. 12/11 kl. 14.00, örfá sæti laus,
Id. 18/11 kl. 14.00, laus sæti, sud. 19/11, kl.
14.00, laus sæti, Id. 25/11 kl. 14.00, sud. 26/11
kl. 14.00.
Litla sviöið kl. 20.30.
SANNURKARLMAÐUR
eftir Tankred Dorst
8. sýn. 26/10, 9. sýn. sud. 29/10, fld. 2/11, ISd.
3/11.
Smiðaverkstæöið kl. 20.00
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
Á morgun, örfá sæti laus, Id. 28/10, uppselt,
mvd. 1/11, Id. 4/11, uppselt, sud. 5/11.
Miðasalan er opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýn-
ingardaga. Einnig símaþjónusta frá kl. 10
virkadaga.
Greiðslukortaþjónusta.
Fax: 5611200
Simi miðasölu: 5511200
Sími skrifstofu: 551 1204
VELKOMIN Í ÞJÓDL EIKHÚSIÐ!
Tilkyimingar
Antikuppboð
Gallerí Borg heldur uppboð í dag að Faxa-
feni 5 kl. 20.30. Boðin verða antikhús-
gögn, postulín, listmunir og ekta hand-
unnin persnesk teppi.
Ljósmyndasýning
Snerruútgáfan sf. minnir á ljósmynda-
sýningu í verslun ÁTVR í Kringlunni
Rvk. Sýndar eru valdar ljósmyndir úr
almanökum Snerruútgáfunnar fyrir árið
1996. Sýningin er opin á afgreiðslutíma
verslunarinnar til 15. desember.
Fyrirlestur um sjálfsvirðingu
Á morgun, miðvikudaginn 25. október,
kl. 16.15 flytur Ian Griffiths, forstöðumað-
ur sérkennsluþjónustu á eyjunni Guem-
sey, fyrirlestur á 'vegum Rannsóknar-
stofnunar Kennaraháskóla íslands. Fyr-
irlesturinn nefnist: „Sjálfsvirðing nem-
enda“. í fyrirlestrinum mun Griffiths
fialla um sjálfsmynd nemenda og hvernig
kennarar geti eflt sjálfsvirðingu þeirra
með markvissum hætti. Hann verður
fluttur á ensku í stofu M-301 í Kennarahá-
skóla íslands og er öllum opinn.
Gallajakki týndist
Levi’s gallajakki týndist á Gauki á Stöng
aðfaranótt sunnudagsins. í vasa jakkans
er gómur sem kemur engum að notum
nema eigandanum sem saknar hans sár-
lega. Sá sem gæti gefið upplýsingar um
jakkann vinsamlegast hafi samband í
síma 481 1680.
Köttur týndur
Hvítur fressköttur með svarta og brönd-
ótta flekki tapaðist frá heimili sínu að
Finugrund 32 21. okt. sl. Hann er með
svartan flekk á öðrum afturfæti, flekk á
kviðnum og er ekki með neina ól. Þeir
sem hafa séð til hans eða geta gefið upp-
lýsingar vinsamlegast hringi í síma 564
2993.
Tapad-fundið
Hringurfannst
Hringur, líklega módelhringur frá Jens,
fannst fyrir helgi. Eigandi hringsins get-
ur haft samband við Aldisi, heimasími
5621953, vinnusími 553 5150.
„É/j held
eééMéi heim“
Ettireinn -eiakineinn
m|UMFERÐAR
Urad
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra svið kl. 20.30.
Rokkóperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
eftir Tim Rice og Andrew
Lloyd Webber
Fös. 27/10 kl. 20.30, lau. 28/10 kl. 23.30,
miðv. 1 /11, fáar sýningar ettir.
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Lau. 28/10 kl. 14, sun. 29/10 kl. 14, lau. 4/11
kl. 14, sun. 5/11 kl. 14.
Litla sviðkl. 20:
HVAÐ DREYMDI ÞIG,
VALENTÍNA?
eftir Ljúdmiiu Razumovskaju
Fim. 26/10, uppselt, lau. 28/10, örfá sæti
laus, lös. 3/11.
Stóra sviö kl. 20:
TVÍSKINNUNGSÓPERAN
Gamanleikrit með söngvum eftir
Ágúst Guðmundsson
6. sýn. fim. 26/10, græn kort gilda, 7. sýn.
sun. 29/10, hvit kort gllda.
Stóra svið kl. 20:
VIÐ BORGUM EKKI,
VIÐ BORGUM EKKI
eftir Dario Fo
Lau. 28/10, fös. 3/11.
Ath. Takmarkaðursýningarfjöldi.
Samstarfsverfcefni:
Barf lugurnar sýna á Leynibarn-
um kl. 20.30.
BAR PAR
eftir Jim Cartwright
Fös. 27/10, örfá sæti laus, lau. 28/10, upp-
selt, fös. 3/11, lau. 4/11.
Tónleikaröð LR:
Alltaf á þriðjudögum kl. 20.30.
Þri. 24/10 24. október hópurlnn.
Mlðaverð 800.
Þri. 31/10. Tónleikar
- Krlstinn Sigmundsson.
Mlðaverð 1.400 kr.
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
13-20 nema mánudaga frá kl. 13-17,
auk þess er tekið á móti miðapöntun-
. um í sima 568-8000 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar,
frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
||| ÍSLJENSKA ÓPERAN
Sími 551-1475
Sýning laugard. 28. okt. kl. 21, uppselt,
laud. 28. okt. kl. 23, laus sætl.
íslenska óperan kynnir eina
ástsælustu óperu Puccinis,
MADAME BUTTERFLY
Frumsýning 10. nóv. kl. 20.
Hátiöarsýning 12. nóv. kl. 20.
3. sýn. 17. nóv. kl. 20.
Forkaupsréttur styrktarfélaga ísiensku
óperunnar ertil 29. október.
Almenn mlóasala hefst 30. október.
M iðasalan er opin kl. 15-19
daglega nema mánudaga,
sýningardag til kl. 21.
SÍMI551-1475,
bréfasími 552-7384.
1 GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
OiiiAn,
|| 1W iíijrill ^
DV
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín.
Fótbolti
2 [ Handbolti
Körfubolti
Enski boltinn
51 ítalski boltinn
Þýski boltinn
Önnur úrslit
NBA-deildin
4
■ lj Vikutilboð
stórmarkaðanna
Uppskriftir
1| Læknavaktin
j 2] Apótek
11 Gen&
11 Dagskrá Sjónvarps
2 [ Dagskrá Stöðvar 2
3 Dagskrá rásar 1
4 Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
Myndbandagagnrýni
ísl. listinn
-topp 40
; 7l Tónlistargagnrýni
8 Nýjustu myndböndin
5
AJ
5
iJ Krár
21 Dansstaðir
3 jLeikhús
4 j Leikhúsgagnrýni
[5j Bíó
6j Kvikmyndagagnrýni
6 ~Mwmusiiii&
;ij Lottó
2; Víkingalottó
3 j Getraunir
€>IHI||
wliVlH
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín.