Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Page 31
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 39 förnu hafa beinst í allt aðra átt, meðal annars hjá Ólafi Grímssyni sem lætur prenta seðla upp á sjö milljarða til að dæla út í kerfið." Sverrir sagðist jafnframt ekki hafa gert annað en að benda hóg- værlega á staðreyndir málsins og hans ummæli stjómuðust eingöngu af faglegum sjónarmiðum. „Það er hins vegar annað mál að Ólafur Grímsson þolir ekki mál- frelsi - það er alveg ljóst mál. Af þvi „Ég er tnjög ánœgdur meö ákvarðanir Landsbankans. Mér sýnist Sverrir Hermannsson hafa tekiö mjög myndarlega á þessu eins og hans er vani þegar hann snýr sér aö verkum, “ sagöi Ólafur Ragnar. i að ég talá ekki eftir hans pípu þá náttúrulega á ég að þegja eða hafa verra af, að því er hann segir.“ Upphrópun byggð á misminni Um mitt ár 1989 óskuðu sjálfstæð- ismenn eftir sérstakri skýrslu Ríkis- endurskoðunar um tryggingar Landsbanka íslands vegna skulda Sambands íslenskra samvinnufé- laga við bankann. Viðbrögð Sverris voru einfold. Hann svaraði því til að bankinn heyrði ekki undir Ríkis- endurskoðun og því áttaði hann sig ekki á þessari ósk fyrrum félaga sinna í Sjálfstæðiflokknum. Halldór V. Sigurðsson rikisendurskoðandi svaraði ummælum Sverris þannig: „Þetta er bara misminni hjá Sverri," sagði hann og vísaði til laga um Ríkisendurskoðun um að hún hefði fullt vald til að fara ofan í hvaða plögg sem er í bankanum „enda hefur ekki verið nein fyrir- staða hjá Sverri við að veita okkur gögn vegna þessa máls. Við ræddum við hann í gær þar sem það kom fram,“ sagði Halldór í samtali við DV daginn eftir. Eitt sinn kjaftstopp Það er sjaldan sem Sverrir hefur orðið kjaftstopp um ævina. Seinni hluta árs 1989 var hann þó tilneydd- ur þegar frá því var greint að hægt væri að hlera farsímakerfið ís- lenska. „Þetta er alveg grábölvað. Þetta þýðir að hér eftir tala ég ekki orð af viti í þennan síma,“ sagði Sverrir en hafði þó skoðanir á vandamálinu. „Það er verið að tala um að búnað- ur til að koma í veg fyrir hleranir sé svo dýr. Ég myndi glaður vilja greiða hærri afnotagjöld til að geta verið þess fullviss að ekki væri hlustað á símtöl mín hér og þar.“ Ávítaður af forsætisráðherra Um miðjan janúar 1992 skrifaði Sverrir Hermannsson grein í Morg- unblaðið um lánafyrirgreiðslu banka- stofnana og síldarsölusamninga til Rússlands. Davíð Oddsson forsætis- ráðherra sá ástæðu tii að ávíta Sverri í þingræðu sama dag. Sagði Davíð greinina ekki hafa verið við hæfi. Hún hefði hins vegar verið vel skrif- uð. Málið varðandi síldarlán tii Rússa hefði verið illa unnið frá hendi Landsbankamanna sem hefðu ekki unnið heimavinnu sína. í greininni fór Sverrir nokkrum orðum um það sem hann kallaði síldarsölufarsa ríkisstjómarinnar þar sem viðskiptaráðherra, Jón Sig- urðsson, hefði farið með aðalhlut- verkið í kassastykkinu. í fáum orð- um snerist málið um það að Síldar- útvegsnefnd fór þess á leit að Lands- bankinn annaðist lánafyrirgreiðslu vegna síldarsölu til Rússlands. Leit- að var til Seðlabankans eftir sam- þykki en afsvar barst meðal annars vegna ótryggs ástands í Rússlandi. Sverrir sendi þá bréf til ríkisstjórn- arinnar og óskaði svara við beiðni Síldarútvegsnefndar. Viöskiptaráðu- neytið svaraði bréfinu ekki