Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Blaðsíða 50
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 Rúnar Geir Steindórsson prentari, Lambastekk 8, Reykjavík, verður sjötugur á morgun. Starfsferill Rúnar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp og í Gnúpverjahreppnum. Hann hóf nám í prentiðn í Steind- órsprenti og Víkingsprenti 1942 og lauk sveinsprófi í setningu 1946. Rúnar starfaði lengst af við vél- setningu en síðan við umbrot og loks við offsetprentun. Hann starf- aði m.a. hjá Hilmi til 1970, hjá prentsmiðjunni Eddu og loks í Fé- lagsprentsmiðjunni. Þá var hann um skeið línumaður hjá Landssíma íslands, var vörubílstjóri og stund- aði akstur farþegabifreiða. Rúnar hefur starfað mikið fyrir ÍR, einkum skíðadeildina, ogþá ekki síst að Kolviðarhóli og í Hamragili. Þá var hann einn af stofnendum knattspyrnudeildar ÍR. Hann sat í stjórn Skíðasam- • bands íslands í fimmtán ár. Þau hjónin fara mikið á skíði með barnabörnunum en eiginkona Rúnars varð nítján sinnum ís- landsmeistari á skíðum og fyrst ís- lenskra kvenria til að keppa á vetrarólympíuleikum. Fjölskylda Rúnar kvæntist 6.11.1958 Jakob- ínu Valdísi Jakobsdóttur, f. 21.11. 1932, húsmóðurog starfsmanni Félagsmálastofnunar Reykjavík- urborgar. Hún er dóttir Jakobs Gíslasonar, skipstjóra og fiskmats- manns á ísafirði, og k.h., Guðbjarg- ar Hansdóttur húsmóður. Börn Rúnars og Jakobínu Valdís- ar eru Jakob, f. 8.1.1958, vélfræð- ingur í Kópavogi, kvæntur Rann- veigu Guðmundsdóttur fóstru og eiga þau þrjú böm; Guðrún Lilja, f. 23.3.1960, kennari í Hafnarfirði, gift Elvari Guðjónssyni, viðskipta- fræðingi og framkvæmdastjóra, og eiga þau þijú böm; Vignir Guð- björn, f. 18.12.1965, póstbílstjóri og skíðakennari í Reykjavík; Gunnar, f. 4.9.1967, sölumaður í Reykjavík, og á hann eitt bam; Benedikt Hans, f. 18.2.1970, sölumaður íReykjavík. Systkini Rúnars: Bjöm, f. 25.2. 1912, látinn, bifvélavirki; Guðni Örvar, f. 1.11.1913, látinn, bílstjóri og símamaður; Kristrún, f. 12.3. 1915, húsmóðir; Einar Þórir, f. 9.10. 1916, látinn, bifvélavirki, faðir Hö- skuldar, fyrrv. formanns Lands- sambands slökkviliðsmanna; Gunnar, f. 24.10.1918, látinn; Vignir Guðbjörn, f. 12.12.1919, látinn; Guð- rún Eybjörg, f. 17.1.1921, látin; Steinunn María, f. 6.11.1922, píanó- kennari, móðir Björn Vignis Sig- urpálssonar blaðamanns. Foreldrar Rúnars vora Steindór Björnsson frá Gröf, f. 3.5.1885, d. 14.2.1972, fimleikakennari og efnis- vörður Landssímans, og k.h., Gur- ún Guðnadóttir húsmóðir. Ætt Steindór var sonur Björns, hreppstjóra og alþm. í Grafarholti, bróður Eyvindar, afa Bjöms Ey- vindar Björnssonar yfirverkfræð- ings. Bjöm var sonur Bjöms, b. í Vatnshorni, Eyvindssonar, og Sól- veigar, systur Árna, langafa Bjöms Th. Bjömssonar listfræðings. Sól- veig var dóttir Björns, prests á Þingvöllum, Pálssonar, prests á Þingvöllum, Þorlákssonar, bróður Jóns, prests og skálds á Bægissá. Móðir Björns var Sigríður Stefáns- Anna