Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Síða 13
LAUGARÐAGUR 28. OKTÓBER 1995 13 Sera Þorbjörn Hlynur Arnason á Borg við myndverkið Sonatorrek: „Forrétt- indi að hafa listaverk eftir Ásmund Sveinsson á hlaðinu hjá sér.“ DV-mynd Olgeir Helgi Séra Þorbjörn Hlynur Árnason tekinn við Borg á ný: Gott að vera kominn aftur Olgeir Helgi Ragnarsson, DV, Borgarnesi: „Það er að öllu leyti góð tilfmn- ing. Hér áttum við heldur betur ræt- ur því við vorum hér í átta ár áður en ég varð biskupsritari," segir séra Þorbjörn Hlynur Árnason sem ný- lega sneri aftur að prestssetrinu á Borg á Mýrum eftir að hafa verið biskupsritari í fimm ár. í millitíð- inni sat faðir séra Þorbjarnar Hlyns, séra Árni Pálsson, á Borg. Undir Borgarprestakall heyra fimm sókn- ir: Borgarsókn, Borgarnessókn, Álftanessókn sem hefur fylgt Borg frá öndverðu, Álftártungusókn sem bættist við Borgarprestakall seint á síðustu öld og Akrasókn sem var lögð til Borgar með prestakalla- breytingu 1970. Séra Þorbjörn Hlyn- ur segir þetta fámennar sóknir: „En það hefur náðst á seinustu árum að endurgera kirkjurnar og þær eru sannarlega sínu fólki til sóma. Mjög vegleg og falleg hús, og einstæð því þetta eru í raun og veru einu bygg- ingarnar sem við höfum uppistand- andi frá þessum tíma hér.“ Séra Þorbjörn Hlynur segir aldrei hafa staðið annað til en að koma aft- ur að Borg, því hefði hann fengið leyfí hjá ráðherra til að halda emb- ættinu. „Það er gott að vera hér og gott að vera kominn aftur,“ segir hann. Þegar séra Þorbjörn Hlynur er spurður að því hvað standi upp úr frá veru hans á Biskupsstofu segir hann það vera margt, því um mörg merkileg viðfangsefni hafi verið að ræða. „Það hefur verið mikil vinna síðustu árin varðandi skipulagsmál kirkjunnar og breytta starfshætti. Endurskoðun hefur verið í gangi á sambandi rikis og kirkju. Öll sú vinna sem tengist þessum breyttu forsendum sem verið er að leggja núna að breyttu sambandi ríkis og kirkju ásamt með mikilli vinnu í sambandi við kirkueignir og ráðs- töfun þeirra. Það er kannski það sem kemur fyrst í hugann," segir séra Þorbjörn Hlynur. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á Borgameskirkju, stærstu kirkjunni í Borgarprestakalli, á undanförnum árum og stærstur hluti þeirra endurbóta var unninn á meðan Þorbjörn Hlynur starfaði á Biskupsstofu, þannig að þegar hann tók aftur við prestakallinu tók hann um leið við nánast nýrri kirkju í Borgarnesi: „Það er sannarlega gaman að koma aftur í þetta hús, því hún er gjörbreytt kirkjan og allt annað að embætta í þessu húsi. Hún er orðin kirkjulegri, getum við sagt, og Borgnesingar fullsæmdir af þessu húsi.“ En því að sitja á Borg, sem er þekkt höfðingja- og menningarsetur, hljóta að fylgja ýmis önnur verk en hefðbundin prestsverk: „Já, já, það fylgir því ýmislegt að búa á svona stað. I fyrsta lagi þarf að halda stað- inn og láta hann líta vel út og það reynum við að gera eftir fremsta megni. Það hefur einmitt verið gerð mikil breyting á meðan við vorum í burtu, það var hlaðinn nýr kirkju- garðsveggur sem hefur mjög mikið að segja varðandi ásýnd staðarins. Svo er auðvitað mikil vinna fólgin í því að taka við öllu því fólki sem kemur hingað. Hér koma þúsundir á hverju sumri, bæði innlendir feröamenn og erlendir. Mjög oft er óskað eftir því að maður gefi ein- hverja leiðsögn hér, bæði í kirkju og á staðnum. Hér er meira og minna linnulaus umferð alia sumarmánuð- ina og yfir veturinn oft líka. Það er, satt að segja, þó þetta sé heilmikil vinna og ónæði, þá er þetta líka gef- andi og uppbyggileg iðja að vera í þessum tengslum við feröafólkið." Borg er fornt frægðarsetur, en ætli séra Þorbjörn Hlynur hafi orð- ið var við anda þess forna tíma? „Ég veit það ekki. Maður leiðir stundum hugann að því, ef Egilssaga gefur rétta mynd af þessum atburðum, þá gerðust hér merkir atburðir og var mjög merkilegt mannlíf hér fyrir þúsund árum síðan eða svo, og reyndar lengi. En við höfum náttúr- lega engar minjar, engar áþreifan- legar minjar, frekar en víðast ann- ars staðar á íslandi. Okkar saga er öll í bókum en ekki í húsum eða mannvirkjum. Þess vegna er mjög gaman einmitt að hafa þetta lista- verk hérna á hlaðinu eftir hann Ás- mund Sveinsson, Sonatorrek. Það eru mikil forréttindi að hafa lista- verk eftir Ásmund Sveinsson á hlað- inu hjá sér.“ Þrefaldur 1. vinningur! -vertu viðbúlntm vinningi Nú er að n0ta •*. tcek ifœnð! Fáðu þér miða i’yrir kl. 20.20 í kvöld. Eitt sinn var hann lítill en nú er hann orðinn stór... Nýi bíllinn frá Suzuki er bíll í sama stærðar- og gæðaflokki og Toyota Corolla, VW Golf, Opel Astra og Nissan Almera. Það er þó eitt sem skilur þá að - VERÐIÐ Suzuki Baleno er á mun lægra verði en aðrir sambærilegir bflar í millistærðarflokki. Suzuki Alto 1981 SUZUKIBALENO 1996 Suzuki Baleno 3ja dyra handskiptur kostar kr. 1.095.000 sjálfskiptur “ 1.195.000 Suzuki Baleno 4ra dyra handskiptur kostar kr. 1.220.000 sjálfskiptur “ 1.320.000 Komið, reynsluakið og gerið verðsamanburð. Suzuki - Afl og öryggi $ SUZUKI --////■--------- SUZUKI BÍLAR HF. SKEIFAN 17 - SÍMI: 568 5100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.