Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Blaðsíða 16
10
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 UV
Ritt Bjerregaard er enn á ný spáð pólitísku lífláti:
Pólitískt sjálfsmorð
í dagbókarformi
Pálmi Jónasson, DV, Kaupmannahööi:
Hin danska Ritt Bjerregaard
ákvað eftir 6 mánaða starf sitt hjá
ESB að upplýsa landa sína um starf-
semina í dagbókarformi. Dóm-
greindarleysi hennar hefur orðið
henni dýrkeypt og þrátt fyrir að hún
hafi hætt við útgáfuna og beðist af-
sökunar er ljóst að skaðinn er skeð-
ur. Allir vita hvað í bókinni stend-
ur. Þar segir hún Jacques Chirac
vera lélegan pappír sem virði
Jacques Santer ekki viðlits. Helmut
Kohl er utangátta, Gonzales er vilja-
og kraftlaus og samstarfsmennirnir
í ESB illa undirbúnir ruglukollar.
Samstarfsmennirnir í Danmörku fá
flestir lélega einkunn og forsætis-
ráðherrann, sem í raun er guðfaðir
hennar í starfi, verður hálfaumkun-
arverður í höndum Ritt. Eftir að
bókarhlutar tóku að birtast vaknaði
reiðialda sem varð til þess að Ritt
var neydd til að hætta við útgáfu
bókarinnar. Hið danska Politiken
birti hins vegar bókina í heild sinni
í sérútgáfu á fimmtudaginn og nú er
fullyrt að ferill Ritt sé á enda, bæði
í Brussel og í Danmörku.
Þetta er þó engan veginn í fyrsta
skipti sem þessi umdeildi stjórn-
málamaður kemst í hann krappan
með ögrandi og óhefðbundinni póli-
tík sinni.
Chirac hirðulaus
og Kohl utangátta
Það eru ekki síst nákvæmar lýs-
ingar á einkasamtölum og fundum
sem hafá vakið hneykslun og andúð
en palladómar um helstu ráðamenn
heimsins hafa heldur ekki fallið í
góðan jarðveg. Ritt Bjerregaard hef-
ur í starfi sínu hjá ESB barist
harkalega gegn tilraunasprenging-
um Frakka. í dagbókinni fjallar hún
um hádegisverðarboð þann 11. júlí í
Evrópuþinginu í Strassborg eftir
heitar umræður um sprengingarn-
ar. Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, sat við hliðina á Jacques
Santer, forseta framkvæmdastjórn-
ar Evrópusambandsins, en þeir töl-
uðust vart við allan tímann: „Það
styrkti mig enn í þeirri trú að sam-
band þeirra væri lélegt, fyrst og
fremst vegna þess að Chirac er ná-
kvæmlega sama um Santer og kem-
ur fram við hann af hirðuleysi og yf-
irborðsmennsku. í það heila virkaði
Chirac mjög illa á mig.
Nokkru áður, eða þann 22. mars,
fjallar hún um fund sem hún átti
með Santer þar sem þau ræddu m.a.
um embætti hans. „Hann var vitan-
lega hæstánægður með embætti sitt
en fannst ráðherraráðskerfið furðu-
legt. Þeir væru stöðugt að gera alls
kyns samþykktir án hans vitundar.
Þegar hann var forsætisráðherra í
Lúxemborg hafði hann aðeins einn
aðstoðarmann en nú hefði hann
heilt ráðherraráð!
Helmut Kohl, kanslari Þýska-
lands, fær heldur ekki góða ein-
kunn. Þann 7. apríl lauk Loftslags-
ráðstefnunni i Berlín. „Ráðstefnan
gekk eins og búast mátti við. Það
gerðist ekkert frekar en venjulega
Með dagbók sinni hefur Ritt Bjerregaard grafið sína eig-
in gröf. Annaðhvort verður hún hrakin úr starfi eða gerð
áhrifalaus og i Danmörku bíður fullkomin andúð í
Christiansborg. Á 25 ára stjórnmálaferli hennar hefur
hvert hneykslismálið rekið annað.
Gonzales.
Svona eru fyrirmenn
Evrópu teknir fyrir einn af
öðrum. Eftir fund með
spænsku formannanefnd-
inni þann 2. júlí skrifar
hún að Philiphe Gonzales,
forsætisráðherra Spánar,
sé bæði kraftlaus og vilja-
laus: „Mér finnst hann enn
athyglisverður maður en
það er enginn kraftur í hon-
um og enginn pólitískur
vilji. Nú átti Spánn að fara
með formennskuna en
hann hafði ekki áhuga á að
nýta það til neins. Það var
erfitt að koma auga á
nokkurn leiðtoga sem vill
eitthvað — annað en að
halda þessu gangandi og
vera t.d. forsætisráðherra.
Hún segir að Thacther
hafi vitað hvað hún vildi og
verið tilbúin að berjast fyr-
ir því. Hún hafi verið reiðu-
búin til þess reka fólk og Jacclues Chirac.
inn. Martin Bangemann var hins
vegar ekki á staðnum og Bjer-
regaard segist alltaf verða hálfhissa
þegar hann mæti.
Franski Evrópuráðherrann
Michel Barnier er svo mikill ruglu-
kollur að á næsta fundi með honum
segist hún ætla að taka Laurs
Norlund, ráðuneytisstjóra sinn, með
til þess að tryggja að einhver vissi
hvað fram færi á fundinum.