Bára Kristinsdóttir Anna Bára Kristinsdóttir hús- móðir, Gránufélagsgötu41A, Akur- eyri, verður áttræð á morgun. Starfsferill Anna Bára fæddist á Brattavöll- um á Árskógsströnd og ólst upp á Árskógsströndinni. Hún var fjórt- án ár vinnukona í Fagraskógi þar sem hún kynntist manni sínum en þau fluttu inn á Akureyri áriö 1946. Fyrstu árin bjuggu þau í Laxdals- húsi en síðar í húsinu Carolina Rest í tuttugu og eitt ár. Síðustu búskaparárin bjuggu þau í Glerár- hverfi eða þar til þar tU eiginmaður Önnu Báru lést. Hún býr nú að heimili fósturdóttur sinnar að Gránufélagsgötu á Akureyri. Fjölskylda Maöur Önnu Bám var Elí Olsen, f. 11.5. 1921, d. 7.12.1988, sjómaöur af færeyskum ættum. Anna Bára og Elí eignuðust tíu börn og fósturbörn. Börn þeirra: Friðberg, f. 22.7. 1933, starfsmaður við Fiskiðjuna á Sauðárkróki, ekk- ill, á hann eitt barn; Örn, f. 1.10. 1941, starfsmaður hjá Slippfélaginu á Akureyri, kvæntur Ingibjörgu Egilsdóttur húsmóður og eiga þau flögur böm; Elspa, f. 6.8.1946, hús- móðir á Akureyri, og á hún fimm böm; Sigurður, f. 24.6. 1947, bíl- stjóri hjá Kjarnafæði, búsettur á Akureyri og á hann þrjú börn; Vil- borg, f. 22.10.1949, húsmóðir á Ak- ureyri, gift Jóni Bjarna Jóhannes- syni og eiga þau þrjú börn; Geir- þrúð, f. 23.4.1951, húsmóðir á Akur- eyri, gift Ingimar Marinó Víglunds- syni, starfsmanni hjá Odda, og eiga þau íjögur böm; Jonna, f. 3.11.1952, húsfreyja í Beijanesi undir Eyja- fjöllum, en maöur hennar er Vigfús Andrésson kennari og á hún íjögur böm; Ragnar Þór, f. 7.4.1955, stýri- maður á Akureyri, kvæntur Erlu Helgadóttur húsmóður og eiga þau þrjú börn; Hallur Mar, f. 1.6. 1956, búsettur á Akureyri, kvæntur Hjördísi Rut Jónasdóttur hjúkrun- arfræðingi og eiga þau þrjú böm. Fósturdóttir Önnu og Elí er Anna Elísa, f. 9.4. 1965, leikskólakennari á Akureyri, gift Amari Yngvasyni, starfsmanni hjá Odda, og eiga þau tvær dætur. Foreldrar Önnu Báru vora Krist- inn Pálsson járnsmiöur og Sigríður Aðalbjörg Jóhannsdóttir en þau bjuggu lengst af á Árskógsströnd- inni. Anna Bára tekur á móti gestum í Húsi aldraðra við Gránufélags- götu, milli kl. 15.00 og 19.00 í dag. JónÓmar Jóhannsson Jón Ómar Jóhannsson, öryggis- vörður hjá Reykjavíkurborg, Vatnsstíg 11, Reykjavík, er fertugur í dag. Starfsferill Jón Ómar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Skuggahverfinu. Hann hefur starfað hjá Ölgerð Eg- ils Skallagrímssonar, fyrst sem sendisveinn en síðar starfsmaður í verksmiðju, starfaði í þrjú ár hjá Eimskipafélagi íslands, vann hjá Kassagerð Reykjavíkur um skeið og hjá bifreiöaverkstæðinu Bjarma en hefur verið öryggisvörður hjá Reykjavíkurborg frá 1993. Fjölskylda Systir Jóns Ómars er Klara Jó- hannsdóttir, f. 16.11. 1947, banka- starfsmaður í Reykjavík. Foreldrar Jóns Ómars voru Jó- hann Benediktsson, f. 14.7.1910, d. 27.2.1977, verkamaður í Reykjavík, og Helga Guðjónsdóttir, f. 6.12.1912, d. 20.9. 