Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Side 19
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 19 UMBOÐSMENN UM LAND ALLT Elísabet Davíðsdóttir, Fordstúlkan 1994: Sýndi fyrir Yves Saint Laurent - og lák í myndbandi hjá Elton John Með Black Line myndlampa, 40W Nicam Stereo magnara með Surround, aðgerða- birtingu á skjá, textavarpi með ísl. stöfum, fullkominni fjarstýringu, Timer, klukku á skjá, S-VHS inngangi og tveimur Scart-tengjum. ALLT ÞETTA FYRIR AÐEINS STGR. iJpDTJ SIÐUMULA 2 • SIMI 568 9090 Elísabet Davíðsdóttir hefur haft nóg að gera á erlendri grundu frá því hún vann Fordkeppn- ina fyrir rúmu ári. J2 DJJJjJJ ZjJJUsJ „Það hefur gengið mjög vel hjá mér að undanförnu. London er tals- vert minni markaður en París eða Mílanó og margt komið á óvart hér,“ segir Elísabet Davíðsdóttir, Fordstúlkan 1994, en hún sýndi fatnað á glæsilegri sýningu Yves Saint Laurent í London í vikunni. Undanfarna daga hafa staðið yfir tískudagar í London og hafa mörg þekkt nöfn í tískuheiminum troðið upp með skrautsýningar. Meðal þeirra er tískuhúsið Yves Saint Laurent þar sem Elísabetu var boð- ið að sýna húning úr leikritinu Hamlet eftir Shakespeare. „Þetta var stór og mikil sýning sem vakti mikla athygli," segir Elísabet en mörg þekkt nöfn i fyrirsætuheimin- um sýndu með henni. Meðal þeirra var nýjasta stjarnan Jodie Kidd. „Ljósmyndararnir eltu hana á rönd- um og það lá við að hún brotnaði niður við allt umstangið. Jodie hef- ur verið uppáhald ljósmyndaranna á undanfórnum mánuöum," segir Elísbet. „Þær voru nokkrar þekktar þama en ég kann ekki nöfnin á þeim,“ segir Elísabet. „Ein þeirra er með tattó á höfðinu og önnur með eldrautt hár en þær hafa vakið mikla athygli. Sýningin var mjög flott og líktist helst leikhúsi þar sem kjólarnir, sem sýndir voru, eru frá mörgum tímabilum. Sjónvarpið sýndi myndir frá sýningunni og það kom vel út. Mér fannst í rauninni hálf skrítin tilfmning að vera í bún- ingsherberginu í öllum látunum með myndavélar allt um kring.“ Elísabet var einnig á tískusýn- ingu hjá Nichole Fahri. Þá kom til greina að hún sýndi á úrslitakvöld- inu á þriðjudag en það var ekki ákveðið þegar helgarblaðið hafði símasamband við hana. „Það er í rauninni miklu meira gaman að þessu heldur en ég hélt,“ segir hún. í myndbandi Eltons Johns Frá því Elísabet vann Fordkeppn- ina fyrir rúmu ári hefur hún haft nóg að gera við fyrirsætustörf. Hún starfaði fyrst hjá Ford Models í Par- ís en flutti sig síðan yfir til Mílanó þar sem starfaði í fimm mánuði. Hún fór aftur til Parísar og vegna hvatningar frá félögum ákvað hún að halda til London. Það var Ford Models í París sem útvegaði henni hina virtu umboðsskrifstofu Model 1 í London. „Mér hefur líkað vel við þessa umboðsskrifstofu sem virðist gera allt sitt mjög vel,“ segir Elísa- bet. Hún hefur fengið margs konar störf frá því hún kom til London og meðal þess er upptaka í myndbandi við nýtt lag Eltons Johns. „Það var mjög skemmtilegt þó ég hafi ekki hitt Elton sjálfan. Jú, ég hef séð myndbandið nokkrum sinnum á MTV stöðinni og það kemur ágæt- lega út,“ segir hún. Með Rolling Stones og Snowdon En þó Elísabet hafi ekki hitt Elton John þá hitti hún ekki fræg- ari menn en meðlimi hljómsveitar- innar Rolling Stones í veislu sem þeir héldu til vegna upptöku á myndbandi sínu. „Það var hringt í skrifstofuna mína og Rollingamir buðu nokkrum fyrirsætum að vera viðstaddar þessa upptöku. Mér fannst þeir heldur gamlir en það var gaman að hitta þá. Hins vegar býst ég ekki við að sjást á þeirra myndbandi. Það var margt fólk þarna og Jagger og félagar heilsuðu öllum og ræddu við fólkið." Einn frægasti ljósmyndari heims, Snowdon lávarður, fékk Elísabetu til að sitja fyrir á myndum sínum. „Mér var boðið að vinna með hon- um fyrir tímarit sem heitir Bride Magazine og byggist upp á brúðar- skarti. Það verða örugglega mjög flottar myndir en blaðið á ekki að koma út fyrr en í apríl á næsta ári. Það var skemmtilegt að kynnast Snowdon, hann er yndæll maður. Auk þess er frábært fyrir mig að fá myndir frá honum í möppuna mína,“ segir Elísabet. Fyrir utan allt þetta vann Elísa- bet fyrir stuttu með ljósmyndurum hollenska ELLE tískublaðsins en þær myndir munu birtast í nóvem- berhefti bíaðsins. Elísabet segir að þær myndir hafi verið teknar í London og væru mjög flottar. Mikil ferðalög Elísabet hefur verið í London í tvo mánuði en hún segir að þangað hafi hún aldrei komið áður. „Ég kann ágætlega við mig hér en þetta er langdýrasta borgin sem ég hef unnið í, mun dýrari en París eða Mílanó. Ég bý með tveimur stúlkum i íbúð sem umboðsskrifstofan skaff- ar okkur og það gengur mjög vel. Það virðast vera næg verkefni ef maður er heppinn en vissulega er dagamunur á þessu.“ Áður en Elísabet kom til London hafði hún ferðast mjög víða sem fyr- irsæta. Meðal annars fór hún til Balí í myndatökur, til Feneyja, Sikileyjar, Nice, Flórens og Skotlands. Meðal annars voru tekn- ar myndir fyrir hið virta tískublað Harpers. Þá vann hún við auglýs- ingar fyrir Marc O’Polo. „Það er best borgað fyrir slíkar auglýsingar. Ef maður vinnur fyrir fræga ljós- myndara er ekki mikið greitt fyrir það,“ segir hún. Elísabet segist ætla að halda áfram í starfi fyrirsætunnar fram að jólum en þá langi hana til að halda áfram námi. „Ég býst síðan við að koma hingað til London aft- m- næsta sumar. Eftir samfellda átta mánaða törn þá langar mann heim en ég held að ég hafi þroskast heilmikið á þessu og hef haft gaman af,“ segir Elísabet Davíðsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.