Skrifræðið er gagnrýnt harkalega
í bókinni og henni finnst á
köflum að allt gangi út á
valdabaráttu og samtrygg-
ingarkerfi með það fyrir
augum að tryggja vinum og
samlöndum stöður. Lengst
af fjallar hún þó um fjöl-
skyldu Ritt og einkahagí.
Reyndar er sagt að ótrúlegt
sé að hún komi fyrsta hálfa
ári sínu fyrir á 262 blaðsíð-
um en langtímum saman
fjallar hún um ekki neitt.
Geislavirk bók
Sjálfur sagði Santer á
fréttamannafundi í vikunni
að það fælist meiri geisla-
virkni í dagbókinni en í til-
raunasprengingum Frakka.
Það má kannski til sanns
vegar færa því fullyrt er að
bókin muni kosta hana
starfið ellegar gera starf
hennar óbærilegt. Það
myndi þýða fjögurra ára
áhrifalausa eyðimerkur-
göngu fyrir Ritt Bjer-
regaard.
Óvildarmenn átti hún
næga fyrir, einkum meðal
berjast fyrir því sem hún trúði á:
„Gonzales hafði ekkert af þessu.“
Það er reyndar athyglisvert við
lestur bókarinnar að það eru karl-
arnir sem fá á baukinn en konurnar
hafa þurft að berjast fyrir sínu og fá
jafnan jákvæða umfjöllun. Margir
kollegar hennar fá einnig slæma
dóma. I umræðum um tilrauna-
sprengingar Frakka segir hún að
Yves-Thibault de Silguy hafi verið
með uppsteyt en verið illa undirbú-
Kohl var þarna og hélt tölu. Hún var
— eins og svona ræður eru — frek-
ar leiðinleg. Hann náði að segja
nokkra skynsamlega hluti um um-
hverfismál. Það var líka móttaka
fyrir hann þar sem ég ræddi við
hann. Ég varð ekki fyrir neinum
áhrifum af manninum, hann var
alls ekki nærstaddur. Ég held að
hann hafi ekki vitað við hvern hann
var að tala.
Kollegarnir illa
undirbúnir ruglu-
kollar
Frakka vegna baráttu sinnar gegn
tUraunasprengingum þeirra. Málið
hefur þegar skaðað trúverðugleika
hennar og áhrif og menn óttast að
það skaði starfsvettvang hennar,
umhverfismálin. Hún er sökuð um
fuUkomið dómgreindarleysi og van-
þekkingu á alþjóðlegum samskipta-
reglum. Með því að segja frá fund-
um og persónulegum samtölum hafi
hún brotið allar skrifaðar og óskrif-
aðar spilareglur sem þýði að hún
verður ekki tekin alvéirlega í fram-
tíðinni. Reyndar þykir uppistandið
nú minna óþægUega á mál forvera
hennar, ítalans Carlo Ripa Di
Meanas. Hann gagnrýndi samstarfs-
menn sína einnig opinberlega og lak
upplýsingum til fjölmiðla og neydd-
ist til að segja af sér eftir að hafa
verið einangraður fuUkomlega.
Sjálf hefur Ritt, aldrei þessu vant,
viðurkennt mistök sín. Þegar hún
ákvað að hætta við útgáfu bókarinn-
ar sagði hún að nánir vinir hefðu
talið sig misnotaða og að samstarfs-
fólki fyndist hún hafa farið yfir
strikið. Nokkrum klukkutímum
áður hafði hún sagt að ekkert gæti
komið í veg fyrir útgáfu bókarinnar
en það breyttist eftir 20 mínútna
samtal við Santer.
Tugmilljóna krafa á sjó-
ræningjaótgáfu Politiken
Þrátt fyrir að Santer næði að
knýja Bjerregaard tU þess að hætta
við útgáfu bókarinnar á miðviku-
daginn náði hann ekki að stöðva
hana. Blöðin hér í Danmörku og
reyndar heimspressan öU hefur ver-
ið að birta stutta kafla úr bókinni
frá því að Jyllands Posten reið á
vaðið á mánudaginn. Á fimmtudag-
inn, eða daginn eftir að tUkynnt var
að bókin kæmi ekki út, birti dag-
blaðið Politiken bókina í heild sinni
í sérútgáfu án leyfis höfundar eða
útgáfunnar. Blaðið var prentað í
þreföldu upplagi og var gjörsamlega
rifið út og seldist upp á augabragði.
Fullyrt er að þessi sérútgáfa muni
kosta Bjerregaard starfið eða í það
minnsta geri þau fjögur ár sem hún
á eftir að áhrifalausri eyðirmerkur-
göngu.
Þrátt fyrir að Ritt hafi klárlega
brotið samninginn við Aschehoug
Forlag með því að hætta við útgáf-
una ætlar það ekki að gera neina
endurkröfu á hana Hins vegar hef-
ur það þegar ákveðið að fara í mál
við Politiken og krefjast tugmUljóna
í skaðabætur fyrir brot á höfundar-
rétti. Fyrsta prentun upp á 3.000 ein-
tök var tilbúin og var þegar
upppöntuð af bóksölum en salan átti
að hefjast I dag.
Sérfræðingar gera ráð fyrir að
minnst 25.000 bækur hefðu selst í
Danmörku, fyrir 60 milljónir ís-
lenskra króna. Tekjur höfundar af
því myndu vart liggja undir 10 mUlj-
ónum. Auk þess höfðu útgáfur í
Englandi, Þýskalandi og Frakklandi
þegar haft samband við Aschehoug
með útgáfu í huga. Nú er hins vegar
bókin komin út í dönsku dagblaði
og hefur þegar verið þýdd á Inter-
netið. Þess má geta að Ritt hefur