1977, húsmóðir. dóttir, prests á Breiðabólstað í Fljótshlíð, Högnasonar prestafoður Sigurðssonar. Móðir Sigríöar var Guðrún, systir Björns, prófasts í Sauðlauksdal, Halldórssonar. Móð- ir Sólveigar var Þórunn Björns- dóttir, prests í Hítardal, Benedikts- sonar og Sólveigar Ásgeirsdóttur, prófasts á Stað í Steingrímsfirði, Jónssonar, langafa Kristínar, ömmu Ásgeirs Ásgeirssonar for- seta. Móðir Steindórs var Kristrún Eyjólfsdóttir frá Stuðlum í Reyðar- firði. Guðrún var dóttir Guöna, b. á Keldum, bróður Vilborgar, ömmu Vigdísar forseta. Guðni var sonur Guðna, b. á Keldum, bróður Þor- varðar, langafa Margrétar, móður Bjargar Sveinsdóttur myndlistar- manns. Guðni var sonur Guðna, b. í Saurbæ, bróður Sigríðar, langömmu Halldórs Laxness. Guðni var sonur Gísla, ættfóður Reykjakotsættarinnar, Jónssonar. Móðir Guðna yngra á Keldum var Ástríður Finnsdóttir, b. á Kaldár- höfða, Finnssonar og Ingveldar Jónsdóttur. Rúnar Geir Steindórsson. Móðir Guðrúnar var Guðrún Ey- björg Sigurðardóttir, b. í Haukadal í Biskupstungum, Guðmundsson- ar. Rúnar og Jakobína taka á móti gestum í félagsheimili ÍR við Skóg- arsel á á morgun milli kl. 15.00 og 18.00. Til hamingju með afmælið 28. október 85 ára 60ára Kristín Kristjánsdóttir, Hvammi, Húsavík. Steingrímur Jónsson, Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík. 80 ára Ingibj örg Jónsdóttir, Skagfirðingabraut 1, Sauðárkróki. Ragnheiður Ólafsdóttir, Selvogsbraut23, Þorlákshöfn. Guðrún Ármannsdóttir, Sílalæk I, Aðaldælahreppi. Óskar Hraundal, Hvassaleiti 56, Reykjavík. Kristín Salómonsdóttir, Hjúkrunarheimilinu Eir við Gagn- veg, Reykjavík. 75 ára Sigurgeir Jónasson, Vogum n, Skútustaðahreppi. Björn Sigurðsson, Árskógum 6, Reykjavík. Sigrún Bárðardóttir, Snekkjuvogi 12, Reykjavík. Jón Karl Þórhallsson, Hlíðarstræti 6, Bolungarvík. Margrét Kristófersdóttir, Kúludalsá I, Innri-Akraneshreppi. Margrét er að heiman. 70 ára Kristján Blær Ásmundsson, Lindahlíð, Aðaldælahreppi. Gunnar Matthíasson, Grenimel 25, Reykjavík. Ólafur Stefánsson, Stafholti 3, Akureyri. Gústaf Sigurjónsson, Eystri-Torfastöðum II, Fljótshlíð- arhreppi. Elliði Magnússon frá Engjabæ við Holtaveg, pípulagningarmeistari, Suðurhólum 14, Reykjavík. Anna Þorvarðardóttir, GarðarsvegiS, Seyðisfirði. Anna Lilja Kvaran, Gaukshólum 2, Reykjavík. Guðmundur Tryggvi Sigurðsson, Hvammstangabraut 24, Hvamm- stanga. Guðbjörg Jónsdóttir, Engjaseli 54, Reykjavík. 50ára Sigurlaug Þórðardóttir, gjaldkeri hjáDV, Melbæ 15, Reykjavík. Ari Sigurjónsspn, Smiðjugötu 10, ísafirði. Ingi Friðbjörnsson, Grundarstíg 28, Sauðárkróki. Guðmundur Snævar Ólafsson, Hrafnhólum 4, Reykjavík. Þórður Þorgeirsson, Staðarseli 3, Reykjavík. Örvar Sigurðsson, Lækjargötu 34E, Hafnarfirði. Birgitta Guðlaugsdóttir, Heiðvangi 6, Hafnarfirði. 40ára Lilja Pálsdóttir, Setbergi 27, Þorlákshöfn. Jóhanna Kristín Arndal, Dalhúsum 56, Reykjavík. Sæmundur Runólfsson, Vesturhúsum 11, Reykjavík. Eiríkur Ásmundsson, Þverholti 32, Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.