fyrr en tæpum mánuði seinna og sagði það sjálfdæmi bankastjórnar að veita lán til síldarsölu í ljósi þeirra upp- lýsinga sem fyrir liggja um málið. Stuttu slðar kannaðist viðskiptaráð- herra svo ekki við það i ræðustól á Alþingi að ríkisstjórnin hafi tekið afstöðu til beiðni Landsbankans. ít- rekaði hann svo ummæli sín í sjón- varpsviðtali og kannaðist ekki við ósk Rússa um lán. Dró Sverrir fréttamann Sjónvarps inn í atburða- „Þetta er bara mis- minni hjá Sverri, “ lét ríkisendur- skoöandi hafa eftir sér um ummœli Sverris þess efnis aö embœttið heföi ekkert yfir Landsbankanum aö segja. l Hvorum megin á Sjöstjörnunni eiga þeir forystumenn Sjálfstæðisflokks- ins heima, sem ætla nú að ráðast gegn smáútvegsbændum eins og krókaleyfishugmyndir fjórhöfða- nefndarinnar hljóða upp á? Þetta er enginn tvíhöfði, sú nefnd. Þar skín við sólu skalli Kristjáns Ragnars- sonar og þar er sléttkembdur kollur sjávarútvegsráðherrans líka.“ I ljósi ummæla Sverris undanfar- ið verða viðbrögð hans við ræðu Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, á eldhúsdegi í mai árið 1993, að telj- ast undarleg. Þar sagði Davíð að rík þörf væri á áframhaldandi vaxta- lækkun á landinu og bankar ættu að in voru borin undir Sverri, sagði hann: „Það færi vel á því. Farið hef- ur fé betra. Þetta er það vel launað starf að það finnast áreiðanlega nógir menn sem vilja taka við þessu. Kannski er það þrýstingur vegna hárra launa sem veldur þessum hu- grenningum. Einhverjir kunna að vera í Sjálfstæðisflokknum sem þurfa á góðum stöðum að halda. Ég hef ekk- ert á móti því að menn tali umbúða- laust, ég er vanur því sjálfur." Úplægður akur ummæla Hér hefur aðeins verið tekið á fáum af ummælum Sverris frá því rásina, svo og Morgunblaðið, Seðla- banka og forsætisráðherra inn í „farsann". „I síðustu senum sjónleiksins blasir við fát og fum aðalleikenda. í hræðsluköstum yfir að kunna rull- una illa, er tekið að borga á sig í augum áhorfenda. Ríkisstjórnin samþykkir ríkisábyrgð þegar síldar- vertíð er lokið og Seðlabankinn vinnur löngu týndan ábyrgðasjóð sem nota má í sama skyni. Þegar hér er komið sýningunni er einstaka maður farinn að brosa út í annað enda fyndnin ekki komin á það stig að hlæja megi að henni með öllum kjaftinum," sagði í lok grein- ar Sverris. Minnismerki Jóns Sigurðssonar í þriggja síðna viðtalshlemmi í Morgunblaðinu 21. mars 1993 fékk Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra gusu frá Sverri, sem ög fleiri. Við- talið var tekið í tilefni þess að ríkis- stjórnin hafði ákveðið að veita bankanum þriggja milljarða skil- yrta fyrirgreiðslu vegna slæmrar eiginfjárstööu bankans. Þegar Sverrir var spurður um hvað það væri í skilyrðunum sem ríkisstjórnin setti vegna fyrir- greiðslunnar sagði hann að það væri ekkert. „Þetta er í byrjun aðallega sett upp vegna þess að bankamálaráðherran er þama, eins og í öðru að reyna að smíða sér minnismerki. Hann vill geta sagt að það hafl verið hann sem kom því af stað að þessi stofnun end- urhæfði sig og endurskipulagði. Hann er bara nokkuð mörgum árum of seinn í það, en þetta vUl hann samt sem áður geta fest upp.“ Jón Sigurðsson svaraði ummæl- unum í DV. „Þetta er náttúrulega fjarstæða ein og merkilegt að manninum skuli detta þetta í hug. Svo segir hann ann- ars staðar í viðtalinu að aðgerðin stórstyrki Landsbankann og á því sé auðvitað nauðsyn... Stundum finnst manni eins og Sverrir sé ekki alveg skilinn við skark stjórnmálanna og það er raunar ekki fréttnæmt að hvíni í tálknunum á honum.“ Skalli Kristjáns Ragnarssonar Undir lok viðtalsins sem fyrr var vitnað í ræddi Sverrir um framtíð- ina og áfram yrðu fiskveiðar og sjávarútvegur aðalútflutningsgrein íslendinga. „Ég er hættur í pólitík og þess vegna má ég ekki spyrja: Davíö Oddsson forsœtisráöherra sá ástœðu til aó ávita Sverri i þingrœöu sama dag. Sagöi Davíö greinina ekki hafa veriö við hœfi. Hún heföi hins vegar veriö vel skrifuö. Máliö varöandi síldarlán til Rússa heföi verið illa unniö frá hendi Landsbankamanna sem heföu ékki unniö heimavinnu sína. bregðast jákvætt við lágum verð- bólguspám. „Ég vil ekki fara að eiga orðastað við pólitíkusa um vaxtamál," var það eina sem Sverrir Hermannsson hafði um ummæli Davíðs Oddsson- ar að segja. í maí á síðasta ári, nánar tiltekið á aðalfundi SH, hélt Sverrir ræðu þar sem hann sagði að á íslandi væri kreppa óráðsíu, offjárfestingar og gegndarlausrar eyðslu. Skýrin- garnar á þessu væru kunningskap- ur, fyrirgreiðsla og atkvæðakaup stjórnmálamanna. Hann sagði að það yrði að koma í veg fyrir halla- rekstur á ríkissjóði og að næsta rik- isstjórn yrði viðlagastjórn um fjár- mál ríkisins. Hann sagði jafnframt að bylting væri yfirvofandi þegar verið væri að mala þjóðarauðinn undir örfáa menn og skaut væntan- lega þar með á „útgerðarkóngana" í landinu. Þegar ræðan var borin undir Kristján Ragnarsson, formann LtÚ, sagði hann: „Ræðan gekk út á það hvernig stjórnmálamenn misfæru með fé og þess háttar. Ég sagðist hafa skilið þessa ræðu sem lífs- reynslusögu bankastjórans sem al- þingismanns, „kommísars" og ráð- herra.“ Um mulinn auð undir fáa menn sagðist Kristján furða sig á að bankastjóri Landsbankans skuli tala svona um stærstu viðskiptavini bankans. Farið hefur fé betra í nóvember síðastliðnum lét for- sætisráðherra hafa eftir sér í frétt- um Stöðvar tvö að lækkuðu bcmkar ekki vextina meira ætti að fara þess á leit við bankaráð ríkisbankanna að skipta um bankastjóra, m.ö.o. að reka þá sem nú sitja. Þegar ummæl- „Rœóan gekk út á þaö hvernig stjórn- málamenn misfœru meöféog þess háttar. Ég sagöist hafa skiliö þessa rœöu sem lífsreynslusögu bankastjórans sem alþingismanns, „kommísars“ og ráö- herra, “ sagöi Kristján Ragnarsson, formaöur LÍÚ, um rœöu Sverris á aöalfundi SH. i hann varð bankastjóri Landsbank- - ans. Óplægður er sá akur ummæla sem hann lét falla á Alþingi og -er ekki pláss hér til að tíunda þau, lík- lega þyrfti heila bók til. Undanfarna mánuði og misseri hafa þó fleiri um-é mæli fallið en hér eru birt. Ekki en nema ár liðið frá því hann kallaði Matthías geðillan og ellimóðan. Sennilega hefur þessi Vestfirðingur náð sér hvað best á flug þegar hann hefur rætt við sveitunga sína endæ létu hann og Matthías þau ummæli, eitt sinn falla eftir fund sinn að þeir hefðu rætt saman á vestfirsku. Þar hafa þeir sennilega hitt naglann a höfuðið því orðfæri og mælska, eins* og Sverris, hefur einkennt fleiri stjórnmálamenn af Vestíjörðum er> hann einan. Líklega er Sverrir þó sér á parti í tilsvörum. -PP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.